Morgunblaðið - 20.01.2001, Page 18
reksturs kvennaknattspyrnuliðs Þórs/
KA. Erindið var sent inn í kjölfar þess
að bæjarráð samþykkti fyrir skömmu
að styrkja handknattleikslið KA/Þórs
um tvær milljónir króna vegna ferða-
kostnaðar yfirstandandi keppnistíma-
bils. Sameiginlegt handknattleikslið
félaganna er rekið af KA en knatt-
spyrnuliðið af Þór, samkvæmt samn-
ingi sem gerður var milli félaganna
fyrir um þremur árum.
Mörg skref
til baka
Bæjarráð hefur enn ekki afgreitt
erindi Þórs um rekstrarstyrk. Á fundi
ÍTA í síðasta mánuði var bókað að ráð-
ið telur það óviðunandi að kvennalið
félaganna verði fært niður um deild og
mælir ÍTA jafnframt með því að bæj-
arráð styrki verkefnið. Þórarinn B.,
formaður ÍTA, ítrekaði þessa skoðun
ráðsins á fundinum í vikunni og undir
hana tók Kristján Þór bæjarstjóri.
Í máli Árna Óðinssonar, formanns
knattspyrnudeildar Þórs, kom einnig
fram að með því að færa liðið niður um
deild væri verið að stíga mörg skref til
KNATTSPYRNUDEILD Þórs boð-
aði til fundar í vikunni þar sem fjallað
var um framtíð kvennaliðs Þórs/KA.
Rekstur kvennaliðs félagsins hefur
gengið erfiðlega og á síðasta ári varð
tap á rekstrinum upp á um 2,6 millj-
ónir króna. Því hafa verið uppi hug-
myndir um að færa kvennalið Þórs/
KA niður um deild, þ.e. úr úrvalsdeild
í svæðisbundna 1. deild og hætta við
þátttöku í bikarkeppni KSÍ. Einnig er
þátttaka 2. flokks kvenna til skoðunar
en liðið á sæti í A-deild Íslandsmóts-
ins.
Þótt ekki hafi verið tekin formleg
ákvörðun á fundinum má telja nokkuð
öruggt, miðað við þá umræðu sem þar
fór fram, að kvennalið Þórs/KA muni
leika áfram á meðal þeirra bestu
næsta sumar. Fundinn sóttu um 50
manns, þar á meðal Kristján Þór Júl-
íusson bæjarstjóri, Þórarinn B. Jóns-
son, formaður íþrótta- og tómstunda-
ráðs, og Eiríkur B. Björgvinsson,
íþrótta- og tómstundafulltrúi.
Knattspyrnudeild Þórs sótti nýlega
um tveggja milljóna króna styrk til
bæjarins fyrir liðið keppnisár vegna
baka. Málið snerist hins vegar um
peninga og að stjórn deildarinnar
treysti sér ekki til þess að fara út í
rekstur liðs í efstu deild kvenna miðað
við óbreyttar forsendur. Árni sagði
nauðsynlegt að bærinn kæmi að mál-
inu með fjárstuðningi og að auki þyrfti
að virkja fleiri félagsmenn til að starfa
að málefnum kvennaboltans.
Ná kærustunum
varla á völlinn
Sigurjón Magnússon, stjórnarmað-
ur í knattspyrnudeild, sagði það vissu-
lega dapurt og skref afturábak ef til
þess kæmi að draga þyrfti liðið út úr
keppni þeirra bestu vegna kostnaðar
og áhugaleysis.
Sigurjón gerði áhugaleysi að um-
talsefni og sagði að það lýsti sér einna
best í fjölda áhorfenda á leikjum liðs-
ins. Aðeins örfáir áhorfendur mættu á
heimaleikina og þá aðallega foreldrar
leikmanna en það væri varla að stelp-
unum tækist að draga kærasta sína á
völlinn. Sigurjón sagði nauðsynlegt að
fá fleiri til að leggja þessu máli lið og
vísaði þar m.a. til foreldra þeirra
Unnið að lausn á málefnum kvennaliðs Þórs/KA í knattspyrnu
Allar líkur á að liðið leiki
áfram meðal þeirra bestu
stúlkna sem æfa og leika með félaginu.
Af ummælum þeirra Kristjáns Þórs
og Þórarins B. mátti ráða að bærinn
ásamt íþróttafélögunum á Akureyri
myndi á næstu vikum móta tillögur
um fjárhag og framtíðarrekstur
íþróttahreyfingarinnar í bænum. Hins
vegar hefur ekkert verið ákveðið í
þeim efnum.
Fjárhagsstaða félaganna
verulega slæm
Töluverð umræða hefur verið um
fjárhagsstöðu íþróttafélaganna í bæn-
um undanfarnar vikur og mánuði, sem
vægast sagt er mjög slæm. Á fund-
inum kom fram í máli bæjarstjóra að
gera má ráð fyrir að heildarskuldir
íþróttahreyfingarinnar í bænum séu
ekki undir 170 milljónum króna og þar
af séu gjaldfallnar skuldir um 60 millj-
ónir króna.
Innan bæjarkerfisins er unnið að
því að fara yfir fjármál íþróttahreyf-
ingarinnar og þá hafa KA og Þór tekið
upp viðræður á ný um sameiningu
meistaraflokka félaganna í karlaflokki
í handbolta og knattspyrnu.
AKUREYRI
18 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
ⓦ
vantar
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600.
í Borgarsíðu og götur þar í kring.
AÐSÓKN í sundlaugarnar á Ak-
ureyri, Sundlaug Akureyrar og
Sundlaug Glerárskóla var góð á
síðasta ári og mun betri en árið
1999. Töluverður stærðarmunur
er á þessum sundlaugum tveimur
og því einnig mikill munur á fjölda
gesta. Í Sundlaug Akureyrar eru
m.a. tvær stórar sundlaugar, fjöldi
potta og fjölskyldugarður.
Alls komu rúmlega 333.000
manns í Sundlaug Akureyrar á
síðasta ári en árið áður voru þeir
rúmlega 314.000. Gestir í almenn-
ingstíma voru 228.000 á árinu, þar
af fullorðnir 137.000. Skólanemar
voru 52.000 og aldraðir og ör-
yrkjar 27.000. Gestir í Sundlaug
Glerárskóla á síðasta ári voru tæp-
lega 64.000 en árið áður voru þeir
59.000. Gestir í almenningstíma
voru um 22.500 og þar af full-
orðnir um 9.800. Skólanemar og
sundfélagsfólk voru um 36.200 og
aldraðir og öryrkjar um 5.000.
Sundlaug Akureyrar var opin
362 daga á síðasta ári og var með-
alfjöldi gesta að jafnaði um 920
manns á dag. Júlí var sem fyrr
stærsti mánuður ársins en þá
komu 47.000 manns í Sundlaug
Akureyrar, eða um 1.500 manns
að jafnaði á dag. Mikill fjöldi kem-
ur að jafnaði í laugina í apríl, m.a.
í tengslum við Andrésar andar
leikana á skíðum og í fyrra voru
gestir í mánuðinum um 35.000.
Miklar endurbætur hafa farið
fram á Sundlaug Akureyrar síð-
ustu ár og er enn verið að. Þessa
dagana er verið að vinna end-
urbætur á efri hæð gamla hússins .
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um frekari framkvæmdir en að
sögn Gísla Kristins Lórenzsonar
forstöðumanns er aðkallandi að
byggja öryggisturn og fjölga
snyrtingum. Einnig að fjölga tækj-
um í fjölskyldugarði sundlaug-
arinnar.
Aukin aðsókn
í sundlaugarnar
Morgunblaðið/Kristján
Grunnskólanemendur á Akureyri í sundkennslu í Glerárskóla.
DAVÍÐSHÚS á Akureyri verður op-
ið á 106. afmælisdegi skáldsins,
sunnudaginn 21. janúar kl. 13.30-
16.30.
Erlingur Sigurðarson, forstöðu-
maður „Húss skáldsins: Sigurhæða
–Davíðshúss,“ verður gestum til leið-
sagnar og mun auk þess flytja og
fara með nokkur valin ljóð Davíðs
fyrir þá. Það á sér stað á heila tím-
anum hverju sinni, þ.e. kl. 14, 15 og
16 og stendur 20-25 mínútur hverju
sinni. Er því æskilegt að gestir stilli
svo til að þeir gangi í hús á seinni
helmingi hverrar klukkustundar vilji
þeir fá notið ljóðanna og eins til að
trufla síður lesturinn fyrir öðrum.
Davíðshús
opið á
morgun
AKUREYRARKIRKJA: Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11 á morgun,
sunnudag. Séra Svavar A. Jónsson.
Upphaf sunnudagaskólans á nýju
ári. Léttar veitingar í Safnaðarheim-
ili eftir messu. Fundur í Æskulýðs-
félaginu sama dag kl. 17. Biblíulest-
ur í Safnaðarheimili kl. 20.30 á
mánudagskvöld. Yfirskriftin er „Tíu
boðorð á 21. öld“ í umsjá séra Guð-
mundar Guðmundssonar. Morgun-
söngur í kirkjunni kl. 9 á þriðjudags-
morgun. Mömmumorgunn frá kl. 10
til 12 næsta miðvikudag. Á miðviku-
dagskvöld kl. 20 verður sjálfstyrk-
ingar- og samskiptanámskeið fyrir
konur í Safnaðarheimili kirkjunnar,
en það ber yfirskriftina „Konur eru
konum bestar“. Séra Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir sér um námskeiðið og
fer skráning fram í kirkjunni fyrir
hádegi. Kyrrðar- og fyrirbænastund
kl. 12 á hádegi á fimmtudag. Bæna-
efnum má koma til prestanna. Létt-
ur hádegisverður í safnaðarheimili á
eftir.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamkoma
og guðsþjónusta kl. 11 á morgun,
sunnudag. Sameiginlegt upphaf.
Foreldrar eru hvattir til að koma
með börnum sínum. Kyrrðarstund
verður í kirkjunni kl. 18.10 næsta
þriðjudag. „Leitum innri friðar í
faðmi Guðs.“ Hádegissamvera kl. 12
á hádegi næsta miðvikudag. Orgel-
leikur, altarissakramenti og fyrir-
bæn. Léttur hádegisverður á vægu
verði.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma kl. 20 á sunnudagskvöld.
Heimilasamband kl. 15 á mánudag.
Biblíufræðsla á miðvikudag kl. 19,
súpa og brauð í húsakynnum Hjálp-
ræðishersins við Hvannavelli 10 á
Akureyri.
HRÍSEYJARPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli verður í Hríseyjar-
kirkju á morgun, sunnudag, kl. 11.
Messa verður í Stærri-Árskógs-
kirkju kl. 14 á morgun, sunnudag.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl.
18 í dag, laugardag og kl. 11 á morg-
un, sunnudag, í Péturskirkju við
Hrafnagilsstræti 2 á Akureyri.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundarskóla kl. 13.30 á morgun,
sunnudag. Almenn samkoma á Sjón-
arhæð, Hafnarstræti 63, Akureyri,
kl. 17 á sunnudag. Bjarni Guðleifs-
son kynnir Gideonfélagið. Allir vel-
komnir. Fundur fyrir 6-12 ára
krakka á Sjónarhæð á mánudag kl.
17.30.
Kirkjustarf
NÝ gólfefnaverslun, Úti og inni,
hefur verið opnuð á Njarðarnesi 1
á Akureyri, norðan við nýja To-
yota-húsið. Eigendur verslunar-
innar eru Agnes Arnardóttir og
Jóhannes Sigursveinsson.
Þar er verslað með gólfefni, að-
allega frá Harðviðarvali, parkett,
plastparkett, flísar, dúka og fylgi-
efni, innihurðir, skrautlista, úti-
arna og fleira.
Þá selur verslunin sumarhús
frá Rana Hytta í Norður Noregi.
Hægt er frá sumarhúsin í ýmsum
stærðum, frá 20-88 fermetra að
gólffleti, þau eru flutt inn í ein-
ingum og eru auðveld í uppsetn-
ingu.
Verslunin er opin virka daga
frá kl. 9-18 og á laugardögum frá
kl. 10-14.
Ný gólfefnaverslun á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Eigendur Úti og inni, Agnes Arnardóttir og Jóhannes Sigursveinsson, í verslun sinni.
ÁTTA liða úrslit í spurningakeppni
Baldursbrár verða sunnudaginn 21.
janúar kl 20.30 í safnaðarsal Gler-
árkirkju. Aðgangseyrir er 600 kr. og
gildir sem happdrættismiði.
Ágóði af keppninni í vetur rennur í
söfnun fyrir steindum glugga í Gler-
árkirkju. Ath. Breyttan dag.
Spurninga-
keppni
Baldursbrár
♦ ♦ ♦