Fregnir - 01.03.2007, Síða 31
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Á sama tíma á hverju ári er lesinn
upphátt sami texti úr völdum norrænum
bókmenntum á meira en 2.000 bókasöfn-
um, skólum og samkomustöðum um öll
Norðurlönd og Eystrasaltslöndin. Mörg
þúsund Norðurlandabúar taka þátt í þeim
ijölmörgu viðburðum sem boðið er upp á
í Norrænu bókasafnavikunni. Á síðasta ári
tóku 2.350 stofnanir í átta löndum þátt.
Viðburðurinn hefur einnig vakið athygli
utan Evrópu þar sem fjölmargir norrænir
skólar og stofnanir taka þátt.
Nánari upplýsingar er að finna á vef
verkefnisins: www.bibliotek.org eða hafið
samband við verkefnastjórann Carl Liung-
man (FNF): carl@norden.se, Sími: +46
(0)40 23 86 10 - Fax: +46 (0)40 23 84 10
eða undirritaðan holmkell@akureyri.is. s.
460 1253.
Hólmkell Hreinsson
Amtsbókasafninu á Akureyri
Farandbókasöfn í öllum
leikskólum Reykjanesbæjar
Þann 1. febrúar síðastliðinn var verkefni
Bókasafns Reykjanesbæjar „Koffort í
leikskólum Reykjanesbæjar" formlega ýtt
úr vör í einum leikskóla bæjarins. Það var
leikskólanemandinn Rúnar Júlíusson á
Heiðarseli sem tók fyrstu bækumar að
láni og naut hann aðstoðar móður sinnar,
Guðnýjar Kristjánsdóttur, en hún er full-
trúi í menningarráði Reykjanesbæjar og
eini fulltrúinn í ráðinu sem á barn í leik-
skóla.
Rúnar Júlíusson velur sér bækur úr koffortinu
Koffortin em farandbókasöfn í tré-
kistlum og eru á vegum bókasafnsins í
samvinnu við leikskólana í Reykjanesbæ.
Kistlarnir eru fullir af bókum fyrir börn á
leikskólaaldri og virka því eins og útibú
frá bókasafninu. Einn kistill er í hverjum
leikskóla sem síðan flakkar á milli deilda.
Markmiðið með verkefninu er að auka
aðgengi foreldra og bama að bókurn og
hvetja foreldra til að lesa fyrir böm sín.
Tilgangurinn er einnig að minna á bóka-
safnið og hversu mikilvægt það er að lesa
fyrir böm frá unga aldri. Tilvalið er fyrir
foreldra að grípa bók með sér heim þegar
barnið er sótt í leikskólann.
Hvert barn getur fengið eina til tvær
bækur að láni í senn í allt að viku.
Foreldrar sjá sjálfir um að kvitta fyrir
útlánum í þar til gerða stílabók sem fylgir
hverju kofforti.
Frá því að verkefnið hófst hafa ekkert
heyrst nema ánægjuraddir, bæði frá
foreldrum og starfsfólki leikskólanna og
hefur ásókn í bækurnar verið mikil.
Næsta skref í þessu verkefni er að
bjóða innflytjendum og bömum þeirra
bækur með hljóðbókum. í samvinnu við
Blindrabókasafn íslands hafa verið lesnar
á diska einar 30 bækur fyrir yngstu bömin
og mun áðurnefndum hópi standa til boða
að fá að láni bók og hljóðbók til að hlusta
á saman heima á nýja tungumálinu. Verk-
efnið köllum við „Gaman að lesa saman“.
Við njótum einnig góðs af verkefninu
„Lesum, hlustum - lærum íslensku“ sem
er unnið af Ragnhildi Helgadóttur og
Ragnheiði Jónsdóttur, skólasafnskennur-
um í Reykjavík. Þær hafa lesið 30 bækur
á diska fyrir nemendur með annað móður-
mál en íslensku.
Svanhildur Eiríksdóttir
Bókasafni Reykjanesbœjar
Bamastarf Hollvinafélags
Þýska bókasafnsins á Bóka-
safni Hafnarijarðar
í haust sem leið hófst á Bókasafni Hafnar-
fjarðar bamastarf á vegurn Hollvinafélags
Þýska bókasafnsins. Þátttaka hefur verið
mjög góð og almenn ánægja ríkt með
starfsemina sem fluttist í Hafnarfjörð í
kjölfar þess að Goethe-Zentrum var lagt
niður. Umsjón með barnastarfmu er í
höndum Katharinu Knoche en hún hefur
lokið námi í þýskukennslu fyrir útlend-
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 31