Fregnir - 01.03.2007, Qupperneq 33
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
'F Efla útgáfu og dreifingu á efni um
SLAM og GRANDSLAM verkefnin.
> Hvetja til samþættingar starfsemi
skólasafnsins og kennslugreina og
skipulags skólans.
> Efla faglega þekkingu starfsfólks skóla-
safna og samhug starfsmanna skóla-
safna í Evrópulöndum.
> Deila upplýsingum um verkefni og efni
fyrir böm og unglinga.
Fyrsta daginn var þátttakendum safnað
saman í rútu í Prag og keyrt til Humpolec
sem er lítill bær í miðju Tékklandi. Þegar
þangað kom var hverjum þátttakanda út-
hlutað eins manns herbergi á hóteli bæjar-
ins. Eftir sameiginlegan kvöldverð var
haldinn fundur þar sem farið var yfir
dagskrá námskeiðsins og reynt að hrista
saman hópinn með ýmsum hópeflisleikj-
um. Daginn eftir hófst svo eiginleg dag-
skrá námskeiðsins sem fram fór í fram-
haldsskóla bæjarins í 10 mín. göngufæri
frá hótelinu.
Helstu dagskrárliðir voru:
> Kynning á tékkneska menntakerfinu.
Fulltrúi menntamála sveitarstjómar
svæðisins kynnti uppbyggingu tékkn-
eska menntakerfisins og fyrirhugaðar
breytingar á þvi.
> Jens Kostmp frá Danmörku flutti fyrir-
lestur um þróun skólasafna og stýrði
málstofu um framtíðarsýn fyrir skóla-
söfn.
> Kynning á gagnvirkum töflum (tékkn-
eskri útgáfu af Smart board). Gagnvirkar
töflur samanstanda af tölvu, sérstakri
hvítri töflu, skjávarpa og bendipenna.
> Mismunandi námsaðferðir nemenda.
Hilary Small aðstoðarskólastjóri frá
Englandi kynnti.
> Gerry Keamey aðstoðarskólastjóri frá
írlandi kynnti vefleiðangra og mögu-
leika sem þeir gefa til fjölbreyttra
kennsluhátta. Hann staðhæfði að hefð-
bundnar kennsluaðferðir dragi úr eðli-
legri forvitni nemenda. Nemendur lærðu
að spyrja ekki of margra spuminga en
væru í stað þess beðnir um fyrirfram
ákveðin svör. Máli sínu til stuðnings
notaði hann gamlan kínverskan málshátt
sem hljóðar svo: „Tell me and I forget,
show me and I remember, involve me
and I understand.“ A meðan á fyrirlestri
hans stóð fékk hann nokkra tékkneska
nemendur til að vinna verkefni í vef-
leiðangri. Að fyrirlestri hans loknum
kynntu nemendur verkefni fyrir þátt-
takendum námskeiðsins.
> Leitartækni nemenda. Margareth Tang-
en frá kennslumiðstöð í Noregi ijallaði
um nauðsyn þess að kenna nemendum
leitartækni og mat á áreiðanleika upp-
lýsinga. Lagði hún áherslu á að nemend-
ur lærðu að nýta sér hugstormun og
skipuleggja leit út frá því með aðstoð
forrits sem kallast „Mind Mapping" og
er gott hjálpartæki við verkefnagerð.
> Lestraraðferðir nemenda.
> Þróun skólasafna í Portúgal - reynslu-
saga.
> Gerð starfsáætlunar fyrir skólasöfn.
Málstofa þar sem farið var í helstu atriði
sem leggja þarf áherslu á við gerð starfs-
áætlana. Jens Kostrup og Marianne
Klöcker stýrðu.
> Book-crossing. í því felst að nemendur
koma með bækur að heiman og skilja
eftir víðs vegar um skólann. Bækumar
eru settar í plastvasa merkta Book-cross-
ing. Þeir fela síðan plastvasann einhvers
staðar í skólanum. Nemendur geta tekið
bók ef þeim líst á hana og sett aðra í
staðinn. Ef nemendum líst ekki á þá bók
sem þeir finna láta þeir hana vera.
Skipta þeir út bók eiga þeir að senda
tölvupóst á tiltekið netfang og segja frá
skiptunum, það er hvaða bók þeir tóku
og hverja þeir settu í staðinn. í lok tíma-
bils em tölvupósttilkynningar taldar
saman og sá sem sent hefur inn flestar
tilkynningar hlýtur verðlaun. Líkist mest
leiknum „að fela hlut“ og stendur yfír í
mánuð.
í lok hvers námskeiðsdags var boðið upp
á ýmsa menningarviðburði og skólaheim-
sóknir. Boðið var meðal annars upp á
tvenna tónleika, heimsókn á byggðasafn
staðarins og stærstu dropasteinshellar í
Tékklandi heimsóttir.
í heildina var námskeiðið athyglisvert
og gagnlegt. Þar kom margt fram sem við
getum nýtt beint í starfi okkar. Síðast en
ekki síst komumst við í kynni við kollega
okkar frá ýmsum Evrópulöndum og eig-
um örugglega eftir að treysta þau sam-
bönd enn frekar. Má nefna að í ágúst ætlar
einn af þátttakendunum frá Danmörku að
halda námskeið um lestrarþjálfun í skól-
unum sem við störfum við.
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 33