Morgunblaðið - 20.01.2001, Page 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRAM kom á launamálaráðstefnu
sveitarfélaganna í gær að heildar-
launasumma grunnskólakennara
mun hækka með nýjum kjarasamn-
ingi um 26–34%. Heildarkostnaðar-
auki sveitarfélaganna með samn-
ingnum er um tveir milljarðar
króna, að mati Birgis Björns Sig-
urjónssonar sem hefur verið í for-
ystu fyrir samningunum fyrir hönd
sveitarfélaganna. Á móti kemur að
samningar um viðbótarkjör koma til
með að falla úr gildi en kostnaður við
þá nemur hundruðum milljóna.
Ráðstefnan var haldinn til þess að
kynna grunnskólasamninginn fyrir
sveitarstjórnarmönnum. Karl
Björnsson, formaður launanefndar-
innar, sagði að sveitarfélögin stæðu
frammi fyrir því að þau hefðu orðið
undir í samkeppni um starfsfólk.
Fólk leitaði í minni mæli en áður til
starfa í grunnskólum og leikskólum.
Sveitarfélögin yrðu að bregðast við
og gera þessa vinnustaði samkeppn-
isfæra á ný. Hann sagðist líta svo á
að sveitarfélögin hefðu verið að gera
þetta með nýjum kjarasamningi við
grunnskólakennara.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands íslenskra sveitar-
félaga, tók undir þetta og kvaðst
telja samninginn við kennara tíma-
mótasamning. Sveitarfélögin hefðu
talið mikla þörf á að auka sveigj-
anleika í skólastarfi og gera breyt-
ingar á vinnuskipulagi. Tilraunir til
að ná því fram 1997 og 1999 hefðu
mistekist og því væri fagnaðarefni
að það hefði tekist nú.
Birgir Björn fór ítarlega yfir
samninginn á ráðstefnunni. Hann
sagði að launanefndin hefði í viðræð-
unum lagt fram markmið sem hún
vildi ná fram. Þau væru m.a. um að
draga úr miðstýringu, faglegri
vinnubrögð og um aukinn sveigjan-
leika. Hann sagði að ef menn skoð-
uðu samninginn myndu menn sjá að
þessi markmið hefðu náðst.
Birgir Björn lagði áherslu á að
með samningnum væri verið að gera
mikla breytingu varðandi stöðu
skólastjóra. Verkstjórnarvald þeirra
yrði aukið mikið. Skólastjórar
fengju m.a. vald til að taka ákvarð-
anir um vissan hluta launagreiðslna
til kennara, m.a. með vísan til færni
þeirra í starfi.
Hann sagði mikilvægt að sveitar-
stjórnarmenn styddu við bakið á
skólastjórum, sérstaklega fyrstu
skrefin. Skólastjórar kæmu til með
að ráða miklu um hvernig til tækist
um framkvæmd samningsins. Sveit-
arstjórnarmenn yrðu hér eftir að líta
á skólastjóra sem forstöðumenn
stofnana og styrkja stöðu þeirra sem
slíkra. Birgir Björn sagði að það
væri ekki einfalt mál að reikna út
kostnað við samninginn. Samkvæmt
honum kæmu taxtalaun til með að
hækka um 42–45%. Á móti kæmi að
kennarar létu ýmislegt af hendi.
Hann kvaðst telja að heildarlauna-
summa grunnskólakennara hækkaði
með þessum samningi um 26–34%.
Það væri nokkuð mismunandi hvað
hver og einn kennari bæri úr býtum.
Hann sagði mikilvægt að hafa í huga
að á móti fengju sveitarfélögin auk-
inn stjórnunarrétt og sveigjanleika
og erfitt væri að meta það til fjár.
Þau væru einnig að kaupa meiri
vinnu af kennurum.
Miklir peningar lagðir
í samninginn
Birgir Björn sagði að brúttó-
kostnaður sveitarfélaganna með
þessum samningi væri um tveir
milljarðar. Hann kvaðst gera sér
grein fyrir að þetta væru miklir pen-
ingar, en það væri mikilvægt að gera
sér grein fyrir að viðbótarsamningar
sem sveitarfélögin gerðu við kenn-
ara á síðasta samningstímabili féllu
úr gildi í sumar um leið og nýtt
launakerfi yrði tekið upp, en kostn-
aður við þá næmi hundruðum millj-
óna. Hann sagðist vera sannfærður
um að samningurinn kæmi til með
að auðvelda sveitarfélögunum að fá
kennara til starfa.
Sveitarstjórnarmenn sem tóku til
máls á ráðstefnunni lýstu almennt
ánægju með samninginn og vinnu-
brögð launanefndarinnar. Því var
sérstaklega fagnað að tekist hefði að
ljúka samningum án verkfallsátaka.
Þó voru settar fram vissar áhyggjur
af því að skólar í dreifbýli kæmu til
með að eiga í erfiðleikum með að
standast samkeppni við stóru
skólana. Einnig komu fram vissar
áhyggjur af því að skólastjórar væru
ekki búnir undir að taka að sér þetta
nýja stjórnunarhlutverk.
Birgir Björn sagðist gera sér
grein fyrir að skólastjórar yrðu í erf-
iðu hlutverki og kennarar myndu
vafalaust þrýsta á að allir fengju
sömu launaflokkahækkanir. Hann
sagði að kennarar hlytu hins vegar
að átta sig á að ef verið væri að
leggja fyrir þá erfið verkefni, eins og
að kenna sérstaklega erfiðum bekkj-
um, gætu þeir gert kröfu um að fá
það viðurkennt í launum.
Vilhjálmur sagði í lok ráðstefn-
unnar að sveitarfélögin hlytu að hafa
áhyggjur af þeim kostnaði sem felst
í samningnum. Þau sæju aftur á
móti möguleikana sem felast í samn-
ingnum. Með honum gæfist færi á að
efla skólastarfið, bæta starfsandann
og samstöðu milli foreldra og kenn-
ara um að bæta skólann.
Launamálaráðstefna sveitarfélaganna fjallar um kennarasamninginn
Heildarlaun kennara
hækka um 26–34%
Morgunblaðið/Ásdís
Karl Björnsson (t.v.) og Birgir Björn Sigurjónsson kynntu störf launa-
nefndar fyrir sveitarstjórnarmönnum í gær.
AÐ meðaltali voru 1.852 skráðir á at-
vinnuleysisskrá í desember, sem
jafngildir því að atvinnuleysi í mán-
uðinum hafi verið 1,3% miðað við
áætlaðan mannafla á vinnumarkaði.
794 karlar voru á atvinnuleysis-
skrá og 1.058 konur.
Atvinnulausir voru 378 fleiri en í
nóvember en 531 færri en í desem-
ber í fyrra.
Atvinnuástandið versnaði alls
staðar á landinu frá nóvember til
desember en þó hlutfallslega lang-
minnst á höfuðborgarsvæðinu, að því
er fram kemur í yfirliti frá Vinnu-
málastofnun. Atvinnuleysi eykst
meðst á Suðurlandi, Austurlandi,
Vestfjörðum og Suðurnesjum en er
hlutfallslega mest á Vestfjörðum og
Norðurlandi vestra en minnst á höf-
uðborgarsvæðinu.
Allt nýliðið ár voru að meðaltali
1.865 manns á atvinnuleysisskrá,
sem jafngildir 1,3% atvinnuleysi, en
árið 1999 var atvinnuleysið 1,9% að
meðaltali.
Atvinnu-
leysi 1,3% í
desember
Í ÍSKÖNNUNARFLUGI
Landhelgisgæslunnar á
fimmtudag sást hafísbreiða
norðvestur af landinu, en haf-
ísinn er þó fjarri siglingaleiðum
umhverfis landið. Hafísinn hef-
ur nálgast landið nokkuð að
undanförnu en stöðvast vegna
suðaustanátta. Hafísinn var
næst landi um 44 sjómílur norð-
vestur af Straumnesi og að
sögn Þórs Jakobssonar, verk-
efnisstjóra hafísrannsókna
Veðurstofunnar, er ástandið
mjög nálægt því sem eðlilegt
telst miðað við árstíma.
Ísjaðarinn er þéttur, 7 til 9/
10 að þéttleika og mikil ný-
myndun á sér stað við þau hita-
skilyrði sem eru í hafinu.
Hafís
í meðallagi
NORSKAR rannsóknir hafa sýnt að
hækkað hlutfall offitu meðal
kvenna á barneignaraldri leiðir til
aukinnar hættu á að þungaðar kon-
ur verði fyrir með-
göngueitrun sem haft
getur neikvæð áhrif á
heilsufar móður og
barns. Tore Henrik-
sen, prófessor í fæð-
ingarfræði við háskól-
ann í Osló, kynnti
athuganir sínar og
samstarfsmanna á
læknadögum í Reykja-
vík.
Tore Henriksen hef-
ur rannsakað 3.700
konur í tvö og hálft ár
frá 1995 til 1997. Hann
segir ljóst að aukin
þyngd kvenna á barn-
eignaraldri þýði aukna hættu á að
þær fái meðgöngueitrun. Með-
göngueitrun hefur í för með sér
mótstöðu í æðum og súrefnsskort í
vefjum sem leiðir til skemmda í
frumum.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Tore Henriksen að mataræði skipti
miklu máli í þessu sambandi. Í
Bandaríkjunum færi þyngdarstuð-
ull kvenna hækkandi og það gilti
einnig um Evrópulönd, m.a. Noreg.
Ljóst væri að sykurneysla væri
meiri en góðu hófu gegndi og
nefndi hann m.a. gosdrykki í því
sambandi og sagði hálfan til einn
lítra á sólarhring of mikla neyslu.
Einnig sagði hann of mikið um að
menn neyttu orkuríkrar fæðu án
þess að hreyfa sig og að sama mætti
segja um fitu.
Tore Henriksen sagði afleiðingar
offitu á meðgöngu geta verið hækk-
aðan blóðþrýsting, sykursýki og
meðgöngueitrun. Þá sagði hann
meiri hættu á að þær konur eign-
uðust stór börn, yfir
4.000 grömm að
þyngd, sem oft hefði í
för með sér vandamál
í fæðingunni, beita
þyrfti tækjum og
stundum keis-
araskurði.
Ekki mikill áhugi
á þætti mataræðis
„Læknar hafa ekki
haft mikinn áhuga á
þætti mataræðis eða
næringar en ég verð
þó var við að þetta sé
að breytast,“ segir
Tore Henriksen. Telur
hann að læknar eigi að láta meira
til sín taka í þessum efnum þar sem
sýnt sé að of mikil þyngd geti haft
þessar neikvæðu afleiðingar á með-
göngu. Hvetja ætti þungaðar konur
til að hreyfa sig og sagðist hann oft
verða var við þann misskilning að
ekki væri talið æskilegt að þung-
aðar konur stunduðu hreyfingu.
Reynir Tómas Geirsson, prófess-
or og yfirlæknir kvennadeildar
Landspítala, sagði í erindi sínu að
hár blóðþrýstingur kvenna á með-
göngu, meðgöngueitrun og
meðgöngukrampi gæti haft áhrif út
fyrir meðgönguna sjálfa. Þannig
benti langtímaeftirfylgd hóps
kvenna til þess að þær sem urðu
fyrir áðurnefndum vanda í með-
göngu væru í aukinni hættu á að fá
kransæðasjúkdóma miðað við sam-
anburðarhóp.
Hækkað hlutfall offitu meðal
kvenna í Evrópu og Ameríku
Leiðir til meiri
hættu á með-
göngueitrun
Tore Henriksen
INGA Jóna Þórðardóttir, oddviti
borgarstjórnarflokks sjálfstæðis-
manna, segir að sér þyki um of ein-
blínt á nagladekk í umræðum um
rykmengun í borginni og slit á mal-
biki.
„Í umræðunni um slitið er sjálf-
sagt og nauðsynlegt að átta sig á
því hvað naglarnir slíta miklu en
menn mega ekki gleyma öðrum
þáttum, þ.e. að skoða áhrif salt-
notkunar og hvort hún er nauðsyn-
leg og ganga í fullri alvöru að því að
gera tilraunir með steypu til að
minnka þessa miklu malbiksnotk-
un,“ sagði Inga Jóna í samtali við
Morgunblaðið.
8.500 tonn af salti
„Saltnotkun er gríðarleg; það
fara 8.500 tonn af salti á göturnar á
hverju einasta ári. Það hafa ekki
verið lagðar fram rannsóknir á því
hvaða áhrif saltið hefur varðandi
það að leysa upp malbikið,“ sagði
Inga Jóna. „Menn einblína á nagla-
dekkin en skoða ekki þennan þátt.
Saltnotkunin er það mikil að það er
forsaltað, sem kallað er, ef spáð er
frosti. Við höfum verið að kalla eftir
því að þessi þáttur í sliti gatnanna
væri rannsakaður. Í annan stað
finnst mér skipta máli að vekja at-
hygli á því hvort malbikið sé það
sem við eigum að binda okkur við,“
sagði Inga Jóna.
Hún minnti á að sl. sumar hefði
borgarstjórn samþykkt tillögu
sjálfstæðismanna um að gerð yrði
tilraun með steyptar götur í borg-
inni. Tillagan gekk út á að tilrauna-
kafli yrði steyptur þá strax um
sumarið en var af meirihlutanum
breytt þannig að vinnuhópur var
settur á laggirnar sem Inga Jóna
segir að ætti að vera búinn að
leggja fram áætlun um hvernig
standa skuli að tilraununum. Þær
tillögur séu þó ekki komnar fram.
„Mér finnst að við eigum í mikilli
alvöru að huga að þeim þætti,“
sagði Inga Jóna. „Það sýnir sig að
steinsteypan slitnar ekki eins og
malbikið. Helstu vankantar sem
menn hafa séð á þessu er hvað
steypan er lengi að þorna og hvað
framkvæmdirnar tefja fyrir um-
ferð. En þá verður líka að meta
þær tafir sem verða árlega vegna
malbiksyfirlagnar,“ sagði hún og
sagði að tilraunir af þessu tagi
hefðu verið gerðar í nágrannasveit-
arfélögunum.
Inga Jóna sagðist, spurð um hug-
mynd borgarstjóra, sem fram kom
á borgarstjórnarfundi á fimmtudag,
um gjaldtöku af nagladekkjum,
vilja vega og meta þá hugmynd í
heildarmyndinni.
Ekki gleyma öryggisþættinum
„Menn mega ekki heldur gleyma
öryggisþættinum í sambandi við
nagladekk,“ sagði hún. „Við höfum
verið að þróa hér á umliðnum árum
harðkornadekk, sem við þurfum að
fá botn í hvort teljist tryggja sama
öryggi. Menn mega ekki gleyma því
að Reykvíkingar þurfa að fara á
sínum bílum um aðra hluta landsins
og menn skipta ekki svo glatt um
dekk þegar veturinn er kominn. Ég
held að við þurfum að hvetja fólk til
þess að komast hjá því í lengstu lög
að aka á nagladekkjum áður en far-
ið er út í gjaldtöku.“
Inga Jóna Þórðardóttir um loftmeng-
un vegna svifryks og nagladekk
Skoða þarf
saltnotkun og
steyptar götur