Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ GÍSLI Halldórsson arkitekt kynnti á fundi hjá Arkitektafélaginu í vikunni hugmynd að breyttu skipulagi Reykjavíkurflugvallar. Gísli telur að auðveldlega sé hægt að komast af með mun minni flugvöll. Hugmynd hans ger- ir ráð fyrir að minnka flug- vallarsvæðið um 116 hektara. Gísli minnti á í erindi sínu að deilur hefðu staðið um Reykjavíkurflugvöll í 30 ár. Árið 1985 hefði flugvallar- svæðið verið minnkað um 54 ha. Hugmynd Gísla gengur út á að reisa lítinn flugvöll í Vatnsmýrinni sem getur þjónað innanlandsfluginu. Flugbrautirnar verði tvær sem hann segir að verði nothæfar í allt að 95– 97% tilvika. „Þessar brautir eru báðar um 1.000 m að lengd, sem talið er að hæfi fyrir flugvélar á öllum innanlandsleiðum. Á undanförnum árum hef ég rætt við allmarga sérfræðinga um flugvéla- gerðir og hafa þeir verið á einu máli um það að margar gerðir flugvéla hentuðu hér í innanlandsflugi og þyrftu ekki lengri brautir. Með svo stuttum brautum er hægt að skapa umtalsvert rými fyrir hvers konar byggingarmöguleika. Tillaga mín gerir ráð fyrir að brautirnar séu flutt- ar til. Norður-suður-brautin er flutt suður og nokkuð vestur. Um leið er henni aðeins snúið til þess að losa Kársnesinga við allt yfirflug, enda hefur verið kvartað yfir því og það með réttu. Er það einnig kostur að ekki verður flogið eins ná- lægt Ráðhúsinu eins og nú er gert. Þar að auki fjarlæg- ist brautin það mikið að truflun í húsinu verður í lág- marki. Austur-vestur-brautin er færð út í fjöruborð á fyllingu þar. Með því verður fluglína um Fossvoginn og inn dal- inn. Á þann veg losna Kópa- vogsbúar einnig við yfirflug. Er þetta í raun sama lega og Ólafur Pálsson benti á fyrir löngu, en þessi braut er mun styttri og gengur ekki inn í Fossvog. Fyrir flugstarfsemina eru afsettir um 20 ha lands, sem væri hægt að stækka nokkuð ef með þyrfti. Með þessum tilfærslum á brautum er hægt að fá ágætt landrými fyrir hvers konar byggingar sem vantar rými fyrir. Þá er hægt að fá samfellda byggð í Skerjafirðinum, sem gæti orðið heilsteypt íbúðarhverfi,“ sagði Gísli í erindi sínu. Í tillögu Gísla er gert ráð fyrir að 116 ha lands losni sem nú er nýtt und- ir flugstarfsemi. Hann leggur til að 20 ha fari undir byggingar við flugvöll- inn og flugvélaverkstæði, 19 ha fari undir íbúðabyggð, 27 ha undir stofn- anir og 50 ha undir miðbæjarstarf- semi. Gísli Halldórsson arkitekt vill breyta skipulagi Reykjavíkurflugvallar Byggður verði minni völlur í Vatnsmýrinni                   !"#              $    %           Gísli Halldórsson að hafa í huga í því sambandi að þessar vísbendingar væru óvissar ennþá „Það virðist vera töluvert mikill gangur ennþá í innflutningi, útlán- um bankana og fasteignamarkað- urinn virðist hafa fengið einhvern byr í byrjun árs. Það kemur ekki einungis fram í útgáfu húsbréfanna heldur kemur fram hækkun á fast- eignaverðinu í síðustu vísitölu Hagstofunnar. Hins vegar teljum við okkur sjá hilla undir breytingar á vinnumarkaðnum og að það verði ekki eins mikil umframeftirspurn þar eins og verið hefur undanfarin misseri. Það er því hægt að binda ákveðnar vonir við að það sé slaki framundan, en það er ekki vissa um hann ennþá,“ sagði Þórður. Hann benti á að eðlilegt væri að skoða þessa hluti í ljósi þess að við- skiptahallinn undanfarin fjögur ár, þ.e.a.s. að árinu í ár meðtöldu, væru rúmir 200 milljarðar kr. og ENN eru nokkuð misvísandi teikn á lofti í efnahagsmálum um það hvort dragi úr þenslu eða ekki. Lít- ið hefur enn dregið úr innflutningi og útlánum bankanna, auk þess sem fasteignaverð hækkaði í ný- birti vísitölu neysluverðs og hús- bréfaútgáfa jókst á nýjan leik í janúarmánuði. Hins vegar virðist draga úr spennu á vinnumarkaði, að því er fram kom hjá Þórði Frið- jónssyni, forstjóra Þjóðhagsstofn- unar, í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að örugg merki væru ekki enn komin fram um hjöðnun. Vísbendingar um það væru á vinnumarkaðnum, en fasteigna- markaðurinn og peningamarkaður- inn gæfu það ennþá ekki til kynna. Þórður sagði að Þjóðhagsstofnun væri að vinna að gerð nýrrar þjóð- hagsspár, en hennar væri ekki að vænta fyrr en í næsta mánuði. Sumt benti til þess að heldur væri að slakna á spennunni, en rétt væri það væri meiri viðskiptahalli á fjögurra ára tímabili en sést hefði áður í sögu efnahagslífsins hér á landi. „Það er auðvitað þess vegna afar brýnt að það hægi á vexti þjóð- arútgjalda umtalsvert á þessu ári eða í samræmi við það sem gert er ráð fyrir núna,“ sagði Þórður. Hann sagði að gert væri ráð fyr- ir að viðskiptahallinn í ár yrði 68 milljarðar kr. samanborið við 61 milljarð kr. á árinu 2000. Áætlað væri að þjóðarútgjöld ykjust um 0,9% í ár í samanburði við 5,3% aukningu þeirra í fyrra og þrátt fyrir það yrði viðskiptahallinn sam- kvæmt áætlunum 68 milljarðar kr. „Okkur sýnist að ennþá geti þessar áætlanir staðist sem við höfum verið að leggja fram um að það hægi verulega á vexti þjóð- arútgjaldanna, en vísbendingarnar eru engu að síður ekki skýrar ennþá,“ sagði Þórður ennfremur. Forstjóri Þjóðhagsstofnunar um þróun efnahagsmála Ekki enn komin fram örugg merki um hjöðnun BLÍÐVIÐRIÐ að undanförnu hefur gert byggingarverktökum á höfuð- borgarsvæðinu betur kleift að byggja hratt og vel en oftast á þess- um árstíma. Víða blasir við fram- kvæmdagleðin, sem menn tengja jú oftar vor- og sumarverkum, en því sem tíðkast á þorra. Vissara er að huga að réttskeiðum og mótatimbri sem geta bognað og afmyndast í rakanum. Þessi smiður virðist vera með gott efni í hönd- unum en aldrei er of varlega farið.Morgunblaðið/Kristinn Vandað til verka Á MÁNUDAGINN, um kl. 15, fór Nissan Patrol-jeppi út af veginum um Óshlíð, til móts við Sporhamra. Þetta gerðist næstum því á sama stað og ung stúlka ók bíl sínum út af fyrir tæpri viku. Ökumaður jeppans, Sveinn Fannar Jónsson, náði að kasta sér út úr jeppanum áð- ur en hann rann niður snar- bratta hlíðina. Sveinn býr í Bolungarvík og þetta var þriðja ferð hans um Óshlíðina þennan dag. Hann var á leið til Bolungarvíkur þegar jeppinn rann skyndilega til að aftan. Nokkur ísing var á veginum. Sveinn ætlaði að rétta bílinn af en þá festist stýrið í beygju. Jeppinn stefndi þá út af veginum og niður í fjöru. Eins og einhver gripi í stýrið „Það var eins og einhver hefði gripið í stýrið,“ sagði Sveinn í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hann reyndi að bremsa en þegar hann sá að það myndi ekki duga til að stöðva jeppann kastaði hann sér út úr honum. Sveinn veltist eftir veginum og marðist nokkuð og skrám- aðist. Þar sem hann lá heyrði hann skruðningana þegar jepp- inn fór niður Óshlíðina. Sveinn var ekki í bílbelti og segir að það hafi gert sér kleift að kasta sér út úr bílnum. Ökumaður bíls sem ók nokk- uð á eftir jeppanum tók Svein upp í bílinn og ók honum að heimili hans í Bolungarvík. Sveinn leitaði til læknis síðar um daginn. Hann slapp þó næstum ómeiddur. Jeppinn rann ekki beint nið- ur hlíðina heldur fór skáhallt og hélst á réttum kili alla leiðina. Í fjöruborðinu skall hann á stór- grýti og segir Sveinn að jepp- inn sé meira eða minna ónýtur að framan. Hann sé grindar- skakkur og að öllum líkindum ónýtur. Sveinn segir þetta tals- vert tjón en hann hafði nýlokið endurbótum á jeppanum. Það sé þó ekkert annað að gera en fjárfesta í nýjum jeppa. Stýrið festist í beygju Jeppinn sem fór út af í Óshlíð alltaf á sunnudögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.