Fregnir - 01.03.2007, Blaðsíða 34
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Þáttakendur námskeiðsins á góðri stund
Næsta SLAMIT námskeið verður haldið á
írlandi í nóvember 2007.
María Hrafnsdóttir Skólasafni Garðaskóla
Ingibjörg Baldursdóttir Skólasafni Flataskóla
Alþjóðleg skráningarráð-
r
stefna á Islandi 2007 - um
hávetur
Dagana 1. og 2. febrúar 2007 var haldin
alþjóðleg skráningarráðstefna á Grand
hóteli í í Reykjavík. Ráðstefnan bar yfir-
skriftina Back to Basics - and Flying
into the Future. Að henni stóðu Lands-
bókasafn Islands - Háskólabókasafn,
NFBN (Samband félaga norrænna rann-
sóknarbókavarða), bókasafns- og upplýs-
ingafræðiskor Háskóla Islands og Upp-
lýsing - Félag bókasafns- og upplýsinga-
fræða. A ráðstefnunni var fjallað um nýja
staðla og reglur um skráningu í bókasöfn-
um, sem taka munu gildi árið 2009. í
þessum nýju reglum - og við verðum að
læra nöfnin á þeim; RDA (Resource De-
scription and Access), FRBR (Functional
Requirements for Bibliographic Records),
ICABS (IFLA-CDNL Alliance for Biblio-
graphic Standards) er ný hugmyndafræði
og hugsun sem þeir sem vinna við skrán-
ingu upplýsinga - og endurheimtur þeirra
þurfa að tileinka sér.
Á ráðstefnunni var fjallað um þessi
efni frá fræðilegu, tæknilegu og mannlegu
sjónarhorni. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar
var dr. Barbara B. Tillett frá Library of
Congress en óhætt er að segja að hún sé
einn aðal hugmyndasmiðurinn á þessu
sviði. RDA staðallinn, sem notaður verður
í stað AACR2, byggir á því að nálgast
skráningu á „conseptual" hátt - skoða
hana sem þrívíða í stað tvívíðrar áður.
Caroline Brazier frá British Library flutti
fyrirlestur um stöðu skráningarmála í
safninu en þar var Aleph 500 bókasafns-
kerfið frá ExLibris nýlega innleitt. Þetta
var ákaflega forvitnilegur fyrirlestur og þá
ekki síst vegna stærðar safnsins en það á
nálægt hundrað milljónir eintaka. Renata
Gömpel frá þýska þjóðbókasafninu sagði
frá því að frétta af ICABS væri að vænta
síðar á þessu ári. Þrír norrænir fyrirlesarar
fluttu erindi. Trond Aalberg frá NTNU í
Trondheim sagði frá prófunum á FRBR-
seringu bókasafnsskráa í norska mark-
sniðinu. Fyrirlestur hans var mjög tækni-
legur en fluttur á þann hátt að allir skildu
- eða að minnsta kosti skynjuðu um hvað
málið snýst. Erik Thorlund Jepsen frá
Biblioteksstyrelsen í Danmörku Qallaði
einnig um FRBR-seringu bókfræðifærslna
og gaf ýmis dæmi um hvernig hún kæmi
út í bókasafnsskrám, einkum í dönskum
bókasöfnum. Sigrún Hauksdóttir, for-
stöðumaður kerfisþjónustu Landskerfis
bókasafna, sagði frá stöðunni á íslandi þar
sem nánast öll bókasöfnin nota saman
bókasafnskerfið Gegni og hafa einn sam-
eiginlegan bókfræðigrunn. Erindi hennar
vakti mikla athygli ráðstefnugesta og hún
fékk fjölda spuminga. Þá fluttu fulltrúar
tveggja bókasafnskerfa erindi um hvernig
þeirra kerfi hyggist bregðast við RDA og
FRBR. Þetta voru John Espley frá VTLS
og Judy Levi frá ExLibris. Það var mjög
fróðlegt að hlusta á erindi þeirra, ekki síst
vegna þess hversu ólík þau vom. John
Espley nálgaðist efnið út frá kerfinu sjálfu
en Judy Levi setti sig frekar í spor not-
andans og íjallaði um álitlega framtíðar-
sýn. Öll þessi vinna snýst um að auðvelda
notandanum að finna það efni sem hann
þarf á að halda hverju sinni. Og til þess að
geta tekist á við þessa nýju hluti í fram-
tíðinni verðum við bókasafnsfræðingar að
leita aftur til fortíðarinnar og vinna í
gmnni fræða okkar.
í lok fyrri dagsins gerðu ráðstefnugest-
ir sér glaðan dag. Haldið var til móttöku í
Þjóðarbókhlöðu og þaðan á Hótel Sögu.
Þar borðuðu allir vel af íslensku lamba-
kjöti og skyri, hlustuðu á Möggu Stínu
túlka Megas og tóku þátt í getraun sem
smellt var saman af þessu tilefni og sner-
ist um að þekkja kvikmyndir þar sem
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 34