Morgunblaðið - 14.02.2001, Page 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
8 SÍÐUR
Sérblöð í dag www.mb l . i s
Teiknimyndasögur
Myndir
Þrautir
Brandarar
Sögur
Pennavinir
UMSK samþykkir vantraust
á stjórn UMFÍ/B1
Real Madrid vann Lazio
í skemmtilegum leik/B3
4 SÍÐUR 4 SÍÐUR
Í VERINU í dag er m.a. sagt frá vaxandi áhuga á
fiskmeti í Evrópu, nýju kvótakerfi í Chile og fjallað
um slysasleppingar úr sjókvíum í Noregi.
notað á þessum milda vetri og dytt-
að að gangstéttum og húsum, líkt
og sjá má á myndinni sem tekin var
í Austurstræti í gær og gæti allt
eins verið tekin að vorlagi.
ÞAÐ eru ekki bara grösin og skor-
dýrin sem ruglast á árstíðum í hlý-
indum og snjóleysi vetrarins og
vakna löngu fyrir sinn venjubundna
tíma. Í mannheimum er tækifærið
Morgunblaðið/Golli
Útivinna í
Austurstræti
REIKNAÐ er fastlega með að
samningar muni liggja fyrir innan
skamms á milli 18 Íslendinga sem
hafa orðið fyrir heilsutjóni í kjöl-
far reykinga og bandarísks lög-
fræðifyrirtækis um hugsanlegar
skaðabótakröfur á hendur banda-
rískum tóbaksframleiðendum.
Greint var frá því í Morgun-
blaðinu á sl. vori að Jón Steinar
Gunnlaugsson hæstaréttarlög-
maður og Gunnar G. Schram laga-
prófessor hefðu tekið að sér milli-
göngu um að koma hópi Íslend-
inga, sem hafa orðið fyrir heilsu-
tjóni vegna reykinga, í samband
við bandaríska lögfræðifyrirtækið
í því skyni að kanna hugsanlegan
bótarétt þeirra á hendur banda-
rískum tóbaksframleiðendum. Jón
Steinar sagði í gær að málið hefði
dregist meira en hann hefði gert
ráð fyrir. Í október sl. voru sendir
18 samningar undirritaðir af ís-
lenskum tjónþolum til hins banda-
ríska lögfræðifirma.
Í nóvember barst Jóni Steinari
svo bréf frá lögfræðistofunni með
fyrirspurn um íslenskar lagaregl-
ur á þessu sviði, sem hann svaraði
um hæl. „Síðan þá hefur eitthvað
tafið, þannig að samningarnir eru
ekki komnir til baka.“
Hefur dregist meira
en búist var við
„Ég hef ýtt á eftir því með bréf-
um og núna síðast talaði Gunnar
G. Schram við þá í seinustu viku.
Það var eitthvað ófrágengið hjá
þeim en ég á von á því að samn-
ingarnir muni koma til baka, und-
irritaðir af þessu bandaríska
lögfræðifirma, á næstunni. En
þetta hefur vissulega dregist
meira en ég hafði gert ráð fyrir,“
sagði Jón Steinar.
Skv. væntanlegum samningum
fellst bandaríska lögfræðistofan á
að taka að sér mál Íslendinganna
gagnvart bandarískum tóbaks-
framleiðendum. Mun lögfræðistof-
an þá halda skjólstæðingum sínum
skaðlausum af öllum útlögðum
kostnaði við undirbúning málsins
en fær ákveðið hlutfall af því sem
kann að vinnast í bótamálinu.
Undirbúa málaferli gegn bandaríska tóbaksiðnaðinum
Samningar við lög-
fræðifirma á næsta leiti
GEIR H. Haarde, fjármálaráð-
herra og framsögumaður á al-
mennum fundi um þjóðlendur, sem
haldinn var á Höfn í Hornafirði í
gærkvöld, sagði að heppilegra
hefði verið að úrskurður óbyggða-
nefndar um þjóðlendumörk í Ár-
nessýslu hefði legið fyrir áður en
kröfum var lýst á öðrum svæðum.
Hann sagðist gera sér vonir um að
öldur lægði þegar fyrsti úrskurður
kæmi fram. Menn hefðu verið sárir
yfir þeim kröfum sem komið hefðu
fram og teldu að sér vegið. Þegar
upp væri staðið yrði það vonandi
til að greiða úr ágreiningi en ekki
búa til nýjan.
Troðfullt hús var á fundinum,
sem haldinn var í félagsheimilinu
Mánagarði á Höfn og var mörgum
orðið heitt í hamsi þegar líða fór á
kvöldið.
Ólafur Björnsson lögmaður og
einn þriggja framsögumanna,
sagði ljóst að bændur myndu aldr-
ei sætta sig við að tapa landi sem
þeir væru þinglýstir eigendur að
og að þeir myndu áfrýja til Mann-
réttindadómstóls Evrópu á grund-
velli eignarréttarákvæða.
Örn Bergsson bóndi og fram-
sögumaður sagði málið aðför að
eignarrétti og hvatti bændur til að
berjast til síðasta blóðdropa. Málið
snerist ekki um lögfræði heldur
pólitík og siðfræði.
Á fundinum voru margir þing-
menn sem lýstu því yfir að kröfu-
gerðirnar kæmu þeim á óvart,
einkum að þinglýstar eignarheim-
ildir skyldu véfengdar.
Á fundinum tók Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra, einnig
til máls og sagði að endurmeta yrði
stöðuna þegar niðurstöður lægju
fyrir ef ekki skapaðist ró um hana.
Troðfullt hús
og mönnum
heitt í hamsi
Almennur fundur um þjóðlendur
á Höfn í Hornafirði
MAÐURINN
sem lést eftir um-
ferðarslys á Ak-
ureyri á sunnu-
daginn hét
Magnús Brynjar
Guðjónsson.
Hann var tvítug-
ur að aldri, fædd-
ur 23. maí 1980.
Magnús var til
heimilis á Móa-
síðu 6a á Akur-
eyri. Hann lætur eftir sig unnustu.
Magnús lést af völdum áverka sem
hann hlaut í umferðarslysi á mótum
Drottningarbrautar og Þórunnar-
strætis á Akureyri. Slysið varð um
miðjan dag á sunnudag.
Lést í um-
ferðarslysi
Magnús
Brynjar
Guðjónsson
Á MORGUN verður liðið eitt ár frá
því að kjarasamningur Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis gekk úr
gildi. Fátt bendir til þess að kjara-
deila félagsins og vinnuveitenda sé
að leysast. Í gær var haldinn 36.
sáttafundur í deilunni hjá ríkissátta-
semjara og sagði Óskar Stefánsson,
formaður Sleipnis, að ekkert benti til
þess að samningar væru að takast.
Kjarasamningur Sleipnis gekk úr
gildi 15. febrúar í fyrra og boðaði
félagið til verkfalls 8. júní til að
knýja á um gerð nýs samnings.
Verkfallinu lauk 16. júlí án þess að
samningar hefðu tekist. Viðræður
hafa hins vegar haldið áfram síðan.
Óskar sagði að á samningafundi fyr-
ir þremur vikum hefðu verið lagðar
fram nýjar hugmyndir að lausn. Þær
hefðu verið lagðar fyrir félagsfund í
félaginu og fengið dræmar undir-
tektir. Hann sagðist því ekki sjá
fram á að menn væru að nálgast
lausn. Hann kvaðst þó vona að samn-
ingamenn héldu áfram að ræðast
við.
Engar launahækkanir
í tvö ár
Óskar sagði að félagsmenn í
Sleipni hefðu ekki fengið neina
launahækkun frá 1. janúar 1999.
Hann kvaðst telja að einungis bíl-
stjórar og sjómenn hefðu þurft að
sæta því að vera á óbreyttum laun-
um í rúm tvö ár.
Sleipnir er nú með mál fyrir
félagsdómi gegn rútufyrirtækinu
Allrahanda sem varðar túlkun á
vinnulöggjöfinni og hverjir mega
vinna í verkfalli. Málið tengist verk-
falli félagsins frá því í sumar og hef-
ur það átt þátt í að tefja viðræður.
Auk þess er félagið með mál fyrir
félagsdómi sem varðar félagsaðild
nokkurra bílstjóra hjá SVR.
Eitt ár frá því að
samningur Sleipnis
gekk úr gildi
Samningar
eru ekki í
augsýn
SJÁLFSBJÖRG á höfuðborgar-
svæðinu hélt félagsfund sinn í gær
undir yfirskriftinni „Framtíðarhorf-
ur um kjör öryrkja.“ Þeir fundar-
menn sem tóku til máls töldu stöð-
una í kjaramálum öryrkja slæma og
hún hefði versnað á síðasta áratug.
Sú umræða sem hefði átt sér stað í
kjölfar öryrkjadómsins svokallaða
væri þó jákvæð og gæfi öryrkjum
færi á því að kynna málstað sinn fyr-
ir kjósendum.
Frummælendur á fundinum voru
Gunnar Reynir Antonsson, formað-
ur Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæð-
inu, alþingismaðurinn Jóhanna Sig-
urðardóttir, og Arnór Pétursson,
formaður landssambands Sjálfs-
bjargar sem hélt erindi í fjarveru
Jónínu Bjartmarz, formanns heil-
brigðis- og trygginganefndar Al-
þingis en hún boðaði forföll vegna
veikinda.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði ör-
yrkja hafa verið hlunnfarna í því
góðæri sem hefði ríkt á Íslandi síð-
ustu 6-7 árin.
Velferðarkerfið á Íslandi væri
veikara hér en á hinum Norðurlönd-
unum og staða öryrkja á Íslandi væri
mun lakari en í OECD-löndunum. Þá
væri ljóst að sú upphæð sem miðað
væri við til framfærslu væri alltof
lág. Búa þyrfti til nýjan, samræmdan
framfærslustuðul. Hún sagði mikla
þversögn fólgna í því að á sama tíma
og öryrkjum væri neitað um mann-
sæmandi kjör væri milljarðaafgang-
ur af ríkissjóði.
Gunnar Reynir Pétursson sagði
mikilvægt að öryrkjum yrði gert
kleift að hafa áhrif á sín eigin kjör.
Hann sagði öryrkja almennt vera á
móti flutningi málaflokksins yfir til
sveitarfélaga.
Í Noregi hefði reynslan af því ver-
ið sú að öryrkjar hefðu verið hvattir
til að flytja til stærri sveitarfélaga til
að þeim væri tryggð þjónusta.
Staðan
slæm en
umræða af
hinu góða
Fundur Sjálfsbjargar
um kjör öryrkja
♦ ♦ ♦