Morgunblaðið - 14.02.2001, Qupperneq 48
48 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
„Au pair“ London
Íslensk fjölskylda með tvö börn óskar eftir reyk-
lausri „au pair“ til a.m.k. 3ja mánaða. Viðkom-
andi verður að geta hafið störf sem fyrst.
Sveigjanlegur vinnutími. Upplýs. í s. 554 2488.
Skilrúm og hillur
Vel með farnir skilrúmsveggir fyrir skrifstofu
með áklæði og beykiramma. Fjöldi skilrúma
er 18 stór (94 cm á breidd), 6 lítil (50 cm á
breidd), og 6 plexibogar, allt er þetta 150 cm
á hæð. Einnig 18 hillur.
Uppl. í símum 587 1093 eða 892 2527, Guð-
mundur.
Starfsfólk óskast
Óskum eftir rösku og áreiðanlegu fólki til aðstoð-
ar í eldhúsi og uppvaski á kvöldin. Vaktavinna.
Upplýsingar í síma 552 5700 eða á hótelinu.
Myndskreyting —
nektarmyndir
Skjár 1 leitar að manni og konu, (helst pari),
í nektarmyndskreytingar fyrir sjónvarpsþættina
Tantra: Listin að elska meðvitað, sem verða
sýndir í mars.
Góð laun eru í boði og parið þarf ekki að sýna
kynfæri sín. Upptökur munu vara í tvo daga.
Nánari upplýsingar fást með því að senda póst
á tantra@strik.is eða hringja í síma 595 6000
og skilja eftir nafn og símanúmer.
Starfsfólk í eldhús
Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefna-
vandann óska eftir að ráða nú þegar fólk til eld-
hússtarfa. Upplýsingar í síma 530 7600 eða
lítið við á skrifstofu okkar í Ármúla 18 og kynnið
ykkur hvað við höfum upp á að bjóða.
Umsóknum skal skila í Ármúla 18, einnig er
hægt að senda umsóknir í tölvupósti á
netfangið agust@saa.is .
Sérfræðingur
Fjölskylduþjónusta kirkjunnar auglýsir stöðu
sérfræðings
Leitað er að sérfræðingi með menntun í fjöl-
skyldumeðferð og/eða sálgæslu. Æskilegt er
að viðkomandi sé prestur eða hafi víðtæka
reynslu á sviði sálfræðiþjónustu eða félagsráð-
gjafar. Starfshlutfall 80-100%.
Upplýsingar veita Elísabet Berta Bjarnadóttir,
forstöðumaður, s. 552 3600 og sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson, formaður stjórnar í s. 562 2755.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar.
Ræsting
Þjónustuíbúðir aldraðra, Furugerði 1.
Starfsmaður óskast í ræstingu á daginn. Þarf
að geta byrjað um næstu mánaðamót.
Laun skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar
og Eflingar.
Upplýsingar veitir Margrét Benediktsdóttir for-
stöðumaður í síma 553 6040.
Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að
ráða starfsmann í eftirfarandi starf í
Tækni- og upplýsingadeild
Tækniframkvæmd
Starfssvið:
Vinna við og umsjón með GPS/GNSS málum
Flugmálastjórnar, kerfisþróun, veðurkerfi og
upplýsingakerfi.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Meistaragráða (MSc) í rafmagns- og tölvuverk-
fræði við viðurkenndan háskóla.
Nokkura ára reynsla í vinnu við GNSS mál fyrir
flugleiðsögu og þekkingar á GPS, LAAS,WAAS,
EGNOS, GALILEO og GLONASS er krafist.
Reynsla af GPS mælingum, þróun og útfærslu
GNSS aðflugskerfa og þekking á aðflugshönn-
un fyrir GNSS kerfi krafist.
Reynsla af rekstri og viðhaldi fjarskipta- og
upplýsinga tölvukerfa nauðsynleg. Jafnframt
er krafist víðrar þekkingar og reynslu á sviði
tölvukerfa, hugbúnaðargerðar og stýrikerfa.
Reynsla af yfirumsjón með GPS/GNSS málum
nauðsynleg. Þekking og reynsla af flugmálum
æskileg.
Launakjör
Samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborg-
ar og ríkissjóðs við Stéttarfélag verkfræðinga.
Umsóknir
Upplýsingar um starfið veitir Auður Freyja
Kjartansdóttir, forstöðumaður Tækni- og upp-
lýsingardeildar, s. 569 4100.
Skriflegar umsóknir með ítarlegum upplýsing-
um um menntun og fyrri störf sendist til starfs-
mannahalds Flugmálastjórnar. Umsóknarfrest-
ur rennur út 8. mars 2001. Æskilegt er að um-
sækjendur geti hafið störf sem fyrst. Öllum
umsóknum verður svarað.
Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun sem innir af hendi margvíslega
þjónustu í þágu flugsamgangna. Hlutverk stofnunarinnar er í megin-
atriðum að hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum
íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innan lands og utan, að
sjá um uppbyggingu og rekstur flugvalla og veita flugumferðar-
og flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug og alþjóðlegt flug
yfir Norður-Atlantshafið. Stofnuninni er skipt í fjögur svið, sem sam-
tals hafa á að skipa um 260 starfsmönnum um allt land. Flugmála-
stjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
UPPBOÐ
Listmunir
Erum að taka á móti verkum á næsta listmuna-
uppboð. Höfum kaupendur að góðum verkum
gömlu meistaranna.
Fyrir viðskiptavini leitum við að verkum eftir
Gunnlaug Scheving, Gunnlaug Blöndal,
Kristínu Jónsdóttur, Þórarin B. Þorláksson,
Jón Stefánsson og Nínu Tryggvadóttur.
Gallerí Fold,
Rauðarárstíg 14—16,
sími 551 0400.
VINNUVÉLAR
Byggingakrani
Til sölu byggingakrani BPR, árgerð '82, 16 m
hár og 24 m langur. Lyftigeta 3,2-0,65 tn.
Selst ódýrt.
Upplýsingar í síma 897 3705.
STYRKIR
Kristnisjóður, Kynningar-, fræðslu- og
útgáfusjóður kirkjunnar og Líknar- og
viðlagasjóður kirkjunnar
auglýsa eftir umsóknum
um styrki úr sjóðunum
Kristnisjóður starfar skv. lögum um Kristnisjóð
o.fl. nr. 35/1970.
Hlutverk kristnisjóðs er:
1. Að launa aðstoðarþjónustu presta og guð-
fræðinga í víðlendum eða fjölmennum
prestaköllum. Biskup gerir ráðstöfun um
þessa þjónustu í samráði við hlutaðeigandi
sóknarpresta og héraðsprófasta.
2. Að launa starfsmenn, sem ráðnir eru til sér-
stakra verkefna í þágu þjóðkirkjunnar sam-
kvæmt ákvörðun kirkjuþings. Slíkir starfs-
menn skulu ráðnir af biskupi með samþykki
kirkjuráðs.
3. Að styrkja söfnuði, er ráða vilja starfsmenn
til starfa á sínum vegum á sviði æskulýðs-
mála, líknarmála eða að öðrum mikilvægum
verkefnum.
4. Að veita fátækum söfnuðum starfsskilyrði,
einkum á þeim stöðum, þar sem prestaköll
hafa verið sameinuð og kirkjuleg þjónusta
er sérstökum erfiðleikum háð.
5. Að kosta búferlaflutning guðfræðinga, sem
settir eru til þjónustu samkvæmt 1. tölul.
6. Að styrkja framhaldsnám guðfræðinga og
annarra starfsmanna kirkjunnar til undirbún-
ings undir kirkjuleg störf.
7. Að styðja hvers konar starfsemi kirkjunnar
til eflingar kristinni trú og siðgæði með þjóð-
inni, svo sem útgáfu á hjálpargögnum í
safnaðarstarfi og kristilegu fræðsluefni, enn
fremur félög og stofnanir, sem vinna að mik-
ilvægum verkefnum á kirkjunnar vegum.
8. Að sinna að öðru leyti eftir þörfum þeim
verkefnum, sem prestakallasjóður hefur
gegnt til þessa.
Kynningar, fræðslu- og útgáfusjóður kirkjunnar
starfar skv. staðfestri skipulagsskrá nr. 173/
2000. Tilgangur sjóðsins er að styðja við og
efla kynningar- og fræðslustarf kirkjunnar svo
og útgáfustarfsemi á því sviði.
Líknar- og viðlagasjóður kirkjunnar starfar skv.
staðfestri skipulagsskrá nr. 165/2000. Tilgangur
sjóðsins er að veita líknar- og viðlagaaðstoð
innanlands.
Umsóknir, undirritaðar eigin hendi og studdar
nægilegum gögnum þannig að unnt sé að taka
afstöðu til þeirra, skulu hafa borist skrifstofu
kirkjuráðs, biskupsstofu, Laugavegi 31, 105
Reykjavík, eigi síðar en kl. 16:00 fimmtudaginn
1. mars 2001.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vefsvæði
kirkjuráðs http://www.kirkjurad.is .
Reykjavík, 13. febrúar 2001,
Kirkjuráð.
TIL SÖLU
GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS
mbl.is