Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 57
DÓMURINN sem féll á herðar
Napster-netfyrirtækisins á mánudag,
um að þeir skyldu hindra frían að-
gang notenda sinna á höfundarrétt-
arskyldri tónlist, hefur verið mikið
umtalsefni um allan heim.
Hljómsveitin Metallica fagnaði úr-
skurðinum og sagði þetta sigur fyrir
alla þá tónlistarmenn sem kjósa að
berjast á móti því þegar óprúttnir
kaupsýslumenn notfæra sér tónlist
annarra sér til framdráttar án sam-
þykkis. Það kom einnig mörgum á
óvart þegar breska sveitin Manic
Street Preachers fagnaði dómnum
með þeim rökum að Napster væri
ekkert annað en fégráðugt fyrirtæki
„álíka illt og Coca Cola“, eins og
Nicky Wire orðaði það.
Tónlistarmarkaðurinn hér á landi
er lítill og viðkvæmur. Í ljósi þess
hversu harkalega bókin rassskellti
geisladiskinn um síðustu jól er full
ástæða til þess að ræða það hverjar
afleiðingar notkunar tónlistarskipti-
forrita á borð við Napster eru.
Napster víkkar
sjóndeildarhringinn
„Mér finnst mjög gott mál að það
sé verið að dæma í þessu og að ein-
hver sé að velta því fyrir sér hvernig
svona hlutir eiga að ganga fyrir sig,“
segir Gunnar Tynes, meðlimur múm.
„Á sama hátt finnst mér rosalega
sniðugt að fólk geti haft svona gott að-
gengi að allri þeirri tónlist sem það
mögulega vill heyra. Ég einhvern
veginn sé þetta mál ekki fara á neinn
annan hátt en að ríku tónlistarmenn-
irnir eigi eftir að hagnast enn meira á
þessu. Ég held að þetta eigi ekki eftir
að breyta neinu í sambandi við hug-
sjónamennsku. Ég held að það að
geta kynnt sér hvaða tónlist eða
hljómsveit sem er víkki sjóndeildar-
hringinn í tónlist. Þegar þú finnur
eitthvað sem þér líkar við, þá áttu eft-
ir að fylgjast með því, kaupa svo disk-
inn og kynna þér málin betur. Þetta
gefur fólki betra tækifæri til þess að
finna eitthvað frábært.“
Einhver verður
að borga brúsann
„Dómurinn sýnir fyrst og fremst
hvað höfundarrétturinn er sterkur og
það að löggjafanum er ljóst að þetta
snúist ekki um aðferðir heldur hvað
verið er að gera,“ segir tónlistarmað-
urinn Magnús Kjartansson, formaður
Sambands tónskálda og eigenda
flutningsréttar. „Nú er komið for-
dæmi og skýr skilaboð um að um lög-
brot sé að ræða. Ef þú brýst inn í búð
er ekki spurning með hvaða tækjum
þú gerðir það. Ég held að Napster
hafi verið ákaflega holl lesning fyrir
tónlistariðnaðinn, þá sérstaklega fyr-
ir útgefendur og þá sem koma nálægt
smásölu. Þetta hefur verið ágætis æf-
ing, þetta verður líklegast bara til
þess að byggt verði eðlilegt viðskipta-
umhverfi á Netinu. Þróunin verður
líklegast sú að menn komast í hvaða
efni sem er í gegnum tölvuna sína en
borga fyrir að hlusta. Einhver verður
að borga brúsann á endanum því ekk-
ert verður til út frá engu. Það getur
verið hægt að iðka um stund ein-
hverja sjóræningjastarfsemi en það
gildir þó sama reglan um hana og
gerði í gamla daga. Þegar sjóræningj-
arnir komast ekki í höfn til þess að
skipta sjóðnum, þá endar fengurinn í
kistum á eyðieyjum og eingöngu
teikningar um hvar þeir liggja verða
eftir. Það að láta sig dreyma um eitt-
hvert sæluríki þar sem fólk fær allt
ókeypis og getur nota peningana í
eitthvað annað er ekki fyrirsjáanlegt,
ekki fyrr en sálir okkar fara á Netið.“
Stök lög seld í stað platna
„Tilvera Napsters hefur verið tví-
þætt,“ segir Eiður Arnarsson, tónlist-
armaður og útgáfustjóri Spors og
Sprota. „Það sem er jákvætt er það að
forritið hefur haft töluvert kynning-
argildi. Það sem er hins vegar nei-
kvætt er það að þetta hlýtur að draga
úr sölu á afurðum stærri listamanna,
þeir þurfa ekki þessa kynningu og
missa því sölu. Áhrifin á útgefendur
eru því tvíþætt en að mestu leyti
hugsa ég að þeir fagni niðurstöðunni.
Ég held að þetta geti verið gott verk-
færi til þess að kynna þá sem eru
minna þekktir. Nærtækt dæmi er
örugglega Sigur Rós. Ég held að það
sé engin spurning um að Napster hafi
hjálpað þeim.“
Eiður er einn þeirra sem býst við
stórum breytingum á markaðinum á
komandi árum vegna þess hve þróun-
in í hinum starfræna heimi er ör.
Þ.á m. spáir hann því að í plötubúðum
framtíðarinnar verði seld stök lög en
ekki plötur.
„Ég mun sakna þess að sumir geti
ekki gefið út stórar plötur, ég held að
það verði bara stærri listamenn sem
geti það. Hins vegar verður væntan-
lega mun auðveldara að nálgast efni
sem er yfirleitt ekki fáanlegt á mark-
aðinum. Lög sem voru kannski upp-
seld. Sumir listamenn eiga bara inni
fyrir nokkrum góðum lögum en gera
ekkert endilega góðar plötur.
Sem löghlýðinn maður er ég þó
mun hlynntari dómnum en á móti
honum. Umræðan hefur allt of mikið
snúist um það að þarna hafi verið
brotið á útgefendum en staðreyndin
er sú að þetta er lögbrot gagnvart öll-
um sem að tónlistarútgáfu koma.“
„Þetta er hið besta mál“
„Ég er alsæll með þennan dóm,“
svarar Bubbi Morthens tónlistarmað-
ur. „Ég er það ánægður að ég held að
ég fari bara út í búð á næstu dögum
og kaupi mér eitthvað með Metallicu.
Þetta er hið besta mál fyrir tónlist-
armenn. Bæði að fá úr þessu skorið
og í öðru lagi að höfundarréttur okkar
sé ennþá verndaður sem ég tel skipta
gífurlega miklu máli. Þó svo að það sé
mjög ánægjulegt að fólk geti nálgast
tónlist jafn auðveldlega finnst mér
það hræðilegt að menn séu að eyða
tíma og fyrirhöfn í það að búa til lög
og texta, vinna þau í hljóðverum bara
til þess að aðrir hirði þetta án þess að
borga neitt fyrir. Í rauninni þýðir
þetta að verðum atvinnulausir að
stórum hluta til. Ég hef ekkert á móti
dreifingu tónlistar á Netinu eins lengi
og höfundarrétturinn er virtur,“ segir
Bubbi, gallharður á sínu, að lokum.
Ókeypis
tónlist?
Menn hafa misjafnar skoðanir á Napster-hugbún-
aðinum. Birgir Örn Steinarsson hringdi í þá Bubba
Morthens, Eið Arnarsson, Magnús Kjartansson og
Gunnar Tynes og fékk að heyra skoðanir þeirra.
Viðbrögð íslenskra tónlistarmanna við dóminum í Napster-málinu
Reuters
Stofnandi Napsters, Shawn Fanning, hefur fulla ástæðu til þess að vera
áhyggjufullur.