Morgunblaðið - 20.01.2001, Side 30
30 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT úrræði kann að vera innan
seilingar fyrir þá sem þjást af
mígrenihöfuðverkjum en hafa ekki
hlotið bót fyrir tilstilli hefðbundinna
lyfja. Norskir vísindamenn hafa lok-
ið bráðabirgðarannsókn á lyfi sem
nefnist lisinopril, og var upphaflega
ætlað til meðhöndlunar á hjartabil-
unum, en hefur óvænt reynst koma í
veg fyrir mígreni. Lisinopril er á
markaði hér á landi og er ætlað við
háum blóðþrýstingi og/eða hjartabil-
un.
Vísindamennirnir athuguðu áhrif
mismunandi dagskammta af lyfinu á
höfuðverk 60 mígrenisjúklinga á
aldrinum 19 til 59 ára. Þrjátíu tóku
eina pillu á dag í eina viku og síðan
tvær pillur daglega í 11 vikur. Eftir
tveggja vikna hvíld fylgdu þeir sömu
forskrift, en tóku þá óvirkt platlyf.
Annar 30 manna hópur tók platlyf í
12 vikur og síðan lisinopril í 12 vikur.
Heildarniðurstöður birtust í janúar-
hefti British Medical Journal.
Á meðan sjúklingarnir tóku lyfið
fækkaði þeim klukkustundum, sem
þeir þjáðust af höfuðverk, um 20%,
og dagar með mígreniköstum voru
21% færri miðað við platlyfið, sam-
kvæmt niðurstöðunum. Þegar höfuð-
verkjaköst komu töldu sjúklingarnir
þau 20% léttvægari þegar þeir tóku
lisinopril heldur en þegar þeir tóku
platlyfið.
Harald Schrader, við Norska vís-
inda- og tækniháskólann, og sam-
starfsfólk hans, segir að lisinopril sé
auk þess vel þolanlegt. Neikvæðar
aukaverkanir á borð við svima eða
hósta töldust vera vægar eða miðl-
ungi alvarlegar. Hefðbundnar með-
ferðir við mígreni, eins og til dæmis
lyfjaflokkur sem nefnist triptans,
veita oft aðeins bót við hluta ein-
kennanna. Vísindamenn eru að rann-
saka fjölda lyfja sem möguleika á
nýjum meðferðum, þ. á m. lyf við
flogaveiki og þunglyndi.
Hjartalyf kann að
vinna gegn mígreni
New York. Reuters.
Associated Press
Mígrenið gerir ekki mannamun. Hér er þekktum leikmanni í þeirri
miklu menningaríþrótt bandarískum ruðningi hjálpað af velli eftir að
hafa fengið heiftarlegt mígrenikast.
TENGLAR
.....................................................
British Medical Journal :www.bmj.com
NIÐURGANGUR í rannsóknarferð
til Kansas varð kveikjan að bestu
hugmyndum Pauls W. Ewalds. Hann
er dýrafræðingur og var að kanna
félagslíf spörva. En á meðan ósköpin
gengu yfir þarna fyrir 24 árum hafði
hann tíma til að velta öðrum hlutum
fyrir sér. Voru hans eigin vandræði
einfaldlega afleiðing þess að ein-
hverjir sýklar voru ákveðnir í að
dreifa úr sér? Eða var líkami hans að
reyna að skola sýklunum burtu? Var
þetta þróunaraðlögun innrásarliðs
eða háþróuð vörn mannslíkamans
gegn því?
Hið darwiníska viðhorf
Þegar hann hafði náð heilsu á ný
fór hann að kanna læknarit. „Mér
varð ljóst að í læknaritunum voru
næstum því allar vangaveltur um
þróunarferli á misskilningi byggð-
ar,“ segir hann. Því hófst hann handa
við að leiðrétta þetta. Þótt hann sé
ekki læknir hefur Ewald beitt skiln-
ingi nítjándualdarhugsuðarins
Charles Darwins til að leggja sitt að
mörkum til svonefnds darwinísks,
eða þróunar, viðhorfs til sjúkdóma.
Niðurstaða Ewalds er sú að hefð-
bundinni læknisfræði, sem einbeitir
sér að arfberum og lífstíl, sjáist yfir
meginorsök langvinnustu, útbreidd-
ustu og skaðlegustu sjúkdóma sem
herja á menn. Hann hefur sýkla
grunaða um að valda hjartasjúkdóm-
um. Krabbamein telur hann að megi
rekja til sýkingar. En hvað með geð-
sjúkdóma? Jú, þar er einnig við sýkla
að sakast, telur Ewald.
Ásamt nokkrum samstarfsmönn-
um hefur hann staðið fyrir dálítilli
endurreisn sýklakenningarinnar um
sjúkdóma sem hefur að mestu fallið í
skuggann af öðrum hugmyndum síð-
an lömunarveiki, bólusótt, berklar og
aðrar langvinnar plágur voru fyrir
mörgum árum afhjúpaðar og reynd-
ust smitsjúkdómar. Vísbendingum
um að Ewald kunni að hafa rétt fyrir
sér fer fjölgandi, að minnsta kosti
um að sýklar hafi verið vanmetnir,
og að búast megi við annarri öldu
sjúkdóma.
Ofmetin áhrif
Til dæmis eru ætissár, eða maga-
sár, sem löngum voru rakin til
streitu og vinnusýki, nú af flestum
talin stafa af sýkingu og oft með-
höndluð með sýklalyfjum. Legháls-
krabbamein hefur verið rakið til
totuvörtuvírussins sem finnst í
mönnum og veldur einnig kynfæra-
vörtum. Það var ekki Ewald sem
gerði þessar uppgötvanir en hann
hefur ítrekað bent á að þær séu vís-
bendingar um að of mikið hafi verið
gert úr áhrifum erfða og umhverfis
sem sjúkdómsvalda og að mikilvæg-
ustu rannsóknirnar á sýklum séu
enn óunnar.
„Smitsjúkdómafræði hefur alltaf
verið vanmetin,“ segir hann. „Vand-
inn er sá, að smitsjúkdómar eru gríð-
arlega fjölbreyttir.“ Frammi fyrir
öllum þessum fjölda hefur hugsun
hans leitað út fyrir mörk formlegrar
menntunar hans og sérhæfingar vís-
indalegrar hugsunar. Nýjasta bókin
hans heitir „Plague Time: How
Stealth Infections Cause Cancers,
Heart Disease, and Other Ailments“
(Plágutíð: Hvernig ósýnilegar sýk-
ingar valda krabbameini, hjartasjúk-
dómum og öðrum kvillum) og var
gefin út í október sl. Í henni rekur
hann sögu læknisfræðinnar frá
svartadauða til genamengis manns-
ins. Ewald er prófessor í líffræði við
Amhers-háskóla í Bandaríkjunum
en skrifaði bókina fyrir almenning á
venjulegu máli og í frásagnarstíl sem
er sjaldgæfur í vísindum.
Margir vísindamenn, jafnvel líka
sumir talsmenn smitsjúkdómafræða,
telja að Ewald gangi ef til vill of langt
með kenningu sína um sýkla. „Mér
þykja hnattrænar alhæfingar óþægi-
legar,“ segir Randolph Nesse, geð-
læknir við Háskólann í Michigan í
Bandaríkjunum. „Þær fá suma vís-
indamenn til að halda að darwinísk
læknisfræði sé að einhverju leyti frá-
brugðin venjulegri læknisfræði hvað
varðar viðmið.“
Hin áhyggjulausa velþóknun
En Ewald segir að hugmyndum
sínum sé „ætlað að skekja þá
áhyggjulausu velþóknun sem fólk
hefur á nútímalæknisfræði“. Flestir
vísindamenn líta svo á, að sjúkdómar
stafi af flóknu samspili margra þátta;
gena, umhverfisþátta á borð við síg-
arettureyk og einnig sýkla. Ewald er
að mestu sammála þessu, en segir að
ráðandi öfl séu sem dáleidd af sjón-
arspili erfðafræðinnar og yfirsjáist
því oft skotmarkið sem sýklar séu.
Segir hann að erfðamengi sýkla
myndi veita meiri skilning á helstu
sjúkdómum en hið margumtalaða
erfðamengi mannsins geti gert.
„Það verður ekki allt rakið til
sýkla,“ segir hann. „En í raun munu
allir stærstu og mikilvægustu [sjúk-
dómarnir] vera orsakaðir af sýking-
um.“
Bandarískur vísindamaður endurvekur hugsun Darwins
Telur sýkla vera or-
sök flestra sjúkdóma
Associated Press
Paul Ewald, sem kennir við Am-
herst-skóla í Massachusetts í
Bandaríkjunum, gerir grein fyr-
ir kenningum sínum.
Amherst í Bandaríkjunum. AP.
GENETÍSKT þróað prótín hefur
í tilraunum á rannsóknastofu
getað komið í veg fyrir að al-
næmisveiran sýki frumur. Segja
vísindamenn þetta lofa góð um
öfluga meðferð við sjúkdómn-
um.
Dr. Peter Kim, við Whitehead-
rannsóknastöðina í líflæknis-
fræði í Bandaríkjunum, segir að
prótínið, sem nefnist 5-Helix,
geti heft ferlið sem alnæmis-
veiran, HIV, notar til að komast
inn í frumur. Í niðurstöðum
rannsóknar er nýverið birtist í
tímaritinu Science segja Kim og
meðhöfundar hans að í tilraun-
um virki 5-Helix með því að
koma í veg fyrir að HIV renni
saman við ytri himnuna á heil-
brigðum frumum.
Segir Kim að tilraunir sýni að
prótínið virki gegn öllum helstu
afbrigðum HIV. Þegar er verið
að gera tilraunir með lyf sem
virka með því að hindra aðgang
HIV að frumum en Kim sagði að
þau lyf séu samsett og búin til
með efnaferli.
Tilraunaprótínið 5-Helix var
búið til með því að breyta geni í
bakteríu sem þá framleiddi
prótínið. Sagði Kim svona prótín
vera ódýrari í framleiðslu og
standast betur mótstöðu þegar
þau séu komin inn í líkamann.
Enn er þó ekki búið að gera
tilraun með prótínið á dýrum og
segir Kim ekki vitað hvort prót-
ínið reynist hafa eituráhrif á
líkamann eða hvort það helst
nógu lengi í líkamanum til að
virka á HIV.
Associated Press
Unnið að alnæmisrannsóknum.
Alnæmisrannsóknir
Vonir bundnar
við breytt prótín
TENGLAR
.....................................................
Tímaritið Science:http://intl.science-
mag.org/.
Associated Press.
BÓLUEFNI, sem verið er að gera
tilraunir með, kann að reynast
áreiðanleg og áhrifarík leið til að
draga úr vexti krabbameins í brisi,
sem er ein banvænasta gerð
krabbameins og sú sem er hvað
erfiðast að meðhöndla. Niðurstöð-
ur bráðabirgðarannsókna þykja
lofa góðu.
Hátt í 29 þúsund manns látast
árlega í Bandaríkjunum úr bris-
krabba, samkvæmt upplýsingum
krabbameinsfélagsins þar í landi.
Nú eiga þeir, sem greinast með
þetta krabbamein, fárra kosta völ,
annarra en að láta fjarlægja bris-
ið, sem sér líkamanum fyrir insúl-
íni.
„Þetta er sjúkdómur sem eigin-
lega er engin viðunandi meðferð
til við núna,“ segir aðalhöfundur
rannsóknarinnar, dr. Elizabeth M.
Jaffe, við Johns Hopkins-lækna-
stofnunina í Baltimore í Banda-
ríkjunum.
Jaffe og samstarfsfólk hennar
prófaði bóluefni sem inniheldur
brisfrumur úr mönnum, sem
ræktaðar voru á rannsóknarstofu
og erfðaefninu í þeim breytt þann-
ig að bætt var í það ónæmisauk-
andi geni, eða arfbera, svonefndu
GM-CSF-geni. Virkjun þessa
gens hjálpar ónæmiskerfinu að
bera kennsl á og eyða krabba-
meinsfrumum sem leynast í líkam-
anum.
Fjórtán sjúklingar, sem höfðu
gengist undir aðgerð til að fjar-
lægja úr þeim brisið og hluta
smágirnis, fengu bóluefnið. Í tólf
tilfellum var bólusetningunni fylgt
eftir með lyfja- og geislameðferð í
hálft ár. Bólusetning var endur-
tekin mánaðarlega í sex tilfellum,
og varð sóttarhlé hjá þeim sjúk-
lingum í að minnsta kosti hálft ár.
Ónæmiskerfi þriggja af þessum
sex sjúklingum virtist bregðast við
með því að halda uppi „dráps“-við-
brögðum við krabbameinsfrumun-
um, sem er dæmigert fyrir GM-
CSF-genið, að því er höfundar
rannsóknarinnar segja í janúar-
hefti Journal of Clinical Oncology.
Jaffe tjáði fréttastofu Reuters
að sjúklingarnir þrír, sem ónæm-
isviðbrögðin urðu hjá, kenndu sér
enn ekki meins, þrem árum eftir
að hafa greinst með krabba.
Engra eituraukaverkana varð
vart í tengslum við meðferðina,
segja vísindamennirnir.
Bóluefni gegn
briskirtilskrabba
lofar góðu
New York. Reuters.
TENGLAR
.................................................
Journal of Clinical Oncology:
http://intl.jco.org