Morgunblaðið - 20.01.2001, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 41
Umsóknir á ensku eða dönsku sendist til:
NÝLEGA mælti ég
fyrir þingsályktunar-
tillögu á Alþingi um
samráð stjórnvalda við
frjáls félagasamtök.
Meðflutningsmenn
mínir eru þingmenn-
irnir Ólafur Örn Har-
aldsson, Kristján Páls-
son, Ásta Möller,
Ísólfur Gylfi Pálma-
son, Gunnar Birgisson,
Drífa Hjartardóttir og
Árni Ragnar Árnason.
Tillagan er sem hér
segir:
,,Alþingi ályktar að
fela ríkisstjórninni að
skipa nefnd er geri út-
tekt á stöðu frjálsra félagasamtaka
á Íslandi og hvernig samskiptum
stjórnvalda og sveitarstjórna við
þau sé háttað. Jafnframt skili
nefndin tillögum til ríkisstjórnar-
innar um hvernig samráði stjórn-
valda við frjáls félagasamtök á
sviði umhverfismála verði hagað
með vísan til skuldbindinga Ís-
lands samkvæmt alþjóðasamningi
um aðgang að upplýsingum, þátt-
töku almennings í ákvarðanatöku
og aðgang að réttlátri málsmeðferð
í umhverfismálum sem undirritað-
ur var í Árósum 23.–25. júní 1998.“
Frjáls félagasamtök
eru mikilvæg
Í lýðræðisríkjum hafa frjáls
félagasamtök (Non Governmental
Organisations, NGO’s) gegnt sífellt
mikilvægara hlutverki undanfarna
áratugi. Á þetta ekki sízt við á
sviði umhverfismála. Þau veita
stjórnvöldum og atvinnurekendum
mikilvægt aðhald og sinna bæði
fræðslu- og eftirlitshlutverki. Ein-
kenni frjálsra félagasamtaka er að
þau eru óháð ríkisvaldinu, hafa
sjálfstæðan fjárhag, eru rekin án
gróðasjónarmiða og hafa fagleg
vinnubrögð að leiðarljósi. Fleiri og
fleiri viðurkenna nauðsyn þess að
virkja mannauð og þekkingu
frjálsra félagasamtaka.
Stjórnvöld í ríkjum heims hafa
gengið einna lengst í að viður-
kenna nauðsyn þess að almenn-
ingur og frjáls félagasamtök séu
höfð með í ráðum þegar umhverf-
ismálum er skipað. Á ráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna um umhverf-
ismál sem haldin var í Ríó 1992 var
í samningi um svokallaða Dagskrá
21 fjallað um nauðsyn þess að
styrkja stöðu frjálsra félagasam-
taka og mikilvægt hlutverk þeirra í
umfjöllun um sjálfbæra þróun.
Sameinuðu þjóðirnar hafa einnig
haldið svæðisbundnar ráðstefnur
um umhverfismál. Á fjórða ráð-
herrafundi umhverfisráðherra um
umhverfismál í Evrópu sem hald-
inn var í Árósum í Danmörku 23.–
25. júní 1998 var gengið skrefi
lengra og undirritaður alþjóða-
samningur um aðgang að upplýs-
ingum, þátttöku almennings í
ákvarðanatöku og aðgang að rétt-
látri málsmeðferð í
umhverfismálum.
Samningurinn felur í
sér viðurkenningu á
réttindum borgar-
anna að því er varðar
umhverfismál og er,
eins og fram kom í yf-
irlýsingu umhverfis-
ráðherranna, mikils-
vert framfaraskref
bæði fyrir umhverfið
og lýðræðið. Með
samningnum er stað-
fest mikilvægi þess að
einstaklingar og
frjáls félagasamtök
taki þátt í mótun um-
hverfisreglna og við-
urkennt að stjórnvöldum beri að
hafa eðlilegt samráð við almenning
við mótun umhverfisstefnu.
Hvernig er málum
háttað hérlendis?
Flutningsmenn tillögunnar telja
eðlilegt að skipuð verði nefnd er
geri annars vegar úttekt á stöðu
frjálsra félagasamtaka á Íslandi og
samskiptum stjórnvalda við þau og
hins vegar tillögur byggðar á Ár-
ósa-samningnum um aðgang að
upplýsingum, þátttöku almennings
í ákvarðanatöku og aðgang að rétt-
látri málsmeðferð í umhverfismál-
um.
Flutningsmenn gera hvorki til-
lögu um fjölda nefndarmanna né
hvernig þeir verða skipaðir. Eðli-
legt er að nefndin verði skipuð á
breiðum grunni, þ.e. með þátttöku
hins opinbera, atvinnulífsins, laun-
þegasamtaka og frjálsra félaga-
samtaka.
Árósasamningurinn
Árósasamningurinn fjallar um
það hvernig almenningur getur
komið að ákvörðunum stjórnvalda í
umhverfismálum. Í honum eru
þrjú meginatriði:
1. Aðgangur að upplýsingum.
2. Aðgangur almennings að
ákvarðanatöku.
3. Aðgangur að réttlátri málsmeð-
ferð, þar með talið að bera fram
kærur og láta reyna á ákvarð-
anir fyrir dómstólum.
Hvað aðgang að upplýsingum
snertir segir í samningnum að sú
skylda sé lögð á stjórnvöld að upp-
lýsa almenning um umhverfismál
og hvaða áhrif framkvæmdir geta
haft á umhverfið.
Í öðru lagi fjallar hann um að-
gang almennings að því að taka
þátt í ákvörðunum á sviði umhverf-
ismála og hafa áhrif á það hvaða
ákvarðanir eru teknar og það
snemma á ferlinum, einnig þegar
verið er að semja lagafrumvörp.
Í þriðja lagi eiga borgararnir
rétt á því að geta kært ákvarðanir
stjórnvalda og fengið úr þeim
skorið fyrir dómstólum, ekki sízt
við virkjanaframkvæmdir, meng-
andi efnaiðnað og svo framvegis.
Þá er mælt með því í ályktun
sem fylgdi samningnum að frjáls
félagasamtök fái tækifæri til að
taka virkan þátt í milliríkjasam-
starfi þegar unnið er að stefnumót-
un í umhverfisvernd.
Þannig er Árósasamningurinn
rammi fyrir stefnumörkun Norður-
landanna fram til ársins 2004 með
það fyrir augum að gera almenn-
ing meðvitaðan um það sem leitt
getur til sjálfbærrar þróunar, eink-
um með því að almenningur komi í
auknum mæli að verki. Til þess að
samningurinn taki gildi þurfa 16
ríki af þeim 40 sem undirrituðu að
hafa staðfest hann.
Norðurlöndin
í fararbroddi
Norðurlöndin vilja vera í far-
arbroddi í umhverfismálum. Á því
leikur varla nokkur vafi. Þegar
samningurinn var undirritaður var
gert ráð fyrir því að efni hans yrði
lögtekið hið fyrsta og hefur það
verið gert nú þegar bæði í Svíþjóð
og Danmörku. Þar hefur umhverf-
isverndarsamtökum verið tryggður
lagalegur réttur til aðildar að nátt-
úruverndar- og umhverfismálum.
Umhverfisverndarsamtök hafa
fjölþætt hlutverk. Hér á landi eru
mörg slík samtök, fjölmenn og fá-
menn, og hver um sig hafa sína
sérstöðu. Þau eru umræðuvett-
vangur, hafa alþjóðleg tengsl, eru
umsagnaraðilar fyrir stjórnvöld,
koma fram með hugmyndir, gagn-
rýna stjórnvöld, vekja athygli á því
sem miður kann að fara og stuðla
jafnvel að rannsóknum á sviði um-
hverfismála. Ég tel mikilvægt að
efla slík samtök og virkja þá þekk-
ingu sem þar býr enn frekar, landi
okkar og eftirkomendum til góðs.
Með því er líka tryggt að náttúran
eigi sér málsvara gagnvart stjórn-
völdum og, ef svo vill til, fyrir
dómstólum. Með því sem gert hef-
ur verið t.d. í Svíþjóð og Dan-
mörku er komin fyrirmynd sem
eðlilegt gæti verið fyrir okkur að
nýta.
Umhverfisnefnd
þingsins
Ofangreindri þingsályktunartil-
lögu var eftir umræður í þinginu
vísað til umhverfisnefndar þar sem
umhverfismál og Árósasamningur-
inn eru miðdepill hennar. Málefni
frjálsra félagssamtaka heyra þó
undir fleiri nefndir Alþingis og þar
sem tillagan lýtur að fleiri þáttum
en umhverfismálum, til dæmis
heilbrigðismálum, mannréttindum
og félagsmálum svo eitthvað sé
nefnt, blasir við að leita þarf eftir
áliti fjölmargra aðila áður en til-
lagan verður endanlega afgreidd.
Ég hvet frjáls félagasamtök sem
telja sér málið skylt að kynna sér
tillöguna og senda umhverfisnefnd
þingsins álit sitt.
Samráð stjórnvalda við
frjáls félagasamtök
Katrín
Fjeldsted
Umhverfisvernd
Í Svíþjóð og Danmörku
hefur umhverfisvernd-
arsamtökum verið
tryggður lagalegur
réttur, segir Katrín
Fjeldsted, til aðildar
að náttúruverndar- og
umhverfismálum.
Höfundur er 14. þingmaður
Reykvíkinga.
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
www.mbl.is