Fregnir - 01.03.2007, Page 37
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
rafrænan, nýjar bókasafnabyggingar og
hlutverk bókavarða. Þrjár greinar eru frá
íslandi í ritinu. Ein íjallar um landskerfið
Gegni, önnur um landsaðgang að tímarit-
um og sú þriðja um Nýheima á Homa-
firði.
Vefrit menntamálaráðuneytis 5/2007
Styrkur til endurskoðunar
námsefnis í bókasafnstækni
Styrkir til námsefnisgerðar fyrir
framhaldsskóla 2007
Menntamálaráðuneytið hefur úthlutað
styrkjum af íjárlögum yfirstandandi árs til
námsefnisgerðar í bóklegum og verkleg-
um námsgreinum á framhaldsskólastigi.
Alls bárust 91 umsókn að undangenginni
auglýsingu. Samanlagðar Qárbeiðnir voru
rúmlega 70 millj. kr. en til ráðstöfunar
vom kr. 26,1 millj.
Að fengnum tillögum nefndar, sem
metur umsóknir og gerir tillögur um út-
hlutun, var ákveðið að veita styrki til 74
verkefna, samtals kr. 26,1 millj. Sjá frétta-
tilkynningu menntamálaráðuneytis frá 26.
mars 2007.
Upplýsing hlaut styrk að upphæð kr.
500.000 til að endurskoða námsefni í
bókasafnstækni (fjórir 5 eininga áfangar á
framhaldsskólastigi). Sótt var um styrk að
upphæð kr. 1.200.000.
Þórdís T. Þórarinsdóttir
formaður Upplýsingar
Útskrift í bókasafns- og upp-
lýsingafræði við HI
Eftirfarandi nemendur útskrifuðust í janú-
ar 2007 frá Félagsvísindadeild Háskóla ís-
lands með próf í bókasafns- og upplýs-
ingafræði. Aftan við nöfnin er titill loka-
verkefnis og nafn leiðbeinanda:
MLIS-próf
Hallfríður Kristjánsdóttir: Upplýsingaþarfir
og upplýsingahegðun lifeindafræðinga:
Eigindleg rannsókn = The Information
Needs and Information Behavior of Bio-
medical Scientists: A Qualitative Study
(Ágústa Pálsdóttir)
Sigurgeir Finnsson: Internetið og aðrar upp-
lýsingaleiðir: Um upplýsingahegðun mann-
frœðinema við Háskóla Islands = The In-
ternet and other Sources of Information
Gathering: The Information Behavior of
Anthropological Students at the University
of Iceland (Ágústa Pálsdóttir)
BA- próf
Hallgrímur Snær Frostason: Flokkunarlisti
fyrir opinberan gjaldmiðil á íslandi = Cla-
ssification of the Official Currency of Ice-
land (Jóhanna Gunnlaugsdóttir)
Kristín Lára Ragnarsdóttir: Endurskipulagning
á heimasíðu Skógræktarfélags Reykjavíkur
= Reorganizing the Web Site of Reykjavík
City’s Forest Society (Kristín Ósk Hlyns-
dóttir)
Sóley Lára Árnadóttir: Hrossarœkt: Valdar
heimildir =Horse Breeding: Selected Bib-
liography (Jóhanna Gunnlaugsdóttir)
Hemild: Skrifstofa Félagsvísindadeildar
Útskrift í bókasafnstækni
Þann 20. desember 2006 útskrifuðust eft-
irfarandi nemendur frá Borgarholtsskóla
sem bókasafnstæknar:
María Ögmundsdóttir
Sigurbjörg Bjamadóttir
Ritstjórar
Orðanefnd Upplýsingar
Að tilhlutan stjórnar Upplýsingar hefur
verið stofnuð orðanefnd félagsins. For-
maður nefndarinnar er dr. Sigrún Klara
Hannesdóttir. Aðrir í orðanefnd eru: Ás-
gerður Kjartansdóttir og Þórdís T. Þórar-
insdóttir. Nefndinni er fyrst og fremst ætl-
að að taka saman hugtök og heiti á sviði
bókasafns- og upplýsingafræða sam-
kvæmt nánari starfs- og verklagsreglum
sem nefndin setur sér.
Orðasafnið verður skráð í Orðabanka
íslenskrar málstöðvar.
Stjórn Upplýsingar
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 37