Morgunblaðið - 14.02.2001, Side 19
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 19
KASSAGERÐ Reykjavíkur og Um-
búðamiðstöðin hafa sameinast undir
merkjum NPS-umbúðalausna
(Nordic Packaging Solutions), en
sameining fyrirtækjanna var til-
kynnt í september síðastliðnum. Í
fyrirtækinu starfa um 180 starfs-
menn og velta á síðasta ári var 1,8
milljarðar króna. Hið nýja fyrirtæki
er að 60% í eigu Kassagerðarinnar og
40% í eigu Umbúðamiðstöðvarinnar.
Kristþór Gunnarsson, fyrrum
framkvæmdastjóri Ísafoldarprent-
smiðju, er framkvæmdastjóri hins
nýja félags, en stjórnarformaður
þess er Leifur Agnarsson, annar af
fyrrverandi framkvæmdastjórum
Kassagerðarinnar.
Möguleikar á erlendum mörkuðum
Kristþór segir að sameiningin
þjóni ekki síst þeim tilgangi að auð-
velda sókn fyrirtækisins á erlenda
markaði með stærri rekstareiningu
og betri nýtingu á tækjum og búnaði.
Stjórnendur sjái vaxtarmöguleika
erlendis í sérhæfðum umbúðum í
matvælaiðnaði. Þar búi NPS yfir
mikilli reynslu og þekkingu. Umbúð-
ir fyrir matvæli hafi löngum verið
stór hluti framleiðslunnar enda hafi
fiskiðnaðurinn jafnan verið stærsti
viðskiptavinur fyrirtækjanna innan
matvælaiðnaðarins.
Í kjölfar sameiningar Kassagerð-
arinnar og Umbúðamiðstöðvarinnar
munu NPS-umbúðalausnir huga að
frekari sókn á erlenda markaði en
um fimmtán prósent af veltu hins
sameinaða fyrirtækis koma frá sölu á
erlenda markaði. Fyrirtækið er með
sölustarfsemi í Frakklandi og um-
boðsmenn í Ameríku og Afríku. Fyr-
irtæki í Færeyjum hafa einnig verið
miklir viðskiptavinir.
Gæði aðalsmerki félagsins
Þegar þeir voru spurðir um helstu
styrkleika félagsins sögðu þeir Leif-
ur og Kristþór að einn helsti styrk-
leikinn væri mikil gæði framleiðsl-
unnar. Hjá fyrirtækjunum hefði
byggst upp mikil þekking á þjónustu
við sjávarútveginn á öllum þáttum
sem tengjast umbúðum og pökkun.
Önnur fyrirtæki eins og Marel, Sæ-
plast og Hampiðjan hefðu náð góðum
árangri á erlendum mörkuðum
vegna styrkleika þeirra í að þjónusta
íslenskan sjávarútveg. Þarna ættu
NPS umbúðalausnir möguleika á að
nota þessa sérstöðu til aukinnar
sóknar á kröfuharða erlenda mark-
aði. Stærra og sterkara fyrirtæki
gæti betur unnið í sölu og markaðs-
starfi erlendis en áður. Litlar fram-
leiðslulotur, mikill hraði og kröfur
viðskiptavina um gæði og góða þjón-
ustu gæfu fyrirtækinu ákveðið for-
skot. Þannig gæti NPS þjónað er-
lendum viðskiptavinum hraðar en
jafnvel þarlendir keppinautar. Þetta
ætti sérstaklega við um sérhæfðar
umbúðalausnir.
Þróunin hefur verið í áttina til
heildarlausna í þessum geira at-
vinnulífsins eins og öðrum. Í stað
þess að vera með allt upp í nokkra
tugi birgja sem koma að umbúða- og
pökkunarlausnum væru kröfur við-
skiptavina um að jafnvel einn aðili
tæki að sér alla þætti er lúta að um-
búðum og pökkun. Þessar kröfur
yrðu sífellt háværari. NPS ætlar sér
að verða leiðandi á því sviði að sjá við-
skiptavinum fyrirtækisins fyrir
heildarlausnum.
Heimamarkaður kjölfestan
Bæði fyrirtækin eru rótgróin á ís-
lenskum markaði. Kassagerðin var
stofnuð árið 1932 og framleiddi í upp-
hafi trékassa, einkum fyrir ísfisk.
Með stofnun hraðfrystihúsanna
breyttist rekstarumhverfi fyrirtæk-
isins og umbúðir úr pappa voru tekn-
ar upp. Árið 1960 flutti fyrirtækið
starfsemi sína frá horni Skúlagötu og
Vitastígs í verksmiðjubyggingu við
Kleppsveg þar sem það hefur verið
síðan.
Umbúðamiðstöðin var stofnuð
1964 en starfsemi hófst ekki fyrr en
nokkrum árum seinna. Frá byrjun
áttu flest hraðfrystihúsin innan Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna hlut í
Umbúðamiðstöðinni. Fyrstu árin
voru viðskiptavinir fyrirtækisins
fyrst og fremst frystihús innan SH.
Árið 1996 seldi Sölumiðstöðin 77%
hlut sinn til Prentsmiðjunnar Odda.
Stefnt að skráningu
á verðbréfamarkaði
Að sögn þeirra Kristþórs Gunn-
arssonar og Leifs Agnarssonar er
stefnt að frekari hlutafjáraukningu
fyrirtækisins. Núverandi hluthafar
hafa áhuga á að fá fagfjárfesta til að
leggja fjármuni til fyrirtækisins. Síð-
ar yrði hugað að skráningu á hluta-
bréfamarkaði. Hlutafjáraukning
myndi styrkja starfsemina og aukið
fjármagn gæti staðið undir auknum
fjárfestingum í tækjum og búnaði.
Frekari sameining og samstarf við
önnur fyrirtæki í svipaðri starfsemi
og NPS gæti einnig komið til greina
ef stjórnendur telja að rétt skilyrði
séu fyrir hendi.
Á næstu mánuðum verður farið út
í umfangsmikla stefnumótun og
áætlanagerð til að móta stefnu hins
nýja félags.
Stjórn NPS-umbúðalausna er
skipuð þeim Þorgeiri Baldurssyni,
forstjóra prentsmiðjunnar Odda,
Kristjáni J. Agnarssyni og Leifi Agn-
arssyni, fyrrverandi framkvæmda-
stjórum Kassagerðarinnar, sem jafn-
framt er stjórnarformaður NPS-
umbúðalausna.
NPS-umbúðalausnir
verða að veruleika
Morgunblaðið/Kristinn
Leifur Agnarsson stjórnarformaður og Kristþór Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri NPS-umbúðalausna. Í baksýn er málverk af einum stofnenda
Kassagerðar Reykjavíkur, Kristjáni J. Kristjánssyni.
SAMKEPPNIN Nýsköpun 2001 er
nú haldin í þriðja skipti og skal
skila inn viðskiptaáætlunum fyrir
31. maí. Almenn námskeið í
tengslum við gerð viðskiptaáætl-
ana verða haldin á næstu vikum á
höfuðborgarsvæðinu og víða úti á
landi. Allar frekari upplýsingar
um keppnina má nálgast á vefsíðu
keppninnar: www.spar.is/n2001.
Hugmyndin að samkeppni um gerð
viðskiptaáætl-
ana varð upp-
haflega til hjá
Nýsköp-
unarsjóði en
Morgunblaðið,
KPMG og Há-
skólinn í
Reykjavík hafa
staðið að sam-
keppninni með
Nýsköpunarsjóði frá upphafi og nú
hafa sparisjóðirnir ákveðið að
leggja verkefninu lið. Ágúst Pét-
urssson, verkefnisstjóri Nýsköp-
unar 2001, segir að leitað hafi ver-
ið til sparisjóðanna um samstarf
og það hafi reynst auðsótt. Spari-
sjóðirnir vítt og breitt um landið
muni veita ráðgjöf í tengslum við
verkefnið og mjög víða sé komið á
samstarf á milli sparisjóðsins og
atvinnuþróunarfélaga á hverjum
stað en þau hafa stutt við bakið á
verkefninu. „Ákveðið hefur verið
að gera talsverðar breytingar á
keppninni og verða nú veitt sér-
stök hvatningarverðlaun til nem-
enda á háskólastigi og starfandi
fyrirtækja. Þá munu sparisjóðirnir
veita sérstök svæðisbundin verð-
laun víða um land. Aðalverðlaun
keppninnar eru ein milljón króna,
önnur verðlaun 500 þúsund krónur
og 100.000 krónur fyrir 3-7. sætin.
Sigurfyrirtækið fær auk þess ráð-
gjöf hjá KPMG eftir keppnina.“
Ágúst segir að það sé nýmæli í
keppninni nú að hún tengist í
fyrsta sinn samkeppni sem Evr-
ópusambandið stendur fyrir ár-
lega. „Þátttakendur í Nýsköpun
2001 keppa því jafnframt um rétt
til að fara til
Brussel í desem-
ber á þessu ári og
taka fyrir Íslands
hönd þátt í keppni
um bestu evr-
ópsku nýsköp-
unarverkefnin.
Samband spari-
sjóða hefur ákveð-
ið að vera ásamt
Nýsköpunarsjóði meginstyrktar-
aðili Evrópukeppninnar.
Í september á þessu ári verða
kynntir sigurvegarar í Nýsköpun
2001. Við sama tilefni verða kynnt-
ir þeir fjórir aðilar sem keppa fyr-
ir Íslands hönd í Evrópukeppninni.
Í þá keppni eru allar viðskipta-
áætlanir gjaldgengar sem berast
fyrir 31. maí. Í flokknum áhuga-
verðasta evrópska hugmyndin
verður valið úr umsóknum sem
berast frá háskólum eða fram-
haldsskólum. Annar flokkur er
frumstig, hugmynd eða þróun sem
er komin að framkvæmdastigi.
Þriðji flokkurinn er stofnstig. Þar
keppa fyrirtæki sem verið er að
stofna eða eru nýstofnuð. Fjórði
flokkurinn ber heitið útþensla og
nýsköpun (fyrirtæki í sókn).“
"#$
"%&
#'('')$
*+
,
,-.
+
/
"
0
1
/23-
,4
0
5
/ 4
6 3
5 7.0
"/ 4
8
-
!"
#
$ %
&
'
Nýsköpunarsam-
keppni í þriðja skipti