Morgunblaðið - 20.01.2001, Síða 38

Morgunblaðið - 20.01.2001, Síða 38
MENNTUN 38 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ F yrir nokkrum árum varð uppi fótur og fit þegar birtar voru niðurstöður svokall- aðrar TIMSS- rannsóknar (Third International Mathematics and Science Study) sem var alþjóðleg könnun á getu nemenda í raungreinum. Ís- lenskir nemendur í 3. og 4. bekk grunnskólans komu hörmulega út. Í stærðfræði voru 3. bekk- ingar í næstneðsta sæti þeirra 26 þjóða sem þátt tóku og 4. bekkingar voru í þriðja neðsta. Í náttúrufræðigreinum var árang- urinn aðeins skárri, þar voru þriðja bekkjar börn í fimmta neðsta sæti en fjórða bekkjar krakkarnir í því sjöunda. Þessi niðurstaða, árið 1997, var í beinu framhaldi af áfallinu sem þjóðin fékk þeg- ar skýrt var frá TIMSS-könnun árið 1996, þar sem íslenskir nemendur í 7. og 8. bekk grunn- skólans vermdu neðstu sæti í 45 þjóða könnun og skipuðu sér þar á bekk með þjóðum eins og Ír- an, Kólumbíu, Kýpur og Suður- Afríku. Þegar þjóðin fór að ranka við sér eftir höggið sem stolt henn- ar varð fyrir var að sjálfsögðu farið að leita skýringa á slakri útkomunni. Sumir sögðu allt of litlu fjármagni varið til skólanna, sem er auðvitað upphrópun sem alltaf er gott að geta gripið til. Þar voru menn að vísu ekki sammála um hvort peningarnir ættu að fara í reiknitölvur eða laun kennara. Við umræður á þingi benti menntamálaráðherra á að Norðmenn, hinir stöndugu frændur okkar, hafa dælt millj- ónum á milljónir ofan í skóla- kerfið en nemendur þar í landi stóðu sig samt sem áður mjög illa í TIMSS-rannsókninni. Ekki er að efa, að margt gott fólk hefur lagt nótt við dag und- anfarin ár að bæta skólastarfið á Íslandi, þar á meðal kennarar sem nýlega fengu löngu verð- skuldaða leiðréttingu á kjörum. Megi þeim farnast það starf sem best. Í Bandaríkjunum fengu skóla- menn líka dálítið áfall þegar nið- urstaða TIMSS-rannsóknarinnar var opinberuð á sínum tíma. Þar í landi reyndust nemendur ýmist rétt við meðallag þjóðanna, eða töluvert undir því, eftir því hvaða árgangur var skoðaður. Þeir stóðu sig best í yngri bekkjunum en svo fór að fjara undan þeim og bandarískir ung- lingar voru ansi neðarlega á kúrfunni. Fyrst smáþjóðinni hnykkti við að vera aftarlega á merinni í al- þjóðlegum samanburði geta menn ímyndað sér hvernig stór- þjóðinni varð við. Þar var auð- vitað gripið til gamla, góða ráðs- ins og peningum dælt í alls konar rannsóknir á rannsóknir ofan. Nýlega var skýrt frá nið- urstöðum í einni slíkri rannsókn sem gerð var á skólabókunum sem námsfólk á neðri stigum menntaskóla styðst við. Tólf al- gengustu námsbækur unglinga í raungreinum voru skoðaðar ofan í kjölinn í heil tvö ár og í ljós kom að þær voru morandi í vill- um. Og þetta voru engar smávægi- legar villur. Alla vega telur skýrsla rannsóknaraðilanna heilar 500 blaðsíður. Þar eru tal- in upp ýmis dæmi, eins og af bókinni sem sýnir miðbaug jarð- ar liggja yfir þver Bandaríkin. Sumar villurnar eru auðvitað augljós mistök sem varla verða nokkrum nemanda að fótakefli, til dæmis myndin af söngkon- unni Lindu Ronstadt. Í mynda- texta eru nemendur upplýstir um að myndin sé af kísilkristalli. John Hubisz, prófessor við ríkisháskólann í Norður- Karólínu, sem stjórnaði rann- sókninni, kom fram í fjölmiðlum og sagði að engin skólabókanna tólf væri viðunandi. Hann benti á að um 85% skólabarna í Bandaríkjunum notaði þessar skelfilegu bækur og að þær ættu ábyggilega stóran þátt í því hversu illa bandarískir nem- endur stæðu sig í raunvísindum. Fyrir utan allar villurnar væru bækurnar uppfullar af ljós- myndum sem kæmu efni þeirra ekkert við, skýringarmyndir væru margar hverjar of flóknar og í mörgum bókanna væri stungið upp á tilraunum sem vonlaust væri að gætu gengið upp. Villurnar væru margar hverjar mjög augljósar öllum með raunvísindaþekkingu og ætti að vera hægur vandinn að eyða slíkri vitleysu við próf- arkalestur. Jafnvel væru slík mistök gerð að fara rangt með grundvallarlögmál eðlisfræð- innar. Í einni algengustu bókinni væri til dæmis ekki réttilega skýrt frá því hvað gerist þegar ljós er brotið með strendingi, fyrir utan að í þeirri bók er einnig að finna ljósmyndina af Lindu Ronstadt kísilkristalli. Það var ekki nóg með að pró- fessorinn dytti um hverja vit- leysuna á fætur annarri, heldur átti hann erfitt með að koma leiðréttingum sínum á framfæri við höfunda bókanna, því þeir sóru margir af sér að hafa kom- ið þar nærri. Svo virðist sem kennslubækurnar hafi margar verið soðnar saman úr hinum og þessum ritum, nokkrum höf- undaheitum skellt á og það látið gott heita. Hins vegar virtust út- gefendur gæta þess vel að í bók- unum væri ekkert sem bryti í bága við pólitíska rétthugsun. Slík brot þykja víst miklu alvar- legri í Ameríkunni en klúður í raunvísindabókum. Nú er alls ekki ætlunin að halda því fram að eitthvað sé at- hugavert við námsbækurnar sem íslenskir nemendur lesa af raun- vísindin sín. Það er bara fróðlegt að sjá hverju TIMSS-taugaáföll stórra þjóða sem smárra fá áorkað í skólarannsóknum. Vaðið í villum „Fyrir utan allar villurnar væru bæk- urnar uppfullar af ljósmyndum sem kæmu efni þeirra ekkert við, skýring- armyndir væru margar hverjar of flókn- ar og í mörgum bókanna væri stungið upp á tilraunum sem vonlaust væri að gætu gengið upp.“ VIÐHORF Eftir Hönnu Katrínu Friðriksson SUMARIÐ 1990 var ég ákynnisferð í Ástralíu vegnaupplýsingatækni í mennta-málum. M.a. kom ég í fram- haldsskóla í Brisbane þar sem tölvu- tæknin var nýtt á margvíslegan hátt til þess að nemendur gætu verið sjálf- ráðari í æfingum og áttað sig á því hvernig gekk. Þeir voru með mæli- tæki um brjóstkassann og víðar á lík- amanum og lítið skráningartæki, líkt armbandsúri, um úlnliðinn. Af þessu tæki, sem reyndar var flutt inn frá Finnlandi, hlóðu þeir síðan upplýsingum inn í tölvu og fengu út á prentara sem töluleg gögn eða gröf. Þetta var í fyrsta sinn sem ég sá mikilvirkni stærðfræði og upplýsingatækni við íþróttaiðkanir unglinga. Stærðfræði fjallganga? Sjónvarpsþátturinn Líf í tölum, sem sýndur var sl. mánudagskvöld, fjallaði einmitt um þessi málefni og margfalt öfl- ugri nýtingu á stærð- fræði við athuganir á íþróttamönnum til að bæta árangur þeirra. En að sjálf- sögðu eru það afkvæmi stærðfræð- innar og fleiri sviða, tölvutæknin og upplýsingatæknin, sem gera kleift að gera þetta eins hratt og nákvæmlega og raun ber vitni. Stærðfræðilegar athuganir á nátt- úrunni beinast þarna í vaxandi mæli að manninum sjálfum og leitast við að fanga hvernig afreksmenn fara að eins og kaflinn um skotfimi fjallaði um. Virkni heilastöðva við mismun- andi athafnir og einbeitingu voru hluti af því sem fjallað var um. Rann- sóknum á starfsemi heilans hefur ein- mitt fleygt fram á síðustu árum, m.a. vegna þessa. En stærðfræði og íþróttir tengjast á miklu fleiri vegu og stærðfræði og útivist einnig. Í íslensku stærðfræði- námsefni hefur t.d. verið að finna verkefni um golf, fjallgöngur, knatt- spyrnuleiki, sund og miklu fleira. Og vissulega eru tækifæri nemenda til að iðka stærðfræði og átta sig á sam- hengi ekki síður fyrir hendi utan húss en inni í skólastofum eins og fjallað verður nokkuð nánar um hér á eftir. Stærðfræði 2000 Einn af stærri við- burðum Alþjóðlega stærðfræðiársins hér á landi var norræna ráð- stefnan Stærðfræði 2000 – Meginatriði fræða og framkvæmda, sem haldin var í Borg- arnesi dagana 22.–26. júní 2000. Hún var hin áttunda í röð norrænna ráðstefna sem haldnar hafa verið um stærð- fræðikennslu. Sú næsta á undan var haldin á Sophus Lie ráðstefnusetrinu í Nordfjordeid í Noregi sumarið 1997 og sóttu hana tæplega þrjátíu Íslend- ingar. Engin heildstæð félagasamtök standa að baki þessum ráðstefnum. Þær hafa orðið til hver af annarri fyr- ir áhuga og atorku einstaklinga sem hafa boðið sitt land fram og átt að bakhjarli stofnanir eða félög innan landa sinna. Fyrir vikið hefur svo Líf í tölum III/ Stærðfræðikennarar kynntu sér nýjar aðferðir og tæki í kennslu á stærðfræðiárinu. Einnig miðluðu þeir eigin verkum. Anna Kristjánsdóttir prófessor segir hér frá dæmum um nýjungar í stærð- fræðikennslu í tilefni af þáttaröðinni Líf í tölum í Sjónvarpinu.  Hvert er samband skotfimi og nýjunga í stærðfræði?  Hvað eru íslenskir stærðfræði- kennarar að gera? Anna Kristjánsdóttir skemmtilega viljað til að þær hafa til skiptis verið á þriggja og fjögurra ára fresti. Þessar ráðstefnur hafa átt ríkulegan þátt í að byggja upp það samstarf sem til er orðið innan Norð- urlandanna á sviði stærðfræðimennt- unar. Að undirbúningi ráðstefnunnar komu tvær nefndir, norræn dag- skrárnefnd, sem sá um faglega dag- skrá, var undir forystu minni og stað- arnefnd, sem sá um aðbúnað á staðnum og aðra dagskrárliði, var undir forystu Guðbjargar Pálsdóttur. Um þrjátíu Íslendingar sóttu ráð- stefnuna í Borgarnesi og þriðjungur þeirra lagði fram efni til dagskrár; fyrirlestra, verkstæði eða inngang og stjórnun umræðuhópa um tiltekin mál. Guðný Helga Gunnarsdóttir var einn aðalfyrirlesara ráðstefnunnar og fjallaði hún um kennara sem eru að þróa starf sitt og hugmyndir um það. Guðný gegndi um tveggja ára skeið starfi námstjóra í stærðfræði við Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar og stjórnaði myndarlegu stærðfræði- átaki þar. Erindi hennar tengdist meistaraverkefni hennar við Kenn- araháskóla Íslands en það byggist að hluta til á viðtölum við hafnfirska kennara og úrvinnslu þess sem verk- efnið fól í sér. Íslenskur stærðfræðivefur Aðrir Íslendingar, sem lögðu fram efni, voru einnig með áhugaverð svið til skoðunar. Jónína Vala Kristins- dóttir fjallaði einnig um þróun kenn- ara í starfi en út frá allt öðrum for- sendum en Guðný Helga, hún hefur unnið með fáum kennurum og greinir einnig eigið starf og starfsþróun. Er- indi hennar tengdist einnig meistara- verkefni hennar við Kennaraháskóla Þróun stærð- fræðikennslu Morgunblaðið/RAX Dagur stærðfræðinnar var árið 2000 og setti hann svip sinn á skólastarfið víða um landið. Í Melaskóla í Reykja- vík settu sjöttubekkingar upp líkan af sólkerfinu á Ægisíðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.