Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 31
Heimsferðir bjóða nú vikulegt flug til
Benidorm í sumar á frábærum kjörum og
þeir sem bóka fyrir 15. mars geta tryggt sér
allt að 32.000kr. afslátt fyrir fjölskylduna í
valdar brottfarir, eða kr. 8.000 á manninn. Við kynnum nú glæsilegan nýjan
gististað í hjarta Benidorm, Montecarlo, spennandi kynnisferðir í fríinu og
þjónustu reyndra fararstjóra til að tryggja þér ánægjulega dvöl í fríinu.
Bókaðu til
Benidorm
og tryggðu þér
32.000 kr.
afslátt í sumar
Verð kr. 27.400
Flugsæti til Alicante, ef bókað
fyrir 15. mars eða fyrstu 300
sætin. Skattar ekki innifaldir.
M.v. hjón með 2 börn. Fyrir félag
húseiganda á Spáni
Verð kr. 48.030
M.v. 2 í íbúð, vikuferð, El Faro,
ef bókað fyrir 15. mars, 25. maí.
Verð kr. 36.985
M.v. hjón með 2 börn, 2 - 11 ára,
El Faro, 25. maí, vikuferð með
8.000 kr. afslætti á mann.
Flug alla
föstudaga
Aldrei lægra verð - aldrei betri hótel
Fáðu bæklinginn sendann
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
söngurinn blundað í mér. Við Guð-
björn Guðbjörnsson frændi minn og
félagar okkar hittumst reglulega
heima hjá honum til að hlusta á óp-
erur og keppa um hver væri bestur að
bera kennsl á söngvarana. Þarna held
ég að minn grunnur hafi mótast og
vissar skoðanir á því hvað væri al-
mennilegt í þessu. En ég var orðinn
tvítugur og kominn í laganám þegar
ég fór í Söngskólann. Síðan er líkast
því að ráð séu tekin af manni, góðu
heilli, get ég kannski sagt.“
Kolbeinn flutti sig til Sigurðar
Demetz í Nýja tónlistarskólanum og
lauk þaðan burtfararprófi. Svo var
hann fimm ár, frá 1988 til 1993, í Tón-
listarháskóla Vínarborgar og hefur
síðan komið nokkuð víða við, í óperum
og á tónleikum í ýmsum löndum en
aðallega þó Þýskalandi. Hann var síð-
ast fastráðinn í Köln til tveggja ára en
ákvað í fyrravor að fórna því öryggi.
Hann hafði þurft að hafna góðum
hlutverkum vegna samningsins og
fannst kominn tími til að ráða sér
meira sjálfur. Síðasta árið hefur Kol-
beinn meðal annars sungið í óperunni
í Brussel, Sao Carlo-óperuhúsinu í
Lissabon og Genfaróperunni. Þar fór
hann með hlutverk Don Josés í Carm-
en, „nokkuð sem ég hef sungið öðrum
hlutverkum oftar og gæti næstum
gert í svefni“, segir hann kankvís. Á
liðnu sumri söng Kolbeinn á tónlist-
arhátíðinni í Salzburg og gerir allt
eins ráð fyrir að snúa þangað aftur.
Hann hlaut fyrirtaks dóma fyrir túlk-
un Enée í Trójubúunum á hátíðinni
og vakti athygli mikilvægra manna.
„Það gengur mikið út á svona sam-
bönd í þessum bransa,“ segir hann,
„og oft takast þau fyrir tilviljun. Ein-
hver slæðist inn í sal, heyrir mann
syngja og minnist þess seinna þegar
ástæða er til.“
Næstu tvö ár og ríflega það eru
skipulögð hjá Kolbeini. Hann fer eftir
sýningarnar hér til Nurnberg, Gauta-
borgar, Lausanne og Munchen. Þar
verður hann aftur á næsta ári í hlut-
verki Freys í Niflungahringnum und-
ir stjórn Zubins Mehta. Eitt af því
sem gleður söngvarann þessa dagana
er opið boð um að koma til Kaup-
mannahafnar í Konunglegu óperuna.
„Ég á eflaust eftir að þekkjast það,
enda finnst mér Köben alveg sérstak-
lega skemmtileg. Við hjónin höfum
jafnvel orðað þá hugmynd að flytja
þangað. Það er einhver rómantík í
bland við léttleika í borginni, hún er
ekki svo langt að heiman og hefur
kosti eins og greiðar flugsamgöngur,
nokkuð sem er nauðsynlegt fyrir
náunga eins og mig.“
Íslenskt tónlistarlíf
og einkenni landans
Kolbeinn hefur verið hógvær og
ljúfur þennan morgun á Borginni og
því er ekki laust við að það komi á
óvart þegar talið berst að íslensku
tónlistarlífi. Þá kveður hann fastar að
orði og segir fáránlegt að ekki sé gert
ráð fyrir óperu í áformum um tónlist-
arhús. Gamla bíó sé lítið, Borgarleik-
húsið óhentugt og Þjóðleikhúsið
standi eitt sem sæmilegur kostur.
Hann heldur áfram og segir að í
svona litlu landi ætti að vera einn at-
vinnukór rétt eins og við höfum Sin-
fóníuhljómsveit. Annars þyki honum
að Sinfónían gæti fylgst betur með
því sem íslenskir listamenn aðhafast,
það sé ekkert sjálfsagt að sækja út-
lendinga í uppfærslur eins og Carmen
og Aidu ef Íslendingar séu þess full-
búnir að takast á við hlutverkin.
Við vindum ofan af þessu með loka-
orðum um hugðarefni söngvarans
önnur en vinnuna. Kolbeinn segist
slaka á við matseld og hressa sig á
gönguferðum, en mest hafi hann
gaman af að lesa, helst íslenskar bæk-
ur, bæði nýjar og sígildar. „Laxness
lýsir því svo vel hvernig við erum, Ís-
lendingar; bæði saklausir og sveita-
legir og eiginlega meira en lítið
skrítnir. Það kemur fram í móralnum
að allt reddist einhvernveginn, þess
vegna sé í lagi að ana áfram, eins og til
að byggja tónlistarhús af takmark-
aðri fyrirhyggju.“
Nú þagnar söngvarinn og brosir út
í annað, hann er orðinn heldur seinn í
Óperuna en telur greinilega að það
bjargist, kannski svona ógurlega ís-
lenskur. Svo pantar hann sér einn
kaffi til viðbótar og tekur reikninginn,
heimsmaður líka eða barasta bóhem,
rétt eins og í óperunni.
LJÓÐ unga fólksins er titill á ljóða-
samkeppni almenningsbókasafna og
Máls og menningar. Hún er nú hald-
in í þriðja sinn og er orðin fastur lið-
ur í starfsemi almenningsbókasafna.
Samkeppnin er fyrir börn á aldr-
inum 9 til 16 ára og er þeim skipt í
tvo aldurshópa, 9 til 12 ára og 13 til
16 ára. Hver þátttakandi má skila
inn allt að þremur ljóðum og skiptir
þá ekki máli hvort þau eru til í skúffu
eða samin sérstaklega fyrir keppn-
ina. Skilafrestur er til 5. mars og
verður að merkja ljóðin með nafni,
heimilisfangi, aldri og símanúmeri.
Mál og menning mun gefa vinn-
ingsljóðin út á bók, auk úrvals ljóða
úr keppninni.
Í dómnefnd sitja Iðunn Steins-
dóttir, rithöfundur, Sigþrúður Gunn-
arsdóttir, ritstjóri barnabóka hjá
M&M, og Svanhildur Eiríksdóttir,
bókmenntafræðingur og fulltrúi
Þallar, samstarfshóps um barna- og
unglingamenningu á bókasöfnum.
Verðlaunaafhendingin fer fram
12. maí.
Skila má ljóðunum á eftirtalin
bókasöfn: Bókasafn Seltjarnarness,
Bókasafn Mosfellsbæjar, Bæjar- og
héraðsbókasafnið á Akranesi, Bæj-
ar- og héraðsbókasafn Ísafjarðar,
Bókasafn Bolungarvíkur, Amts-
bókasafnið á Akureyri, Bókasafn
Háskólans á Akureyri, Bóka- og
byggðasafn N-Þingeyinga, Kópa-
skeri, Sýslusafn Austur-Skaftafells-
sýslu, Höfn, Bókasafn Vestmanna-
eyja, Bæjar- og héraðsbókasafnið
Selfossi, Bókasafnið í Hveragerði,
Bæjarbókasafn Ölfuss, Þorlákshöfn,
Bókasafn Reykjanesbæjar, Bóka-
safn Kópavogs og Borgarbókasafn
Reykjavíkur, öll útibú.
Ljóðasam-
keppni unga
fólksins
NORSKI kvikmyndagerðar- og
brúðulistamaðurinn Ivo Caprino
lést síðastliðinn fimmtudag, átt-
ræður að aldri. Hann stóð að gerð
myndarinnar Flåklypa Grand
Prix sem naut mikillar hylli í Nor-
egi og víðar, en meðal þekktra
verka hans eru einnig stuttmynd-
ir um Karíus og Baktus og æv-
intýrapersónuna Askeladden.
Caprino var hálf-ítalskur, en
hann var langafabarn norska list-
málarans Hans Gude. Caprino hóf
að vinna brúðuhreyfimyndir eftir
norskum þjóðsögum og ævintýr-
um í kringum 1950, og brátt öðl-
aðist hann stöðu sem þjóðhetja.
Flåklypa Grand Prix, sem
Caprino vann ásamt rithöfundin-
um og teiknaranum Kjell Aukr-
ust, verður að teljast sú kvikmynd
sem notið hefur mestrar hylli í
norskri kvikmyndasögu. „Ég
syrgi góðan samstarfsmann og
mikinn listamann. Fréttirnar af
fráfalli hans eru mikið reiðar-
slag,“ sagði Aukrust í blaðaviðtali.
Fyrsta kvikmynd Caprinos, Tim
og Tøffe, naut gríðarlegrar hylli
þegar hún var sýnd árið 1949.
Þremur árum síðar var kvikmynd
hans, Veslefrikk med fela, sem
byggð er á norsku ævintýri, valin
besta barnamyndin á kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum. Árið
1955 gerði Caprino síðan stutt-
mynd sína um Karíus og Baktus
sem einnig naut mikilla vinsælda.
Ivo Caprino var umtalaður í
norskum fjölmiðlum fyrir hversu
afkastamikill hann var fram á efri
ár. Hann vann að list sinni fram til
hins síðasta, og gerði m.a. kvik-
myndir þar sem hann fjallaði um
norska náttúru og atvinnulíf
landsins. Þá byggði hann upp
Hundarfossen-fjölskyldugarðinn
við Lillehammer.
Caprino var með krabbamein
um árabil, en heilsu hans hrakaði
eftir að hann lærbrotnaði. Þrátt
fyrir umtalað starfsþrek lést
Caprino níu dögum áður en hann
náði 81 árs aldri.
Ivo Caprino
fallinn frá
Ósló. Morgunblaðið.
INGVELDUR Ýr Jónsdóttir mezzó-
sópran og Bjarni Þór Jónatansson
píanóleikari halda söngtónleika í
Hafnarkirkju á Höfn í Hornafirði,
annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl.
20.30. Dagskráin er leikræn með
blandaðri efnisskrá; m.a. klassísk og
leikræn þjóðlög frá Suður-Evrópu,
Sígaunaljóð Brahms, íslensk leik-
húslög og Kabarettflokkur eftir Sat-
ie þar sem „Dívan ógurlega“ er í að-
alhlutverki.
Ingveldur Ýr rekur sitt eigið söng-
stúdíó í Reykjavík og heldur þar
námskeið af ýmsu tagi.
Bjarni Þór lauk prófi í orgelleik
frá Tónskóla þjóðkirkjunnar fyrir
nokkrum árum og starfar einnig sem
organleikari.
Leikræn
sönglög
á Hornafirði
Bjarni Þór
Jónatansson
Ingveldur Ýr
Jónsdóttir
ÆFINGAR eru hafnar á Pocket
ocean, nýju dansverki sem portú-
galski danshöfundurinn Rui Horta
er að semja fyrir Íslenska dans-
flokkinn. Verkið verður frumsýnt á
stóra sviði Borgarleikhússins hinn
3. mars ásamt Kraak Een og Kraak
Twee, nýjum verkum eftir norska
danshöfundinn Jo Strømgren.
Rui Horta er einn af kunnari
danshöfundum Evrópu um þessar
mundir. Hann starfaði um árabil í
Þýskalandi þar sem dansflokkar
hans SOAP og Stageworks voru
nær allan síðasta áratug. Auk þess
að gera verk fyrir sína eigin hópa
hefur Horta samið verk fyrir NDT
2, Gulbenkian, Cullberg og marga
fleiri. Horta hefur nú flutt aðsetur
sitt til Portúgals þar sem þrír af
dönsurum Íslenska dansflokksins,
Cameron Corbett, Chad Adam
Bantner og Hildur Óttarsdóttir, eru
nú með honum við æfingar á verk-
inu.
Íslenski dansflokkurinn hefur áð-
ur unnið með Horta en verk hans
Diving og Flat Space Moving voru
sýnd í Borgarleikhúsinu veturinn
1999.
Morgunblaðið/Kristinn
Hlín Diego, Lára Stefánsdóttir og Katrín Johnson æfa dansverkið „Pocket ocean“.
Dansflokkurinn æfir
nýtt verk eftir Rui Horta