Morgunblaðið - 14.01.2001, Side 51
anuel hafði hvítt gegn
Sampsa Nyysti (2305). 24.
Hxd5! Dxd5 24...exd5 væri
vel svarað með 25. Rd6+ og
hvíta sóknin yrði svörtum af-
ar erfið viðureignar. 25. f6!
gxf6 26. exf6 Bd8 27. Hd1
Rd3+ 28. Bxd3 cxd3 29.
Hxd3 Dxa2 30. Rd6+ Kf8 31.
Dh5! Da1+ 32. Kc2 Da4+ 33.
Kb1 Dd7 34. Dh6+ Kg8 35.
Dg7 mát!
EINN efnilegasti skákmað-
ur Svía er sænski alþjóðlegi
meistarinn Emanuel Berg
(2456). Hann er mikill keppn-
ismaður og nýtur góðs stuðn-
ings félags síns í
Lundi. Alþjóðlegi
meistarinn Chris-
ter Niklasson er
þjálfari hans, en
fyrir utan að vera
sterkur skákmað-
ur hefur hann gef-
ið út fjölda ljóða-
bóka. Samvinna
þeirra hefur
hjálpað Emanuel
til að ná markviss-
ari framförum en
ella. Staðan kom
upp í Rilton Cup-
mótinu og Em-
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 8. júlí sl. í Kópavogskirkju
af sr. Eðvarði Ingólfssyni Sigríður Lára Haraldsdóttir og
Sveinn Rúnar Þórarinsson. Heimili þeirra er í Jöklafold 24,
Reykjavík.
Ljósmyndari: Sigríður Bachmann.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2001 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbarn dagsins: Þú ert
fullléttur á bárunni og átt
erfitt með að ákveða í hvorn
fótinn þú átt að stíga.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Mundu að þegar þú tekur
ákvarðanir þarftu að taka tillit
til margra þátta og ekki síst
þeirra sem snerta aðra en
sjálfan þig.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það hefur ekkert upp á sig að
láta dæluna ganga. Nú er
kominn tími athafna svo þú
skalt bretta upp ermarnar og
hefjast handa. Hálfnað er verk
þá hafið er.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Láttu ekki dagdrauma standa
í vegi fyrir árangri þínum í
starfi. Það er allt í lagi að láta
sig dreyma þegar réttar að-
stæður eru fyrir hendi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að gefa öryggi þínu
og þinna sérstakar gætur því
eins og líf mannsins er orðið
getur farið illa ef menn gera
engar fyrirbyggjandi ráðstaf-
anir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er óþarfi að gefast upp
þótt þér finnist aðrir ekki
gleypa málstað þinn með húð
og hári. Málið er að vinna aðra
á sitt band hægt og örugglega.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Láttu ekki gamlar væringar
standa í vegi fyrir því að þú
getir gert upp fortíðina. Los-
aðu þig við alla bagga og
gakktu keikur á vit framtíðar-
innar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gerðu aðeins það sem þú veist
sannast og best því allt annað
mun koma í bakið á þér þótt
síðar verði. Góð vinátta er
gulli betri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er stundum erfitt að horfa
upp á vandræði annarra án
þess að grípa þar inn í með
einhverjum hætti. En okkur
er ekki alltaf ætlað að hafa af-
skipti af hlutunum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú hefur nú beðið nógu lengi
eftir tækifærinu til þess að
láta til skarar skríða. Sláðu
hvergi af kröfum þínum því
þinn tími mun koma.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ef þú ert ófáanlegur til þess
að slá af kröfum þínum getur
þú ekki ætlast til þess að aðrir
vilji ganga til samninga við
þig. Láttu athafnir fylgja orð-
um.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú gerir rétt í að standa fast á
máli þínu því þótt sú afstaða
afli þér ekki vinsælda er leik-
urinn ekki til þess gerður
heldur til þess að koma ein-
hverju í verk.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ef þér finnst þau svör sem þú
færð ófullnægjandi áttu að
ganga eftir meiri upplýsingum
en ekki grípa til einhverra að-
gerða á ófullkomnum grunni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
70 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 15. janúar
verður sjötugur Hermann
Sigtryggsson, fram-
kvæmdastjóri, Víðimýri 1,
Akureyri. Eiginkona hans
er Rebekka Guðmann. Í til-
efni afmælisins taka þau á
móti vinum og ættingjum í
kaffiteríu Íþróttahallarinn-
ar á Akureyri á afmælisdag-
inn frá kl. 17.
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 15. janúar, verður fimm-
tugur Ásgeir Bolli Kristins-
son kaupmaður. Af því
tilefni taka hann og eigin-
kona hans, Svava Johansen,
á móti ættingjum og vinum á
afmælisdaginn á Hótel Borg
milli kl. 17 og 19.
VESTUR „gaf“ sex lauf með
útspilinu, en það væri mjög
ósanngjart að gagnrýna
hann fyrir valið. Spilið er frá
annarri umferð Reykjavík-
urmótsins í sveitakeppni
síðastliðinn þriðjudag:
Vestur gefur; AV á hættu.
Áttum snúið.
Norður
♠ Á97
♥ 10
♦ ÁK1086
♣ Á953
Vestur Austur
♠ 8532 ♠ D104
♥ D98643 ♥ ÁKG75
♦ 4 ♦ D732
♣87 ♣4
Suður
♠ KG6
♥ 2
♦ G95
♣KDG1062
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 tígull 1 hjarta 2 lauf
4 hjörtu 6 lauf Pass Pass
Pass
Þannig gengu sagnir á einu
borði. Frá bæjardyrum
vesturs var ekki ólíklegt að
norður væri með eyðu í
hjarta og því lagði hann af
stað með tígulfjarkann. Sem
er mjög rökrétt útspil, því ef
makker á annan láglitaásinn
dugir það oftast til að fella
spilið. En ekki í þetta sinn.
Útspilið var með merki-
miða á sér þar sem stóð: „Ég
er einspil“, svo það var að-
eins ein von til vinnings.
Sagnhafi tók tvisvar tromp
og þrisvar spaða með svín-
ingu. Spilaði síðan hjarta í
þessari stöðu:
Norður
♠ --
♥ 10
♦ K1086
♣ Á9
Vestur Austur
♠ 8 ♠ --
♥ D98643 ♥ ÁKG7
♦ -- ♦ D73
♣-- ♣--
Suður
♠
♥ 2
♦ G9
♣G1062
Það er sama hvort mót-
herjinn tekur slaginn – báðir
hljóta að gefa slag: Vestur
með því að spila út í tvöfalda
eyðu og austur með því að
spila tígli upp í gaffalinn.
Sannarlega hörð refsing fyr-
ir eðlilegt útspil.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
ÞULUR OG ÞJÓÐVÍSUR
Vappaðu með mér Vala,
verð ég þig að fala,
komdu ekki að mér kala,
keyrðu féð í hala,
gelt þú en ég skal gala,
gaman er þá að smala,
sæktu sauð á bala,
svo mun ég við þig tala.
(Vestfirsk útgáfa af ljóðinu).
Þú ert nú
meiri kveifin.
Við höfum
verið gift í 25
ár án þess að
eiga eitt ein-
asta almenni-
legt rifrildi.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmælis-
barns þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Að njóta, elska og hvílast er upplyfting fyrir elskandi pör
á öllum aldri sem vilja spila á strengi ástarinnar
á Hótel Skógum undir Eyjafjöllum
helgina 26.—28. jan. eða 16.—18. feb. 2001.
Rætt verður um uppbyggjandi og styrkjandi efni fyrir
hjónabandið. Auk þess verður farið í hjóna-slökun,
fengin sýnikennsla í ástarstyrkjandi hjónanuddi,
farið í fallega gamla kirkju og
tekið á móti andlegri hressingu frá prestinum í sveitinni.
Ljúffengur matur við kertaljós og rómantík.
Gjafabréf
Nánari upplýsingar og skráning hjá Sigríði Önnu Einars-
dóttur, félagsráðgjafastofunni Aðgát,
í símum 551 5404, 861 5407 og
netfangi annaoli@mmedia.is .
AÐ NJÓTA, ELSKA OG HVÍLAST