Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ lag og embættismanna og nefnda borgarinnar hafa komið fram ýmsar hugmyndir um breyt- ingar á Reykjavíkurflugvelli í Vatnsmýri til þess að gefa kost á að hafa völlinn þar áfram en þó þannig að aukið land fáist til ráðstöfunar í annað. Ljóst er að verulegt land vinnst ekki nema með því að fara með flugbrautir að ein- hverju eða öllu leyti út í sjó. Dönsku ráðgjafarnir Ramböll slógu því raunar fram að hægt væri að reka völlinn með einni flugbraut. Með því móti hefði verið hægt að losa 60 hektara lands á núverandi flugvall- arsvæði. Vakti Helgi Hjörvar, forseti borgar- stjórnar, opinberlega athygli á þessum mögu- leika á sínum tíma en Flugmálastjórn mótmælti harðlega. Við nánari skoðun hefur komið skýrt í ljós að hugmyndin er óraunhæf við íslenskar aðstæður vegna þess hvað nota- gildi flugvallarins myndi minnka mikið. Hugmyndir komu um ýmsar aðrar útgáfur, meðal annars að AV-brautin yrði aðalflugbraut og lengd til vesturs út í sjó en NS-brautin stytt og notuð þegar hliðarvindur er of mikill á að- albraut. Og að ný aðalflugbraut, 03/21, yrði lögð í NS-stefnu í stað núverandi NS-flug- brautar, hún yrði lögð við vesturjaðar flugvall- arsvæðisins út í sjó með stefnu yfir vesturenda Kársness, en AV-brautin stytt. Með þessu myndi brautin nánast loka Fossvoginum. Þá kom einnig fram hugmynd um aðra útfærslu á seinni hugmyndinni, það er að NS-brautin yrði meira uppi á landi en henni hliðrað og hún skekkt aðeins. Þessir kostir voru allir nánast slegnir af við nánari umfjöllun Flugmálastjórnar og emb- ættis borgarverkfræðings. Á sumum þeirra voru ákveðnir flugtæknilegir gallar. Í meginat- riðum taldi borgarverkfræðingur að lítill sem enginn ávinningur væri af kostunum miðað við þær breytingar á núverandi flugvelli sem þeg- ar hefur verið getið um, á móti verulegum við- bótarkostnaði. Þannig hefði þurft að kaupa upp fjölda íbúðarhúsa í Skerjafirði og kosta til þess milljörðum, til þess að gera AV-brautina að aðalflugbraut. Flugbraut á Litluskerjum Í umræðum og við rýni á skýrslum um mögulegar breytingar á Reykjavíkurflugvelli kom upp sú hugmynd hjá Ólafi Bjarnasyni, yf- irverkfræðingi hjá borgarverkfræðingi, að leggja nýja AV-braut á uppfyllingu á Litlu- skerjum og nota hana sem aðalflugbraut. Brautin yrði um 1.730 metrar að lengd eða svipuð og núverandi aðalflugbraut. Aftur á móti myndi NS-brautin verða stytt og notuð sem þverbraut þegar vindur væri óhagstæður á aðalbrautinni. Flugmálastjórn telur raunar að NS brautin þurfi að vera lengri en gert er ráð fyrir til að Fokker 50 vélar geti notað hana án takmarkana. Gert er ráð fyrir að nýja brautin tengist landi við suðurenda núverandi NS-brautar. Við styttingu hennar kæmi flug- akstursbraut að nýju brautinni og gönguleiðin fyrir flugvöllinn færi í stokk þar undir. Þessi hugmynd borgarverkfræðings hefur verið talin álitlegust af þeim hugmyndum sem upp hafa komið um breyttan Reykjavíkurflug- völl. Hún felur í sér verulega landvinninga sem að vísu kosta mikla fjármuni og er spurning hvort hún telst hagkvæm framkvæmd út frá því sjónarmiði. Flugmálastjóri telur hana flug- tæknilega ágætan kost enda yrði allt aðflug eftir miðjum Fossvogsdal og hún er opin til vesturs yfir sjó. Hann hefur þó fyrirvara um tæringarvanda sem kynni að aukast á flug- braut sem er úti á sjó. Flugrekstraraðilar taka dræmt í þessa hugmynd, einmitt vegna auk- innar tæringar- og ísingarhættu. Borgarverk- fræðingur bendir á að engar hindranir yrðu á öryggissvæði brautarinnar eða öryggisflötum út frá henni. Einnig að hún myndi létta mjög á flugi yfir miðbæ Reykjavíkur og Kópavog. Reykjavíkurflugvöllur þjónar sem varavöll- ur fyrir Keflavíkurflugvöll vegna Boeing 737 og 757 og er gert ráð fyrir því að svo verði áfram í báðum þeim kostum sem hér er rætt um. Segir flugmálastjóri að þetta hlutverk hans sé mikilvægt fyrir flugrekstraraðila, til dæmis ef gert er ráð fyrir þeim möguleika að Keflavíkurflugvöllur lokaðist skyndilega þegar varaflugvellirnir á Akureyri og Egilsstöðum nýttust ekki sem slíkir vegna óhagstæðs veð- urs eða veðurspár fyrir Norður- og Austur- land. Ólíkt mat á landvinningum Mat manna á því hvaða land verður til ráð- stöfunar við skipulagsbreytingar á Reykjavík- urflugvelli eða byggingu nýrrar flugbrautar á Litluskerjum er nokkuð misjafnt. Borgarverk- fræðingur áætlar að 31 hektari lands fáist við endurskipulagningu flugvallarsvæðisins. Mið- ar hann við að unnt verði að koma þar fyrir 25 íbúðum og atvinnuhúsnæði fyrir 25 starfsmenn á hvern hektara og er þá tekið mið af tillögum Ramböll. Það þýðir að þarna gætu risið 775 íbúðir með hátt í 1.800 íbúum, auk aðstöðu fyrir um það bil 775 störf. Tillögur ýmissa ráðgjafa og Samtaka um betri byggð sem hafa verið með hugmyndir um að nýta allt flugvallar- svæðið undir íbúðabyggð gera ráð fyrir miklu meiri þéttleika og ef þær væru reiknaðar á þennan fermetrafjölda kæmi út úr því mun fjölmennari byggð. Á hinn bóginn hefur Flugmálastjórn látið teikna svæðið nákvæmlega upp, miðað við sín- ar hugmyndir um endurskipulagningu núver- andi flugvallar, og samkvæmt þeim tillögum verður ekki hægt að koma svona mikilli íbúða- byggð fyrir á því svæði sem losnar. Þannig væri hægt að byggja 60 þúsund fermetra skrif- stofuhúsnæði í nágrenni Hótel Loftleiða, 33 þúsund fermetra skrifstofuhúsnæði í nágrenni háskólasvæðisins og 132 íbúðir að auki og svo 316 íbúðir með stækkun hverfisins í Skerja- firði. Samtals eru þetta tæplega 450 íbúðir með innan við 1.000 íbúa og 93 þúsund fermetra at- vinnuhúsnæði fyrir hátt í þrjú þúsund starfs- menn. Hugmyndir Flugmálastjórnar gera því ráð fyrir meiri atvinnustarfsemi en minni íbúðabyggð en hugmyndir borgarinnar. Borgarverkfræðingur telur að 70–75 hekt- arar lands fáist til annarra nota með því að endurskipuleggja völlinn og byggja nýja aðal- flugbraut á Litluskerjum. Það þýðir að hægt verður að byggja á flugvallarsvæðinu að minnsta kosti 1.750 íbúðir fyrir liðlega 4.000 íbúa og aðstöðu fyrir 1.750 störf að auki. Ráðgjafar Flugmálastjórnar telja hins vegar að við flutning AV-brautarinnar út á sjó myndi vera hægt að tvöfalda þá íbúðabyggð sem feng- ist með endurskipulagningu núverandi vallar, unnt yrði að koma þar fyrir um 1.100 íbúðum til viðbótar núverandi byggð. Þýðir það að fjölga myndi í Skerjafirði um 2.500 íbúa. Á þessum tölum sést að töluvert land losnar við endurskipulagningu flugvallarins, hvað þá ef flugbrautin færi út í sjó. Hins vegar ber ráð- gjöfum ekki saman um það hvernig það nýtist. Munurinn á tillögum ráðgjafa borgarverk- fræðings og Flugmálastjórnar felst að hluta til í því hversu mikið yrði þrengt að flugstarfsem- inni. Flugmálastjóri fullyrti á blaðamanna- fundi þegar skipulagstillögurnar voru kynntar að nokkuð glæfralega hafi verið farið með tölur þegar rætt hafi verið um mikla íbúðabyggð við núverandi flugvöll. Hann segir að munur á þeirra tölum og borgarverkfræðings geti staf- að af mismunandi aðferðum við matið og að ráðgjafar Flugmálastjórnar séu komnir lengra í vinnu sinni. Þeir hafa teiknað hugsanlega byggð inn á loftmyndir, miðað við aðstæður á svæðinu. Mikill kostnaður við uppbyggingu Ljóst er að leggja þarf í verulegan kostnað við uppbyggingu vegna áframhaldandi starf- semi á Reykjavíkurflugvelli, þótt ákveðið yrði að hrófla ekki við staðsetningunni. Flugvöll- urinn hefur verið umdeildur og það hefur stað- ið honum fyrir þrifum. Hann er illa skipulagð- ur og þar er fjöldi úr sér genginna og hreinlega illa útlítandi mannvirkja sem tengjast fluginu. Óþarfi er að hafa mörg orð um flugstöðina sem er í gamalli byggingu og hamlar eðlilegri þjón- ustu við flugfarþega í innanlandsflugi. Ekki má heldur gleyma því að áætlunarflug til Græn- lands og Færeyja er rekið frá Reykjavíkur- flugvelli en aðstaða fyrir farþegana er til skammar. Nú er verið að vinna að uppbyggingu braut- anna tveggja og tæknibúnaðar þeirra, sam- kvæmt flugmálaáætlun sem samþykkt var áð- ur en borgin ákvað að efna til atkvæðagreiðslu um framtíð flugvallarsvæðisins að skipulags- tímabilinu loknu, árið 2016. Bæði borgaryfir- völd og flugmálayfirvöld gera ráð fyrir því að öll starfsemi tengd vellinum flytjist austur fyr- ir aðalflugbrautina á komandi árum. Í hug- myndum ráðgjafa Flugmálastjórnar er sem fyrr segir gert ráð fyrir uppbyggingu flug- stöðvar í tengslum við almenna samgöngumið- stöð þar sem einnig færi fram afgreiðsla lang- ferðabíla sem nú er í Umferðarmiðstöðinni. Á þessu svæði þarf einnig að byggja upp flug- skýli og flughlöð og skapa möguleika fyrir ýmsa aðra uppbyggingu. Raunar segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra í grein á heimasíðu sinni að verði flugvöllurinn að fara frá höfuðborginni að loknu skipulagstíma- bilinu, sé ekkert vit í því að gera annað en að ljúka endurbótum á brautum og öryggisbún- aði. Þá er gert ráð fyrir að koma þurfi upp ann- arri aðstöðu fyrir einkaflugið því í bókun borg- arstjóra og samgönguráðherra kemur fram sú stefnumörkun að flytja snertilendingar í æf- inga- og kennsluflugi á flugvöll í hæfilegri fjar- lægð frá Reykjavík. Gert er ráð fyrir að völl- urinn verði hannaður með það í huga að hægt Í núverandi deiliskipulagi Reykjavíkurflugvallar er gert ráð fyrir flugstöð, nálægt flugskýli Landhelgisgæslunnar, skammt ofan Nauthólsvíkur. Flugstöðin yrði nokkuð aðþrengd af núverandi austur-vestur-flugbraut, eins og sést á mynd Teiknistofu Halldórs Guðmunds- sonar, og skerðir brautin stækkunarmöguleika stöðvarinnar. Þess vegna hafa bresku ráð- gjafarnir gert tillögur um staðsetningu flugstöðvar á tveimur öðrum stöðum. Hótel Loft- leiðir sjást í horninu efst til hægri á myndinni, Nauthólsvíkin neðst til vinstri. Bresku ráðgjafarnir velta upp þeim möguleika að nýta Hótel Loftleiðir sem flugstöð en þess má geta að hótelið var upphaflega byggt sem flugstöð fyrir Loftleiðir. Er þá gert ráð fyrir byggingu glerskála við flughlaðið og glerþaki yfir stóra portið milli hótelsins og skrifstofa Flugleiða, eins og sést á þessari útfærslu Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar. Í tengslum við flugstöðina yrði byggð miðstöð fyrir fólksflutninga á landi auk þess sem möguleikar sköpuðust á byggingu verulegs atvinnuhúsnæðis á lóðinni. Svona gæti ný flugstöð sem reist væri við norðurenda norður-suður-flugbrautarinnar litið út. Hún yrði tengd yfir Flugvallarveg, við samgöngumiðstöð sem gæti verið við Valsvöllinn. Er þetta ein af þremur tillögum breskra ráðgjafa Flugmálastjórnar en Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar gerði myndina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.