Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 9 STAÐAN á almennum fasteigna- markaði á landsbyggðinni virðist vera mun betri en í félagslega kerfinu, samkvæmt upplýsingum frá fasteignasölum og félagi þeirra. Ágætlega gengur að selja fasteignir sem losna og ekki er al- gengt að íbúðir standi auðar og óseldar yfir langan tíma. Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær standa um 150 félagslegar íbúðar auðar á landsbyggðinni, einkum á Vestfjörðum, Austurlandi og í Vestmannaeyjum. Að sögn fasteignasala virðist sem þenslan á höfuðborgarsvæð- inu sé farin að færast til ná- grannabyggða fyrir austan fjall, upp í Borgarfjörð og út á Reykja- nes. Dæmi eru um að einbýlishús í Hveragerði, sem fyrir fáum árum voru verðlögð á 8 milljónir, séu að seljast nú á um 12 milljónir króna. Eftirspurnin á þessum svæðum er því greinilega að aukast. Að sögn Arnars G. Hinriksson- ar, lögmanns og fasteignasala á Ísafirði, er alltaf eitthvað um það að fasteignir á almennum markaði standi auðar en hann segist hafa fundið fyrir aukinni sölu að und- anförnu á norðanverðum Vest- fjörðum. Ágætlega gangi að selja þær fasteignir sem hafa verið á söluskrá. Hann segir það algengt að ungt fólk, sem hefur verið með íbúð í félagslega kerfinu, sé að kaupa íbúðir eða einbýlishús á góðu verði á almennum markaði. Fasteignasala á almennum markaði á Austurlandi fer betur af stað á þessu ári en í fyrra, að sögn Hilmars Gunnlaugssonar hjá Fast- eigna- og skipasölu Austurlands. Hann segir mun fleiri íbúðir vera á söluskrá á fjörðunum en t.d. á Héraði. Hann segir eftirspurn mikla á Egilsstöðum, verð hafi verið að hækka og þar vanti íbúðir á sölu- skrá. Hjá Fasteigna- og skipa- sölunni eru 185 eignir á söluskrá frá Þórshöfn og suður til Djúpa- vogs. Fasteignasala á almennum markaði á landsbyggðinni Betri staða en í félagslega kerfinuBARNSHAFANDI kona varflutt á fæðingardeild til skoð- unar eftir að sextán ára piltur ók stolinni bifreið inn í hlið bíls sem hún var farþegi í um há- degið á mánudag. Hún var talin slösuð á baki og maga. Konan, sem komin er 7½ mánuð á leið, var flutt með sjúkrabíl á Land- spítala – háskólasjúkrahús og var lögð inn á fæðingardeild. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum – háskóla- sjúkrahúsi eru hún og fóstrið ómeidd og bera hvorugt var- anlegan skaða af. Pilturinn sem ók bílnum er ekki með ökuréttindi enda hefur hann ekki aldur til þess. Bílinn hafði hann tekið traustataki á heimili sínu og bauð þremur félögum sínum, 15–16 ára, með sér í ökuferð. Hann ók vestur Hlíðarhjalla, virti ekki bið- skyldu og ók viðstöðulaust inn á Digranesveg þar sem hann lenti inni í hlið fólksbílsins sem kon- an var farþegi í. Piltarnir fjórir sluppu ómeiddir. Báðir bílar skemmd- ust mikið og er sá sem ekið var á talinn ónýtur. Pilturinn á yfir höfði sér sekt fyrir akstur án ökuréttinda en hún nemur 50.000 kr. við fyrsta brot, sekt fyrir umferðarlaga- brot og dóm fyrir nytjastuld. Þá er líklegt að honum verði gert að greiða fyrir tjón sem varð á bifreiðunum tveimur. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögregl- unni í Kópavogi mun hann hefja ökuferilinn með fjóra umferð- arpunkta. Sextán ára ökumaður í bíltúr Ók stolnum bíl inn í hlið annars bíls MÓTMÆLENDUR gegn áform- um Landsvirkjunar um lagningu raflínu frá virkjunarsvæðinu við Þjórsá að Brennimel í Hvalfirði hafa lagt fram tillögu um leggja línuna í jörð á 10 km kafla eða þar sem byggð er mest. Reynir Ás- geirsson forsvarsmaður mótmæl- enda dregur enga dul á að geysi- lega dýrt sé að leggja línuna í jörð og losna þannig við háspennumöst- ur á jörðum í Hvalfjarðarstrand- arhreppi, en hann segir að jarðir séu ekki falar undir fleiri möstur en þau sem fyrir séu í hreppnum. „Það er mat okkar að umhverf- iskostnaður við lagningu jarð- strengja vegi upp á móti þeim margháttaða skaða, sem loftlínur valda,“ segir hann. „Við höfum ákveðna hugmynd að lagningu lín- unnar, sem íbúar Hvalfjarðar- strandarhrepps eru sammála um með þeim fyrirvara að Akranes- kaupstaður samþykki hluta línu- leiðarinnar í gegnum land sitt austan við Hvalfjarðarstrandar- hrepp. Við leggjum til að síðasta mastrið í línunni ofan af hálendinu verði rétt vestan við Kúhallará. Þaðan fari línan í jörðu stystu leið niður að Borgarfjarðarbraut, með- fram henni niður að Hvalfjarðar- strönd og þar meðfram vegi að Brennimel.“ Hann segir að í Hvalfjarðar- strandarhreppi séu um 400 sum- arbústaðalóðir og um 350 bústaðir. Eigendur þeirra séu afar ósáttir við loftlínu í gegnum landið. Mótmælendur gegn áformum Lands- virkjunar í Hvalfjarðarstrandarhreppi Vilja raflínuna í jörð á 10 km kafla FÉLAG járniðnaðarmanna hefur beint nokkrum spurningum til Rík- iskaupa vegna þeirrar ákvörðunar stofnunarinnar að ganga til samn- inga við pólska skipasmíðastöð um viðgerðir á varðskipunum Ægi og Tý. Örn Friðriksson, formaður Félags járniðnaðarmanna, segir að félagið dragi í efa að verið sé að taka hagstæðasta tilboðinu. Í frétt frá Félagi járniðnaðar- manna kemur fram að félagið telur nauðsynlegt að fá svör við því hvort í reynd sé verið að taka hagstæðasta tilboðinu. Félagið líti þannig á að Ríkiskaup verði að taka tillit til þátta eins og skatttekna hins op- inbera við heildarmat á tilboðum og gæta þannig heildarhagsmuna rík- isins. Spurningarnar eru sjö talsins sem beint er til Ríkiskaupa. Í fyrsta lagi er spurt um hver sé nákvæmlega verðmunurinn á pólska tilboðinu og lægsta íslenska tilboðinu að teknu tilliti til eftirlits og siglingakostn- aðar. Í öðru lagi hver sé áætlaður eftirlitskostnaður vegna verkanna í Póllandi og á Íslandi og hver sé heildarkostnaður við siglingu skip- anna til Póllands og aftur heim. Þá er spurt um lengd verktímans ann- ars vegar samkvæmt tilboði Vél- smiðju Orms og Víglundar og hins vegar frá pólsku skipasmíðastöðinni Moskar að meðtöldum siglingatíma. Einnig er spurt hvort áætlað sé að einhverjar lagfæringar þurfi að fara fram eftir að skipin koma aftur. Loks spyr Félag járniðnaðar- manna hvort Ríkiskaup hafi lagt mat á þann þjóðhagslega hagnað sem skapast við að vinna verkið hér á landi og er meðal annars vísað til tekna ríkis og sveitarfélaga í þeim efnum og tekið tillit til þess við mat á tilboðum. Það sem er lægst er ekki endilega hagstæðast Örn Friðriksson, formaður Félags járniðnarmanna, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þeir drægju í efa að Ríkiskaup væru að taka hagstæðasta tilboðinu í við- gerðir á varðskipunum. Hvergi hafi komið fram hvort Ríkiskaup hafi lagt mat á þjóðhagslega hagkvæmni þess að láta vinna verkið hér innan- lands. „Við teljum að Ríkiskaup verði líka að leggja mat á þessa þætti áður en þeir segja til um hvað er hagstæðast. Það sem er lægst er ekki endilega hagstæðast fyrir rík- ið,“ sagði Örn. Hann sagði að reynslan væri sú að nær undantekn- ingalaust þyrfti að lagfæra skip og breyta eftir að þau væru komin hingað heim eftir lagfæringar er- lendis. Greinilegur samdráttur í málmiðnaði Örn bætti við að samdráttur væri greinilegur í málmiðnaði. Það væri mest áberandi í skipaiðnaðarverk- efnum, en þar hefði þegar verið sagt upp starfsmönnum. Verkefnastaðan undanfarið og framundan væri langt í frá að vera góð. Þeir hefðu líka séð samdrátt í öðrum verkefnum málm- iðnaðarfyrirtækja og það kæmi bæði fram í fækkun starfsfólks og því að yfirvinna hefur minnkað verulega. „Það er engin yfirspenna í grein- inni, þótt það sé náttúrlega mikil spenna í okkur yfir því að það sé verið að fara með þessi skip út úr landinu,“ sagði Örn. Hann sagði að með sama áfram- haldi gæti sú verkþekking sem til er í þessum efnum týnst úr landinu. „Það kann nú ekki góðri lukku að stýra fyrir framtíðina þegar verk- þekkingin hverfur líka úr landi.“ Draga í efa að verið sé að taka hagstæðasta tilboðinu Félag járniðnaðarmanna beinir spurningum til Ríkiskaupa vegna viðgerða á varðskipum í Póllandi VERKEFNASTYRKUR Félags- stofnunar stúdenta var veittur í gær. Að þessu sinni hlaut styrk- inn Árdís Elíasdóttir fyrir BS- verkefni sitt Nuclear Spin Con- version in CH3F Induced by an Alternating Electric Field, sem metið er til BS prófs í stærðfræði á eðlisfræðilínu. Verkefnastyrkur Félagsstofn- unar er veittur þrisvar á ári. Markmiðið með veitingu hans er að hvetja stúdenta til markvissari undirbúnings og metnaðarfyllri lokaverkefna, auk þess að koma á framfæri og kynna frambærileg verkefni. Styrkupphæðin er 100 þúsund kr. Myndin er tekin þegar Guðjón Ólafur Jónsson, stjórnarformaður FS, afhenti Árdísi Elíasdóttur styrkinn. Verkefna- styrkur Félagsstofn- unar stúdenta Morgunblaðið/Kristinn Verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta. Guðjón Ólafur Jónsson, stjórnarformaður FS, afhendir Árdísi Elíasdóttur styrkinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.