Morgunblaðið - 20.01.2001, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 59
DAGBÓK
Útsala!
10—50% afsláttur
Úlpur
Kápur
Jakkar
Pelskápur
líta út sem ekta
Opið laugardaga frá kl. 10—16
Hefst 2. janúar kl.8.00
Mörkinni 6,
sími 588 5518
Læknastofa flutt
Hef flutt læknastofu mína í Skipholt 50B
Tímapantanir í síma 511 8050
Helga Hrönn Þórhallsdóttir
Sérgrein: Húðsjúkdómar
Að njóta, elska og hvílast er upplyfting fyrir elskandi pör
á öllum aldri, sem vilja spila á strengi ástarinnar á
Hótel Skógum undir Eyjafjöllum helgina 26.—28. janúar
eða 16.—18. febrúar.
Nánari upplýsingar og skráning hjá
Sigríði Önnu Einarsdóttur, félagsráðgjafastofunni Aðgát,
í símum 551 5404, 861 5407
og netfangi annaoli@mmedia.is.
AÐ NJÓTA, ELSKA OG HVÍLAST
MARGT er skrítið í brids.
Þegar fimm tromp eru úti og
annar varnarspilarinn ligg-
ur með þau öll er venjulega
betra að vera í gröndum. En
í tólftu umferð Reykjavíkur-
mótsins var það einmitt
galdurinn að spila slemmu í
tígli, en ekki sex grönd, þar
sem vestur átti 109 fimmtu í
trompinu.
Vestur gefur; AV á hættu.
Norður
♠ K873
♥ D63
♦ Á84
♣ÁD3
Vestur Austur
♠ 1042 ♠ DG96
♥ G942 ♥ 85
♦ 109752 ♦ --
♣6 ♣K1098752
Suður
♠ Á5
♥ ÁK107
♦ KDG63
♣G4
Eftir sterka grandopnun
norðurs enduðu flest pörin í
sex gröndum. Sú slemma
vinnst ekki nema út komi
lauf frá kóngnum, því tígull-
inn gefur aðeins fjóra slagi
og hjartað þrjá. Engin
þvingun er byggist upp, því
hótanirnar eru báðar í suður
og vestur hendir á eftir.
En sex tígla má vinna.
Jónas P. Erlingsson í sveit
Þriggja Frakka fékk var í
þeirri slemmu og fékk út
hjarta frá vestri. Það gaf
honum slag á tíuna og eftir
að hafa kannað trompið tók
hann öll hjörtun, ÁK í spaða
og stakk spaða. Síðan fékk
hann tólfta slaginn á laufás.
Hjartaútspilið er vissu-
lega hjálplegt en það þarf
ekki til, því sagnhafi getur
alveg eins stungið fjórða
hjartað smátt í borði og einn
spaða heima. Vörnin fá þá
sameiginlega síðasta slaginn
á laufkóng og tromptíu.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þeir eru margir sem öfunda
þig sakir ákveðni þinnar og
ævintýramennsku.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það eru ýmsir möguleikar
sem þú þarft að velta fyrir þér
núna og það ríður á miklu að
þér takist vel upp við val á
þeim sem þú ætlar að fram-
kvæma.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þótt þér finnist verra að starfa
með öðrum heldur en einn þá
þarftu á samstarfsmönnum að
halda nú um stundir. Öðruvísi
nærð þú ekki takmarki þínu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er ástæðulaust að eyða
öllum tímanum í að sýna öðr-
um fram á hversu vel gefinn
þú ert. Það er auðséð að þú ert
góðum gáfum gæddur og þú
átt að nota þær við vinnu þína.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér er nauðsyn að finna þér
stað þar sem þú getur verið
einn með sjálfum þér og hlaðið
þig orku til þess að geta tekist
á við átök morgundagsins.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er allt á ferð og flugi í
kringum þig svo þér veitist
erfitt að fóta þig í öllum hama-
ganginum. En reyndu að finna
þinn eigin takt og halda hon-
um.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Stilltu kröfum þínum í hóf því
sá sem er of kröfuharður fær
sjaldnast nokkuð af því sem
hann biður um en sá sem veit
hvað hann vill fær allar sínar
óskir uppfylltar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þótt þú hafir meðbyr nú um
stundir skaltu hafa vakandi
auga á því sem framundan er
því það er aldrei að vita hve-
nær vindáttin breytist.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Láttu ekki ruglinginn í kring-
um þig hafa áhrif á starf þitt.
Nýttu þér bara þína eigin orku
til þess að geta haldið áfram.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er viturlegra að biðja um
hlutina kurteislega en krefjast
þeirra með þjósti. Mundu að
annað fólk er jafnmetnaðar-
gjarnt og kappsfullt í starfi og
þú.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þær hindranir sem verða á
vegi þínum eru til þess fallnar
að sigrast á þeim en ekki til
þess að stöðvast við. Beittu
ímyndunarafli þínu til að finna
leiðina áfram.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þeir eru margir sem dást að
þér og starfi þínu og meðan þú
heldur þínu striki þá áttu
hrósið skilið. Gættu þess að
bregðast aldrei aðdáendum
þínum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er betra að sitja uppi með
of mikið af upplýsingum en of
lítið. Svo þú skalt ekkert vera
að fjasa þótt nauðsynleg upp-
lýsingaöflun taki sinn tíma.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Vökunætur
Þér ég helga þessar nætur,
þessar dimmu vökunætur,
þessar björtu Braganætur,
bezta, eina vina mín,
því ég vaki vegna þín.
Ég er þinn um þessar nætur,
þessa daga og nætur,
ár og daga, alla daga og nætur.
Niðurstaða
Fór ég í heiði, fékk ég eina tínu.
Fór ég á engi, sló ég miðlungs-brýnu.
Út reri ég, og einn ég fékk í hlut.
Upp dreg ég bát í naust með léttan skut.
Stilltu þig, son minn, stillið grátinn, dætur,
strengharpa mín þó laskist. Góðar nætur.
Norræna lifir, einn þó undan beri
útskagamann, sem langan barning reri.
Öldurnar vaka, yrkja ljóð á skeri.
Guðmundur Friðjónsson
60 ÁRA afmæli. Sextugverður þriðjudaginn
23. janúar, Hulda Róselía
Jóhannsdóttir skrifstofu-
maður, Klapparási 5,
Reykjavík. Hún og eigin-
maður hennar Jóhannes Óli
Garðarsson taka á móti
gestum í dag laugardaginn
20. janúar kl. 17–20 í Fylk-
ishöll við Fylkisveg.
Ljósmyndastofa Erlings
BRÚÐKAUP. Gefin
voru saman 7. októ-
ber sl. í Lágafells-
kirkju af sr. Jóni
Þorsteinssyni Magn-
ea Viggósdóttir
Morgan og Kenneth
Morgan. Heimili
þeirra er í Banda-
ríkjunum.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 9. september sl. í
Stykkishólmskirkju af sr.
Kristjáni Vali Ingólfssyni
Elínborg Sturludóttir og
Jón Ásgeir Sigurvinsson.
Ljósmynd/Jóh. Valg.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 19. ágúst sl. í Hafn-
arkirkju af sr. Sigurði Kr.
Sigurðssyni Eydís Dóra
Einarsdóttir og Halldór
Bragi Gíslason. Heimili
þeirra er á Sunnubraut 8.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
ENSKI stórmeistarinn Jim
Plaskett (2525) þykir litrík
persóna og er skákstíllinn í
réttu samhengi við það.
Hann þykir sókndjarfur í
meira lagi og lætur sér fátt
fyrir brjósti brenna. Staðan
kom upp á Hastings-mótinu
er lauk fyrir skömmu þar
sem Plaskett hafði
hvítt gegn þýska
kollega sínum
Klaus Bischoff
(2556). 20.Hxe4!?
skemmtileg
skiptamunsfórn
sem byggir á því
að svörtu mennirn-
ir vinna ekki nægi-
lega vel saman til
að verja kóngstöð-
una. 20...fxe4
21.Df4 Ba7?!
Áhugavert væri að
vita hvað hvítur
hafði í huga eftir
21...e3 22. fxe3 h6.
23.Hf1 kemur til greina en
þá nær svartur aðeins að
lofta út með 23...d5. 22.Bh4
h6 23.Dg4 Kf7 24.Rg3 Hc4
25.Rf5! Bc5
25...exf5 leiðir til mikilla
hörmunga eftir 26.Dxf5+
Ke8 27.Dg6+ Kf8 28.e6 og
hvítur vinnur. 26.Dh5+ Kf8
27.Hd6! blokkerar d-peðið!
27...exf5 27...Bxd6 er svarað
með 28.Rxd6 og hvítur vinn-
ur. 28.Dxf5+ Ke8 29.e6
Bxf2+ 30.Bxf2 og svartur
gafst upp enda fátt til varn-
ar.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
FRÉTTIR
Í TENGSLUM við kjördæmisþing
sjálfstæðismanna í Reykjavík um
helgina efnir Vörður – Fulltrúaráð
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, til
opins fundar um efnahagsmál á Hót-
el Sögu, Sunnusal, laugardaginn 20.
janúar kl. 14.30. Fundurinn ber yf-
irskriftina: „Er bjart framundan eða
harðnar á dalnum?“
Ætlun fundarboðenda er að fá
fram mismunandi sjónarmið og bú-
ast má við líflegum umræðum þar
sem m.a. vaxtastig á Íslandi, geng-
ismál og ríkisfjármálin ættu að bera
á góma. Framsögumenn verða þeir
Birgir Ísleifur Gunnarsson, Seðla-
bankastjóri, Pétur Blöndal, alþing-
ismaður, Víglundur Þorsteinsson,
forstjóri BM Vallár, Þórður Pálsson,
deildarstjóri greiningardeildar
Kaupþings og Vilhjálmur Egilsson,
alþingismaður.
Að loknum framsöguerindum taka
við pallborðsumræður undir stjórn
Ástu Möller, alþingismanns. Auk
framsögumannanna tekur Geir H.
Haarde, fjármálaráðherra, þátt í
umræðunum. Fundarmönnum gefst
einnig kostur á að beina spurningum
til þátttakenda í pallborðsumræðum.
Fundur um efnahagsmál