Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 16
LANDIÐ 16 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Akureyri - Eydís Davíðsdóttir, ung húsmóðir á Akureyri, færði barnadeild Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri fimm sambyggð sjónvarps- og myndbandstæki að gjöf á dögunum. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem Eydís kemur færandi hendi á barnadeildina, því fyrir rúmum tveimur árum færði hún deildinni einnig fimm sambyggð sjónvarps- og mynd- bandstæki að gjöf. Í báðum tilfellum hefur Eydís notið velvilja fjölmargra fyrir- tækja og þá hefur Róbert Frið- riksson, verslunarmaður í Radíó- nausti, látið Eydísi hafa eina samstæðu til viðbótar við þær fjórar sem hún safnaði fyrir með- al fyrirtækja í bænum. Þá færði Eydís barnadeildinni einnig myndbandsspólur að gjöf, fyrir hönd ónafngreindra einkaaðila og Pennans/Bókvals. Eydís sagði í samtali við Morg- unblaðið, að eftir að barnadeildin flutti í nýtt og stærra húsnæði í desember sl. hefði verið þörf fyr- ir fleiri tæki og hún því farið af stað á ný. „Það er líka gaman að standa í þessu því mér er alls staðar tekið svo vel. Þetta hefur því verið ótrúlega lítið mál og nú er barnadeildin orðin full af sjón- varpstækjum. Magnús Stefánsson, yfirlæknir barnadeildar, tók við gjöfinni ásamt Sesselju Guðmundsdóttur deildarstjóra og þakkaði Magnús Eydísi og fyrirtækjunum þann hlýhug og velvilja sem þau hafa sýnt deildinni. Fyrirtækin sem aðstoðuðu Ey- dísi við þetta verkefni eru: Radíó- naust, Höldur, Útgerðarfélag Ak- ureyringa, Sparisjóður Norðlend- inga, Börkur, JMJ, Heildverslunin Amaro, Arkitekta- og verkfræðistofa Hauks, Toyota og Stjörnusól. Þá hefur Flosi Jónsson, gullsmiður í Skarti, grafið á og gefið platta til merk- ingar á tækjunum. Hefur fært deildinni 10 slík tæki Morgunblaðið/Kristján Frá afhendingu sjónvarps- og myndbandstækjanna á FSA. F.v. Magnús Stefánsson yfirlæknir, Eydís Davíðsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir deildarstjóri og Róbert Friðriksson, verslunarmaður í Radíónausti. Færði barnadeild FSA 5 sjónvarps- og myndbandstæki Selfossi - „Það hafa margir haft samband við mig eftir fundinn í Þingborg en mitt markmið með því að sýna þetta dæmi um hvernig lambakjötið er boðið í verslunum var og er að vekja athygli á þessu og fá bændur til að standa saman. Við eig- um ekki að vera í einhverjum vælum varðandi búskapinn heldur gera kröfur um að vörurnar sem eru komnar frá okkur séu gæðavörur og að við fáum gott verð fyrir okkar af- urðir. Það á ekki að bjóða fólki rusl- kjöt í verslunum,“ sagði Fjóla Run- ólfsdóttir, bóndi í Skarði í Landsveit, en hún sýndi á bændafundinum í Þingborg dæmi um það hvernig lambakjötið er boðið í verslunum. Fer í öll sláturhúsin Fjóla hefur verið bóndi í 30 ár og er með 800 fjár í búskapnum í Skarði og 100–110 nautgripi ásamt fjölda hrossa. „Ég lifi og hrærist í þessum búskap og hef gert það alla tíð. Ég fer í öll sláturhúsin sem slátra fyrir okkur og fylgist með hvernig farið er með afurðirnar og sé þar glæsi- legt kjöt verða til. Ferlið í sláturhús- inu er auðvitað kapítuli út af fyrir sig og til dæmis fásinna fyrir okkur bændur að það skuli vera 30 verð- flokkar á lambakjöti en þeim má fækka og einfalda kerfið,“ sagði Fjóla og einnig að flokkunarmenn hefðu haft samband við hana og bent á nauðsyn þess að einfalda flokkun- arkerfið. Bændur og neytendur standi saman „Áhrif okkar bænda eru engin á söluferli kjötsins eftir að við slepp- um hendinni af lömbunum. Ég vil til dæmis að hann Jóhannes hjá Neyt- endasamtökunum bregði sér í slát- urhúsin til að fylgjast með og kynn- ast ferlinu. Hann er ekki síður okkar maður. Við náum ekki árangri fyrr en við stöndum saman og þá á ég líka við Jóhannes og hans fólk. Við höf- um ekki efni á öðru, Íslendingar, en að vinna saman. Mér finnst til dæmis okkar menn hjá Félagi sauðfjárbænda allt of langt frá okkur bændum. Það eru stöðugt gerðar meiri kröfur til okkar og við eigum til dæmis að merkja öll lömb þannig að hægt sé að rekja ferli kjötsins. Það er ágætt en það þurfa að koma fram tækninýjungar til að gera þetta auðveldara og slík aðstoð vil ég að komi frá okkar sam- tökum,“ sagði Fjóla. Ég skal halda áfram Hún sagðist vilja að neytandinn færi glaður út úr verslununum með lambakjötið sem hann keypti og stæði líka upp glaður frá borðinu þegar hann hefði snætt kjötið. „En með því að bjóða þetta eins og ég sýndi dæmi um á Þingborg næst ekki slíkur árangur. Það var til dæmis hringt í mig frá Akranesi út af svona ruslkjöti sem var boðið nið- ursagað. Þetta á auðvitað ekki að sjást í neinni verslun. Og ég skal halda áfram með þetta og ég hætti ekki fyrr en þetta er komið í lag,“ sagði Fjóla og kvað fast að orði. „Jú, jú, það eru bæði bændur og neytendur sem hafa haft samband við mig og það er fólk á öllum aldri en topparnir eru lélegir að tala við mig. Kannski les forysta sauðfjár- bænda ekki blöðin. En það er alveg á hreinu að vilji er allt sem þarf í þess- um málum til að hafa kjötið í lagi alla leið inn á borð neytandans og að því vil ég og fleiri vinna,“ sagði Fjóla Runólfsdóttir, bóndi í Skarði í Land- sveit. Fjóla Runólfsdóttir, bóndi í Skarði Vilji er allt sem þarf í kjötmálunum Morgunblaðið/Sig. Jónss. Fjóla Runólfsdóttir, bóndi í Skarði í Landsveit, með golsótta gimbur, hana Geiru, í einu fjár- húsinu í Skarði. Selfossi - „Við ætlum að gefa körlum kost á að bjóða konum sínum og kærustum upp á eitt- hvað eftirminnilegt á þessum degi og gæla við hamingjuna,“ sagði Elías Guðmundsson, hót- elstjóri á Hótel Selfossi, en á konudaginn, 17. febrúar, og dag- inn eftir, hinn 18., mun hótelið kynna nýjan matseðil og vínseðil á veitingastaðnum Betri stofunni í hótelinu. Þá verður tilboð í gangi; tveir fyrir einn. Hjón og pör verða boðin vel- komin með því að konan fær blóm og stjanað verður við fólkið. „Við hlökkum til að taka á móti hamingjusömu fólki þessa daga,“ sagði hótelstjórinn. Morgunblaðið/Sig. Jónss. Halldór Halldórsson matreiðslumaður, Elías Guðmundsson hótelstjóri og Þórey Helgadóttir þjónn með hamingjusama gesti. Gælt við hamingj- una á konu- daginn Hótel Selfoss AKUREYRI AKUREYRARBÆR hefur auglýst eftir tilboðum í byggingu síðari áfanga Giljaskóla. Heildarstærð ný- byggingarinnar er 2.400 fermetrar en heildarkostnaður við fram- kvæmdina er rúmar 400 milljónir króna, að sögn Ásgeirs Magnússon- ar formanns framkvæmdaráðs. Framkvæmdir hefjast fljótlega og þeim skal að fullu lokið um miðjan ágúst á næsta ári. Þá styttist í að framkvæmdir við Amtsbókasafnið hefjist en heildar- kostnaður við það verk er einnig upp á rúmar 400 milljónir króna. Þá er einnig stefnt að því að bjóða út á þessu ári í alútboði byggingu fjöl- nota knattspyrnuhúss á félagsvæði Þórs við Hamar og er undirbúning- ur í fullum gangi. Áætlaður kostn- aður við framkvæmdina er ekki undir 200 milljónum króna. Hér er því um að ræða þrjár framkvæmdir á vegum bæjarins fyrir rúman millj- arð króna og standa munu yfir á næstu árum. Framkvæmdir við Amts- bókasafnið í sjónmáli Við Giljaskóla er um að ræða 2 hæða byggingu sem er salur skól- ans, bókasafn, tölvuver, heilsugæsla og sérgreinastofur og ennfremur 3 hæða byggingu sem í eru almennar kennslustofur og stofa fyrir tónlist- arkennslu. Einnig er í útboðinu allur frágangur lóðar norðan og vestan byggingar ásamt bílastæðum og leiktækjum á lóð. Með tilkomu ný- byggingarinnar stækkar húsnæði Giljaskóla um helming. Þá hefur framkvæmdaráð sam- þykkt að leggja til við bæjarráð að framkvæmdir við Amtsbókasafnið verði boðnar út í áföngum og að haf- ist verði handa við nýbygginguna strax á þessu ári. Jafnframt að verk- inu verði fram haldið á næstu árum og þeim að fullu lokið árið 2004. Þarna er m.a. um að ræða byggingu 1.460 fermetra viðbyggingar, kaup á búnaði í hana, endurbætur á eldra húsnæðinu, kaup á ýmsum búnaði til viðbótar og frágangur. Á fjárhags- áætlun þessa árs er gert ráð fyrir 60 milljónum króna til framkvæmda við safnið. Ásgeir sagði að undirbúnings- vinna vegna framkvæmda við Amts- bókasafnið hafi tekið sinn tíma. „Við ætluðum að geta boðið þetta út ekki síðar en á þessum tíma fyrir einu ári. Það hefur tekið sinn tíma að ganga frá hönnun verksins en nú er þetta allt að koma og gangi okkar hugmyndir eftir verður byrjað á uppsteypu hússins næsta sumar. Þá eru framkvæmdir við bygg- ingu nýs leikskóla, Iðavalla og við- byggingu við Oddeyrarskóla í full- um gangi.“ Ásgeir sagði bæði verkin á áætlun en byggingu leikskólans skal lokið eftir um einn mánuð og viðbyggingu Oddeyrarskóla í vor. Akureyrarbær auglýsir útboð vegna byggingar síðari áfanga Giljaskóla Morgunblaðið/Kristján Húsnæði Giljaskóla stækkar um helming eftir að framkvæmdum við síð- ari áfanga lýkur og öll aðstaða til skólahalds mun þá væntanlega batna. Verkefni fyrir rúm- an milljarð króna að fara í gang JAFNRÉTTISRÁÐ hefur fagnað því frumkvæði sem felst í launa- könnun Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og úrvinnslu gagna til að meta kynbundinn launamun. Ráðið beinir því til annarra stétt- arfélaga að athuga möguleika á að framkvæma svipaðar athuganir innan sinna vébanda. Jafnframt vekur Jafnréttisráð athygli á því að allt frá útgáfu rannsóknar Jafnréttisráðs „Launamyndun og kynbundinn launamunur“ árið 1995 hafa at- huganir sýnt mjög svipaðan launamun kynja. Launamunur sem ekki verður skýrður með öðru en mismunandi kynferði fær ekki staðist lög. Í þessu ljósi er full ástæða til að skoða enn og aft- ur hvað unnt er að gera til að út- rýma þeirri skömm sem felst í því að konum eru greidd lægri laun en körlum fyrir sambærileg störf. Ráðið skorar á aðila vinnu- markaðarins og stjórnvöd að leita allra ráða til að finna lausn á þess- um vanda. Athugaður verði kynbundinn launamunur Jafnréttisráð skorar á stjórnvöld og vinnumarkað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.