Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 14.02.2001, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 37 ÍSLENDINGAR eru smám sam- an að átta sig á því að eðlileg sam- keppni er besta tryggingin fyrir sanngjörnu verðlagi og góðri þjón- ustu. Þetta sést til dæmis í hertum aðgerðum Samkeppnisstofnunar gegn fákeppni. Öflug samkeppni eykur nefnilega hag neytenda í öll- um tilfellum. Samkeppnin fær þó ekki að dafna með eðlilegum hætti alls staðar. Annars vegar er Ríkisútvarpið, (RÚV) sem ber höfuð og herðar yfir keppinauta sína með tæplega 600 milljón króna lögþvingaðar tekjur (eingöngu sá hluti sem rennur til út- varpsrekstursins) frá almenningi í formi afnotagjalda á hverju ári, óháð því hvort þjónustan er nýtt eða ekki. Hins vegar eru útvarpsstöðvar í einkaeign, algjörlega háðar því að afla sér tekna með sölu auglýsinga. Þær mega slást um auglýsinga- tekjur við RÚV, sem keppir með því að bjóða auglýsingar og kostun und- ir þeirri verðskrá sem gefin er út og ætla megi að Alþingi samþykki við afgreiðslu fjárhagsáætlunar stofn- unarinnar í tengslum við fjárlög. Síðan 1986 hefur verið ójafn leik- ur í samkeppni einkafyrirtækja í út- varps- og sjónvarpsrekstri á Íslandi við RÚV. Aðeins eitt þeirra hefur náð að standa af sér ójafna sam- keppni við ríkisútvarpið; Íslenska útvarpsfélagið hf. (ÍÚ) sem rekið hefur Bylgjuna frá árinu 1986 og síðan fleiri stöðvar. Árið 1998 kom til leiks erlendur aðili sem ætlaði sér stóran hlut á ís- lenskum útvarpsmarkaði. Hundruð milljóna íslenskra króna töpuðust í baráttunni við ríkisstofnun á sama markaði sem að mestu leyti er rekin með lögþvinguðum tekjum og álög- um á almenning. Erlendi aðilinn gafst upp á þeirri fáránlegu stöðu sem á markaðnum er og seldi sinn hlut langt undir því sem hann hafði fjárfest fyrir í rekstrinum. Þorsteinn Þorsteinsson, forstöðu- maður markaðssviðs RÚV, talar um „slátrun“ ÍÚ í grein sinni í Morg- unblaðinu 9. febrúar s.l., vegna kaupa á útvarpsstöðvum Fíns Miðils ehf. Geri ég ráð fyrir að Þorsteinn sé það vel upplýstur um sögu frjálsra ljósvakafjölmiðla. ÍÚ hefur ekki í hyggju að að „slátra“ neinu, slíkt hefur ekki verið markmið fyrirtækisins, hins vegar er eðlilegt að ætla að forstöðumaður markaðssviðs RÚV hafi innsýn í eðli frjálsrar samkeppni. Frjáls sam- keppni snýst um að selja vöru og eða þjónustu á samkeppnishæfu verði sem markaðurinn er tilbúinn að greiða fyrir hana. Samkeppni felst einnig í því að gæta þess að kostnaður verði ekki meiri en gjöldin, skapa arð af fjárfestingu hluthafa og vernda þá þekkingu sem býr í fyrirtækinu í formi mannauðs. ÍÚ hefur ekki verið að „slátra“ samkeppni og ef forstöðumaður- inn er að tala um lokun útvarpsstöðva þá hafa verið stöðvaðar út- sendingar tímabundið á fjórum rásum, tveim- ur frá ÍÚ og tveimur frá Fínum Miðli. Það er nú öll „slátrunin“. Þessa dagana er verið að undirbúa opnun þeirra aftur. Samkeppni og sigur í henni snýst um útsjónarsemi stjórnenda fyrir- tækja við að efla og styrkja fyrir- tækið sem þeir eru ábyrgir fyrir. Ef það er með kaupum eða samruna við keppinaut sem selur fyrirtæki sitt á verði sem hann er sáttur við, er það þá einhver glæpur? Nei aldeilis ekki. Aðalmálið er að allir sitji við sama borð og njóti ekki sérkjara í því rekstrarumhverfi sem fyrir hendi er. Rétt er að upplýsa að kaup ÍÚ á Fínum Miðli voru að frumkvæði er- lendu eigendanna og var hrein og klár björgunaraðgerð á verðmæt- um. Forstöðumaður markaðssviðs RÚV talar einnig um í grein sinni að „…það sé ekki víst að áskrifendur ÍÚ séu ánægðir með að hluta af áskriftargreiðslum þeirra sé varið til að niðurgreiða tap af útvarpsrekstri og uppkaupum á keppinautum“. Þarna hittir forstöðumaðurinn nagl- ann beint á höfuðið í einu þungu höggi! Til upplýsinga og fróðleiks fyrir rík- isstarfsmanninn: Mun- urinn á áskrifendum Stöðvar 2 og lögþving- uðum afnotagjalda- þjáðum notendum RÚV er mjög mikill og hefur með frelsi að gera. Áskrifendur Stöðvar 2 velja sjálfir hvort þeir kaupi þjón- ustuna eða ekki, en eru ekki þvingaðir til að kaupa þjónustu sem þeir nota jafnvel aldrei. Eigi veit ég hversu vel forstöðumaður RÚV er vel upplýstur um rekstrarafkomu þeirrar stofnun- ar sem hann starfar hjá en hér með vil ég upplýsa hann um að RÚV tap- aði samtals 315.974.465 krónum á rekstri tveggja útvarpsstöðva á ár- unum 98 og 99. Á sama tíma fékk RÚV lögþvinguð afnotagjöld (ein- göngu útvarpshlutinn) – 1.1 milljarð. Eittþúsund eitthundrað og þrjátíu milljónir!! Hver skyldi hafa borgað þetta mikla tap? Jú mikið rétt, ég og þú sem þetta lest. Getur einhver ímyndað sér hvern- ig þetta ástand liti út í öðrum fyrir- tækjarekstri, t.d. matvöruverslun? Væri það talið eðlilegt að „RíkisÚr- Valið“ (skammstafað RÚV) fengi hundruð milljóna króna ríkisstyrk til að bæta þjónustu í sínum versl- unum í samkeppni við kaupmanninn á horninu? Hvaða möguleika ætti hornbúðin við slíkar aðstæður? Það er svo sem engin furða þótt Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri beri sig vel. Í viðtali á Rás 2 í desember síðastliðnum sagði hann að RÚV bæri höfuð og herðar yfir frjálsu útvarpsstöðvarnar í dag- skrárgerð. Fyrir utan þá röngu full- yrðingu að dagskrárgerð á Rás 2 sé eitthvað umfram það sem framleitt sé á öðrum útvarpsstöðvum, þá er ekkert sem réttlætir að RÚV haldi úti dagskrá á tveimur hljóðvarpsrás- um. Einkaaðilar hafa fyllilega sýnt fram á að þeirra þjónusta og dag- skrá nýtur vinsælda á meðal hlust- enda. Gömlu rökin fyrir öryggishlut- verki RÚV eru alla vega ekki í „tísku“ og löngu fallin úr gildi, það sýna dæmin. Lögmál samkeppninnar segja okkur að bestur árangur náist á jafnréttisgrundvelli. Nú eru liðin 15 ár frá því einokun ríkisins á útvarps- rekstri var aflétt. Mesta furða er að útvarpsstöðvar í einkaeign skuli ennþá standa uppi í ljósi þess að all- an þennan tíma hefur RÚV haft lög- bundin afnotagjöld til að styrkja sig í samkeppni við þær. Það sljóvgar stjórnendur að geta treyst á fé sem rétt er að þeim og þeir þurfa ekki að hafa áhyggjur af að afla sjálfir. Pen- ingarnir koma, sama á hverju dynur. Með milljarða króna rekstrar- styrk að vopni stendur RÚV í sam- keppni við aðrar útvarpsstöðvar um auglýsingatekjur. Þessir milljarðar eru notaðir til að niðurgreiða aug- lýsingabirtingar. Fyrir vikið getur RÚV slegist við aðrar útvarpsstöðv- ar og hirt af þeim tekjur. Þar nær RÚV sér í rúmar 300 milljónir til viðbótar á ári. Þessi niðurgreiðsla á auglýsingabirtingum er ekkert ann- að en ríkisstyrkt aðgerð til að kæfa samkeppni í útvarpi. Þetta hefur viðgengist of lengi og tími er kominn til að stöðva slík vinnubrögð. Þetta er skaðlegt fyrir samkeppnina og þar með skaðlegt fyrir neytendur og nú er kominn tími á þá stjórnmála- menn, sem löngum hafa boðað frelsi og jafnrétti, að láta verkin tala. Ríkið „slátrar“ frjálsri samkeppni Jón Axel Ólafsson Fjölmiðlun Með milljarða króna rekstrarstyrk að vopni, segir Jón Axel Ólafsson, stendur RÚV í samkeppni við aðrar útvarpsstöðvar um auglýsingatekjur. Höfundur er framkvæmdastjóri útvarpssviðs Norðurljósa hf. þús. kr. á mánuði. Hafa verður í huga að í tölu Þjóðhagsstofnunar eru fjármagnstekjur taldar með að fullu og skýrist munur upp á um 10 þús. kr. vafalítið að stórum hluta af því. Áætlanir Þjóðhagsstofnunar um tekjur þessa hóps, fjölda hans og viðbótargreiðslur Tryggingastofn- unar hafa því staðist. Fréttatil- kynning Tryggingastofnunar ríkis- ins var ónákvæm og til þess fallin að valda misskilningi. Tekjur Fréttatilkynning Tryggingastofnunar ríkisins var ónákvæm, að mati Sigurðar Snæv- arr, og til þess fallin að valda misskilningi. Höfundur er hagfræðingur og forstöðumaður á Þjóðhagsstofnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.