Morgunblaðið - 20.01.2001, Síða 47
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 47
✝ Þorvaldur Frið-riksson fæddist í
Borgarnesi 4. des-
ember 1921. Hann
andaðist á sjúkra-
húsi í Houston í Tex-
as 5. janúar síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Helga G. Ólafsdóttir,
f. 3.5. 1890, d. 19.10.
1984, og Friðrik
Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri, í
Borgarnesi og
Reykjavík, f. 10.12.
1896, d. 18.1. 1983.
Systkini Þorvaldar voru Eðvard,
f. 1918, búsettur í Kamloops í
Kanada; Guðmundur, f. 1920, d.
1997, í Reykjavík; Elsa, f. 1929,
býr í Reykjavík; Ólafur, f. 1930,
búsettur í Abbotsford í Kanada,
og Jónas, f. 1932, búsettur í Gig
Harbor í Bandaríkjunum.
Þorvaldur fór til náms í Banda-
ríkjunum haustið 1944, en þá voru
tveir eldri bræður hans við nám
þar. Með því að gegna herþjón-
ustu í 18 mánuði bauðst honum
frítt nám, og því boði tók hann og
gerðist hermaður árið 1945. Dvöl
hans í hernum varð þó heldur
lengri, eða tæp 30 ár. Þar gekk
hann undir nafninu Thor Frid-
riksson, og á vegum hersins
stundaði hann margvíslegt nám,
m.a. rafeindafræði. Auk starfa
innan Bandaríkjanna var hann í
Þýskalandi tvisvar
sinnum og í her Sam-
einuðu þjóðanna í
Kóreustríðinu. Hann
fékk sig fluttan á
Keflavíkurflugvöll
vorið 1952 og kvænt-
ist þá heitkonu sinni,
Joan Nelouise Cain.
Þau eignuðust tvær
dætur, Lianne Nell,
sem er prófessor í
fjölmiðlafræðum, og
Lísu Beth, viðskipta-
og hagfræðing. Hún
er gift Robert Man-
dula. Þorvaldur og
Joan bjuggu í Reykjavík til seinni-
hluta ársins 1953, en næstu tvö ár-
in starfaði hann í Fort Knox. Fyr-
ir störf sín í hernum var hann
sæmdur fjölda heiðursmerkja,
þ.á m. „Silver Star“, „Bronze
Star V“ og „Purple Heart“ tvisv-
ar.
Snemma á ferli sínum hlotnað-
ist honum æðsta tign manna sem
ekki höfðu gengið í herskóla. Árið
1955 fluttu þau til El Paso í Texas.
Þar starfaði Þorvaldur við eftirlit
og viðhald ratsjár- og tölvukerfa
hersins og kenndi í herskólum.
Þegar hann hætti í hernum, árið
1974, setti hann á stofn bakarí
sem þau hjónin starfræktu í 13 ár.
Aska Þorvaldar verður jarðsett
í maí nk. við sérstaka athöfn í Ar-
lington, heiðursgrafreit her-
manna við Washington.
Fyrst man ég eftir Þorvaldi Frið-
rikssyni, sem mesta afreksmanni og
sigurvegara í mörgum greinum á
íþróttamótinu á Hvítárbökkum,
sumarið 1942, þegar ég var vikapilt-
ur í Deildartungu í Borgarfirði. Þá
var ég 14 ára, og auðvitað datt mér
ekki í hug, að þessi kappi ætti eftir
að verða mágur minn.
Þorvaldur ólst upp í hópi fimm
sona, og einnar dóttur, við ástúð og
umhyggju foreldra sinna í Borgar-
nesi. Þar fengu þau gott veganesti
sem komið hefur sér vel á lífsleið-
inni.
Þorvaldur fékk fljótt mikinn
áhuga á tónlist, og náði góðum ár-
angri í hljóðfæraleik. Þegar hann
var unglingur, fékk hann eitt sinn
saxófón í jólagjöf, æfði sig mikið og
spilaði viku seinna í hljómsveit á
dansleik á gamlárskvöld.
Á unglingsárum eldri bræðranna
réðist Friðrik í að byggja annað hús
á lóð sinni í Borgarnesi, og unnu þeir
ásamt föður sínum að mestu við
byggingu þess. Þá flutti fjölskyldan í
nýja húsið, og það gamla var stækk-
að og endurnýjað. Þá var nýja húsið
selt og andvirði þess gerði bræðr-
unum kleift að afla sér menntunar,
enda höfðu þeir til þess unnið.
Eftir nám í Reykholtsskóla, lærði
Þorvaldur hárskeraiðn í Reykjavík
hjá Óskari í Kirkjuhvoli. Haustið
1944 fór hann til Bandaríkjanna til
náms.
Á þeim tíma var nær ómögulegt
að fá landvistarleyfi og skólavist
nema að bjóða sig fram til herþjón-
ustu í 18 mánuði, en eins og fyrr seg-
ir var hann í hernum í tæp 30 ár.
Sumarið 1950 fékk Þorvaldur
mánaðarfrí, og ætlaði að njóta þess
hér heima. En aðeins 15 mínútum
eftir að hann hafði heilsað móður
sinni í Borgarnesi, var hringt frá
sendiráði Bandaríkjanna og honum
skipað að snúa aftur til herdeildar
sinnar eins fljótt og auðið væri.
Hann vissi hvað til stóð, því Norður-
Kóreumenn höfðu ráðist inn í Suður-
Kóreu, og hans herdeild var meðal
fyrstu sveita Sameinuðu þjóðanna
sem sendar voru á vettvang. Það var
allri fjölskyldunni erfið stund.
Næstu 11 mánuði upplifði hann
þær mestu hörmungar sem hægt er
að hugsa sér í stríði við margfalt of-
urefli uppmagnað af heift og
grimmd.
Af tæplega sex þúsund manna
herflokki sem hann tilheyrði, kom-
ust nokkur hundruð lífs af.
Þorvaldur var talinn „týndur“ í
þrjár vikur, og tilkynning hafði bor-
ist foreldrum hans um það, en þá lá
hann mikið særður á sjúkrahúsi.
Fjörutíu árum seinna, þegar Sæ-
mundur Guðvinsson var að skrifa
bókina „Íslenskir hermenn“, og var
að fá Þorvald til að segja sér frá
Kóreustríðinu, gekk það erfiðlega.
Mér finnst ég hafa ruðst inn í lokað
herbergi og það sé verið að ýta mér
út aftur, skrifar Sæmundur, en hon-
um tókst að fá Þorvald til að segja
frá mörgu sem hann upplifði þar, en
hafði aldrei sagt frá fyrr. Þá var
ekkert til sem hét áfallahjálp, og
andlegu örin urðu þeir sem eftir
lifðu, að bera til ævaloka.
Þegar Þorvaldur starfaði á Kefla-
víkurvelli, var hann fyrsti hermað-
urinn sem fékk að hafa konu sína hjá
sér á Íslandi. Þau leigðu íbúð í
Blönduhlíð og hans indæla kona,
Joan var daglegur gestur í Sunnu-
búðinni í Mávahlíð og var mjög fljót
að læra íslensku nöfnin á öllum
vörum sem hún þurfti til heimilisins.
Þá kynntist ég fyrst mági mínum
Þorvaldi, og komst að því að ekkert
var ofsagt um ágæti hans, sem allir
höfðu talað um. Hann var einstakt
prúðmenni, yfirvegaður, traustur og
ljúfur maður.
Hermenn máttu þá aðeins vera
einn dag í viku á götum úti í Reykja-
vík, og urðu þá að klæðast einkenn-
isbúningi. Eitt kvöldið fórum við
Elsa með þeim hjónum í bíó. Þegar
ösin var að mjakast út, voru þrír
unglingsstrákar með svolítinn fyrir-
gang og einn þeirra sneri sér að Jo-
an og sagði: „Þú hefur aldeilis krækt
þér í skrautlegan offísera.“ Joan
starði á þá stórum augum og ég
gleymi ekki andlitssvip strákanna
þegar hermaðurinn sneri sér að
þeim og sagði brosandi á hreinni ís-
lensku: „Hún skilur ekki íslensku,
strákar mínir.“
Eftir að Þorvaldur fór á eftirlaun
hjá hernum keypti hann hlut í nýrri
verslunarmiðstöð í El Paso, þar sem
á annað hundrað verslanir eru, og
setti þar upp bakarí í samvinnu við
Tiffany’s Bakery-keðjuna. Rekstur-
inn gekk mjög vel og var búðin valin
sem fyrirmyndarbúð Tiffany’s og
notuð í auglýsingar. Ásókn var í að
senda til hans fólk í þjálfun.
Þegar við Elsa heimsóttum þau, í
El Paso, sáum við hve þekktur og
vinsæll Þorvaldur var og allir báru
mikla virðingu fyrir honum.
Þótt fjarlægðir aðskildu fjölskyld-
una hefur mikil samheldni ríkt innan
hennar og eftir að tölvupósturinn
kom til sögunnar hafa öll samskipti
orðið auðveldari. Þorvaldur bar
mikla umhyggju, eins og við öll, fyrir
heilsu frænda síns Sturlu Þórs og
fylgdist mikið með hetjulegri bar-
áttu hans eftir flugslysið í Skerja-
firði. Þorvaldur veiktist sjálfur hast-
arlega um miðjan desember, af
bráðahvítblæði, og andaðist fjórum
dögum á eftir Sturlu. Þorvaldur var
alltaf mikill Borgnesingur og eftir
meira en hálfrar aldar búsetu er-
lendis, heyrðist varla hreimur í máli
hans.
Hann átti hugmyndina að því að
reisa foreldrum þeirra minnisvarða í
Skallagrímsgarði, á hundrað ára af-
mæli föður þeirra árið 1996.
Mjög gott samstarf um fram-
kvæmdina tókst með bæjarstjórn
Borgarness og við afhjúpun varðans
hittust þau öll systkinin í Borgarnesi
í fyrsta sinn frá árinu 1940. Ári
seinna andaðist Guðmundur, afi
Sturlu, og nú hefur Þorvaldur einnig
fallið frá, og er hans sárt saknað. Við
Elsa og fjölskylda okkar, vottum Jo-
an, Lianne, Lísu og Bob, okkar inni-
legustu samúð.
Óskar Jóhannsson.
Þorvaldur „Lilli“ Friðriksson,
bróðir pabba míns heitins, dó 5.
janúar síðastliðinn vestur í Texas og
hafði það meiri áhrif á mig en ætla
mætti, miðað við að okkar samveru-
stundir voru ekki beint daglegar.
Þegar ég frétti að hann hefði veikst
hastarlega var ég sjálfur niðursokk-
inn við að taka þátt í að koma syni
mínum, Sturlu Þór, til heilsu eftir
flugslysið í Skerjafirði. Blóðböndin
sögðu rækilega til sín og við ætt-
mennin styrktum hvert annað og
hugguðum, með hugarorku og raf-
pósti. Við mynduðum bandalag gegn
dauðanum og hétum því að sigra.
En mikill reyndist máttur sameig-
inlegs óvinar. Sonurinn kæri dó á
nýársdag.
Mitt í megnri sorginni leyfðum við
okkur að treysta því að læknavís-
indin dygðu til að bjarga afabróður
hans. En þær vonir og væntingar
urðu að engu.
Fjórum dögum eftir andlát Sturlu
Þórs kom að kveðjustund Lilla
frænda.
Þótt ég hafi ekki hitt Lilla nema
endrum og sinnum eftir að barn-
æsku minni lauk er hann mér af
ýmsum ástæðum ógleymanlegur.
Persóna hans var sterk og lundin
ljúf; því kynntist ég nógsamlega. En
í ofanálag höfðu greypst í vitund
mína óteljandi sögur um ævintýri og
uppátæki elstu bræðranna, Lilla,
pabba og Ebba, allt frá æskuárum
þeirra í Borgarnesi og áfram. Þessar
sögur hafa ávallt verið mér upp-
spretta hlýrra tilfinninga og ánægju.
Og þau bréf sem ég hef lesið frá
Lilla til pabba míns segja mér sögu
um órofa bræðralag og væntum-
þykju. Ég sá Lilla síðast sumarið
1996, þegar minnisvarði var reistur
um foreldra bræðranna, Friðrik afa
og Helgu ömmu, í Skallagrímsgarði,
og voru það yndislegir endurfundir.
Ég minnist þess vel hvað mér þótti
hann kraftmikill og heilsteyptur og
hversu vel honum leið á æskuslóð-
unum. Hve viðmót hans var hlýtt og
gleðin óblandin. Ég kveð Lilla
frænda með trega í hjarta, en sé þó
alténd fyrir mér að Sturla Þór hafi
fengið traustan og ástríkan ferða-
félaga á leiðinni til nýrra heim-
kynna.
Joan konu hans og dætrum þeirra
Lianne og Lisu sendi ég hugheilar
samúðarkveðjur.
Friðrik Þór Guðmundsson
(Lilló).
ÞORVALDUR
FRIÐRIKSSON
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
börn, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Formáli minn-
ingargreina
2
=+268
3>?
!/ 0$1
3"
+, +
! !22/0 (
%)0- /
2
'
9879+9
79+
,+
7
!/ 0$1
!
3"
% (
%)5!%"
%)0- /
4
,
,
" " %
% (
"
+ 982@+9
9+
9
!%A#!) $1
! ,
-5
-) / 0 &
(
.
+
$!
7%B !) (
*%
$! 20- 2% (
! !#!20
%0(
$! 3 (
50-%2!
!)! !((
/ $1
% /
6
-
7C,
#=
+0 %-'D
-
(
&
(
71 188
320(
$!
! %20( "4 !
%20 6 0( (
3 20
% % ( (
-""5-% %-""5-
9
=+
#
E
+#
!
1 (
/
,
75 558
E! !
(
%
%$
-)1 (
# ( < !
<!! !
7%3 # 052
1
$!#
# - #
% / 5-
=
4,
+
,+
)$5($1
6 (% -
! (
: '
(
) $ "
( % ! !