Morgunblaðið - 20.01.2001, Page 28
28 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Alnæmi
Erfðabreytt prótín
hindrar sýkingu
Mígreni
Þekkt hjartalyf dregur
úr köstunum
Læknisfræði
Dofi orsakast af
boðtruflunum
Sjúkdómar
Sýklar oftar að verki
en talið hefur verið?HEILSA
Spurning: Ég hef í nokkra mán-
uði fundið fyrir doða eða dofa í ilj-
unum. Hér er ekki um náladofa
að ræða. Ég finn ekki fyrir þessu
þegar ég geng en verð vör við
þennan dofa í kyrrstöðu. Hvað
getur þetta verið?
Svar: Dofi getur átt sér mjög
margar og margvíslegar orsakir,
sumar meinlausar en aðrar
hættulegar. Skyntaugar senda
viðstöðulaust boð frá húðinni til
heilans en venjulega erum við lít-
ið meðvituð um boðin. Ef truflun
verður á þessum boðum, sem get-
ur verið einhvers konar verkur
eða dofi, getur það tekið alla at-
hygli okkar.
Truflunum á húðskyni má
skipta í tvo flokka, aukin tauga-
boð eða brottfall taugaboða. Auk-
in taugaboð geta lýst sér á ýmsa
vegu: kitlandi, stingandi, náladofi,
þrýstingur, skot eða elding, verk-
ur, skerandi, togandi, þvingandi,
brennandi eða rífandi. Þessi lýs-
andi orð eru oft notuð af sjúkling-
unum sem upplifa þessar tilfinn-
ingar sem stundum eru
sársaukafullar og stundum ekki.
Brottfall taugaboða frá húðinni
lýsir sér sem minnkað húðskyn
og þegar þessi minnkun hefur náð
vissu marki upplifum við það sem
dofa. Mælingar gefa til kynna að
þegar húðskyn hefur minnkað um
helming förum við að upplifa það
sem dofa en þetta er bæði ein-
staklingsbundið og háð því hve
hratt húðskynið minnkar. Húð-
skyn er af nokkrum gerðum og
má þar helst nefna snertiskyn,
sársaukaskyn og hitaskyn.
Brottfall húðskyns getur tak-
markast við sumar þessara gerða
eða að þær minnka mishratt.
Þetta getur skipt máli fyrir sjúk-
dómsgreiningu og hægt er að
prófa mismunandi gerðir húð-
skyns; snertiskyn má prófa með
léttri snertingu, sársaukaskyn
með nál og hitaskyn með snert-
ingu með ýmist heitum eða köld-
um hlut. Brottfall húðskyns getur
stafað af truflun í starfsemi út-
tauga sem flytja boðin frá húðinni
til mænu eða heila og það getur
líka stafað af truflun í starfsemi
miðtaugakerfisins (mænu eða
heila).
Dofi í fótum eða iljum getur átt
sér fjölmargar orsakir. Ef sina-
breiður í fæti eða ökkla þrengja
að taugunum getur það valdið
dofa sem venjulega er verstur við
gang. Ýmsir hrörnunarsjúkdómar
í mænu, m.a. heila- og mænusigg
(MS), geta lýst sér með dofa og
hjá um fjórðungi sjúklinga með
MS eru fyrstu einkennin dofi.
Skortur á B12-vítamíni, sem
venjulega stafar af því að lík-
aminn hættir að geta nýtt sér vít-
amínið úr fæðunni, lýsir sér með
blóðleysi og taugaskemmdum
sem oft koma fram sem dofi. Ef
tekið er of mikið af B6-vítamíni
(pýridoxíni), geta orðið tauga-
skemmdir sem m.a. lýsa sér með
dofa. Vitað er að þetta getur
gerst við langvarandi töku á
meira en 100 mg á dag en sumir
gætu verið viðkvæmari fyrir
þessu vítamíni og fengið eit-
urverkanir eftir lægri skammta.
Sumir veirusjúkdómar geta
valdið dofa en yfirleitt eru önnur
einkenni meira áberandi. Þegar
sykursýki hefur staðið lengi geta
orðið taugaskemmdir sem m.a.
lýsa sér með dofa. Langvarandi
ofneysla áfengis getur leitt til
taugaskemmda og rannsóknir
sýna að 5-15% áfengissjúklinga fá
slíkar skemmdir en eitt af ein-
kennum þeirra er dofi.
Síðast en ekki síst er fjöldinn
allur af lyfjum (m.a. sum lyf við
mígreni og sum sýklalyf) sem
geta haft dofa sem aukaverkun og
dofinn getur komið fram á ýms-
um stöðum líkamans. Þessi upp-
talning hinna ýmsu orsaka dofa
er alls ekki tæmandi.
Sá sem er með dofa vikum eða
mánuðum saman ætti að leita
læknis og vil ég ráðleggja bréfrit-
ara að gera það.
Af hverju stafar dofi?
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Boðtruflun
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn-
inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið
er á móti spurningum á virkum dögum milli
klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum
eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax
5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir-
spurnir sínar með tölvupósti á netfang
Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot-
mail.com.
SÓLSKIN verndar líkamann gegn
heila- og mænusiggi (MS), sam-
kvæmt nýrri rannsókn á sjúk-
dómnum, sem gerð var á fólki af
mörgu þjóðerni, frá pólsvæðum til
miðbaugs. Vitað hefur verið í að
minnsta kosti hálfa öld að fólki
sem býr nærri pólunum er 100
sinnum hættara við sjúkdómnum
en þeim sem búa á miðbaug, þar
sem engin tilfelli hans hafa fund-
ist.
Graham Bentham, prófessor við
umhverfisfræðadeild East Anglia-
háskóla í Bretlandi, hefur gert töl-
fræðirannsókn sem hann telur
varpa ljósi að þennan landfræði-
lega mun í fyrsta sinn. Segir hann
rannsókn sína, sem enn hefur ekki
verið birt, hafa prófað, með já-
kvæðri niðurstöðu, þá tilgátu að
muninn megi útskýra með land-
fræðilegum mun á magni útfjólu-
blárra-B geilsa (UVB), sem eru
helsta D-vítamínlind líkamans.
Fiskneysla hjálpar
Íslendingum
Rannsóknin leiddi í ljós að
hærra hlutfall af feitum fiski, sem
er ríkur að D-vítamíni, í fæðu
Norðmanna og Íslendinga útskýrði
að líkindum hvers vegna MS-til-
felli meðal þeirra eru færri en
annarra Norður-Evrópubúa. Hing-
að til, segir Bentham, hefur verið
leitað annarra útskýringa á hinum
mikla mun eftir hnattstöðu á fjölda
MS-tilfella. Ein var sú, að fólk
nærri pólunum ætti sameiginlega
arfbundna þætti sem gerðu það
veikara fyrir. Önnur var að MS
væri vírus, sem enn hefðu ekki
verið borin kennsl á, sem fólk á
norðlægum slóðum kæmist meira í
snertingu við vegna langs veturs.
Frekari útskýring var sú, að MS
væri viðbrögð við algengum vírus-
um.
Bentham komst einnig að því, að
meðal fólks sem borðaði mikið af
dýrafitu var meiri hætta á MS.
Segir hann mögulega útskýringu
þess að sólskin dragi úr hættunni
væri sú, að vitað væri að það
drægi úr virkni ónæmiskerfisins.
Sólskin drægi því líklega úr of
sterkum viðbrögðum líkamans
gegn sjálfum sér. Sagði Bentham
ennfremur að upplýsingar væru
ekki nægar til að skera úr um
hvort kenningin um D-vítamínið
eða þessi útskýring á því hvers
vegna sólskin virðist koma í veg
fyrir eða hægja á MS, væri rétt.
Ef það væri vegna D-vítamíns
mætti bæta það upp með fæðubót-
arefnum eða með aukinni neyslu á
feitum fiski, án þess að eiga á
hættu að fá húðkrabbamein vegna
of mikils sólarljóss.
Orsakatengsl?
Ensku MS-samtökin hafa varað
við því að ekki megi gera of mikið
úr niðurstöðum Benthams fyrr en
þær hafi verið metnar af öðrum
vísindamönnum og birtar. Dr.
Lorna Layward, yfirmaður rann-
sóknardeildar samtakanna, benti á
að gallinn við faraldursfræðirann-
sóknir eins og þessa væri sá, að
þær gætu bent á tengsl sem ekki
væru orsakatengsl. Frekari rann-
sókna væri þörf til að skera úr um
hvort um orsakatengsl væri að
ræða.
Sólskin verndar gegn MS
Associated Press
Blessuð sólin vekur ekki einasta allt með kossi heldur benda rannsóknir
til að hún veiti vernd gegn einum skæðasta sjúkdómi sem þekkist.
The Daily Telegraph.
Líkur á því að taka MS-
sjúkdóminn minnka eft-
ir því sem nær dregur
miðbaug. Nærri pól-
unum er þessi sjúkdóm-
ur mun algengari þótt
mikil fiskneysla kunni
að hjálpa Íslendingum
og Norðmönnum.
EINS og allir þekkja sem reynt
hafa megrun er vandinn ekki endi-
lega sá að ná burt kílóunum. Raun-
irnar hefjast þegar reynt er að
halda þeirri þyngd sem náðst hef-
ur.
Nýjar rannsóknir gefa til kynna
að lyf, sem kemur í veg fyrir að
menn bæti á sig aftur því sem þeir
hafa náð að missa, sé komið fram. Í
grein sem birtist fyrir skemmstu í
læknatímaritinu Lancet er greint
frá því að fólki sem þjáðist af offitu
hafi tekist að forðast að bæta á sig
80% þeirrar þyngdar sem það
hafði misst með því að nota lyf
þetta í tvö ár.
Hér ræðir um lyf sem nefnist í
Bandaríkjunum Meridia, en það
inniheldur virka efnið sibutramine.
„Lyfið fer einstaklega vel í fólk
og árangurinn er stórbrotinn,“
segir dr. Mike Lean, sérfræðingur
í offitusjúkdómum, sem starfar við
háskólann í Glasgow, en hann kom
hvergi nærri rannsókninni. „Þarna
koma fram traustar upplýsingar í
þá veru að lyfið dugi sem langtíma
megrunarlyf.“
Hér er þó ekki um kraftaverka-
lyf að ræða, segir forsprakki rann-
sóknarhópsins, dr. Philip James,
sem er prófessor við Rowett-
rannsóknarstofnunina í Aberdeen í
Skotlandi og formaður alþjóðlegs
hóps vísindamanna sem fæst við
rannsóknir á þessu sviði og nefnist
á ensku „The International Obesity
Task Force“.
„Þeir sem ráðleggja mönnum að
breyta bara mataræðinu og taka
upp líkamsrækt hjálpa einungis til-
tölulega fámennum hópi fólks. Ein-
ungis um 10-15% þeirra sem leggja
á sig megrun ná að halda kílóunum
í burtu,“ segir hann.
Rannsóknir á lyfinu hafa ekki
leitt í ljós nein tengsl við skemmdir
í hjartalokum, en eldra megrunar-
lyf, sem innihélt efnið fenfluram-
ine, var tekið af markaði árið 1997
af þeim sökum. Þá er á markaði
megrunarlyfið Xenical, sem inni-
heldur virka efnið orlistat og er
m.a. fáanlegt hér á landi.
Dr. Xavier Pi-Sunyer, offitu-
sérfræðingur sem starfar í New
York, sagði hins vegar að notkun
Meridia-megrunarlyfsins gæti
fylgt aukinn blóðþrýstingur og ör-
ari hjartsláttur. Þyrfti af þeim sök-
um að fylgjast grannt með þeim
sem notuðu lyfið. Hins vegar gæfi
rannsóknin tilefni til bjartsýni.
Nýja lyfið er framleitt af Knoll
Pharmaceutical sem heyrir undir
þýsku BASF Pharma-samsteyp-
una. Það fyrirtæki tók þátt í því að
kosta nefnda rannsókn. Nú nota
um fjórar milljónir manna Merdia
um heim allan.
Lundúnum. AP. Associated Press
Vandinn er ekki síst fólginn í
því að viðhalda þeim árangri
sem náðst hefur.
Megrunin rennur oftar
en ekki út í sandinn.
Nú kann hjálp að vera
innan seilingar.
TENGLAR
.....................................................
The Lancet:www.thelancet.com
International Obesity Task Force:
www.iotf.org
Langtíma
megrun-
arlyf?