Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 55 DAGBÓK Hönnun List Gullsmiðir Fyrirlestur um kvíða og fælni Eiríkur Örn Arnarson, sálfræðingur, mun halda fyrirlestur í kvöld, miðvikudagskvöldið 14. febrúar, um fælni, sem mun vera einn algengasti geðsjúkdómurinn, og kvíðann sem fælni tengist. Fyrirlesturinn fer fram á Hótel Lind, Rauðarárstíg 18 og hefst kl. 20:30. Aðgangur ókeypis. Í kjölfarið verður farið af stað með sjálfshjálparhóp fyrir fælna í húsi Geðhjálpar á Túngötu 7, föstudagskvöldið 16. febrúar kl. 20. Þeir sem þjást af fælni eru hvattir til að mæta. ÞÚ ert í suður og spilar fjóra spaða eftir opnun austurs á veikum tveimur í hjarta. Austur gefur; allir á hættu. Norður ♠ K987 ♥ 9752 ♦ D1062 ♣ Á Suður ♠ ÁDG1062 ♥ 86 ♦ Á753 ♣ K Vestur Norður Austur Suður – – 2 hjörtu 2 spaðar Pass 4 spaðar Allir pass Vestur kemur út með hjartadrottningu, sem aust- ur yfirtekur með kóng, hirð- ir annan slag á hjartaás og spilar svo gosanum. Þú stingur auðvitað frá með háu trompi og þarft nú bara að sjá til þess að gefa ekki nema einn slag á tígul. Hvernig ætlarðu að tryggja það? Eitt er víst – vestur á tíg- ulkóng, því ella hefði austur vakið á einu hjarta en ekki tveimur. En hvernig liggur tígulinn? Á vestur KGxx eða Kxx og austur Gx? Þetta er meginvandinn. Þú tekur fyrst trompin og í ljós kem- ur að austur á eitt. Þar með aukast líkurnar á því að hann sé með tvíspil í tígli, til dæmis skiptinguna 1-6-2-4. En ekkert er víst í brids- heiminum frekar en hinum almenna og margir opna á veikum tveimur með 1-6- 1-5. Er hægt að ráða við báða möguleika? Norður ♠ K987 ♥ 9752 ♦ D1062 ♣ Á Vestur Austur ♠ 54 ♠ 3 ♥ D ♥ ÁKG1043 ♦ K98 ♦ G4 ♣ DG87542 ♣ 10963 Suður ♠ ÁDG1062 ♥ 86 ♦ Á753 ♣ K Það er hægt. Þú tekur þinn laufslag og spilar svo tígulás og tígli með því hug- arfari að setja drottninguna ef vestur dúkkar. Í þessari legu er málið þar með af- greitt, en hafi vestur byrjað með KGxx er fjórða hjart- anu spilað úr borði og tígli hent heima. Austur verður þá að spila hjarta eða laufi út í tvöfalda eyðu og þá hverfur tapslagurinn á tíg- ul. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson Árnað heilla STAÐAN kom upp í B-flokki skákhátíðarinnar í Wijk aan Zee er lauk fyrir skömmu. Hvítt hafði meðlimur Skák- félags Hafnarfjarðar, hol- lenski alþjóðlegi meistarinn Manuel Boosboom (2439), gegn hinum reynslumikla stórmeistara, Boris Gulko (2622). 30.Hxf7+! Dxf7 31.Dd4+ og svartur gafst upp enda verður hann manni und- ir eftir t.d. 31...Df6 32.Dxf2. Manuel hefur sérstakan skáks- tíl og fer sjaldan troðnar slóðir í byrjunum sem og skákin ber með sér: 1.c4 e5 2.e3 Rf6 3.a3 g6 4.b4 Bg7 5.Bb2 d6 6.d3 O-O 7.Rf3 Rg4 8.h3 Rh6 9.Db3 a5 10.Rbd2 axb4 11.axb4 Hxa1+ 12.Bxa1 Be6 13.d4 exd4 14.Bxd4 Rc6 15.Bxg7 Kxg7 16.Be2 f5 17.O-O Df6 18.Da3 Rf7 19.c5 Bd5 20.Hc1 f4 21.e4 Rd4 22.Bd3 Rxf3+ 23.Rxf3 Be6 24.cxd6 cxd6 25.Hc7 Hc8 26.Dc1 Ha8 27.Kh2 Ha2 28.Bc4 Bxc4 29.Dxc4 Hxf2. 5. umferð Meistaramóts Hellis fer fram í kvöld kl. 19:30, í félagsheim- ili félagsins í Mjódd. Áhorf- endur eru velkomnir. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Forvitni þinni eru lítil tak- mörk sett og þú getur not- fært þér það í fjölbreyttum viðfangsefnum þínum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú hefur verið á mikilli hrað- ferð síðustu dagana, en ættir nú að hægja á þér og líta yfir farinn veg. Haltu ekki áfram fyrr en allt er komið á hreint. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þótt allt virðist rólegt á yf- irborðinu kraumar undir og þú skalt vera viðbúinn hverju sem er. Vertu samt óhrædd- ur við að halda þínu striki. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú virðist þurfa að semja um alla skapaða hluti svo þú skalt bara ganga í það og mátt alls ekki láta það fara í taugarnar á þér, þótt tíma- frekt sé. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Ef þú finnur þér ekki tíma til þess að leyfa sköpunarþránni að flæða áttu á hættu að glata þessum skemmtilega og gef- andi þætti í fari þínu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Leyfðu hlutunum að þróast af sjálfum sér og reyndu ekki að hraða atburðarásinni, hversu mjög sem þig þó lang- ar til þess. Vertu tillitssamur. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Nú er ekki rétti tíminn til þess að hrinda úr vör verk- efni, sem þú hefur lengi borið fyrir brjósti. Sýndu ögn meiri þolinmæði og þá gengur allt upp. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ekkert er sem sýnist og því sjálfsagt að grafast fyrir um hlutina og standa klár á því sem gerist. Öðruvísi geturðu ekki haft þitt á hreinu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Gættu þess að láta stjórn- semina ekki ganga út yfir allt og alla. Þú getur fengið það sem þú vilt út úr fólki með lipurð og sveigjanleika. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Láttu það ekki slá þig út af laginu, þótt allir hlutir gangi ekki upp nákvænlega eins og þú vilt.\Hafðu bara stjórn á því sem skiptir máli. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Stundum þarf að ráðast oft til atlögu við sama verkefnið áður en það gengur upp. En nú er komið að því að þú upp- skerir laun erfiðis þíns. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Hlutirnir virðast hafa tekið aðra stefnu en þú helst hefðir kosið. Bíddu samt með að- gerðir því að það er aldrei að vita nema útkoman verði þér í hag. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Vertu óhræddur við að deila draumum þínum með völdum vinum og vandamönnum. Það er svo notalegt að láta hug- ann reika frjálsan og öllu óháðan. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 60 ÁRA afmæli. Í dag,14. febrúar, verður sextugur Jens Kristmanns- son, aðalbókari, Engjavegi 31, Ísafirði. Hann og eigin- kona hans, Sigríður Þórðar- dóttir, taka í tilefni dagsins á móti ættingjum og vinum í Oddfellowhúsinu á Ísafirði föstudaginn 16. febr. kl. 20. Barna- og fjölskylduljósmyndir BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 10. júní sl. í Fríkirkj- unni í Reykjavík af sr. Frið- riki Hjartar Guðrún Anna Oddsdóttir og Guðbjörn Sigfús Egilsson. Heimili þeirra er í Ólafsvík. LJÓÐABROT HÁVAMÁL I Gáttir allar, áðr gangi fram, um skoðask skyli, um skyggnask skyli, því at óvíst er at vita, hvar óvinir sitja á fleti fyrir. - - - Ungr var ek forðum, fór ek einn saman, þá varð ek villr vega; auðigr þóttumk, er ek annan fann: maðr er manns gaman. - - - Nú eru Háva mál kveðin Háva höllu í, allþörf ýta sonum, óþörf jötna sonum; heill sá er kvað, heill sá er kann, njóti sá er nam, heilir, þeirs hlýddu. TUTTUGU og átta ára gömul kona frá Ghana óskar eftir pennavinum. Áhuga- mál hennar eru m.a. lestur, eldamennska og ferðalög. Rosina Hayford, Briscoe Road Booc 159, Elmina. Ghana, Africa. SHAUGHN, sem er Banda- ríkjamaður, óskar eftir pennavinum á Íslandi. Shaughn Varnell, 5170 S. Malta Way, Aurora, Co, USA. KARINA, sem hefur mikinn áhuga á Íslandi og langar að heimsækja landið, óskar eft- ir pennavini. Karina River, C.C. 12238 (Sue 4) Montevideo, Uruguay. Pennavinir kl. 11–13.10 11.–14. umferð kl. 13.10–14 matarhlé kl. 14–19.30 15.–23. umferð SVEITAKEPPNI : Sunnudagur 18. febrúar: kl. 13–19 1.–4. umferð kl. 19–20.30 matarhlé kl. 20.30– 23.15 5.–6. umferð Mánudagur 19. febrúar: kl. 13–19.15 7.–10. umferð kl. 19.30 verðlaunaafhending HALLDÓR Ásgrímsson utanrík- isráðherra setur 20. Bridshátíð Flugleiða, BSÍ og BR sem verður haldin um helgina. Þátttaka er mjög góð að venju en 130 pör og 80 sveitir hafa skráð sig. Keppendur koma alls staðar að á landinu en einnig frá Bandaríkjun- um, Kanada, Englandi, Svíþjóð, Noregi og Hollandi. Keppnisstjórar verða Sveinn Rúnar Eiríksson og Ei- ríkur Hjaltason. Allir áhugamenn um brids eru hvattir til að líta við á Hótel Loftleiðum og fylgjast með brids í heimsklassa. Sunnudag og mánudag verða valdir leikir sýndir á sýningartöflu, en spiluð verða sömu spil á öllum borðum í sveitakeppn- inni. Hægt verður að fylgjast með stöðunni í Textavarpinu á s. 326 og á heimasíðu BSÍ, www.bridge.is. Dagskrá Bridshátíðar verður sem hér segir: TVÍMENNINGUR: Föstudagur 16. febrúar: kl. 19 Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra setur hátíðina kl. 19.15–00.30 1.–10. umferð Laugardagur 17. febrúar: BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Morgunblaðið/Arnór Svipmynd frá upphafi Bridshátíðar í fyrra. Halldór Ásgrímsson setur Bridshátíð Félag eldri borgara í Kópavogi Það mættu 25 pör í tvímenninginn 6. febrúar sl. Efstu pör í N/S urðu þessi: Helga Helgad. – Sigrún Pálsd. 372 Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 328 Ólafur Ingimundars. – Jón Pálmason 327 Hæsta skor í A/V: Ragnar Björnsson – Hreinn Hjartarson 363 Magnús Oddsson – Guðjón Kristjánss. 363 Leifur Jóhanness. – Einar Guðnason 347 Sl. föstudag mættu 20 pör og þá urðu úrslit þessi í N/S: Bragi Salomonss. – Lárus Hermannss. 264 Bragi Björnsson – Magnús Halldórss. 251 Helga Helgad. – Sigrún Pálsd. 237 Hæsta skor í A/V: Eysteinn Einarss. – Sigurður Pálsson 271 Sigurleifur Guðjss. – Þorsteinn Erlingss.257 Páll Hannesson – Kári Sigurjónss. 247 Meðalskor á þriðjudag var 312 en 216 á föstudag. Með morgunkaffinu Ég verð komin eftir fimm mínútur. Ég á bara eftir að taka til í herberginu mínu fyrst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.