Fregnir - 01.03.2007, Side 29
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
ur hvattar til að veita sér og bömum sín-
um hlutdeild í því einstaka ævintýri að
opna nýja bók og sökkva sér í lesturinn.
Benedikt Kristjánsson
Félagi íslenskra bókaútgefenda
Markaðssetning Bókasafns
Reykjanesbæjar á nýrri öld
Byggt á framsögu á fræðslufundi Bóka-
safns- og upplýsingafrœðiskorar H.I. 13.
september 2006 um kynningarstarf al-
menningsbókasafna.
Það var í byrjun nýrrar aldar sem farið var
að huga markvisst að markaðssetningu
Bókasafn Reykjanesbæjar þó margt hafi
verið gert árin á undan sem fallið gæti
undir markaðssetningu. Þar skipti mestu
að bókasafnið flutti í október árið 1993 úr
afar óhentugu og þröngu húsnæði á þrem-
ur hæðum í bjart og rúrnt húsnæði á einni
hæð. í kjölfarið var meðal annars hægt að
bjóða upp á ijölmennar samkomur og hef-
ur það tækifæri verið nýtt til hins ýtrasta.
Árið 1992 kom út bókin Marketing
eftir Suzanne Walters úr ritröðinni A
How-To-Do-It-Manual for Librarians. í
upphafi nýrrar aldar tók undirrituð að sér
að þýða og staðfæra aðalatriði bókarinnar
svo hún yrði aðgengileg fýrir allt starfs-
fólk safnsins. í framhaldi af því var farið
að huga markvissar að markaðssetningu
bókasafnsins. Okkar leiðarljós hefur verið
að laða að fleiri notendur með því að
bjóða upp á margvíslega þjónustu sem
eykur álit almennings á safninu og við-
heldur jákvæðri ímynd. Einnig að vera sí-
fellt að minna á okkur með ýmsum hætti.
í dag spyrjum við okkur reglulega
hverjum við eigum að þjóna og hvað við
þurfum að gera til að mæta þörfum nýrra
viðskiptavina, eins og háskólanemenda
sem fjölgaði mikið þegar kennsla á há-
skólastigi hófst í Reykjanesbæ árið 2000.
Þetta á bæði við um ljarnám við Háskól-
ann á Akureyri í gegnum Miðstöð sí-
menntunar á Suðumesjum og tilkomu
Íþróttaakademíu í Reykjanesbæ árið 2005.
Hér skiptir líka máli að vera vel í takt við
breytta tíma.
Starfsfólk leggur sig fram um að vera
vakandi fýrir nýjungum, grípa á lofti góð-
ar hugmyndir sem gefist hafa vel annars-
staðar og þær ræddar í daglegu morgun-
kaffi og á mánaðarlegum starfsmanna-
fundum.
Hér verður stiklað á stóm um ýmsar
hugmyndir sem gefist hafa vel.
• Samstarf. Ánægjulegt samstarf við ýms-
ar menningar- og fræðslustofnanir í bæn-
um hefur verið mikil lyftistöng fyrir alla.
Aðalsamstarfsaðilar bókasafnsins á und-
anfömum árum hafa verið menningar-
fulltrúi bæjarins og menningarstofnanir
bæjarins, Miðstöð simenntunar á Suður-
nesjum, Suðurnesjadeild Norræna félags-
ins, bókabúðin í bænum, Byggðasafn
Reykjanesbæjar, Tónlistarskóli Reykja-
nesbæjar og Áhugahópur um Listasafn
Erlings Jónssonar.
í samstarfi við þessa aðila hafa í
mörg ár verið haldnir árvissir menn-
ingarviðburðir sem hafa fest sig í sessi í
menningarlífinu og jafnan verið vel sótt-
ir. Bókasafnið hefur stimplað sig inn
sem menningarmiðstöð.
• Lestrarmenning í Reykjanesbæ. Vorið
2003 hófst Lestrarmenning í Reykjanes-
bæ sem var þriggja ára þróunarverkefni
til að auka yndislestur almennings og
leggja áherslu á mikilvægi lesturs í mál-
þroska bama. Bókasafnið kom frá upp-
hafi að verkefninu, hefur meðal annars átt
fulltrúa í stýrihópi og tekið saman bóka-
lista fyrir bæklinga. Barnabókavörður
hélt fyrirlestra í leikskólum fyrir foreldra
og starfsfólk og átti sæti í dómnefnd
vegna handritssamkeppni. Verkefnið
vakti mikla athygli á landsvísu og bóka-
safnið fékk þó nokkra athygli í kjölfarið.
• Koffort í leikskólum Reykjanesbæjar.
Bókasafnið hefúr í samstarfi við leikskóla
bæjarins hrint af stað verkefni sem miðar
að því að auka aðgengi barna og foreldra
að bókum og hvetja til aukins lesturs.
Verkefnið kallast „Koffort í leikskólum
Reykjanesbæjar“ en koffortin eru farand-
bókasöfn í trékistlum. Koffortin virka
eins og útibú frá bókasafninu og þar
minnum við ríkulega á okkur með texta á
límmiðum hverri bók.
Allir leikskólamir í Reykjanesbæ
koma einnig reglulega í heimsóknir á
bókasafnið þannig að tengingin á milli er
orðin býsna sterk. Barnabókavörður hefur
einnig endurgoldið heimsóknimar tvisvar
á ári, kynnt bækur og lesið.
• Sumarlestur. í þrjú ár höfum við boðið
grunnskólabömum í Reykjanesbæ upp á
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 29