Morgunblaðið - 14.01.2001, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 14.01.2001, Qupperneq 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2001 41 ✝ Jóhann Guðna-son matsveinn fæddist í Reykjavík 23. september 1925. Hann lést á hjarta- deild Landspítalans við Hringbraut 28. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðni Eyjólfs- son, verkstjóri í Gas- stöðinni í Reykjavík, og Sigrún Sigurðar- dóttir húsmóðir. Systkini hans voru Njáll, Kjartan Ragn- ar (d. 1991), Herdís Jóna, Gunnar Baldur, Hrefna Guðríður, Sigríður, Guðjón (d. 1998) og Agnar. Jóhann kvæntist 3. júlí 1953 Regínu M. Kjerúlf, f. 20. ágúst 1923. Foreldrar hennar voru Jörgen Kjerúlf frá Húsum í Fljótsdal og Elísabet Jóns- dóttir frá Brekku- gerði í Fljótsdal. Jó- hann og Regína eignuðust einn son sem lést í frum- bernsku, en fyrir átti Regína dótt- urina Öldu og gekk Jóhann henni í föð- urstað. Alda er gift Sveini Kristjáns- syni. Þau eru búsett á Seyðisfirði. Börn þeirra eru Sif Sveinsdóttir og Jóhann Þór Sveinsson, maki hans er Krist- jana Einarsdóttir, barn þeirra er Adam Birkir Jóhannsson. Útför Jóhanns fór fram frá Dómkirkjunni 5. janúar. Hinn 28. desember sl. lést vinur minn, Jóhann Guðnason, á hjarta- deild Landsspítalans. Kallið kom snöggt og óvænt. Kynni okkar Jó- hanns hófust árið 1952 þegar hann trúlofaðist og hóf sambúð með Reg- ínu Kjerúlf föðursystur minni, sem var yngst 12 barna Jörgens Kjerúlf frá Húsum í Fljótsdal og hans konu, Elísabetar Jónsdóttir frá Brekku- gerði í Fljótsdal. Jóhann og Regína hófu búskap sinn í Hafnarfirði en fluttu fljótlega til Reykjavíkur þar sem heimili þeirra var alla tíð. Þau eignuðust einn son sem lést í frum- bernsku, en Regína átti fyrir eina dóttur, Öldu, og gekk Jóhann henni í föðurstað. Jóhann var lærður mat- reiðslumaður og starfaði hjá varn- arliðinu á Keflavíkurflugvelli frá 1952 til 1995. Þar áður hafði hann prófað sjómennsku en það átti ekki við hann því eftir því sem hann sagði mér sjálfur var sjóveikin sá þrösk- uldur sem hann komst ekki yfir með nokkru móti þótt hann hefði gaman af því að vera til sjós. Meðal annars var hann eina vertíð með þeim ágæta manni Binna úr Gröf og vitn- aði stundum til þess. Heimili þeirra Jóhanns og Regínu varð fljótlega samkomustaður okkar unglinganna úr ætt Regínu því þar var höfðings- skapur mikill og umburðarlyndi meira en annars staðar þekktist. Jó- hann bar alltaf með sér hvar sem hann fór þann holla heimafengna bagga, sem er gott uppeldi og greini- legt var að sá arfur sem hann hlaut í foreldrahúsum var drjúgur og nutu fleiri góðs af, meðal annars sá sem þessar línur ritar. Jóhann var hægur maður og hlédrægur, en grunnt var á fínum og græskulausum húmor. Jákvætt lífsviðhorf, ábyrgðartilfinn- ing, heiðarleiki og kurteisi voru at- riði sem leiddu hann til öndvegis hjá okkur ættmennum Regínu. Fyrir okkur var hann einfaldlega Jói henn- ar Gínu. Þau hjónin voru bæði dug- leg og samhent og komu sér fljótlega upp eigin íbúð í Mosgerði, síðan í Meðalholti en lengst af í neðra Breiðholti við Jörfabakka. Jóhann hafði atvinnu sinnar vegna lengst af afdrep í Keflavík þar sem hann gisti í vaktasyrpum en kom heim í fríum. Ekki þurfti húsfreyjunni að leiðast á meðan því á heimilinu var stanslaus gestagangur, vinir og vandamenn komu þar við og ræddu málið, ætt- ingjar að austan sem voru að erinda í bænum gistu þar tíðum og þau hjón- in greiddu götu þeirra á alla lund. Jóhann og Regína voru drjúg í því að ferðast bæði erlendis og innanlands. Ekki var látið líða svo ár að ekki væri farið austur og heilsað upp á vini og vandamenn, gjarnan tekinn réttsælis hringur, stoppað á Akur- eyri og heilsað upp á Kollu frænku, gist í Fljótsdal og stoppað á Seyð- isfirði. Í bakaleiðinni var síðan kom- ið við hjá Margréti frænku í Holti undir Eyjafjöllum og séra Halldóri og þegar maður kom svo á Jörfa- bakkann var hægt að fá fréttir af fólkinu, sitja þar í rólegheitum yfir góðum kaffibolla og deila með þeim minningum úr ferðalaginu rétt eins og maður hefði verið sjálfur með þeim á ferð. Fyrir það skal þakkað, blessuð sé minning Jóhanns Guðna- sonar. Þar sem ég sit og skrifa þessar lín- ur kemur upp í hugann, að um þenn- an mann, sem ég hef þekkt í hartnær hálfa öld, hef ég aldrei heyrt mis- jafnt orð. Það segir allt sem segja þarf. Megi guð styrkja Regínu frænku mína á þessum erfiðu tímamótum í lífi hennar og við hjónin sendum Öldu og hennar fjölskyldu samúðar- kveðju. Sölvi Kjerúlf. JÓHANN GUÐNASON Elsku mamma mín, mér þykir það leitt að þetta verður síðasta bréfið sem ég mun skrifa þér. Því nú ertu frá okkur far- in. Ég er svo glöð að ég hringdi í þig daginn áður er þú kvaddir þennan heim. Við töluðum lengi saman og El- ísabet mín talaði við þig líka. Ég þakka þér, mamma mín, fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, Eísabetu og Maríu Erlu. Það var svo oft sem að stelpurnar mínar fengu að vera hjá þér – fyrir mig. Þakka þér fyrir þær. Ég gleymi ekki þeim stundum sem við áttum saman um jól öll árin þegar við komum í ynd- islegu jólasteikina til ykkar. Þú eld- aði alltaf svo góðan mat. Þakka þér fyrir allar fallegu bæn- irnar sem þú kenndir mér þegar ég var barn sem hafur hjálpað mér í gegnum erfiða tíma í mínu lífi. Þú þekktir allar mínar sorgir og ég þekktir allar þínar. Því við töluðum stundum saman í síma tvisvar á dag áður en ég og stelpurnar fórum til Englands. Ég vissi ekki að þegar við töluð- ums saman 21. desember að þetta yrði okkar síðasta samtal, elsku mamma mín. Ég mun varðveita öll SIGURBJÖRG ÓLÖF GUÐJÓNSDÓTTIR ✝ Sigurbjörg ÓlöfGuðjónsdóttir fæddist á Stóra-Hofi í Gnúpverjahreppi 28. maí 1930. Hún lést á Landakoti 22. desember síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Seljakirkju 3. janú- ar. Jarðsett var í Gufuneskirkjugarði. bréfin sem þú skrifaði mér. Kysstu pabba, ömmu og afa frá mér. Ég bið guð að veita systkinum mínum og Jósepi styrk og trú á þessum erfiðum tím- um. Bless mamma mín. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Þín elskandi dóttir, Anna Björg. Ég mun sakna þín amma mín og ég mun aldrei gleyma þér. Þú munt aldrei fara út úr hjarta mínu. Þú varst besta amma í heimi og þú varst alltaf svo góð við mig. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þínn leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni (H. Pétursson.) Þitt barnabarn, Elísabet. ✝ Borge Jón IngviJónsson var fæddur í Reykjavík 7. júlí 1936, fluttist til Hafnarfjarðar og ólst þar upp hjá for- eldrum sínum. Hann lést á líknardeild Landspítalans 8. janúar. Foreldrar hans voru hjónin Jón Bergmann Gíslason, f. 31.12. 1906, d. 24.4. 1985, og Karen Irene Jør- gensen Gíslason, f. 29.7. 1909 í Larvik í Noregi, d. 5.9. 1981. Systkini hans eru sex. Hálfsystkini sam- feðra: 1) Þuríður Bergmann, f. 3.2. 1933, 2) Elí Bergmann, f. 15.12. 1935. Börn Jóns og Kar- enar voru, auk Borge, sem var elstur 1)Karen Irene Guðrún, f. 9.11. 1937, 2) Soffía Elsie, f. 13.2. 1941 er nú látin, 3) Gíslína Ingveldur Bergmann, f. 15.1. 1945, 4) Gísli Kristofer, f. 2.6. 1947. Hinn 22.11 1958 kvæntist Borge Helgu Brynjúlfsdóttur, f. 20.10. 1936. Foreldrar hennar voru hjónin Brynjúlfur Eiríks- son, f. 21.12. 1910, d. 12.1. 1976, og Halldóra Guðbrandsdóttir, f. 15.5. 1911, d. 7.12. 2000. Borge og Helga eignuðust tvær dætur. 1) Bryndís Karen, f. 1.10. 1958, kennari. Sambýlismaður hennar, Skúli Thor- oddsen, f. 25.11. 1961, smiður. Sonur Bryndísar af fyrra hjónabandi, Heimir Freyr Viðarsson, f. 31.10. 1983. Dóttir Bryndísar og Skúla, Helga, er f. 24.7. 1993. 2) Jenný, f. 2.1. 1965, leikskólakennari, gift Magnúsi Þór Sigmundssyni, f. 28.8. 1948, tónlistarmaður. Þeirra synir eru: Sigmundur, f. 26.4. 1989, og Aðalsteinn, f. 28.3. 1992. Borge vann ýmis störf í Hafn- arfirði á unglingsárum. Hann vann á Keflavíkurflugvelli um tíma en hóf störf hjá Mólkursam- sölunni í Reykjavík árið 1956 og starfaði sem mjólkurbílstjóri þar til hann lést 8. janúar sl. eftir nokkurra mánaða veikindi. Útför Borge fer fram frá Langholtskirkju á morgun, mánudaginn 15. janúar, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ég kynntist Borge ungur að ár- um þegar hann og Helga systir trúlofuðu sig. Þegar ég var 16 ára fluttist ég til Reykjavíkur og bjó þá hjá Helgu og Borge. Heimili þeirra var mitt annað heimili þar til ég stofnaði mitt eigið og hefur alltaf verið mikill samgangur á milli fjöl- skyldna okkar. Það var í fyrsta skipti um síðustu jól að við hjónin fórum ekki í jólakaffið til Helgu og Borge. Borge var ljúfur og sérlega góð- ur drengur, hjálpsamur og einstak- lega bóngóður. Á ég honum margt að þakka sem erfitt er að telja upp og koma orðum að hér. Strax í æsku leitaði maður til hans ef eitt- hvað vantaði, svo sem varahluti í reiðhjólið og ýmislegt annað, en hann var alltaf tilbúinn til að snú- ast fyrir okkur í sveitinni. Þau eru ófá handtökin hans í garðinum hennar mömmu á Brúarlandi og ekki voru þau hjónin síður samhent í að rækta sinn eigin garð enda öll ræktun mikið áhugamál hjá þeim báðum. Við Borge höfðum mikið samneyti í gegnum lífið sem þó varð allt of stutt hjá honum. Fyrir fimm til sex árum veiktist Borge í nýrum og þurfti að fá nýrnagjöf. Það þurfti ekki að fara langt því að Helga gat gefið honum annað nýr- að sitt og sagði Borge að það hefði farið að virka strax við tengingu. Að sjálfsögðu hafnaði líkami hans ekki nýra frá henni Helgu. Oft tal- aði hann um hve heppinn hann hefði verið að kynnast Helgu. Það eru fjögur og hálft ár síðan ígræðslan fór fram í Gautaborg. Það má þakka fyrir þau góðu ár sem Borge fékk eftir það þar til hann veiktist í sumar af krabba- meini. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast þér, Borge minn, og ekki síður fyrir að hafa fengið tækifæri til að ferðast með þér síðustu árin. Við Fanney eigum góðar minningar frá ferðum okkar til Kúbu, Krítar og ekki síst til Noregs þar sem ég fann hvað sterkar taugar þú hafðir til lands- ins. Þakka þér fyrir samfylgdina, þú varst mér svo miklu meira en góður mágur. Ég bið góðan Guð að varðveita þig og gefa Helgu, Bryn- dísi og Jenný og fjölskyldum þeirra styrk á erfiðri stundu. Ég vil enda þetta með bæninni sem mér þykir svo vænt um. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Brynjólfur Brynjólfsson. Með nokkrum orðum langar okk- ur að minnast Borge, mágs okkar, sem lést 8. þessa mánaðar, langt um aldur fram, eftir nokkurra mánaða glímu við ólæknandi sjúk- dóm. Borge var fæddur og uppal- inn í Hafnarfirði en kynni okkar hófust á Mýrum vestur fyrir hart nær 43 árum er þau Helga systir ákváðu að eyða ævinni saman. Þegar Helga kom í fyrsta sinn með Borge í heimsókn að Brú- arlandi, sennilega 21 árs gamlan, var eftirvænting fjölskyldumeðlima sannarlega mikil, ekki síst þeirra yngstu. Ekki urðu neinir fyrir von- brigðum með hinn unga mann enda var hann glæsimenni að vallarsýn og bauð strax af sér hinn besta þokka. Í fornsögum hefði Borge sennilega verið lýst á þá leið að hann væri maður hár og herði- breiður, limaður vel og drengur góður. Borge var strax við fyrstu kynni, og ævinlega síðan, einstak- lega ljúfur og þýður í viðmóti. Við systkinin á Brúarlandi eignuðumst ekki einungis mág, þegar hann kom inn í fjölskyldu okkar, heldur líka tryggan og góðan vin. Á vináttu okkar og Borge bar aldrei skugga þau rúmlega fjörutíu ár sem leiðir okkar lágu saman. Sama má segja um samskipti for- eldra okkar og hans. Hann var þeim sannur vinur og hjálparhella allt frá fyrstu kynnum til æviloka þeirra. Í fjöldamörg sumur dvöldu Helga og Borge allt sumarfrí sitt á Brúarlandi og komu að auki í margar heimsóknir þess utan. Í heimsóknum þeirra að Brú- arlandi kom vel í ljós hversu Borge var að eðlisfari viljugur maður, vinnusamur og hjálpsamur og lét ekki sitt eftir liggja er gengið var að heyvinnu og öðrum bústörfum. Stundum fór hann líka í mjólk- urferðir fyrir föður okkar sem stundaði þá mjólkurakstur af Mýr- um í Borgarnes. Við heyvinnu var mikil hjálp að hinum unga og hrausta manni en afl mannshand- arinnar skipti mun meiru máli við heyvinnu og önnur landbúnaðar- störf í þá daga en í seinni tíð. Borge hafði alla tíð unun af garðvinnu og í heimsóknum þeirra Helgu að Brúarlandi að vor og sumarlagi, sérlega í seinni tíð, voru þau öllum stundum að aðstoða móður okkar í garðinum. Við garð- vinnuna naut sín vel eðlislegt list- fengi hans og smekkvísi og sér verka hans víða stað í skrúðgarð- inum á Brúarlandi. Fyrir alla þá miklu hjálp, sem hann veitti móður okkar fyrr og síðar í garðinum hennar, er okkur ljúft að þakka. Borge og Helga byrjuðu búskap á Hverfisgötunni í Reykjavík, í leiguhúsnæði, en fljótlega eignuð- ust þau eigið húsnæði, fyrst í Sól- heimum 25, síðar í Fossvoginum og loks í Skeiðarvogi 129, þar sem þau hafa búið mörg seinustu árin í rað- húsi, með svolítinn eigin garð sem þau hafa hannað af stakri smekk- vísi. Við systkinin frá Brúarlandi, og mörg af börnum okkar, höfum í gegnum árin búið hjá þeim í lengri eða skemmri tíma við nám og störf, eða vegna styttri dvalar í höfuð- staðnum. Ævinlega tók Borge okk- ur sem vinum og var hlýr og góður heim að sækja. Frá því að leiðir þeirra Borge og Helgu lágu saman hefur Borge unnið sem bílstjóri hjá Mjólkur- samsölunni í Reykjavík. Það má því segja að hann hafi sýnt vinnu- veitanda sínum sama trygglyndið og við mágfólk hans þekkjum svo vel. Borge vann alla tíð sem verka- maður og þau Helga höfðu aldrei miklum fjármunum úr að spila. En með sparsemi, hagsýni, reglusemi og útsjónarsemi tókst þeim að komast vel af efnalega og gátu veitt sér ýmislegt, einkum seinustu áratugina. T.d. ferðuðust þau tölu- vert, bæði innanlands og erlendis, og á ferðalögum naut Borge sín sérlega vel enda vel lesinn og fróð- ur um marga hluti. Eins og svo margir aðrir fór Borge ekki varhluta af andstreymi lífsins. Jenný, yngri dóttir þeirra Helgu, veiktist mjög alvarlega er hún var barn að aldri og var um tíma vart hugað líf. Löngu seinna varð Borge fyrir því að fá alvar- legan nýrnasjúkdóm sem gerði nýru hans óstarfhæf og má segja að þeirri sjúkdómssögu hafi lokið með því að Helga gaf honum annað nýrað úr sér og við það virtist lík- ami hans sætta sig mjög bærilega. Í því mótlæti kom vel í ljós hvað Borge var bjartsýnn og andlega sterkur. Vitneskju um afleiðingar hins alvarlega sjúkdóms, sem dró hann til dauða, tók hann einnig af einstöku æðruleysi. Við leiðarlok er okkur efst í huga þakklæti til Borge fyrir einstakt trygglyndi, hjálpsemi og vináttu alla tíð. Helgu, dætrunum og fjöl- skyldum, vottum við djúpa samúð. Blessuð veri minning hins mæta og góða drengs, Borge Jónssonar. Systkinin frá Brúarlandi. BORGE JÓN INGVI JÓNSSON Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Senda má grein- ar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsyn- legt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heima- síðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.