Fregnir - 01.03.2007, Side 30
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
sumarlestur yfír sumarmánuðina. Árið
2006 hófst samvinna við grunnskólana í
því formi að grunnskólamir, sem allir
leggja áherslu á sumarlestur við nemend-
ur sína, og bókasafnið nota sameiginlega
bókaskrá þannig að bömin em ekki
lengur með eina skrá frá skólanum og
aðra frá bókasafninu. Bókaskráin er af-
hent við skólaslit en á íyrsta þátttökudegi
fá bömin veglegt bókamerki frá bóka-
safninu sem þau eru hvött til að nota yfir
sumarið. Á baksíðu em upplýsingar um
safnið.
• Ljósanótt. Ljósanótt er menningarhátíð í
Reykjanesbæ sem haldin hefur verið frá
árinu 2000. Á undanfömum árum hefur
Byggðasafn Reykjanesbæjar verið með
skemmtilegar ljósmyndasýningar á safn-
inu sem laðað hefur að fjölda gesta.
• Vaxandi upplýsingaþjónusta og milli-
safnalán. Eftir byltingu í vegasamgöng-
um á svæðinu hafa æ fleiri háskólanemar
kosið að búa í Reykjanesbæ þó þeir sæki
skóla á höfuðborgarsvæðið og íjamámið
hefúr aukið fjölda háskólanema í bænum.
Upplýsingaþjónusta í bæjarfélagi þar sem
Landsbókasafn er ekki í næsta nágrenni
er öðmvísi. Minna er vísað á Landsbóka-
safnið heldur lögð áhersla á að uppfylla
þörf lánþega á staðnum, meðal annars
með upplýsingaleit og millisafnalánum.
Lögð hcfur verið áhersla á að kynna upp-
lýsingaleiðir bæði fyrir útskriftamemend-
um Fjölbrautaskóla Suðumesja í Reykja-
nesbæ, háskólanemum og ýmsum stofn-
unum í bænum. Þetta hefur meðal annars
verið gert með kynningarbréfúm og einn-
ig bæklingum sem gefnir hafa verið út á
landsvísu (hvar.is og Gegnir).
Millisafnalánum hefur Qölgað mikið í
kjölfar þess að búið er að tengja mestall-
an safnkost bókasafnsins við Gegni.
Þannig ijölgaði millisafnalánum milli ár-
anna 2005 og 2006 úr 43 í 318.
Að laða að gesti og minna á okkur
• Við kynnum laugardaga sem fjölskyldu-
daga á bókasafninu. Við hvetjum fjöl-
skylduna til að koma saman, setjum fram
dót fyrir yngstu bömin og bjóðum upp á
aðgang að spilum.
• Við bjóðum félagasamtökum í bænum að
halda fúndi á safninu, kynna samtök sín
og starfsemi og fá safnkynningu i leið-
inni.
• Við bjóðum upp á bókaspjall og bóka-
kynningar til að kynna nýjasta safnefnið
og gefum áhugafólki kost á að spjalla
saman um bækur.
• Við sendum reglulega frá okkur fréttatil-
kynningar í blöð, skrifúm greinar og segj-
um frá sitthverju markverðu. Við höfum
góð tengsl við fjölmiðla á svæðinu og úr
þeim ratar ýmislegt í landsfjölmiðlana.
Við sendum einnig kynningarefni inn á
hvert heimili, svo sem póstkort til að
kynna þjónustuna sem í boði er.
• Við höldum úti vefsíðu þar sem við segj-
um bókasafnsfréttir, minnum á mikilvægi
lesturs, bjóðum fram margvíslegt áhuga-
vert efni og vekjum athygli á bókum fyrir
alla aldurshópa.
• Við notum mikið af heimagerðu efni,
mestmegnis bókamerki sem við afhend-
um gestum til að minna á ýmsa þjónustu-
þætti en ekki síður til að skemmta fólki.
Þannig hafa öskudagsgestir bókasafnsins
fengið vegleg bókamerki á undanförnum
árum full af fróðleik um skemmtilega siði
á þorra og góu.
Svanhildur Eiriksdóttir
Bókasafni Reykjanesbœjar
„Konan í Norðri“
Þema Norrænu bókasafnavikunnar 2007
Stærsti bókmenntalegi upplestrarviðburð-
ur Norðurlanda, Norræna bókasafnavik-
an, verður haldin í 11. sinn dagana 12.-
18. nóvember 2007.
Þema vikunnar er að þessu sinni Kon-
an í Norðri en það vísar til þeirra sterku
og sjálfstæðu kvenpersóna sem oft má
lesa um í bókmenntum Norðurlanda.
I ár verður lög áhersla á verk tveggja
norrænna rithöfunda: Sigrid Undset
(1882-1949) frá Noregi og hinnar sænsku
Astrid Lindgren (1907-2002). Við opn-
unarathöfn Norrænu bókasafnavikunnar
verða lesnir upp textar úr bókunum Kris-
tín Lavransdóttir, Ronja Rœningjadóttir
og Lína langsokkur ætlar til sjós. I ár eru
100 ár liðin frá fæðingu Astrid Lindgren
og vissulega hafði það áhrif á val texta
fyrirNorrænu bókasafnavikuna.
Það eru Samband Norrænu félagana
(FNF), PR-hópur Norrænna bókasafna og
Norræna ráðherranefndin sem standa á
bak við þetta einstaka verkefni sem er eitt
það stærsta í heimi af sínum toga.
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 30