Fregnir - 01.03.2007, Qupperneq 18
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
bundna efnisorðalyklinum eru notuð
heimasmíðuð íslensk efnisorð.
Leitin er bæði skemmri leit og ítarleit.
Einnig er safnið flokkað í efnissvið skv.
MeSH frá National Library of Medicine
og hins vegar er efnið flokkað í samræmi
við svið og deildir spítalans og fær þá
hver flokkur sérstakt leitarhæft tákn.
Þannig geta til dæmis einstök svið kallað
fram allt sem þeirra starfsmenn hafa skrif-
að á hvaða efnissviði sem er. Greinar sem
eru vistaðar í safninu eru leitarhæfar á til
dæmis í Google.
Varðveislusafnið getur vistað gögn á
margs konar formi, svo sem texta-, hljóð-,
og myndaskrár. Þannig verður mögulegt
að vista fyrirlestra sem teknir hafa verið
upp. Til að varðveisla vísindaefnis eftir
starfsmenn LSH sé tryggð þarf að vista
vísindagreinar í þeirri útgáfu sem þær fara
til útgefanda. Flestir útgefendur leyfa
þannig vistun.
Fyrst í stað er einungis ætlunin að vista
og varðveita ritrýnd lokahandrit greina
eða bókarkafla sem samþykkt hafa verið
til útgáfu. Síðar verður bætt við ritgerðum
og veggspjöldum.
Háskólar á Norðurlöndunum hafa sam-
einast um samskonar varðveislusöfn og
vonandi verður samskonar samvinna með-
al háskóla hér á landi.
Ytarlegri upplýsingar um Hirslu er
hægt að nálgast með því að skoða þessa
vefslóð: http://www4.landspitali.is/lsh vt
ri.nsf/pages/busv 0005
Hafír þú áhuga á að setja tengil af vef-
síðu þinnar stofnunar í Hirslu er hægt að
gera eftirfarandi:
a) Tengill (hlekkur) á vefslóðina,
http://www.hirsla.lsh.is/
b) Fara á vefslóðina,
http://www.hirsla.lsh.is/lsh/html/2336/981
6/merki logo hirsla.htm og sækja þar
merki (lógo) eða leitarglugga Hirslu.
Sólveig Þorsteinsdóttir sviðsstjóri
Bókasafns- og upplýsingasviði LSH
Ný stjóm Blindrabókasafns
Stjóm Upplýsingar hefur tilnefnt Erlu Kristínu
Jónasdóttur, aðalmann og Hrafn A. Harðarson,
varamann, í stjóm Blindrabókasafns Islands
fyrir 2007-2011.
Frumkvæði og fagmennska
Fimmtíu ára afmæli kennslu í
bókasafns- og upplýsingafræði
Ráðstefna 23. mars 2007 ífyrirlestrasal
Þjóðminjasafns Islands
Bókasafns- og upplýsingafræðiskor hefur
á undanfömum mánuðum fagnað 50 ára
afmæli kennslu í greininni með margvís-
legum hætti. Þegar dagskrá fyrir afmælis-
árið var skipulögð var strax ákveðið að
hápunktur afmælishaldanna ætti að vera
ráðstefna þar sem ijallað yrði um þróun
fagsins og framtíðarsýn þess. Sama kvöld
skyldi haldin vegleg afmælishátíð þar sem
bókasafns- og upplýsingafræðingar gætu
komið saman og glaðst. Til að gera þetta
mögulegt fékk skorin til liðs við sig stóran
og öflugan hóp af starfandi bókasafns- og
upplýsingafræðingum sem komu að und-
irbúningi ráðstefnunnar og afmælisdag-
skrárinnar um kvöldið með einum eða
öðrum hætti. Einnig fengust rausnarlegir
ljárstyrkir til að halda ráðstefnuna.
Ráðstefnan Frumkvœði og fagmennska
var haldin í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns
Islands fostudaginn 23. mars síðastliðinn.
Ráðstefnan var fjölsótt en rúmlega eitt
hundrað manns sóttu hana. A þeim tíma-
mótum sem 50 ára afmæli kennslu í grein-
inni er gefst tilefni fyrir stéttina til að
staldra við, horfa vítt yfír sviðið og velta
því fyrir sér hvernig hún hefur þróast hér
á landi, en einnig að fræðast um það
hvemig áherslur í kennslu hafa þróast
annar staðar og hvaða hugmyndir erlendir
fmmkvöðlar hafa um framtíðarsýn fags-
ins. Fengnir vom tveir erlendir gesta-
fyrirlesarar til að ijalla um þessi málefni.
Dr. Ken Haycock prófessor, sem er yfír-
maður School of Library and Information
Science, San José State University í Kali-
fomíu, fjallaði um þróun í bókasafns- og
upplýsingafræði á 21. öldinni. Og Gitte
Larsen frá Danmarks biblioteksskole fjall-
aði um breytingar á hlutverki bókasafns-
og upplýsingafræðinga og tengsl símennt-
un og faglegrar þróunar.
Að lokinni ráðstefnunni var móttaka í
Þjóðarbókhlöðu í boði Landsbókasafns
Islands - Háskólabókasafns. Að henni lok-
inni var gengið yfír á Hótel Sögu til hátíð-
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 18