Fregnir - 01.03.2007, Page 38
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafrœða
Norrænn sumarskóli um
upplýsingalæsi
Árlegur sumarskóli NordlNFOLIT verður
haldinn í 6. skipti í sumar. Að þessu sinni
verðurhann í Reykholti 11.-15. júní.
Þátttakendur verða u.þ.b. 35 og er
markhópurinn norrænir bókasafns- og
upplýsingafræðingar sem starfa við
kennslu í upplýsingalæsi á háskólastigi.
Bókasafns- og upplýsingafræðingar á
framhaldsskólastigi eru líka velkomnir í
sumarskólann.
Umijöllunarefni sumarskólans í ár eru
meðal annars kennslufræðilegar aðferðir,
setning námsmarkmiða fyrir upplýsinga-
læsi, námsmat, ritstuldur og Bolognaferl-
ið. Einnig verða áhugaverð verkefni
kynnt. Helstu fyrirlesarar verða Jude Car-
roll frá Oxford Brookes University, Ralph
Catts frá University of Stirling og Chris-
tina Tovoté frá háskólabókasafninu í
Stokkhólmi en hún er jafnframt formaður
stýrihóps NordlNFOLIT.
Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu
undirbúningshópsins http://www.lbhi.is/
sommerskole
F.h. undirbúningshóps
Kristín Björgvinsdóttir
/
/
/
mNOEÞtp
2 00'7'V
the huaan aide of IT ✓ \
Nú liggur fyrir dagskrá NORD I&D -
stóru Norrænu ráðstefnunnar um upp-
lýsingamál, sem haldin er í Stokkhólmi
dagana 18. og 19. júní. Meginþema ráð-
stefnunnar er mannlega hliðin á upplýs-
ingatækninni, sem verður meðal annars
skoðuð útfrá upplýsingaöflun og stjómun
upplýsinga. Það sem er nýjast í notkun
upplýsingatækni er kynnt út frá sjónar-
miði bókasafna og upplýsingamiðstöðva
og óhætt er að segja að bókasafns- og
upplýsingafræðingar frá öllum tegundum
bókasafna- og upplýsingamiðstöðva eiga
erindi á þessa ráðstefnu og ekki síður allir
þeir sem vinna við skjalastjóm og safna-
mál.
Islendingar eiga glæsilegan fulltrúa í
hópi fyrirlesara, dr. Jóhönnu Gunnlaugs-
dóttur, en hún mun ljalla um notendur
skjalastjómarkerfa. Meðal annarra áhuga-
verðra fyrirlesara má nefna Jakob Har-
nesk frá Lundi sem mun fjalla um Web
2.0 og Library 2.0 - framtíðarmálin,
Bonnie Osif frá Penn University í Banda-
ríkjunum sem ijallar um skipulagningu
vefsvæða byggða á kortlagningu hugtaka
(concept mapping) og Mika Waris frá
Finnlandi sem horfir á upplýsingar út frá
verðmætasköpun í litlum og meðalstórum
fyrirtækjum. Margt fleira fróðlegt væri
hægt að nefna en áhugasömum er bent á
að skoða vef ráðstefnunnar á http://nord
iod2007.sfis.nu
Ráðstefnan verður haldin í fallegu
umhverfi Háskólans í Stokkhólmi (mynd-
in að ofan er tekin í anddyri ráðstefnu-
byggingarinnar, Aula Magna). Boðið er til
hátiðarkvöldverðar í hinu glæsilega Vasa
safni, sem er vinsælasta og mest sótta safn
í Stokkhólmi um þessar stundir. Vonandi
sjá sem flestir sér fært að sækja ráðstefn-
una, því mikil ánægja hefur verið með
NORD I&D ráðstefnurnar og fjöldi fólks
sækir þær reglulega.
Sjáumst í Stokkhólmi!
Kristín Geirsdóttir, fulltrúi Upplýsingar í
undirbúningsnefnd NORD I&D
Notendaráðstefna Aleflis
Notendaráðstefna Aleflis verður haldin 4.
maí næstkomandi kl. 13.00 í fundasal
Þjóðminjasafnsins við Hringbraut. Meðal
efnis á dagskrá er kynning á vinnu rýni-
hópa vegna nýs viðmóts á Gegnir.is
Stjórn Aleflis
(Oj- Gegnir
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 38