Fregnir - 01.03.2007, Blaðsíða 39
Fregnir. Fréttabréf Upplýsingar - Félags bókasafns- og upplýsingafræða
Bókasafn MH í nýtt húsnæði
Bókasafn Menntaskólans við Hamrahlíð
var opnað í nýju húsnæði í janúarbyrjun
2007. Búið er að byggja nýja álmu við
skólann sem hýsir líkamsræktarsali, raun-
greinastofur auk bókasafns skólans.
Svipmynd frá Bókasafni MH
Bókasafnið er staðsett á annarri hæð í
tengibyggingu sem tengir nýja húsið við
gamla skólann og er yfír nýjum aðalinn-
gangi hússins. Húsnæðið er mjög bjart og
skemmtilegt. Gluggar eru eftir endilöngu
safninu mót norðri og einnig eru innvegg-
ir sem aðskilja safnið frá tengigangi að
stórum hluta úr gleri, þannig að það er
mjög sýnilegt og opið.
Stærð safnsins er rúmir 300 m2 auk
þess hefur safnið afnot af aðliggjandi 60
m2 kennslustofu sem er útbúin með les-
básum. Sæti eru fyrir rúmlega 100 manns,
þar af eru hópvinnuborð fyrir nær 50 og í
lesbásum í bókasafnsrými og aðliggjandi
kennslustofu eru 48 sæti. Stækkun hús-
næðis er töluverð en gamla safnið var 236
m2 og vinnustaða fyrir 70 nemendur.
Greinileg aukning er í notkun á safn-
inu eftir flutninginn. Borðtölvum Qölgaði
úr 5 í 8 og nemendur geta fengið lánaðar
20 fartölvur til notkunar einungis inni á
safninu. Safnið er vel staðsett skólanum
og tengir nýbygginguna skemmtilega við
aðalbygginguna.
Ásdís H. Hafstað
forstöðumaður bókasafns MH
Félag fagfólks á skóla-
söfnum
Á aðalfundi Félags skólasafnskennara 15.
mars síðastliðinn voru lagðar fram breyt-
ingar á lögum félagsins. Þessar breytingar
miða að því að félagið verði vettvangur
fræðslu og uppbyggingar á skólasöfnum
landsins. Félagið heitir nú Félag fagfólks
á skólasöfnum, skammstafað FFÁS.
Tilgangur félagsins verði eins og segir
í tillögunum sem voru samþykktar ein-
róma, að efla starf á skólasöfnum og
stuðla að viðurkenningu starfsins sem sér-
hæfðrar starfsgreinar. Ennfremur að gæta
hagsmuna félagsmanna við gerð kjara-
samninga, efla samheldni, tengsl og
stéttarvitund og gæta faglegra og félags-
legra hagsmuna félagsmanna gagnvart
innlendum og erlendum aðilum. Félaginu
er mikið í mun að efla faglegt starf meðal
félagsmanna og vinna að því að allir sem
starfa á skólasöfnum hafi menntun við
hæfi. Ennfremur stuðli félagið að endur-
menntun, efli rannsókna- og fræðistörf
sem varða skólasöfn og samstarf við sam-
bærileg erlend félög.
Félagar eru kennarar sem hafa viður-
kennda framhaldsmenntun í bókasafns- og
upplýsingafræði og bókasafns- og upplýs-
ingafræðingar.
Ný stjóm var kjörin á fundinum og
hana skipa: Formaður: Pia Viinikka,
Húsaskóla. Varaformaður: Guðný ísleifs-
dóttir, Ingunnarskóla. Ritari: Hallbera Jó-
hannesdóttir, Brekkubæjarskóla. Gjald-
keri: Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir, Lang-
holtsskóla. Meðstjómandi: Ámý Jóhann-
esdóttir, Foldaskóla.. Varamenn: Guð-
björg Garðarsdóttir, Breiðagerðisskóla og
Guðríður Kristjánsdóttir, Réttarholtsskóla.
Þóra Sjöfn Guðmundsdóttir
8. aðalfundur Upplýsingar
21. maí 2007
Áttundi aðalfundur Upplýsingar verður
haldinn þriðjudaginn 21. maí 2007, kl.
15:30 í fyrirlestrasal Þjóðarbókhlöðu.
Venjuleg aðalfundarstörf, samanber 8.
gr. laga félagsins.
Að fundinum loknurn verða viður-
kenningar Upplýsingar íyrir bestu ísl-
ensku fræðibækumar fyrir börn og full-
orðna fyrir árið 2006 afhentar.
Sérstakt fundarboð fylgir blaðinu.
Stjórn Upplýsingar
32. árg. - 1. tbl. 2007 - bls. 39