Fregnir - 01.03.2007, Síða 26
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Þessum aðferðum er auðveldlega hægt
að beita á vefnum og er beitt af langflest-
um alþjóðlegum stórfyrirtækjum til þess
að byggja upp svo kallaða „customer pro-
files“. í umræðunni fer hinsvegar minna
fyrir því að neytendur hafa með þessum
aðferðum sjálfír enga stjóm á hvemig
upplýsingar um þá eru notaðar; hvort þær
verða t.d. seldar í framtíðinni, í heild eða
hluta eða notaðar til að byggja upp
annarskonar verslun hjá sama fyrirtæki -
eða öðm fyrirtæki. Neytendur hafa enga
stjóm á hvort upplýsingum þeirra er vand-
lega haldið saman eða ekki - það sýnir sig
til dæmis í æ ríkari mæli að upplýsingar
sem þessar em notaðar til þess að hópa
saman ákveðnar „tegundir" af fólki/neyt-
endum þar sem einhverjir verða eftirsóttir
af ráðandi markaðsöflum á meðan aðrir
hópar verða óvinsælir eða jafnvel óæski-
legir.
Upplýsingar sem þessar verða því sí-
fellt verðmætari í nútíma markaðsum-
hverfí og aðferðir til þess að lesa út úr, til
dæmis vefheimsóknum og því hvemig
veftenglar og nöfn léna tengjast, gerast æ
einfaldari. Smærri og fleiri fyrirtæki á
vefnum hafa þ.a.l. nú betra tækifæri til
þess að nýta sér þessa tækni til þess að
fylgjast með, leita uppi og safna upplýs-
ingum um viðskiptavini sína. Fyrir nokkru
síðan hóf svo Google að bjóða upp á
niðurhal á litlu veftóli („ókeypis" gegn
innskráningu með notandanafni og per-
sónuupplýsingum) sem kallast Google
Analytics og auðveldar fyrirtækjum á
vefnum enn frekar að merkja hreyfíngar
viðskiptavina sinna. Google safnar að
sjálfsögðu öllum innskráðum persónuupp-
lýsingum þeirra sem hlaða niður veftólinu
- en ætli þeir hafí aðgang að öllum þeim
neytendaupplýsingum sem Google Ana-
lytics safnar?
Web Mining er spennandi að því leyti
að með tölvutækni má skrá, flokka og
vinna úr gríðarlegu magni upplýsinga til
þess að búa til nýjar og mjög verðmætar
markaðsupplýsingar. Ekkert okkar vildi
sjálfsagt heldur vera án þess að geta skoð-
að Amazon.com síðuna sína, flett fram og
tilbaka, séð eldri kaup og fínna góða bók
eftir meðmælum „Amazon“?
Kristín Lára Ragnarsdóttir: School
librarian - marketing specialist?! -
Skólabókasafnsfrœðingur - sér-
fræðingur í markaðssetningu?!
Fyrirlestur þeirra Michaelu Banek Zorica,
Sonju Spiranec og Nikolaj Lazic sem
komu frá Króatíu var mjög áhugaverður.
Þau höfðu gert könnun á því hvort bóka-
safnsfræðingar í skólasöfnum gerðu sér
grein fyrir mikilvægi markaðssetningar og
hvort þeir notuðu aðferðafræði markaðs-
fræðinnar. Niðurstöður þeirra voru að
bókasafnsfræðingar væru meðvitaðir um
að starfsemi þeirra væri markaðstengd en
þá skorti þjálfun og kennslu í markaðs-
fræðum. Rannsakendur vildu að markaðs-
fræði væri kennd í námi bókasafnsfræð-
inga og að boðið yrði upp á kennslu fyrir
starfandi bókasafnsfræðinga.
Markaðssetningu skólabókasafna líktu
þau við markaðssetningu fyrirtækja en án
ágóða. Ágóði safna með markaðssetningu
væri að efla orðspor safnsins, sem fengist
með faglegum vinnubrögðum, þróun
starfsins og starfsgreinarinnar.
Með tilkomu tölvutækninnar hefur
hlutverk bókasafnsfræðinga breyst, þeir
þurfa stöðugt að bæta við sig þekkingu og
fylgjast með nýjungum. Þeir þurfa að skil-
greina hlutverk safnsins og endurspegla
þörf notenda sinna sem eru nemendur,
starfsfólk, stjóm og foreldrar. Kynna þarf
safnið fyrir kennurum sem svo aftur
kynna safnið fyrir nemendum og hvetja þá
til að nota það í námi sínu. Imynd safnsins
ætti að hæfa þeirri menningu er það
starfar í.
Markaðssetning þeirra beindist einnig
að mikilvægi þess að skólasöfn hefðu
heimasíðu eða væri kynnt á heimasíðu
viðkomandi skóla til kynningar á starf-
semi sinni.
í könnun þeirra kom í ljós að 190
skólar (elementary and high schools)
hefðu vefsíður en af þeim voru 22 síður
með slóðir sem ekki virkuðu og/eða höfðu
ekki verið uppfærðar síðan 1997. Nokkrir
skólar höfðu vefsiðu þar sem fram kom að
þar væri bókasafn en enginn tengill var á
safnið og bókasafnsfræðingsins var ein-
ungis getið á starfsmannalistanum. Upp-
lýsingar vantaði um hversu margir skólar
eru í Króatíu og hversu stórt hlutfall þess-
32. árg. - I. tbl. 2007 - bls. 26