Morgunblaðið - 20.01.2001, Síða 14

Morgunblaðið - 20.01.2001, Síða 14
FRÉTTIR 14 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALMENNUM einkamálum sem þingfest eru fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur hefur fjölgað um 55% frá 1998. Í fréttatilkynningu frá dómnum segir að ekki verði með góðu móti séð hver sé ástæða þessarar miklu fjölg- unar. Um það séu skiptar skoðanir. „Sumir telja hana benda til versnandi efnahagsástands en aðrir til þess að efnahagsástandið fari batnandi því að þá taki menn til við að innheimta skuldir sem þeir töldu áður vonlaust að fengjust greiddar,“ segir ennfrem- ur í fréttatilkynningunni. Árið 2000 voru 9.733 einkamál þingfest, árið 1999 voru þau 7.742 en árið 1998 voru þingfestingar slíkra mála 6.275. Afgreiðslutími einkamála mun lengri Algengara er að almenn einkamál séu munnlega flutt en árið 2000 voru þau 770 en voru 661 árið á undan. „Hér er um töluverða fjölgun að ræða á milli ára en sé miðað við árin þar á undan, þ.e. frá 1994-1998, er fjöldi þessara mála svipaður og var á þeim árum,“ segir í tilkynningunni. Þá kemur fram að meðalafgreiðslu- tími þeirra sakamála sem ríkissak- sóknari höfðar er tveir mánuðir en að meðaltali tekur einn mánuð að af- greiða þau sakamál sem lögreglu- stjóri höfðar. Þá er miðað við tímann frá því ákæruvaldið afhendir dóm- stólnum ákæru þar til málið er af- greitt. Munnlega flutt einkamál taka mun lengri tíma en meðalafgreiðslu- tími þeirra er 7½ mánuður. Áritanir sektarboða lögreglu voru 1.533 í fyrra en árið 1999 voru þær 2.268 en hér er um að ræða umtals- verða fækkun. Ákærumálum fjölgaði hinsvegar nokkuð og voru 1.156 á árinu en 1.060 árið 1999. Beiðnir um rannsóknarúrskurði voru 524 í fyrra en voru 454 árið 1999. Beiðnir um dómskvaðningu mats- manna voru 103 en voru 111 árið 1999. Á síðasta ári voru gjaldþrotaskipta- beiðnir 1.032 sem er töluverð fækkun frá árinu áður, en þá voru þær 1.197. Gjaldþrotaskiptabeiðnir voru 999 árið 1998, 1.255 árið 1997 og 1.463 árið 1996. Héraðsdómi Reykjavíkur bárust 14.750 mál til afgreiðslu árið 2000             Mikil fjölgun einkamála síð- ustu tvö árFJÓRAR vikur voru liðnar 18. janúar frá síðasta prófdegi haust- annar í Háskóla Íslands og því ljóst í hversu mörgum námskeið- um einkunnaskil fóru yfir þann skilafrest sem reglugerð fyrir HÍ mælir fyrir um. Í 21% tilfella var einkunnum skilað of seint. Í vor- prófunum í fyrra var einkunnum skilað of seint í 32% tilfella. Ein- kunnaskilin hafa því batnað um 34% síðan síðastliðið vor. Kennarar hafa tekið sig á Stúdentaráð hefur undanfarið gengið hart fram í að fá kennara til að skila á réttum tíma, svo sem með einkunnaskilasíðu á Netinu og með því að auglýsa opinberlega eftir einkunnum í ákveðnum próf- um. Greinilegt er að margir kenn- arar hafa tekið sig á og bætt ein- kunnaskil sín, segir í fréttatilkynningu. Hér fyrir neðan sést hversu mörg námskeið fóru í vanskil í ein- stökum deildum: Hjúkrunarfræði- deild 53%, félagsvísindadeild 35%, viðskipta- og hagfræðideild 32%, tannlæknadeild 31% læknadeild 26%, raunvísindadeild 18%, laga- deild 15%, verkfræðideild 14%, guðfræði 11%, heimspekideild 9% og lyfjafræðideild 9%. Átak Stúdenta- ráðs skilar árangri Einkunnaskil í HÍ SAMFYLKINGIN gerðist formlega aðili að SAMAK, samstarfsvett- vangi norrænna jafnaðarmanna- flokka og Alþýðusambanda Norð- urlandanna, á ársfundi samtakanna í Ósló 11.–12. janúar síðastliðinn. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, ávarpaði fund- inn eftir að flokkur hans var form- lega tekinn í SAMAK og fór yfir stöðu mála á Íslandi. Að því loknu bauð Paul Nyrup Rasmussen, for- maður SAMAK og forsætisráð- herra Danmerkur, Össur velkom- inn í hópinn. Meðal helstu umræðuefna á fundinum voru verkefni jafnaðarmanna á nýrri öld og hlutverk ríkisvaldsins á tím- um nýja hagkerfisins, segir í fréttatyilkynningu frá Samfylking- unni. Össur Skarphéðinsson og Paul Nyrup Rasmussen Samfylkingin í SAMAK RANNSÓKNARDEILD lögregl- unnar í Reykjavík vinnur að rann- sókn máls þar sem tveir ungir menn urðu fyrir heyrnarskaða á Broadway, Hótel Íslandi, sl. nýárs- nótt. Málsatvik eru þau að mennirnir voru staddir á einu af salernum Broadway er þangað inn var hent e.k. sprengju sem sprakk þar. Afleið- ingar urðu þær að mennirnir hlutu báðir varanlegan heyrnarskaða. Þeir sem vitni voru að þessu og/ eða geta gefið einhverjar upplýsing- ar eru beðnir að hafa samband við rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík. Vitni vantar að sprengingu á Broadway SAMTÖK um betri byggð telja að borgarverkfræðingur hafi lagt fram rangar tölur varðandi færslu Reykja- víkurflugvallar og framkvæmdir við flugvöll á öðrum stöðum á höfuðborg- arsvæðinu. Í þeim tölum sé sagt að núverandi virði flugvallarstæðis í Vatnsmýri sé metið á 2,7 milljarða og land undir nýjan flugvöll sunnan Hafnarfjarðar sé ókeypis. Samtökin gagnrýna þessa framsetningu upp- lýsinga og telja að lauslegt mat á virði lands á flugvallarstæðinu í Vatnsmýri sé 40 til 75 milljarðar, eftir því hver þéttleiki byggðar yrði, og að land undir flugvöll sunnan Hafnarfjarðar myndi kosta 2–5 milljarða. Í fréttatilkynningu frá Samtökum um betri byggð segir að miðað við réttar kostnaðaráætlanir séu allir val- kostir undir flugvöll á höfuðborgar- svæðinu margfalt hagstæðari en Vatnsmýrin. Þá sé eftir að reikna inn í dæmið ábata vegna samgöngubóta sem yrðu við það að flugvöllurinn færi úr Vatnsmýrinni, en þeir útreikning- ar geri Vatnsmýrina ennþá óhag- stæðari í samanburði við aðra val- kosti. Lægri rekstrarkostnaður í þéttari byggð Í greinargerð með fréttatilkynn- ingunni, Skipulag höfuðborgarinnar – hagræn áhrif af byggðaþróun, kemur fram að byggð hafi þanist út frá stríðslokum og að nú sé Reykjavík og nágrenni eitt dreifbýlasta höfuðborg- arsvæði sem um getur. Afleiðingin af því sé vítahringur bílanotkunar, þar sem aukið land þarf undir gatnakerfi, lengri tími fari daglega í akstur og stærri hluti tekna einstaklinga fari í rekstur bíla. Samtök um betri byggð telja að með því að þétta byggð um 30% til ársins 2020, úr 17 íbúum á hektara í 22 íbúa á hektara, megi líklega lækka árlegan rekstrarkostnað einkabif- reiða um 54 milljarða og tímavirði far- þega um 75,6 milljarða, eða 18.900 mannár. Á sama tíma mætti lækka árlegan kostnað atvinnureksturs, sveitarfélaga og ríkis um allt að 44 milljarða með þéttari byggð. „Með flutningi flugstarfsemi á nýj- an stað á höfuðborgarsvæðinu fæst bót á meinsemdum og göllum í byggð- inni sem hlotist hafa af flugrekstri í Vatnsmýri frá 1946 og nýir mögu- leikar skapast. T.d. er víst að engin evrópsk borg á sambærileg tækifæri og Reykjavík til að taka risastökk í átt til þess að geta orðið raunveruleg menningarborg.“ segir í greinargerð samtakanna. Samtök um betri byggð telja borgarverkfræðing leggja fram rangar tölur Allir valkostir hag- stæðari en Vatnsmýrin RÚSSNESK messa verður haldin í Friðrikskapellu sunnudaginn 21. janúar og hefst kl. 10. Longin erki- biskup, annar tveggja biskupa rúss- nesku rétttrúnaðarkirkjunnar í Þýskalandi, þjónar fyrir altari. Í fréttatilkynningu segir að Longin komi hingað til lands í því skyni að stofna söfnuð rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Íslandi. Rússneska kirkjan verður því fyrsta kirkjudeild grísk-kaþólskra trúfélaga til að setja á fót söfnuð hér á landi. Fjölmargir Rússar búa nú á Ís- landi og mun söfnuðurinn einkum þjóna þörfum þeirra og annarra sem aðhyllast grísk-kaþólska trú. Allir eru velkomnir að messunni. Rússnesk messa OPIÐ Í DAG KL. 12-14 HÁVALLAGATA - 2JA Vorum að fá í sölu 2ja herb. íbúð í kjallara í góðu þríbýli. Sérinngangur, -rafmagn og -hiti. Frábær staðsetning. Verð 8,2 millj. FREYJUGATA - 2JA Góð endurnýjuð 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Allt sér. Laus strax. Verð 8,8 millj. SELJAHVERFI - 4RA Góð 4ra herb. 96 fm íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli ásamt stæði í bílskýli. Þvottah. í íbúð. Suðursvalir. Laus strax. Mjög sanngjarnt verð 9,9 millj. SALAHVERFI KÓP. - 4RA Glæsileg 4ra herb. íbúð á 1. hæð (jarðhæð) í nýju fjórbýlishúsi. Sérinngang- ur. Sérsuðurverönd. Vandaðar innréttingar. Áhvílandi 6,3 millj. húsbréf. Verð 13,9 millj. REYNIGRUND - KÓP. Vorum að fá í sölu skemmtilegt endaraðhús á tveimur hæðum neðst í Foss- vogsdal. Suðursvalir, bílskúrsréttur. Frábær staðsetning. Bein sala eða skipti á 3-4ra herb. íbúð. Verð 16,9 millj.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.