Fregnir - 01.03.2007, Side 22
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrceða
ursfélaga. Það var Svanlaug Baldursdóttir
sem lauk BA-prófi vorið 1964. Hún var
sannur forgöngumaður því næsta útskrift
var ekki fyrr en árið 1968.
Því miður sá Svanlaug sér ekki fært að
vera með okkur í kvöld en sendir kveðju
sína.
Kæra Sigrún Klara, innilegar þakkir
fyrir þitt framlag til kennslu, fræða og
félagsmála fagsins okkar og fyrir að vera
félaginu einstakur Haukur í homi sem
landsbókavörður.
Ég vil biðja Sigrúnu Klöm að koma og
veita heiðursskjali viðtöku. A það er
skrautritað: Sigrún Klara Hannesdóttir,
Upplýsing - Félag bókasafns- og upplýs-
ingafræða hefur útnefnt þig heiðursfélaga
fyrir frumkvöðlastarf í þágu bókasafna-
og upplýsingamála.
Þórdis T. Þórarinsdóttir
Gerðubergsráðstefnan 2007
Árleg Gerðubergsráðstefna um bama-
menningu var haldin laugardaginn 10.
mars síðastliðinn. Að henni standa auk
Gerðubergs, Borgarbókasafn Reykjavíkur,
Félag skólasafnakennara, IBBY á íslandi,
Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur og
Upplýsing, Félag bókasafns- og upplýs-
ingafræða. Að þessu sinni var fjallað um
Astrid Lindgren, bamabókahöfundinn ást-
sæla og yfírskriftin var Húmor og hug-
rekki. Dagskráin var bæði fróðleg og
skemmtileg að vanda. Fundarstjóri var
Ragnheiður Gestsdóttir og setti hún ráð-
stefnunakl. 10:30.
Dagskráin hófst með því að Silja
Aðalsteinsdóttir og Sigþrúður Gunn-
arsdóttir fluttu erindi sem þær nefndu
Astin, nátturan, sögurnar. Sigþrúður rakti
æviferil Astrid Lindgren og Silja las
tilvitnanir í bækur hennar. Þar kom fram
að sögumar endurspegla víða líf höfund-
arins. Stelpumar eru sterkar og ráðagóðar
en drengimir eiga oft erfitt. Astrid átti
sjálf sín erfíðu tímabil og varð að standa
sig. Hún var einlægur náttúmunnandi og
bömin í sögunum tengjast náttúmnni
sterkum böndum. Sigþrúður gat þess
einnig að Lindgren hefði verið heppin
með þýðendur á Islandi.
Næst flutti Katrín Jakobsdóttir
erindið Villta barnið og siðmenningin.
Hún skoðaði jaðarstöðu Línu langsokks.
Lína býr í útjaðri bæjarins og hefur allt
aðra sýn á lífið en aðrir bæjarbúar. Tommi
og Anna vinir hennar eru ímynd siðmenn-
ingarinnar og það yrðu oft árekstrar ef
bömin væm ekki svona skynsöm. Lína er
að gera tilraunir með sjálfsmynd sína.
Valið um að vera fín dama eða sjóræningi
hangir yfír henni alla söguna. Niðurstaðan
verður að hún vill ekki verða fullorðin.
Nú var gert hádegisverðarhlé, en að
því loknu tók til máls Helena Gormér,
sem er yfírmaður bamadeildarinnar Rum
för barn í Kulturhuset í Stokkhólmi. Hún
byrjaði á að segja frá Junibacken sem er
tileinkað Astrid Lindgren og sænskum
bamabókmenntum. Þetta svæði er á Djur-
gárden í Stokkhólmi og var opnað 1996.
Þama er hægt að upplifa ævintýri úr bók-
um Lindgren og annarra sænskra höfunda,
til dæmis með því að fara í eins konar lest
og koma við hjá ýmsum sögupersónum.
Einnig geta börnin tekið þátt í ævin-
týrunum, til dæmis hjá Línu og Kalla á
þakinu og er æskilegt að þau komi í fötum
sem þola þátttökuna. Þama er einnig
bamaleikhús. Árlega koma yfír 300.000
manns í þetta ævintýraland. Einnig talaði
Helena um Rum för barn, sem opnað var
1998 en það er bókasafn þar sem innrétt-
ingar og skipulag er miðað við þarfír
bama, en þar er einnig hægt að hlusta á
tónlist, mála o.m.fl. Bömin geta líka gert
bókamerki og skrifað á þau umsögn sem
þau skilja eftir í lesinni bók fyrir næsta
notanda. Aðsóknin að þessum stað er slík
að hafa verður ljósastýrðan aðgang. Sýndi
Helena myndir af báðum þessum stöðum.
Eftir erindið svaraði Helena fyrirspurnum
og tók þátt í umræðum.
Ragnheiður fundarstjóri kom með
marga góða fróðleiksmola, vangaveltur og
ábendingar. Sleit hún ráðstefnunni um kl.
14:00. Því má bæta við að ráðstefnan var
fjölsótt og afar vel heppnuð.
Inga Kristjánsdóttir
fulltrúi Upplýsingar í nefnd um
Gerðubergsráðstefn u
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 22