Fregnir - 01.03.2007, Blaðsíða 20
Fregnir. FréttabréfUpplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
ur prófessors að vera í forsvari fyrir grein-
inni og skila henni áfram.
Sigrún Klara lauk B.A. prófi í ensku,
íslensku og bókasafnsfræði frá Háskóla
íslands árið 1967. Hún lauk M.S.L.S prófí
(Master of Science in Library Science) í
bókasafnsfræði frá Wayne State Univer-
sity, Detroit í Michigan í Bandaríkjunum
árið 1968. Hún var fyrsti íslendingurinn
til að ljúka doktorsprófi í greininni en hún
lauk doktorsprófí frá Chicagoháskóla í
Bandaríkjunum 23. janúar árið 1987. I
meira en 18 ár var hún jafnframt eini ís-
lendingurinn með doktorspróf í bóka-
safnsfræði. Sigrán Klara er ennfremur
löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi úr
ensku.
Árið 1971 var Sigrán Klara ráðin
stundakennari í bókasafnsfræði og árið
1975 var hún skipaður lektor í bókasafns-
fræði og var þá jafnframt fyrsti fasti
kennarinn sem ráðinn var við greinina.
Hún var dósent frá 1984 til 1992 og pró-
fessor frá 1992 en gaman er að geta þess
að Sigrán Klara var fyrsta konan innan
félagsvísindadeildar til að hljóta pró-
fessorsstöðu.
Allan þann tíma sem Sigrún Klara var
við kennslu hafði hún með höndum upp-
byggingu greinarinnar. Óhætt er að full-
yrða að oft hefur hún þurft að sækja á
brattann við það mikla og vandasama starf
sem í því fólst. En hún tókst á við þetta
hlutverk af stórhug og skörungsskap.
Enda býr hún yfír þeim eiginleikum sem
til þarf; lifandi og frumkvæðum áhuga,
hugmyndaauðgi og kjarki til að hrinda
hugmyndum í framkvæmd, og dugnaði til
að fylgja þeim eftir.
Sigrán Klara starfaði óslitið við
kennslu og rannsóknir fram til ársins 1997
þegar hún fór í árs leyfí frá kennslu. Hún
hefur því starfað við kennslu í bókasafns-
og upplýsingafræði við Háskóla Islands í
rúmlega helming þess tíma sem boðið
hefur verið upp á það nám innan skólans.
Hún var ráðin, árið 1998, framkvæmda-
stjóri Nordinfo, the Nordic Council for
Scientific Information, sem hafði aðsetur í
Helsinki í Finnlandi. Árið 2002 tók hún
við starfí landsbókavarðar og gegndi því
fram til 30. mars 2007 er hún lét af störf-
um.
Auk þess sem hér hefur verið nefnt
hefur Sigrún Klara gegnt ótal tránaðar-
störfum bæði hér á landi og á alþjóðlegum
vettvangi. Hún var sæmd riddarakrossi
hinnar íslensku fálkaorðu 1. janúar 2003
fyrir framlag til bókasafns- og upplýs-
ingafræða.
Á þeim langa tíma sem Sigrán Klara
hefur verið við Háskóla Islands hefur hún
sýnt mikinn metnað fyrir hönd greinarinn-
ar og ávallt verið tilbúin til að sinna henni
á einstaklega ósérhlífinn hátt. Undir henn-
ar stjórn efldist greinin og dafnaði. Sig-
rúnu Klöru er það einkar vel gefíð að sjá
fyrir þörfina áður en hún verður til og hún
hefur til að bera faglegt mat sem er byggt
á mikilli þekkingu, víðsýni og reynslu.
Sem kennari var hún einkar farsæl enda er
hún þeim hæfíleika gædd að það sem hún
segir festist í minni. Hún nær að fanga at-
hyglina og benda á það sem skiptir máli.
Hún er jafnframt ákveðin en ávallt tilbúin
að hlusta á skoðanir annarra svo fremi
sem þær eru byggðar á faglegum grunni.
Á þeim áratugum sem Sigrán starfaði
við greinina hefur hún komið að menntun
og þjálfun stórs hluta, og væntanlega
langflestra starfandi íslenskra bókasafns-
og upplýsingafræðinga. Hún á því afar
stóran þátt í þeirri fæmi og þekkingu sem
byggð hefur verið upp hjá stétt bókasafns-
og upplýsingafræðinga.
Fyrir hönd bókasafns- og upplýsinga-
fræðiskorar vil ég þakka Sigrúnu Klöru
fyrir hennar mikla og góða starf í þágu
greinarinnar. Það er afar dýnnætt að hafa
haft hana sem fmmkvöðul og í farar-
broddi við uppbyggingu kennslu í bóka-
safns- og upplýsingafræði.
Dr. Agústa Pálsdóttir dósent við bókasafns-
og upplýsingafrœðiskor Háskóla Islands
Nýr vefur Upplýsingar
Stjórn Upplýsingar hefur fest kaup á vef-
umsjónarkerfi frá Tónaflóði. Nú er verið
að flytja vefínn í nýtt umhverfi og hanna
útlit. Kerfíð býður upp á ýmsa möguleika,
svo sem innri og ytri vef og viðburða-
dagatal. Stefnt er að opnum vefsins á að-
alfundi félagsins 21. maí næstkomandi.
Stjórn Upplýsingar
32. árg. - I. tbl. 2007 - bls. 20