Morgunblaðið - 14.02.2001, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 25
metrar. Austur-vestur-braut (14/32 AV) er
tæpir 1.500 metrar að lengd en flugtaks- og
lendingarlengdir að hámarki um 1.450 metrar.
Norðaustur-suðvestur-braut (07/25 NASV) er
um 960 metrar. Áætlanir beggja aðila um
framtíð flugvallarins miðast við að NASV-
brautin verði lögð niður á komandi árum, í
samræmi við gildandi deiliskipulag, en hún er
aðeins notuð í liðlega 1% tilfella, þegar sterk
suðvestanátt er ríkjandi. Flugmálastjórn hefur
gert þá kröfu að samsvarandi braut á Keflavík-
urflugvelli verði opnuð áður en NASV-brautin
verður lögð niður. Þorgeir Pálsson flugmála-
stjóri segir mikilvægt að hafa braut með þess-
ari stefnu á suðvesturhorninu þótt ekki þurfi
að nýta hana nema fáa daga á ári. Ráðgjafar
samvinnunefndar um svæðisskipulag telja aft-
ur á móti unnt að leggja hana niður án þess að
nýtingarmöguleikar flugvallarins minnki.
Leifur Magnússon verkfræðingur gerir at-
hugasemdir við þetta mat dönsku ráðgjafanna.
Segir hann nauðsynlegt að hafa þrjár flug-
brautir vegna þess vindumhverfis sem er á Ís-
landi, til þess að alþjóðleg lágmarksnýting ná-
ist. Alþjóðaflugmálastofnunum miðar við 95%
lágmarksnýtingu áætlunarflugvalla en Leifur
bendir á mælingar sem sýna að tvær flug-
brautir á Reykjavíkurflugvelli tryggi ekki
nema 94% nýtingu, sú þriðja nái henni upp í
rúm 98%. Miðað er við gildandi hliðarvinds-
mörk sem eru 13 hnútar fyrir Reykjavíkurflug-
völl. Í skýrslu borgarverkfræðings fyrir sam-
vinnunefndina er vitnað til nýrra útreikninga
sem verkfræðistofan Línuhönnun hefur gert í
tölvumódeli um nothæfisstuðul núverandi
brauta Reykjavíkurflugvallarins, miðað við
þær flugvélar sem algengastar eru í áætlunar-
flugi innanlands. Metin eru bæði áhrif hliðar-
vinds, skyggnis og skýjahæðar og bremsuskil-
yrða og benda þær til þess að fullnægjandi
nýting fáist á Reykjavíkurflugvelli með tveim-
ur brautum, eða yfir 96% nýtingarhlutfall.
Þriðja brautin bæti nýtingarhlutfallið aðeins
um 1,5%.
Við þá aðgerð eina að leggja niður þessa
flugbraut, eins og stefnt var að við gerð núgild-
andi deiliskipulags, losnar nokkurt land, að-
allega í Skerjafirði, sem borgin gæti fengið til
ráðstöfunar og virðist vera sátt um það meðal
borgaryfirvalda og flugmálayfirvalda.
Danska verkfræðifyrirtækið Ramböll gerir
ráð fyrir þeim möguleika í skýrslu fyrir sam-
vinnunefnd um svæðisskipulag að norður-suð-
ur-brautin verði tilgreind sem aðalflugbraut en
austur-vestur-brautin stytt í 1200 metra og
notuð þegar hliðarvindur er of mikill á aðal-
flugbrautinni. Með því að flokka brautina sem
þverbraut og stytta hana er verið að reyna að
vinna land. Við þessar hugmyndir gera þýskir
ráðgjafar samvinnunefndarinnar athugasemd-
ir og einnig Flugmálastjórn sem telur að hún
ætti að vera nógu löng til þess að Fokker 50
geti notað hana án þungatakmarkana.
Nýtt skipulag flugvallarsvæðis
Flugmálastjóri og samgönguráðherra hafa
kynnt hugmyndir British Aerospace Systems
(BAE) að nýju skipulagi flugvallarsvæðisins.
Þær miðast við tveggja brauta flugvöll, að flug-
starfsemin flytjist í framtíðinni að mestu aust-
ur fyrir núverandi NS-braut og að kennslu- og
einkaflug flytjist með tíð og tíma á nýjan flug-
völl. Núverandi deiliskipulag vallarins gerir
ráð fyrir að flugstöð verði byggð syðst á þessu
svæði, það er við flugskýli Landhelgisgæslunn-
ar ofan Nauthólsvíkur. Þykir nokkuð þröngt
um flugstöðina þar og hafa ráðgjafarnir komið
fram með hugmyndir um tvo aðra staði fyrir
hana, raunar í tengslum við stærri samgöngu-
miðstöð, og er þar horft til þess að taka Hótel
Loftleiðir undir flugstöð eða flytja hana nyrst á
svæðið, skammt frá Tanngarði. Virðast menn
almennt vera spenntari fyrir breytingunum
vegna þess að eðlilegra sé að hafa flugskýlin á
suðurhluta svæðisins, lengra frá byggðinni.
Innanlandsflug hefur vaxið mjög á undan-
förnum árum og því er spáð að svo verði áfram.
Litlir þróunarmöguleikar eru fyrir flugstarf-
semina austan flugbrautarinnar ef vöxturinn
verður eins og gert er ráð fyrir. Því hefur þeim
möguleika verið velt upp að framlengja AV-
brautina yfir Suðurgötu og út á sjó á árunum
2010 til 2020 til þess að skapa aukið og samfellt
svæði austan NS-brautarinnar. Þorgeir Páls-
son segir að tillaga um lengingu brautarinnar
tengist aðeins einni af þremur tillögum ráð-
gjafanna, það er að segja tillögunni um flug-
stöð á suðvesturhluta svæðisins, þar sem henni
er ætlaður staður samkvæmt deiliskipulagi.
Ekki yrði hægt að stækka flugstöðina nema
færa brautina.
Með færslu brautarinnar til vesturs myndu
einnig minnka takmarkanir á flugtaki til aust-
urs vegna nálægðar við Öskjuhlíð. Gert er ráð
fyrir að Suðurgata fari þá í stokk undir braut-
ina sem héldi aðeins áfram á uppfyllingu út í
sjó. Er gert ráð fyrir kostnaði við þessari
færslu brautarinnar, 1.250 milljónir kr., þegar
borinn er saman kostnaður við mismunandi
flugvallarkosti.
Ýmsar hugmyndir uppi
Á vegum samvinnunefndar um svæðisskipu-
Við hugsanlegan flutning austur-vestur-brautarinnar á uppfyllingu sem nær úr Fossvogi og út á Skerjafjörð og endurskipulagningu flugvallarsvæðisins skapast verulegt landrými á núverandi flugvallarsvæði. Brautin
kæmi á gríðarmikla uppfyllingu, eins og sést á þessari mynd sem Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar hefur gert fyrir Flugmálastjórn. Baðstaðurinn í Nauthólsvík er fyrir innan nýju brautina. Nær sést á Kársnesið. Í
þessari tillögu er miðað við að ný flugstöð verði gerð í Hótel Loftleiðum og miðstöð fyrir fólksflutninga á landi byggð þar við.
D CE
+ 8
#
$
%
%" %
,
1
2 4
(
D CE
+ 8
#
$
%
%" %
,
1
2 2
+