Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 12
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík- ur hefur úrskurðað mennina tvo sem voru handteknir eftir rán í söluturni við Grandaveg í Reykjavík seint á sunnudags- kvöld í gæsluvarðhald til 12. mars nk. Mennirnir höfðu skömmu áður gert misheppn- aða tilraun til að ræna söluturn í Þingholtunum. Þeir eru báðir 22 ára gamlir. Lögreglan í Reykjavík telur sig hafa upplýst þrjú önnur rán í söluturnum sem framin voru í Reykjavík í janúar og febrúar, eina ránstilraun sem og rán í Kópavogi þann 26. janúar sl., í kjölfar handtöku mannanna. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að rán séu yfirleitt framin af ungum gerendum sem leggi sig og aðra í mikla hættu fyrir lítinn ávinning. Reynslan sýni að margir ræningjanna séu án atvinnu og noti ránin til að fjár- magna fíkniefnaneyslu, greiða skuldir eða séu á annan hátt að reyna að greiða úr tímabundn- um vandamálum sínum. Sjoppu- ræningjar í gæsluvarð- hald EKKI hefur verið tekin endan- leg ákvörðun um það í landbún- aðarráðuneytinu hvort af fyrir- hugaðri ferð yfirdýralæknis til Noregs verði eða ekki, til að kynna sér betur aðstæður hjá seljendum fósturvísa sem flytja átti til landsins. Guðni Ágústs- son landbúnaðarráðherra sagð- ist í samtali við Morgunblaðið þó telja líklegt að ferðin verði farin í lok mánaðarins. Af öryggis- sjónarmiðum væri mikilvægt að skoða aðstæður við töku fóstur- vísanna á réttum tímapunkti. Þótt innflutningi hefði verið frestað þá ætti að frysta fóstur- vísana úti í Noregi á meðan kúa- bændur væru að ákveða sig end- anlega. Sem kunnugt er hefur Landssamband kúabænda ákveðið að fresta innflutningn- um um ótiltekinn tíma, a.m.k. fram yfir aðalfund í ágúst næst- komandi.Til stendur að Halldór Runólfsson yfirdýralæknir fari til Noregs ásamt Sigurði Sig- urðarsyni dýralækni en Sigurð- ur hefur eindregið verið á móti þessum innflutningi. Yfirdýralæknir til Noregs Fer líklega í lok mánaðarins FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ARI Páll Kristinsson, forstöðumaður Íslenskr- ar málstöðvar, segir að við Íslendingar eigum eftir að tapa okkar eigin tungu ef við missum trúna á gildi hennar. Gerum við einhverju tungumáli jafnhátt undir höfði og íslenskunni séum við búin að gengisfella hana. Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna kerfa, sagði í Morgunblaðinu í gær að margar þjóðir hefðu tekið upp þá stefnu að vera tví- tyngdir og spyr hvers vegna í ósköpunum við eigum ekki að taka upp þá stefnu hér á landi. Ari Páll sagði að í fyrsta lagi yrðu menn að átta sig á því hvað fælist í því að vera tvítyngd- ur. Ættu menn við tvö jafn rétthá tungumál, eins til að mynda væri tilfellið í Belgíu? Ætti til dæmis öll stjórnsýsla að fara fram á ensku jafnframt íslensku? Ætti að birta dóma á ís- lensku og ensku o.s.frv. Tvítyngdur þýddi í raun og veru að fólk ætti sér tvö móðurmál, en svo væri til dæmis oft háttað um fólk sem ætti foreldra af mismunandi þjóðerni. Það að vera tvítyngdur þýddi hins vegar ekki samkvæmt eðlilegri málnotkun að vera vel að sér í öðru tungumáli en þjóðtungunni. Ari Páll bætti því við að þessar hugmyndir ef þær yrðu að veruleika myndu grafa undan ís- lenskunni vegna þess að ef enskan yrði jafngilt tungumál íslenskunni myndu mörg notkunar- svið íslenskunnar smám saman tapast og ensk- an kæmi í staðinn. Erlendu hugtökin yrðu ein- faldlega notuð og það málræktarstarf og viðhald á tungunni sem nauðsynlegt væri myndi minnka. „Við höfum litið svo á að sókn væri besta vörnin fyrir íslenskuna. Við höfum reynt að fást við alla hluti á íslensku og það hefur gefist okkur vel hingað til. Þarna væri verið að snúa til baka, í raun og veru til þess ástands sem ríkti hér á landi um miðja nítjándu öldina þegar íslenskan átti í vök að verjast fyrir dönskunni,“ sagði Ari Páll. Hann bætti því við að þetta væru sérkenni- legar hugmyndir, ekki síst í ljósi þess að marg- ar þjóðir á Norðurlöndunum og í Evrópu berð- ust við að hreinsa þjóðtungur sínar og litu til Íslendinga sem fyrirmyndar í þeim efnum. Nú væri til dæmis í undirbúningi samnorræn at- hugun á því hvernig tungumálin á Norðurlönd- um hefðu þróast með tilliti til nýrra og fjöl- breyttari notkunarsviða tungumálanna. Íslenskan stæði mjög vel að þessu leytinu til gagnvart enskunni. Danir, Norðmenn og Svíar væru hins vegar í svipaðri stöðu nú gagnvart enskunni og við hefðum verið í gagnvart dönskunni á 19. öldinni. Nú væri verið að reyna að grípa til aðgerða í þessum efnum á Norð- urlöndunum. Aðspurður sagði hann að verndun tungunn- ar snerist ekki um krónur og aura. Ef Íslend- ingar týndu niður tungumálinu glötuðust verð- mæti jafnhliða sem ekki yrðu metin til fjár. „Við eigum eftir að tapa tungunni ef við missum trúna á gildi hennar. Ef við setjum eitthvert tungumál jafngilt móðurmálinu erum við búin að gengisfella íslenskuna, hætt að halda í við þróunina og farnir að hörfa þess í stað,“ sagði Ari Páll. Málræktarfólk lítur til Íslands sem fyrirmyndar Hann sagði að málræktarfólk í öðrum lönd- um liti til Íslands sem fyrirmyndar um það hvernig hægt væri að reka iðnvætt númtíma- þjóðfélag og viðhalda jafnframt þjóðtungunni. „Menn mega ekki halda að það sé eitthvað sjálfgefið. Það er öðru nær. Miklu stærri þjóðir eins og Þjóðverjar og Danir eru að sjá það núna að þeir þurfa á öllum sínum kröftum að halda í þessum efnum,“ sagði Ari Páll að lok- um. Forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar um það hvort við Íslendingar eigum að vera tvítyngdir Töpum tungunni ef við missum trúna á gildi hennar BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam- þykkti með fjórum samhljóða at- kvæðum R-listans í gær hvaða spurning verður lögð fyrir borgar- búa í atkvæðagreiðslu þann 17. mars nk. um framtíðarnýtingu Vatnsmýr- arinnar. Spurt verður: „Vilt þú að flugvöllur verði í Vatnsmýri eftir ár- ið 2016 eða vilt þú að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýri eftir árið 2016?“ Að sögn borgarstjóra snýst val borg- arbúa um það hvort þeir vilji nýta Vatnsmýrina undir flugvöll eftir 2016 eða hvort þá eigi að flytja flug- völlinn annað og miða skipulag við að í Vatnsmýrinni verði íbúðir og at- vinnustarfsemi. Ennfremur samþykkti meirihluti borgarráðs í gær, með vísan í sveit- arstjórnarlög, að atkvæðagreiðslan yrði bindandi ef að minnsta kosti 75% atkvæðisbærra manna tækju þátt í henni. Ef hinsvegar þátttaka í atkvæðagreiðslunni nær ekki 75%, hefur verið ákveðið að niðurstaða at- kvæðagreiðslunnar verði bindandi ef að minnsta kosti 50% atkvæðisbærra manna greiða atkvæði á sama veg. Borgarfulltrúar minnihlutans sátu hjá við atkvæðagreiðslu um þetta mál í borgarráði í gær. Rafræn og miðlæg atkvæðagreiðsla Atkvæðagreiðslan verður rafræn og kjörskrá miðlæg sem þýðir að greidd verða atkvæði á tölvu og kjós- andi er ekki bundinn af tiltekinni kjördeild eins og í almennum kosn- ingum heldur getur nýtt hverja þá kjördeild sem best hentar. Hér er um nýmæli að ræða þar sem ekki hefur áður verið boðið upp á rafræna kosningu hér á landi í svo stórri og almennri atkvæðagreiðslu. Þeir sem vilja kjósa með skriflegum hætti geta kosið utankjörstaðar í Ráðhús- inu vikuna fram að kjördegi. Á sjálf- an kosningadaginn verður kosið í alls 30 kjördeildum, þar af 10 kjördeild- um í Ráðhúsinu, sex í Kringlunni og í 4-5 kjördeildum í þremur skólum borgarinnar, Laugarnesskóla, Selja- skóla og Engjaskóla. Fram kom hjá borgarstjóra á blaðamannafundi í gær að kostnaður vegna atkvæðagreiðslunnar næmi um 30 milljónum króna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lagði áherslu á að fyrst og fremst væri verið að gefa borgarbúum tækifæri til að taka af- stöðu til framtíðarnýtingar Vatns- mýrarinnar og því varðaði málið á þessu stigi fremur skipulag Vatns- mýrarinnar en framtíð flugvallarins. Borgarbúar gætu hinsvegar ekki ákveðið í atkvæðagreiðslu hugsan- lega staðsetningu flugvallar, vildu þeir völlinn úr Vatnsmýrinni. Þeir vissu þó að kosta væri völ, enda hefði mikil vinna verið lögð í athuganir á ýmsum möguleikum að undanförnu. Kæmi í ljós að atkvæðagreiðslunni lokinni að meirihluti borgarbúa vildi flugvöllinn burt, væri það fyrst og fremst á herðum samgönguyfirvalda að leita nýrra heimkynna undir flug- völl, væntanlega í samráði við borg- aryfirvöld. Yrði niðurstaðan á þann veg að flugvöllurinn yrði áfram í Vatnsmýrinni, yrðu ríki og borg að vinna saman að breytingum svo að borgin fengi aukið land í Vatnsmýr- inni undir byggð, sagði borgarstjóri. Borgarstjóri kvað niðurstöðu at- kvæðagreiðslunnar geta haft mikil áhrif á vinnu við svæðisskipulag höf- uðborgarsvæðisins og endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur sem nú stæði yfir. Kysu borgarbúar að flug- völlurinn flyttist hefðu borgaryfir- völd góðan tíma til að vinna skipulagsáætlanir fyrir svæðið til frambúðar í samvinnu við íbúa Reykjavíkur og aðra sem hagsmuna ættu að gæta. Samgönguyfirvöld hefðu jafn- framt nægt svigrúm til að ákveða hvar flugvallarstarfseminni yrði best komið fyrir. Nokkrir kostir kæmu til greina og yrðu yfirvöld þá m.a. að líta til þess hvaða flugvallarstæði hentaði best hagsmunum lands- byggðarbúa, heilbrigðis- og ferða- þjónustu. Yrði niðurstaðan sú að Vatnsmýrin skyldi áfram nýtt undir flugvöll þyrftu yfirvöld borgar- og samgöngumála að huga sameigin- lega að deiliskipulagi með hagsmuni höfuðborgar og flugs í huga. Tveir kostir í boði um framtíðarnýtingu Vatnsmýrar Niðurstaðan bindandi vilji helmingur annan kostinn Morgunblaðið/Kristinn Borgarstjóri fór yfir fyrirhugaða framkvæmd kosninga um Reykjavík- urflugvöll ásamt Kristínu A. Árnadóttur, framkvæmdastjóra þróun- arsviðs Reykjavíkurborgar. SÝSLUMAÐURINN á Keflavíkur- flugvelli hafði íraskan karlmann, sem leitað hafði eftir hæli hér á landi, í haldi í rúma þrjá sólarhringa í lok janúar. Rauði krossinn sendi yfir- völdum kvörtun vegna málsins og fór fram á rannsókn. Jóhann R. Bene- diktsson, sýslumaður á Keflavíkur- flugvelli, segir þetta mistök sem hann harmi og segir að embættið muni tryggja að slíkt komi ekki fyrir aftur. Írakinn fór af landi brott í gær. Sam- kvæmt upplýsingum frá sýslumann- inum á Keflavíkurflugvelli kom Írak- inn fyrst hingað til lands 19. janúar sl. með flugvél frá London. Hann hafði ekki gilt vegabréf. Maðurinn gerði sér ekki grein fyrir því að hann væri á Íslandi því í Leifsstöð óskaði hann eftir hæli í Kanada. Honum var snúið við og sendur aftur til Bretlands. Hann tjáði hinsvegar breskum yf- irvöldum að hann hefði komist til Ís- lands frá Ósló. Eftir fimm daga kom- ust bresk yfirvöld að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið sýnt fram á að maðurinn hefði komist til Íslands frá Bretlandi. Hann var því sendur til baka og hann lenti öðru sinni á Keflavíkurflugvelli föstudag- inn 26. janúar sl. og leitaði þá hælis á Íslandi. Sýslumannsembættið á Keflavík- urflugvelli þurfti að útvega gögn til að sýna fram á að maðurinn hefði í raun fyrst komið til landsins frá Bret- landi. Hann var í haldi lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli, frá kvöldi föstu- dags þar til síðdegis á mánudag þeg- ar honum var ekið til fulltrúa Rauða krossins. Hann var reyndar vistaður í fanga- geymslu lögreglunnar í Keflavík þar sem lögreglan á Keflavíkurflugvelli hefur ekki aðstöðu til fangelsisvist- unar. Þremur dögum eftir að mann- inum var komið til Rauða krossins fékk sýslumaður samþykki breskra yfirvalda fyrir för hans til Bretlands. Írakinn hafði þá yfirgefið gistheimili Rauða krossins. Eftir talsverða leit fannst hann aftur á heimili þriggja barna móður í Hafnarfirði. Jóhann R. Benediktsson sýslu- maður sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að þetta hefðu verið mis- tök. Hann segir að embættið muni taka starfshætti sína í þessum málum til endurskoðunar til að tryggja að slíkt gerist ekki aftur. Framvegis muni lögreglumenn aka þeim sem leita hælis til fulltrúa Rauða krossins. „Við föllumst á gagnrýni Rauða krossins varðandi gagnrýni þeirra á okkar málsmeðferð,“ segir Jóhann. Hann segir nokkuð algengt að menn komi hingað til lands án lög- mætra ferðaskilríkja. Samkvæmt samningi Rauða kross- ins við dómsmálaráðuneytið á hann að hýsa hælisleitendur. Jafnframt á fulltrúi RKÍ að vera viðstaddur yf- irheyrslur yfir þeim. RKÍ var hins vegar ekki tilkynnt um manninn fyrr en eftir 4 dögum eftir komu hans til landsins. Íraki sem leitaði eftir hæli á Íslandi í haldi lögreglu í 3 sólarhringa Sýslumaðurinn harmar mistök
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.