Fregnir - 01.03.2007, Qupperneq 25
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
kennara og starfandi bókasafns- og upp-
lýsingafræðinga alls staðar að úr Evrópu
til að ræða þau mál sem brenna á okkur
hverju sinni. A þeim tíma sem ráðstefnan
fór að taka á sig mynd, árið 1993, voru
landamæri Evrópu önnur en þau eru í dag
en hugmynd Bruyns gekk meðal annars út
á það að sameina fólk í fræðunum burtséð
frá þessum landamærum. Þessari hug-
mynd hefur verið viðhaldið síðan þá en æ
fleiri þjóðir hafa tekið þátt í skipulagningu
ráðstefnunnar og ráðstefnugestum fer sí-
fellt fjölgandi. í ár var ráðstefnan í Prag
sú fjölmennasta hingað til eða með um
400 ráðstefnugesti hvaðan af úr heim-
inum.
Fyrsta Bobcatsss ráðstefnan var haldin
í Búdapest árið 1993 og skipulögð af
Háskólanum í Amsterdam með Bryun
fremstan í flokki. Þrautseigja og hugsjón
Bryun er mikil en fyrstu fimm ráðstefn-
umar voru allar haldnar í Búdapest og
skipulagðar af Háskólanum í Amsterdam.
Bryun gekk út frá því að til að sameina
fólk innan fræðanna í Evrópu væri kjörið
að nemendur frá V-Evrópu heimsæktu A-
Evrópu undir merkjum bókasafns- og
upplýsingafræða því þar væri velmegunin
meiri og nemendur þaðan ættu auðveldara
með að ferðast en nemendur frá A-
Evrópu. í dag lítur landslagið allt öðruvísi
út og nokkuð ljóst að þessi gmnnhug-
mynd Bryun á eftir að taka breytingum
enda ráðstefnuaðilum og gestum sífellt að
fjölga.
Brottför og koma til Prag
Skipulagning ferðarinnar var langt í frá
flókin og því skemmtilegri. Við hittumst
fyrst í hádeginu í Odda í október þar sem
við komum öllum gmnnupplýsingum á
blað: með hvaða flugi við færum út og
hvenær og aftur heim. Hvaða hóteli við
ætluðum að gista á en á vefssíðu Bob-
catsss var mælt með nokkrum sem ráð-
stefnugestir gátu valið um með tilliti til
verðs og staðsetningar í borginni. Allt var
þetta hið minnsta mál. Því næst hittumst
við í janúar á kaffihúsi í Reykjavík og
hristum okkur saman sem hóp aðeins fyrir
brottför. Ekki leið á löngu áður en konrið
var að brottför, 27. janúar síðastliðinn.
Fyrst á annað borð var verið að fara til
Tékklands þá var nú ekki annað hægt en
að bæta einum degi við dvölina, til skoð-
unar. Við flugum til Kaupmannahafnar og
þaðan með SAS til Prag. Ferðalagið var
einfalt og þegar við vorum komnar til
Prag stóð þar allt eins og stafur á bók í
skipulaginu. Við vomm komnar út á laug-
ardagskvöldi, tilbúnar í að fá evrópsku
bókasafns- og upplýsingafræðin í fangið.
Alls konar erindi
Eins og á öllum ráðstefnum fer fyrst fram
skráning þar sem gestir fá meðal annars
bók sem inniheldur texta allra erinda á
ráðstefnunni. Auk þess fá gestir nákvæma
stundaskrá svo þeir eigi auðvelt með að
fínna stað og stund þeirra erinda sem
vekja hjá þeim áhuga. I þessari ferð, líkt
og þeirri fyrri, sóttum við allar ólík erindi,
allt eftir því hvar áhugi okkar liggur. Hér
á eftir fara samantektir um nokkur þessara
erinda.
Sara Stefánsdóttir: Web Data Mining
Ég sótti erindið Web Data Mining for
Competitive Intelligence hjá Liwen Vaug-
han frá Háskólanum í Westem Ontario,
Kanada. Ég hef lítið hugsað um annað
síðan.
Það er oft sagt að vefurinn, Netið, sé
hafsjór upplýsinga, mismikilla og mis-
góðra. Síðustu ár hafa verið að þróast nýj-
ar aðferðir við að ná jafnvel enn meiri
upplýsingum af vefnum - upplýsingum
um einstaklinga og fyrirtæki er safnað á
kerfísbundinn hátt með því sem er kallað
„web mining“ eða „web data mining“.
Upplýsingar sem þessar eru nýttar til að
fylgjast með, nálgast og spá fyrir um
hegðun neytenda og samkeppnisfyrir-
tækja. Svo lesendur átti sig á samhenginu
má nefna að Amazon.com nýtir sér
einmitt þessa tækni til þess að gera síður
sínar notendavænni með því að til dæmis
mæla með ákveðnum kaupum miðað við
fyrri kaup.
Eins og heitið gefur til kynna er þetta í
raun eins og nokkurs konar námugröftur.
Þrátt fyrir að dæmið hér að ofan um
Amazon.com virðist kannski saklaust þá
eru ýmsir siðferðislegir ókostir við þessar
aðferðir. Persónuupplýsingar okkar,
hversu litilíjörlegar sem oklcur þykir þær
dagsdaglega, verða að sjálfsögðu aldrei
metnar til fjár - eða hvað?
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 25