Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 33 sameiginlegri niðurstöðu sem lögð verður til grundvallar áframhaldandi starfi,“ sagði Árni M. Mathiesen. „Nákvæmlega ekkert að frétta“ Fjölmargir þingmenn stjórnar og stjórnarand- stöðu tóku þátt í umræðunni, m.a. Páll Pétursson félagsmálaráðherra og þingmenn sem sæti áttu í Auðlindanefnd. Tóku flestir undir það með Sverri Her- mannssyni að fjalla hefði þurft um efni skýrsl- unnar á Alþingi fyrr eða um það leyti sem skýrsl- unni var skilað til forsætisráðherra. Össur Skarphéðinsson sagði að ræða ráðherra hefði verið sérkennileg. Í ræðuna hefði vantað stefnu og beina afstöðu til þeirra tillagna sem fram kæmu í skýrslu Auðlindanefndar, og hver af- staða ráðherra væri til tímasetningar þeirrar gjaldtöku sem lögð væri til. „Saga auðlindamálsins er að verða sagan enda- lausa,“ sagði formaður Samfylkingarinnar og bætti við að miðað við stöðu málsins í dag væru þær fréttir helstar af gangi þessa máls að ná- kvæmlega ekkert væri að frétta. Það endurspegl- aði ekki annað en það sem Sverrir Hermannsson hefði kallað algert viljaleysi ríkisstjórnar til að gera alvöru uppskurð á stjórnkerfi fiskveiða. Össur nefndi að fregnir hefðu borist af því að litlar líkur væru til þess að tækist að endurskoða kvótalögin á þessu ári. Ráðherra virtist vera alveg sama þótt frestaðist um heilt ár að leggja fram frumvarp um þetta efni og ráðherra talaði raunar eins og hann hefði engan sérstakan áhuga á að málið kæmist á dagskrá fyrr en á næsta ári. Þá væri líka enn auðveldara að spinna vef blekking- arinnar lengra og enn auðveldara að fresta málinu fram yfir kosningar. Óskað eftir þverpólitískri samstöðu um fiskveiðistjórnina „Ég velti því fyrir mér hvort sá sé tilgangur rík- isstjórnarinnar. Hæstvirtur ráðherra verður að tala skýrt,“ sagði Össur ennfremur og beindi til sjávarútvegsráðherra nokkrum spurningum, t.d. hvort til greina komi af hans hálfu að fresta endur- skoðun laganna fram yfir næstu kosningar og hvort hann muni á þessu kjörtímabili beita sér fyr- ir því að lagt verði fram frumvarp um að sérstöku auðlindaákvæði verði bætt í stjórnarskrána, en þar verði skýrð út réttarstaða eiganda auðlind- anna, þ.e. þjóðarinnar, en þær aðeins látnar tíma- bundið öðrum í té gegn sanngjörnu gjaldi. Össur sagði ennfremur að í skýrslu Auðlinda- nefndar hefði meginniðurstaðan falist í tillögu um grundvallaraðferð til þess að deila út réttinum til þess að nýta takmarkaðar auðlindir í sameign þjóðarinnar. Í þessu skyni hafi nefndin lagt til að boðið væri í réttinn á jafnréttisgrundvelli. Þetta hafi verið leiðin sem lögð hafi verið til í því skyni að thluta takmörkuðum gæðum eins og jarðefnum, jarðhitaréttindum í eigu ríkisins, farsímarásum og líka á sviði auðlinda sjávar. Að vísu hafi líka verið tekin með fráviksleið sem felist í veiðigjaldsleið- inni, en það breyti ekki því að þessi sameiginlega niðurstaða nefndarinnar hafi verið eitt merkasta framlag hennar. „Nú virðist mér sem í hverju málinu á fætur ðru sé ríkisstjórnin að taka ákvarðanir sem ganga beinlínis í berhögg við niðurstöðu Auðlinda- nefndarinnar,“ sagði Össur og nefndi máli sínu til stuðnings nýlega ákvörðun samgönguráðherra um s.k. samanburðaruppboð á rásum fyrir þriðju kynslóð farsíma og einnig leiðir sjávarútvegsráð- herra í málefnum brottkasts á sjávarafla. Sagði Össur að Samfylkingin vildi leggja niður kvótakerfið með svonefndri fyrningarleið á 10 ára tímabili. Þar með yrði sameign þjóðarinnar tryggð, jafnræði og nýliðun tryggð og byggðar- lögin næst miðunum myndu njóta þess. Til við- bótar geri tillögurnar ráð fyrir að hægt verði að taka sérstakt tillit til sjávarbyggða þar sem við mikla atvinnuerfiðleika sé að etja vegna skorts á afla til vinnslu. „Ég held að hér á Alþingi sé hægt að skapa þverpólitíska samstöðu um lausn sem byggir á meginreglunni úr skýrslu Auðlindanefndar. Ég vil því spyrja sjávarútvegsráðherra hvort hann geti ekki fallist á þá tillögu að Alþingi verði falið þetta mál til úrlausnar og það verði látið á það reyna hvort sjávarútvegsnefnd þingsins getur ekki náð þverpólitískri samstöðu um þetta mál.“ Vill innköllun veiðiheimilda og endurúthlutun á jafnræðisgrundvelli Í máli Kristins H. Gunnarssonar kom fram að skýrsla Auðlindanefndar hefði ekki verið form- lega tekin til umræðu innan Framsóknarflokks- ins, það biði flokksþings sem haldið verður í næsta mánuði. Hann sagðist fyrst staldra við tillögu nefndar- innar um sérstakt ákvæði í stjórnarskránni þar sem kveðið verði á um þjóðareign náttúruauðlinda og landsréttinda og um afnota- eða hagnýting- arrétt af þessum auðlindum og réttindum gegn gjaldi, að því tilskildu að um tímabundin afnot sé að ræða eða þeim megi breyta með hæfilegum fyr- irvara. Lýsti hann sig sammála þessum texta og ræddi einnig um þá tillögu Auðlindanefndar að greitt yrði fyrir tímabundin afnot, annað hvort með fyrningarleið eða óbreyttu kerfi með gjald- tökuleið, veiðileyfagjaldi. Ef farin yrði seinni leið- in væru menn í þeirri stöðu að ákveða með lögum að ákveða réttindi á fyrirfram ákveðnu verði en veita þeim sem þau fengju heimild til að selja þau á markaðsverði og halda sjálfir eftir þeim mismun sem væri á hinu ákveðna verði og markaðsvirði veiðiheimildarinnar. Sagði Kristinn óeðlilegt að einstakir aðilar kæmust upp með að fénýta veiðiheimildir í eigin þágu með þessum hætti. Ekki væri hægt að byggja upp útgerð í núverandi kerfi nema greiða óheyrilegt fé fyrir heimildir til annarra útgerð- armanna í öðrum byggðarlögum. Nefndi hann sem dæmi togarasjómenn á Vest- fjörðum sem misst hefðu vinnuna þegar togari og kvóti var seldur í burtu. Þeir hefðu brugðið á það ráð að kaupa kvótalausan bát í því skyni að halda áfram sjómennskunni og afla sér viðurværis. Af- raksturinn hefði verið um 45 milljónir kr. á ári, en þar af hefðu 30 milljónir kr. farið í leigu á afla- heimildum. Um 15 milljónir hefðu þá staðið eftir til reksturs á bátnum og launa starfsmanna. Kvaðst Kristinn ekki stuðningsmaður kerfis sem leiddi til þess að blómlegar byggðir hyrfu ein af annarri og kvaðst krefjast þess að jafnræðis yrði gætt við úthlutun veiðiheimilda. Því væri ekki viðunandi að framlengja núverandi ástand, núver- andi kerfi yrði að breyta. Og því yrði ekki breytt nema með því að innkalla veiðiheimildirnar af þeim sem þær hafa fyrir og endurúthluta þeim á jafnréttisgrundvelli. Saknar nákvæmrar yfirferðar Alþingis Árni Steinar Jóhannsson, þingmaður Vinstri grænna, sagði að grunnur skýrslunnar væri að mörgu leyti góður og hægt yrði að byggja á hon- um í áframhaldandi vinnu. Hins vegar snerist mál- ið ekki síst um notkun stjórnvalda á skýrslunni og í þeim efnum væri ljóst að mikil vinna væri óunnin. „Ekki er við það unandi að hinn almenni borgari sé kominn í þá stöðu að þurfa að fara í mál við stjórnvöld til þess að gæta réttar síns. Það höfum við upplifað,“ sagði Árni Steinar og nefndi einnig þjóðlendumálin í þessu sambandi. Ekki gangi að landeigendur séu settir í þá stöðu að þurfa að gæta réttar síns gagnvart ásókn ríkisins og her- skara lögfræðinga á vegum þess. Spáði þingmaðurinn því að væntanlegar breyt- ingar á tilhögun orkumála mundu valda nákvæm- lega sömu vandamálum í samfélaginu og stjórn- kerfi fiskveiða. „Það er ekkert launungarmál að í undirbúningi er lagasetning um gjörbreytingu á orkugeiranum þar sem heimilt verður að keyra rafmagn inn á línufyrirtækin inni á frjálsum markaði. Okkur láð- ist að fara í gegnum þá umræðu sem grunnur er lagður að í skýrslu Auðlindanefndar. Það er í mín- um huga mergurinn málsins,“ sagði hann. Að lokum sagðist Árni Steinar sakna þess að Al- þingi færi ekki nákvæmlega gegnum efni skýrsl- unnar og benti á að á vegum Evrópusambandsins stæði nú yfir ítarleg vinna við endurskoðun fisk- veiðistjórnunarkerfisins, hin s.k. grænu blöð. Kvótastefna stjórnvalda verið eyðibyggðastefna Í annarri umferð umræðunnar lýsti Guðjón Arnar Kristjánsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, því að Vestfirðingar hefðu löngum haft litlar mætur á kvótakerfinu, enda væri fram- kvæmd þess þannig að atvinnuréttur og eignir fólks í sjávarbyggðum væru gerð verðlaus. „Nú er eitt togarafyrirtæki starfandi á Vest- fjörðum og vestfirskir sjómenn hafa reynt að bjarga því sem bjargað varð með því að ná fótfestu í veiðikerfi smábátanna. Nú eiga Vestfirðingar nánast allt sitt undir því að fá að búa við það frelsi áfram sem verið hefur við lýði í krókakerfi smá- bátanna,“ sagði hann. Guðjón Arnar sagði að hingað til hefði kvóta- stefna stjórnvalda verið sannkölluð eyðibyggða- stefna, byggðastefnan hefði einungis falist í því að bregðast við þeim vanda sem eyðibyggðastefnan hefði valdið íbúum landsbyggðarinnar. Sagði hann að á Vestfjörðum hefðu u.þ.b. 1.700 íbúar lifibrauð sitt beint af fiskveiðum á króka- bátum. Á suðursvæði Vestfjarða frá Brjánslæk til Bíldudals væru 450 íbúar með beina hagsmuni af sjómennsku og beitningu á aflahámarksbátum. Á svæðinu frá Þingeyri til Súðavíkur byggðu um eitt þúsund íbúar afkomu sína að mestu leyti á veiðum í aflahámarkskerfi smábátanna. Sambærileg tala fyrir Strandir væri 150 íbúar og við þetta mætti svo bæta krókabátum í 23 daga kerfinu sem á sl. fiskveiðiári hefðu alls landað 4.300 tonnum á Vestfjörðum. Um 200 Vestfirðingar ættu afkomu sína og fjölskyldutekjur undir 23 daga kerfinu. Af öðrum bátum Vestfirðinga undir 30 tonnum hefðu tvö til þrjú hundruð manns sitt lifibrauð, eða alls 2.000 til 2.100 íbúar Vestfjarða sem hefðu lifibrauð sitt beint af veiðum smærri fiskiskipa. Til viðbótar mætti reikna um 400 manns sem tengdust þeim hundrað sjómönnum sem störfuðu hjá hrað- frystihúsinu Gunnvör í 60 til 70 stöðugildum og byggðu afkomu sína á þeim. „Það liggur því ljóst fyrir, að eigi að byggja á skýrslu Auðlindanefndar varðandi útfærslu í veiðikerfi smábátanna er náðarhöggið fallið og ríkisstjórninni mun þá takast með eyðibyggða- stefnu sinni að leggja af byggð þar sem plágur fyrri alda náðu ekki að drepa niður frumkvæði og kraft íbúanna,“ sagði Guðjón Arnar. Nefndarmeðlimir ekki að hlaupast undan merkjum Fleiri þingmenn lýstu áhyggjum sínum af stöðu landsbyggðarinnar, en Tómas Ingi Olrich, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, sagði að deilur um stjórn fiskveiða gætu stofnað rekstrarumhverfi sjávarútvegsins í hættu og hefðu leitt til þess að menn hefðu leitað úr þessari atvinnugrein. Sagði Tómas Ingi að allt hið sérkennilega og innantóma tal um byggðakvóta leiddi hjá sér þá meginstaðreynd sjávarútvegs og fiskvinnslu að kvótinn væri nú þegar hjá byggðunum. Sérstakur byggðakvóti sem úthlutað yrði af stjórnmála- mönnum yrði því ekki til nema með því að taka kvóta frá byggðarlögunum. „Það er deginum ljósara að gjald á sjávarútveg- inn er gjald á landsbyggðina,“ sagði Tómas Ingi ennfremur. Tveir þingmenn Samfylkingarinnar, þau Svan- fríður Jónasdóttir og Lúðvík Bergvinsson, sem bæði áttu sæti í Auðlindanefnd, lögðu áherslu á stjórnarskrárákvæði það sem lýst væri í skýrsl- unni og gagnrýndu málshefjanda og sjávarútvegs- ráðherra fyrir að velja sér brot úr skýrslunni eftir hentugleika og túlka að vild. „Það er alveg nauðsynlegt miðað við deilur og dóma á undanförnum árum að skýra réttarstöðu eigenda auðlindarinnar og ekki síður þeirra sem hafa afnot af viðkomandi auðlind, hver sé þeirra réttur og hverjar þeirra skyldur,“ sagði Svanfríð- ur m.a. og hafnaði því að nokkur ætlaði að hlaup- ast undan merkjum, eins og ráðherra hafði ýjað að, en ekki væri hægt að ganga út frá því sem vísu að stuðningur væri við einstök atriði sem valin væru af ráðherra eða annarri nefnd og þau slitin úr samhengi. Félagsmálaráðherra gæti fallist á einhverja fyrningarleið Vilhjálmur Egilsson, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, sagði nauðsynlegt að fiskveiðistjórnunar- kerfið leyfði hagkvæmni í rekstri greinarinnar. Að öðrum kosti skapaðist ekki fiskveiðiarður. Hvort slíkur arður fengist með auðlindaskatti eða fyrn- ingarleið væri aðeins útfærsluatriði og sagðist þingmaðurinn telja að fyrningarleið myndi að sumu leyti styrkja eignaréttarlega stöðu þess nýt- ingarréttar sem felst í kvótanum og að því leytinu til væri hún að einhverju leyti æskilegri. Páll Pétursson, félagsmálaráðherra, lagði á það áherslu í ræðu sinni að menn hefðu umgengist fiskveiðistjórnunarkerfið með mismunandi hugs- unarhætti. Þannig teldi hann að Norðlendingar hefðu umgengist þetta kerfi með allt öðrum hætti en t.d. Vestfirðingar og að því leyti stæði Norður- land nú betur að vígi en Vestfirðir. „Skýrsla Auðlindanefndar er fyrst og fremst safn hugmynda,“ sagði Páll og sagðist t.d. geta fall- ist á hugmyndir um ákvæði í stjórnarskrá, þó með hliðsjón af mögulegum hefðarrétti sveitarfélaga. Hann sagðist ætíð hafa verið andvígur veiðileyfa- gjaldi, enda væri það fyrst og fremst skattur á sjáv- arbyggðir. Miklu fremur gæti hann fallist á ein- hverja fyrningarleið eða útfærslu á henni. Páll sagði að hagsmunir útgerðar og sjómanna vægjust hér á, ekki síst vegna kröfu um hámarks- arðsemi hlutabréfaeigenda. Hagsmunir fisk- verkafólks og sveitarfélaga hefðu hins vegar verið bornir fyrir borð. Bolungarvík og Vestmannaeyj- ar væru sár dæmi um þetta. Athyglisvert væri þó í þessu samhengi að aðeins þriðjungur þess botn- fiskafla sem kæmi á land í Bolungarvík væri unn- inn þar á staðnum, tveim þriðju aflans væri ekið í burtu. Svipaða sögu mætti segja frá Vestmanna- eyjum. Fyrst og fremst hefði verið hugsað um há- marksarð útgerðar og sjómanna, en þeir hags- munir þyrftu ekki að fara saman við hagsmuni sveitarfélaga og fiskverkafólks í landi. Benti Páll á að Skotar hefðu t.d. farið þá leið að festa hluta kvótans hjá sveitarfélögunum með góðum árangri og við ættum ef til vill að fara svip- aða leið hér á landi. Fleiri þingmenn tóku til máls í umræðunni, t.d. Ögmundur Jónasson þingflokksformaður Vinstri grænna og Steingrímur J. Sigfússon, formaður sama flokks. Sagðist Ögmundur m.a. vera undr- andi á því hve sterkur frjálshyggjutónn væri í skýrslu Auðlindanefndar, en Steingrímur sagði enn mikið verk óunnið og eins gott væri að eitt- hvað færi að bóla á vinnu kvótanefndarinnar s.k. „Tíminn líður, kjörtímabilið er senn hálfnað og það er eins gott að menn fari að koma sér til verka, eigi að standa við þau fyrirheit og loforð sem gefin voru fyrir kosningar um að leitað yrði sátta um sjávarútvegsstefnuna,“ sagði Steingrímur. Undir lokin lagði sjávarútvegsráðherra þó áherslu á að þegar stefna og tillögur ráðherra og ríkisstjórnar kæmu fram mundu þær verða byggðar á skýrslu Auðlindanefndar og hann sagð- ist treysta því að þá stæðu þeir aðilar sem að skýrslunni stóðu að þeirri niðurstöðu. ÐLINDANEFNDAR SKÁLKASKJÓL TIL ÞESS AÐ HALDA ÓBREYTTU FISKVEIÐISTJÓRNUNARKERFI Morgunblaðið/Golli Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, var málshefjandi en til andsvara var Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra. ’ Ég held hins vegar aðnefndin hafi sýnt að hún var starfi sínu vaxin með því að komast að sameiginlegri niðurstöðu sem lögð verður til grundvallar áfram- haldandi starfi. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.