Fregnir - 01.03.2007, Side 28
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
73. þing IFLA í Durban
Suður Afríku
73. árleg heimsráðstefna IFLA um bóka-
safns- og upplýsingamál (World Library
and Information Congress, WLIC) verður
haldin í Durban í Suður Afríku dagana
19.-23. ágúst næstkomandi.
Yfirskrift ráðstefnunnar er: Libraries
for the Future. Progress, Development &
Partnerships.
Ráðstefnugjald fyrir fullgilda félaga
Upplýsingar er € 380 með skráningu eigi
síðar en 15. maí 2007 en € 85 hærra fýrir
aðra. Eftir 15. maí er gjaldið € 460 fyrir
félagsmenn og € 80 hærra fyrir aðra. Verð
fyrir „fylgifiska“ ráðstefnugesta er € 260.
Boðið er upp á sérstaka dagskrá fyrir þá
auk þess sem þeir geta tekið þátt í þeim
móttökum sem boðið er upp á. Kynnis-
ferðir eru í boði bæði á undan og á eftir
ráðstefnuna.
Á heimasíðu IFLA www.ifla.org undir
Annual Conference er að fínna nánari
upplýsingar um ráðstefnuna.
Sækja má um ýmsa styrki fyrir IFLA
ráðstefnur (eftir vinnustað), svo sem í
starfsmenntunarsj óði starfsmannafélaga
og stéttarfélaga (t.d. STRIB), Sáttmála-
sjóð, að ógleymdum Ferðasjóði Upplýs-
ingar. Einnig er sjálfsagt að sækja um
styrk til vinnuveitanda.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
Jólagleði Upplýsingar 2006
Jólagleði Upplýsingar 2006 var haldin í
Menntasmiðju Kennaraháskóla íslands
föstudaginn 24. nóvember síðastliðinn, kl.
20-22:30. Gleðin var að vanda ókeypis
fyrir fullgilda félaga í Upplýsingu og
haldin í samstarfi við Menntasmiðjuna.
í glæsilegu húsnæði safnsins var boðið
upp á ræðuhöld og tónlistaratriði, þar sem
Bama og unglingakór Dómkirkjunnar
undir stjóm Kristín Valsdóttur söng sig
inn í hjörtu viðstaddra.
Auk þess var boðið upp á gimilegar
léttar veitingar og notalega samverustund
í góðum félagsskap. Til leiks mættu hátt í
hundrað gestir með jólaskapið í fartesk-
inu.
Stjórn Upplýsingar þakkar Mennta-
smiðju Kennaraháskóla íslands innilega
fyrir samstarfíð og rausnarskapinn.
Sú skemmtilega hefð hefur skapast að
jólagleði félagsins er haldin til skiptis á
bókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu og
hefur sá siður mælst vel fyrir meðal fél-
agsmanna enda eru bókasöfnin kjörinn
staður til að koma saman og létta sér lund.
Bókasöfnin hafa jafnan tekið einstak-
lega vel í að halda jólagleði félagsins og
er það mikilvægur stuðningur vil félagslíf
þess. Bókasöfnunum og starfsfólki þeirra
eru hér með færðar alúðarþakkir.
Stjórn Upplýsingar
Yika bókarinnar 17.-23. apríl
Alþjóðadagur bókarinnar og
höfundaréttar 23. apríl ár hvert
Að vanda mun Félag íslenskra bókaútgef-
enda standa fyrir Viku bókarinnar. í ár
verður vikan frá þriðjudeginum 17. apríl
til og með mánudeginum 23. apríl.
Þjóðargjöfin - Ný bók á hvert heimili
Þjóðargjöfm er samstarfsverkefni Félags
íslenskra bókaútgefenda, bóksala og
Glitnis auk annarra sem hugsanlega taka
þátt í verkefninu. Markmiðið með henni
er að efla lestur bama og ungs fólks á ís-
landi og undirstrika að bækur eru lesnar
árið um kring. Þessir aðilar munu taka að
sér að innleysa þjóðargjöfína.
Send verður ávísun á hvert heimili að
verðgildi kr. 1.000 sem nýta má til bóka-
kaupa í bókabúðum ef keyptar eru bækur
útgefnar á íslandi fyrir a.m.k. kr. 3.000,
útlagður kostnaður er því aðeins kr. 2.000.
Gildistími ávísananna er ríflega tvær vik-
ur, frá 17. apríl til 7. maí.
Lestur og lestrarskilningur er megin-
forsenda fyrir aðgangi bama og unglinga
að flóknu samfélagi samtímans. Með
þjóðargjöfmni eru Islendingar hvattir til
að auka bóklestur þeirra. Bóklestur er
ekki aðeins einstök skemmtun sem örvar
ímyndunarafl og veitir aðgang að ókunn-
um heimum. Með honum eflist málþroski,
skilningur á samhengi, innsýn í flókin
málefni, ný þekking og vald á tjáningu.
Með þjóðargjöfmni er íslenskar fjölskyld-
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 28