Fregnir - 01.03.2007, Qupperneq 17
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
safnið á að endurspegla sem best vísinda-
og fræðastarfsemi á LSH.
Hirslan er sérhönnuð til að vista, varð-
veita og miðla því vísinda- og fræðsluefni
sem háskólamenntaðir starfsmenn spítal-
ans hafa gefið út samhliða vinnu sinni eða
námi við spítalann. Hirslan er byggð upp,
skipulögð, stjómað og þjónustuð af starfs-
mönnum bókasafns LSH samkvæmt hug-
myndafræðinni um opið aðgengi að gögn-
um sem em ijármögnuð af opinbem fé.
Slík varðveislusöfn eða „open reposito-
ries“ em orðin algeng víða um heim.
Kostir safnsins em margþættir og nýt-
ast ólíkum hópum á Qölbreyttan hátt.
A) Fyrir stjómendur LSH nýtist safnið við
mat á umfangi og gæðum vísindastarf-
semi sem fram fer á spítalanum meðal
annars til samburðar við vísindastarf-
semi annarra stofnana.
B) Fyrir vísindamenn og höfunda verður
einfaldara að koma rannsóknum og
skrifum á framfæri og aðgangur að þeim
verður tryggður.
C) Fyrir starfsmenn og nemendur tryggir
safnið einfalt og vel skipulagt aðgengi
að vönduðu íslensku vísinda- og náms-
efni sem vinnufélagar eða kennarar
þeirra hafa skrifað. Efnið er aðgengilegt
óháð staðsetningu og tíma.
D) Fyrir Bókasafns- og upplýsingasvið ein-
faldar það alla vinnu við söfnun, með-
ferð, viðhald og miðlun á íslensku rann-
sókna- og námsefni í heilbrigðis- og líf-
vísindum.
E) Fyrir Vísinda- og rannsóknaþjónustu
auðveldar það alla vinnu við samantekt
útgefins vísindaefnis.
F) Fyrir stjómvöld í landinu og almenning
veitir safnið innsýn í það þróttmikla vís-
indastarf sem fram fer á spítalanum.
Varðveislusafnið er byggt á Dspace hug-
búnaðinum. Dspace hugbúnaðurinn var
hannaður og þróaður af MIT Libraries og
Hewlett-Packard Labs til að byggja upp
rafræn geymslusöfn fyrir háskóla og rann-
sóknastofnanir. DSpace er svokallaður
Open Source hugbúnaður og notaður víða
um heim.
Tæknileg þjónusta eins og uppsetning
hugbúnaðarins (grunnsins) á tölvukerfi,
uppfærsla og afritunartaka er í höndum
verktaka (þjónustuaðila) sem heitir Bio
Med Central. Hugbúnaðurinn sjálfur og
öll safngögn eru vistuð á netþjóni hjá
BioMed Central.
Fyrst í stað verður allt viðmót, þjónusta
og umsýslueiningar varðveislusafnsins á
ensku. I framtíðinni er ætlunin að íslenska
allt það sem hægt er og ná þannig að
bjóða upp á þann kost að velja um íslenskt
eða enskt viðmót.
Safnið er eins konar blendingssafn, það
er sambland af altexta gagnasafni (e. Full-
text database) þar sem hægt er að ná í
handritið í heild sinni og bókfræðigagna-
safni (e. bibliographical database) þar sem
einungis koma fram upplýsingar um
höfund, titil, útgáfustað, útgáfuár og þess
háttar og tengt er í allan texta á vefsetri
útgefenda.
Handritin eru opin öllum heiminum.
Eins og staðan er í dag þá eru handritin
örfá þar sem ekki hefur tekist að fá nema
fáa höfunda til þess að senda lokahandrit
til Hirslunnar. Unnið er að því að kynna
þennan möguleika fyrir höfundum og
vonir standa til að fá fleiri handrit send
þegar Hirslan hefur náð betri kynningu.
Samskonar vandamál glíma hin Norður-
löndin við og hefur þeim tekist að vista
aðeins 5% vísindahandrita sinna vísinda-
manna. Nokkrir útgefendur íslenskra heil-
brigðistímarita hafa samþykkt að leyfa
vistun greina á pdf formi.
Aðgangur að öllum texta útgefinna
tímaritsgreina á vefsetrum útgefenda er
ýmist takmarkaður við LSH eða ísland ef
um landsaðgangstímarit er að ræða. Þann-
ig eru flest allar birtar vísindagreinar frá
LSH aðgengilegar heilbrigðisstarfsmönn-
um LSH.
Höfundar geta skráð eigið vísindaefni
í grunninn samkvæmt viðurkenndum leið-
um og undir leiðsögn Bókasafns LSH.
Fáir nýta sér þennan möguleika og er efn-
ið í flestum tilfellum skráð af starfsmanni
safnsins.
Allar greinar eru lyklaðar og eru efnis-
orðin bæði á ensku og íslensku. Ensku
efnisorðin eru byggð á MeSH efnisorða-
kerfínu frá National Library of Medicine
en þau íslensku eru byggð á sama kerfí og
notað er í Gegni en það er Kerfisbundni
efnisorðalykillinn fyrir bókasöfn og upp-
lýsingamiðstöðvar. í þeim tilfellum þar
sem íslensk efnisorð fínnast ekki í Kerfis-
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 17