Morgunblaðið - 14.02.2001, Side 18
VIÐSKIPTI
18 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Herrar!
Nýr ilmur frá Guerlain
handa elskunni á
Valentínusardaginn
Útsölustaðir:
Snyrtistofan Guerlain Óðinsgötu, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ,
Clara Kringlunni, Hygea Laugavegi, Oculus Austurstræti,
Stella Bankastræti, Andorra Hafnarfirði, Keflavíkur Apótek,
Hjá Maríu, Amaro Akureyri og Glerártorgi, Farðinn Vestmannaeyjum.
KJÖRIN hefur verið ný stjórn
Frjálsa fjárfestingarbankans og
skipa hana þeir Sigurður Einarsson,
sem jafnframt er stjórnarformaður,
Guðmundur Hauksson, Geirmundur
Kristinsson, Ásgeir Sólbergsson og
Friðrik Friðriksson, en í varastjórn
eru Ólafur Ásgeirsson, Ólafur Har-
aldsson og Ingólfur Helgason. Þá
hefur Örn Gústafsson látið af störf-
um sem forstjóri Frjálsa fjárfesting-
arbankans og í hans stað hefur
stjórn bankans ráðið Kristin Bjarna-
son, núverandi yfirmann fjármála og
rekstrar, sem framkvæmdastjóra
bankans og taka þessar breytingar
gildi þegar í stað.
Örn Gústafsson mun hverfa til
starfa hjá Kaupþingi hf., og að sögn
Ólafs Ásgeirssonar, forstöðumanns
hjá Kaupþingi, mun Örn sinna sér-
verkefnum til að byrja með. Að-
spurður segir Ólafur að ákveðið hafi
verið að gera nokkrar áherslubreyt-
ingar á starfsemi Frjálsa fjárfesting-
arbankans, en ekki muni koma til
uppsagna af þeim ástæðum. Hann
segir að vegna skipulagsbreyting-
anna muni tíu til fimmtán starfs-
menn flytjast yfir til Kaupþings en
um 25 starfsmenn verði áfram hjá
Frjálsa fjárfestingarbankanum.
Í framhaldi af kaupum Kaupþings
hf. og samstarfsaðila á meirihluta
hlutafjár í Frjálsa fjárfestingar-
bankanum hf. hefur verið ákveðið að
hætta starfsemi Markaðsviðskipta-
sviðs bankans. Hann hefur hætt
miðlun markaðsverðbréfa og eigin
viðskiptum með skráð verðbréf.
Vegna þessarar ákvörðunar hafa
verðbréf bankans í veltubók verið
seld fyrir milligöngu Kaupþings.
Þrír starfsmenn Markaðsvið-
skiptasviðs Frjálsa fjárfestingar-
bankans hafa lokið störfum fyrir
bankann en hafið störf í Markaðsvið-
skiptum Kaupþings. Í tilkynningu til
Verðbréfaþings segir að ákvörðun
þessi hafi engin áhrif á stöðu við-
skiptavina bankans en starfsfólk
Frjálsa fjárfestingarbankans muni
beina viðskiptamönnum sínum til
Kaupþings til þess að annast verð-
bréfaviðskipti fyrir þeirra hönd.
Frjálsi fjárfestingarbankinn
Ný stjórn og nýr
framkvæmdastjóri
Örn
Gústafsson
Kristinn
Bjarnason
SAMKOMULAG tókst milli Línu.-
Nets hf. og Motorola, sem er fram-
leiðandi tæknibúnaðar, um afslátt á
búnaði, sem Lína.Net keypti af
Motorola, vegna ágreinings um
búnaðinn. Samkvæmt upplýsingum
frá Línu.Neti nam þessi afsláttur
60 milljónum króna.
Þetta samkomulag var gert í
framhaldi af úrskurði gerðardóms
vegna kaupa Línu.Nets á fyrirtæk-
inu Irju ehf. fyrir um ári. Eftir
kaupin kom upp ágreiningur milli
kaupanda og seljanda og krafðist
kaupandi þess að verðið yrði lækk-
að úr 250 milljónum króna í 50
milljónir króna. Eins og Alfreð
Þorsteinsson, stjórnarformaður
Línu.Nets og Orkuveitu Reykjavík-
ur, sagði í Morgunblaðinu í gær úr-
skurðaði gerðardómurinn að verðið
skyldi lækkað um 25 milljónir
króna, í 225 milljónir. Sagði hann
venju að gerðar séu ýtrustu kröfur
fyrir gerðardómi svo eðlilegt væri
að krafan hefði ekki öll náðst fram.
Hver ber ábyrgð á
of háu kaupverði?
Guðlaugur Þór Þórðarson, borg-
arfulltrúi D-listans, hefur gagnrýnt
kaup Línu.Nets á Irju og haldið
því fram að greitt hafi verið of hátt
verð.
„Það er augljóst þegar litið er til
þess sem stjórnarformaður Orku-
veitunnar og Línu.Nets segir, að
allar tölur sem ég hef haldið fram
eru réttar og að kaupendur telja
sig hafa verið svikna með þessum
kaupum á Irju. Að vísu reynir
stjórnarformaðurinn að láta það
líta þannig út að gerðardómurinn
sé einhver prúttmarkaður sem
menn leiti til þegar þeir hafi átt
viðskipti og reyni að prútta niður
verðið og geri þar ýtrustu kröfur.
Staðreyndin er bara sú að þeir
keyptu hluti sem þeir sáu síðan að
voru mun verðminni en þeir ætluðu
og fóru í mál því þeir töldu sig vera
svikna. Gerðardómur kemst að
þeirri niðurstöðu að þeir hafi gert
þetta með opin augu, með öðrum
orðum að þeir hafi klúðrað málinu
og eytt peningum skattborgara í
Reykjavík í tóma vitleysu. Í fram-
haldi af þessu hlýtur maður svo að
spyrja sig hver ber ábyrgð í þessu
máli,“ segir Guðlaugur Þór.
Orkuveitan eykur hlut
sinn við hlutafjáraukningu
Samkvæmt upplýsingum frá
Línu.Neti hf. var samþykkt heimild
til aukningar hlutafjár í fyrirtæk-
inu síðast liðið haust. Heimildin
nam 100 milljónum króna að nafn-
verði, sem þýddi aukningu úr 314 í
414 milljónir. Hluthafar áttu for-
kaupsrétt að ákveðnum hlutum en
jafnframt var viðskiptabanka
félagsins, Sparisjóði vélstjóra, boð-
ið að kaupa hlut. Orkuveita
Reykjavíkur er stærsti hluthafi
Línu.Nets, með 214 milljóna króna
hlut, eða um 52% eftir hlutafjár-
aukningu. Orkuveitan keypti um 9
milljónir króna að nafnvirði, eða
um 100 milljónir á kaupverði, af því
hlutafé sem var til sölu. Lína.Net
hafði verið skráð fyrir hluta af
eldra hlutafé, þannig að nú eru um
90 milljónir eftir til ráðstöfunar.
Forkaupsréttarhafar hafa nú
fallið frá forkaupsrétti á viðbót-
arhlutafénu og verið er að und-
irbúa sölu á þeim 90 milljónum
króna sem eftir eru af aukning-
unni, en ekki hefur verið tekin
ákvörðun um tímasetningu hennar
eða hverjum verður selt.
Spurður að því hvers vegna verið
væri að auka hlutafé fyrirtækisins
nú segir Eiríkur Bragason, fram-
kvæmdastjóri þess, að alltaf hafi
staðið til að fjármagna uppbygg-
ingu fjarskiptakerfisins með sölu
hlutafjár.
Búið sé að byggja upp umfangs-
mikið ljósleiðaranet á höfuðborg-
arsvæðinu og suðurlandsundir-
lendi, verið sé að setja IP-netbúnað
ofan á það, búið sé að setja upp ör-
bylgjukerfi á höfuðborgarsvæðinu,
Akureyri, í Hveragerði og á Sel-
fossi og Tetra-kerfi sem nær yfir
suðvestur hornið og muni spila lyk-
ilhlutverk í öryggiskerfi landsins.
Allar þessar fjárfestingar kosti fé
og séu í samræmi við áætlanir, en
það taki hins vegar tíma fyrir þær
að skila sér.
Íslandssími hf. á 27 milljóna
króna hlut að nafnvirði í Línu.Neti.
Þessi hlutur jafngildir tæplega 9%
hlutafjár fyrir hlutafjáraukningu,
en eftir að hlutafé hefur verið auk-
ið um 100 milljónir króna sam-
svarar þetta 61⁄2% hlutafjár. Pétur
Pétursson, upplýsinga- og kynn-
ingastjóri Íslandssíma, segir að
fyrirtækinu hafi ekki borist nein
formleg tilkynning um hlutafjár-
aukningu og því liggi engin ákvörð-
un fyrir um málið.
Kristján Gíslason, stjórnarfor-
maður Radíómiðunar, situr í stjórn
Íslandssíma og í stjórn Línu.Nets
fyrir Íslandssíma. Hann segir
hlutafjáraukninguna í vinnslu hjá
Línu.Neti og hún hefi ekki verið
kynnt í stjórn Íslandssíma. Hann
segir einnig að Íslandssími stefni
ekki að því að auka hlut sinn í
Línu.Neti. Ástæðan sé sú að Ís-
landssími standi sjálfur í miklum
framkvæmdum og nýti fjármuni
sína í þær.
Tal hf. á 15 milljónir að nafn-
verði í Línu.Neti. Forstjóri Tals,
Þórólfur Árnason, segir fremur
ólíklegt að fyrirtækið muni auka
hlut sinn í Línu.Neti enda fjárfesti
Tal almennt ekki í öðrum fjar-
skiptafyrirtækjum en einbeiti sér
þess í stað að uppbyggingu eigin
kerfis. Hann segir fyrirtækið hafa
fjárfest í Línu.Neti á sínum tíma til
að tryggja samkeppni í leigulínum
og fastaneti og það skipti miklu
fyrir rekstraröryggið að hafa ekki
aðeins aðgang að einu kerfi.
Skýrr hf. á 30 milljónir króna að
nafnverði í Línu.Neti. Hreinn Jak-
obsson, forstjóri Skýrr, segir að
Skýrr hafi ákveðið að taka ekki
þátt í hlutafjáraukningunni.
Ákvörðunin stafi hins vegar ekki af
vantrú á Línu.Neti, því Skýrr hafi
fulla trú á fyrirtækinu og starfsemi
þess.
Aðrir hluthafar eru Kaupthing
Luxemburg með 18 milljónir
króna, Talenta-Hátækni með 7
milljónir króna, Sparisjóður vél-
stjóra með 3 milljónir króna og um
350 starfsmenn Orkuveitu Reykja-
víkur og Línu.Nets sem skipta á
milli sín 16 milljónum króna að
nafnverði.
Lína.Net fékk 60 m.kr.
afslátt frá Motorola
HAGNAÐUR Þróunarfélags Ís-
lands hf. eftir skatta á árinu 2000 var
414,7 milljónir króna samanborið við
629,3 milljónir árið áður. Í tilkynn-
ingu frá félaginu segir að megin-
ástæða minni hagnaðar sé lækkun á
verði skráðra hlutabréfa.
Raunávöxtun hlutabréfa í eigu
Þróunarfélagsins var 19,8% á árinu.
Nafnávöxtun hlutabréfa félagsins,
sem skráð eru á Aðallista Verðbréfa-
þings Íslands, var 28,5%. Gengis-
hagnaður hlutabréfa nam alls 850
milljónum króna, þar af var innleyst-
ur hagnaður vegna sölu hlutabréfa
461 milljón og óinnleystur gengis-
hagnaður 389 milljónir. Hlutabréfa-
eign Þróunarfélagsins nam samtals
5.389 milljónum króna í árslok og
skuldabréfaeign 1.195 milljónum.
Hlutafé félagsins er 1.100 milljón-
ir króna og voru 477 hluthafar skráð-
ir í árslok 2000. Hluthafar fengu
35,3% ávöxtun á hlut sinn að 20%
arðgreiðslu meðtalinni.
Í tilkynningu félagsins segir að
stjórn þess muni leggja til við aðal-
fund, þann 14. mars næstkomandi,
að hluthöfum verði greiddur 15%
arður af hlutum sínum í félaginu, eða
165 milljónir króna.
Þokkalega sáttur í ljósi aðstæðna
Andri Teitsson, framkvæmda-
stjóri Þróunarfélagsins, segist
þokkalega sáttur við afkomuna á síð-
asta ári í ljósi aðstæðna en árið hafi
verið erfitt fyrir fjárfesta víðast
hvar. Félagið hafi nú náð yfir 400
milljóna króna hagnaði eftir skatta 5
ár í röð. Hins vegar hafi félagið verið
með í kringum þúsund milljónir í
hagnað eftir 6 og 9 mánuði á síðasta
ári. Verulega hafi því kvarnast af
hagnaði félagsins á síðustu þremur
mánuðum ársins, sérstaklega vegna
lækkunar á verði hlutabréfa innan-
lands. Hann segir að um 65% af
heildareignum félagsins séu í hluta-
bréfum sem séu skráð á Verðbréfa-
þingi Íslands. Fyrir félagið hafi því
mest að segja hvað gerist hér á landi.
- (%%%
&'()*+*
)&(+,
)(+)
&-.+(
*.*/$0/
/'/00+,
/'/.)+&
*.*/$0/
)1+-2
&02
/+(.
!"#$
%&#&
'"#"
(')#&
!
&&#'
' "")#$
!
*)#'+
)&+
)#%'
!"+
#+
!$ %+
!$#+
!$ +
$&%+
& %+
"+
$&%+
"#+
'
( ))
( ))
' /&'&.'%% /&'&.'$$
'
Ársuppgjör Þróunarfélags Íslands hf.
Hagnaður 415
milljónir króna