Fregnir - 01.03.2007, Qupperneq 16
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
stað 31. ágúst og fulltrúi frá Thomson
ISI, sem gefur út Web of Science var
með kynningar og þjálfun í gagnasöfnum
þeirra 4.-5. október á Akureyri og í
Reykjavík.
Síðari hluta ársins var unnin mikil
vinna að því að endumýja samninga við
Blackwell, Elsevier, Karger, Springer og
Thomson til næstu þriggja ára. Hitinn og
þunginn af þeirri vinnu var í höndum
samninganefnda sem vom skipaðar Önnu
Guðnadóttur, Eiríki Einarssyni, Guðrúnu
Tryggvadóttur, Sólveigu Þorsteinsdóttur
og Þorsteini Hallgrímssyni. Samhliða því
voru viðræður við Britannica Online um
framlengingu á samningi eftir 1. maí
2007. Á árinu var unnið að því að taka
upp landsáskrift að Ebsco sem varð að
veruleika um miðjan janúar 2007. Nokkr-
ir aðilar hafa tekið að sér að kosta lands-
aðgang að tímaritasafni Sage sem varð
aðgengilegt í janúar 2007. Á árinu vann
fjöldi fólks í háskóla-, rannsóknar-, heil-
brigðis- og stjómsýslubókasöfnum að
greiðsluskiptingu fyrir rafræn tímarit sem
er dýrasti hluti landsaðgangsins.
í lok desember var skrifað undir nýjan
þjónustusamning um framkvæmd lands-
aðgangsins milli menntamálaráðuneytis
og Landsbókasafns íslands - Háskóla-
bókasafns sem rekur aðganginn. Nokkur
breyting verður við tilkomu þessa nýja
samnings. Þær helstu eru að innkaupa-
nefnd aðgangsins lýkur störfum og skip-
uð verður stjómamefnd sem verður valin
á ársfundi landsaðgangsins, sem verður
haldinn í fyrsta skipti 14. mars á þessu
ári. Innkaupanefnd hefur starfað eftir
eldri þjónustusamningi síðan árið 2002
og em henni þökkuð mikil störf í þágu
aðgangsins. Gerðir verða samningar við
greiðendur til aðgangsins.
Ársfundur landsaðgangs var haldinn í
fyrsta skipti 14. mars eftir nýjum þjón-
ustusamningi. Þar er kveðið á um að
skipuð skuli stjómamefnd til ráðgjafar
Landsbókasafni íslands - Háskólabóka-
safni, sem rekur aðganginn. Stjómar-
nefnd er skipuð fimm manns til þriggja
ára. í henni sitja Anna Torfadóttir, Guð-
rún Pálsdóttir, Guðrún Tryggvadóttir,
Sigurður Hafsteinsson og Sólveig Þor-
steinsdóttir. Landsbókavörður stýrir fund-
um nefndarinnar. Sigurður er ljármála-
stjóri HÍ, sem er stærsti einstaki greiðandi
að landsáskriftum. Haustið 2007 mun
Guðrún Pálsdóttir víkja úr nefndinni og
Pálína Héðinsdóttir tekur sæti hennar.
Almennt má tala um röskan vöxt notk-
unar á árinu 2006 eftir hægan vöxt árið
áður. Þegar þetta er skrifað er verið að
fara yfir tölur frá Blackwell, sem sýna
mikinn vöxt notkunar árið 2006. Að þeim
frátöldum voru sóttar 700.170 greinar í
fullum texta árið 2006 gagnstætt 553.632
árið áður, eða 26,5% aukning. Áskriftir
að rafrænum tímaritum munu kosta um
85 milljónir króna og áskriftir að gagna-
söfnum, þar með töldum söfnum Pro
Quest og Ebsco, munu kosta rúmar 24
milljónir króna. Allar nánari upplýsingar
eru í ársskýrslu og á vef landsaðgangsins,
http://hvar.is.
Sveinn Olafsson
umsjónarmaður landsaðgangs
Hirsla - varðveislusafn LSH
www.hirsla.lsh.is
Með stóraukinni útgáfu tímarita á rafrænu
formi hafa vaknað áleitnar spumingar um
örugga varðveislu útgefínna vísindaniður-
staðna. Rafrænn aðgangur í dag er ekki
trygging fyrir rafrænum aðgangi á næsta
ári. Tímarit ganga kaupum og sölum milli
útgefenda og standa bókasöfn jafnvel
frammi fyrir því að þurfa að kaupa aftur
aðgang að tímaritum sem þau hafa haft í
áskrift. Þessum áhyggjum hafa vísinda-
menn, starfsmenn bókasafna og stjórnend-
ur stofnana deilt. Um allan heim er reynt
að bregðast við yfírvofandi vanda með
uppbyggingu svokallaðra rafrænna varð-
veislusafna.
Hirsla - varðveislusafn Landspítala -
háskólasjúkrahúss (LSH) var opnuð
formlega þann 19. maí 2006 á „Vísindum
á vordögum" sem er árlegur vísindadagur
Landspítalans.
Markmiðið með Hirslunni er að varð-
veita útgefið vísindaefni LSH og gera það
aðgengilegt á heimsvísu, það er í opnum
aðgangi, „open access“, og á Varðveislu-
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 16