Morgunblaðið - 14.02.2001, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 14.02.2001, Qupperneq 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 49 Auglýsing um tillögu að deiliskipulagi Búðarháls- virkjunar og Búðarhálslínu 1 á Holta- mannaafrétti og Landmannaafrétti Sveitarstjórnir Ásahrepps, Djúpárhrepps og Holta- og Landsveitar auglýsa hér með tillögu að deiliskipulagi Búðarhálsvirkjunar og Búðar- hálslínu 1, skv. 25. gr. skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997. Tillagan tekur til allt að 120 MW virkjunar við Búðarháls og Búðarhálslínu 1. Fyrsti skipulagsuppdráttur ásamt greinar- gerð eru til sýnis á skrifstofum Ásahrepps og Holta- og Landsveitar að Laugalandi og á skrif- stofu Djúpárhrepps í samkomuhúsinu Þykkva- bæ frá 14. febrúar 2001 til 14. mars 2001. Enn- fremur er tillagan til sýnis hjá Skipulagsstofn- un, Laugavegi 166, Reykjavík. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skila til skrifstofa hrepp- anna fyrir 28. mars 2001 og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillög- unni. SvSveitarstjórnir Ásahrepps, Djúpárhrepps og Holta- og Landsveitar. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Fyrirlestur um barnsmissi Ný dögun, samtök um sorg og sorgarviðbrögð, efna til fyrirlesturs um barnsmissi fimmtudag- inn 15. febrúar í safnaðarheimili Háteigskirkju kl. 20.00. Sr. Ingileif Malmberg, sjúkrahúsprest- ur á barnadeildum Landspítala, mun í erindi sínu fjalla um þá sorg sem foreldrar upplifa við missi barns og hvaða ólíku svið sorgin snertir við þessar aðstæður. Allir velkomnir. Aðgangseyrir kr. 500. ÓSKAST KEYPT Mót og byggingakrani Óskum eftir að kaupa eða leigja byggingakrana (43-45 metra bómulengd) og ca 45 lengdar- metra af mótum í tvöföldu byrði. Skrifleg tilboð óskast send ÁHÁ-byggingum, Hlíðasmára 9, Kópav., í síðasta lagi 23. febrúar. TILKYNNINGAR Móttaka flóttamanna árið 2001 Félagsmálaráðuneytið auglýsir eftir sveitar- félagi sem er reiðubúið að taka á móti 20—25 flóttamönnum á árinu 2001. Í samráði við Flótt- amannastofnun Sameinuðu þjóðanna verður tekin ákvörðun um hvaðan flóttafólkið kemur. Þegar tekin er ákvörðun um hvaða sveitarfélag skuli samið við, er tekið mið af aðstæðum öll- um, svo sem félagsþjónustu, heilbrigiðsþjón- ustu, atvinnuástandi, skólamálum og framboði á húsnæði. Umsóknir skulu hafa borist félasmálaráðuneyt- inu eigi síðar en 26. febrúar nk. Nánari upplýsingar veitir Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, ritari Flóttamannaráðs. Félagsmálaráðuneytið, 12. febrúar 2001. SMÁAUGLÝSINGAR DULSPEKI Huglækningar/heilun Sjálfsuppbygging. Samhæfing líkama og sálar. Áran. Fræðslumiðlun. Halla Sigurgeirsdóttir, andlegur læknir. Uppl. í síma 553 8260 f.h. ÝMISLEGT ■ www.nudd.is FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18  1812148  8½ II*  GLITNIR 6001021419 I I.O.O.F. 7  18121471/2  8.0. I.O.O.F. 9  1812147½  Þb.  HELGAFELL 6001021419 VI Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58—60. Samkoma í Kristniboðssalnum í kvöld kl. 20.30. Lilja Sigurðardóttir flytur frá- söguþátt frá Kína: Vakningin í kvennafangelsinu. Blandaður kór syngur. Hugleiðing: Guð- laugur Gunnarsson. Allir hjartanlega velkomnir. Netfang http://sik.is . Myndasýning í FÍ-salnum miðvikud. 14. febr. kl. 20.30. Heimamenn í Gnúpverja- hreppi fjalla um þjóðlendur í máli og myndum og Ólafía Aðalsteinsdóttir um smala- leið á Stórastíg að Fjallabaki. Verð 500 kr., kaffiveitingar í hléi, allir velkomnir. Gönguskíðaferð sunnud. 18. febr. kl. 10.30. Fararstjóri Gestur Kristjánsson. Uppselt er orðið í nokkrar sum- arleyfisferðir, greiðið staðfest- ingargjaldið strax til að tryggja pöntun ykkar. R A Ð A U G L Ý S I N G A R Aðalfundur BÍF Aðalfundur Bandalags íslenskra farfugla verður haldinn miðvikudaginn 28. febrúar kl. 20.00 í Íþróttamiðstöðinni Laugardag (efsta húsið, önnur hæð). Venjuleg aðalfundarstörf. Eftir fundinn verður gestum boðið að skoða nýja Farfuglaheimilið á Sundlaugavegi 34, sem verður opnað nú í vor. Stjórnin. KR-konur KR-konur Miðilsfundur með Valgarði Einarssyni verður haldinn í kvöld, miðvikudagskvöldið 14. febrúar kl. 20.15 í Frostaskjóli. (Húsinu verður lokað kl. 20.30). Allir velkomnir. Stjórnin. TIL að vekja athygli landsmanna á þjóðlendum var á síðasta sumri fitj- að upp á gönguferðum um þjóð- lendur í Gnúpverjahreppi. Þarna er mikil náttúrufegurð sem fáir hafa lagt leið sína um aðrir en heima- menn í leit að fé. Teknar voru fjölmargar myndir á þessum slóðum sem verða sýndar á myndasýningu Ferðafélags Ís- lands í F.Í.-salnum, miðvikudag- inn14. febrúar, auk þess sem gripið verður til eldri mynda í bland og sýningin krydduð frásögnum frá fyrri tímum. Það eru heimamenn í Gnúpverjahreppi sem sýna, Björg Eva Erlendsdóttir frá Hamarsheiði, Sigurður Páll Ásólfsson frá Ásólfs- stöðum og Árdís Jónsdóttir frá Eystra-Geldingaholti. Ferðafélag Íslands efnir einnig til ferðar um Stórastíg að Fjalla- baki. Þar liggur leiðin m.a. að upp- tökum Markarfljóts yfir Faxa, Ferðamannaöldu og Sultarfit og niður með Eystri-Rangá svo nokk- uð sé nefnt. Fararstjórinn Ólafía Aðalsteinsdóttir ætlar að sýna og fjalla um þessa leið í máli og mynd- um á þessari myndasýningu í kvöld. Sýningin hefst kl. 20.30 og er að- gangseyrir 500 kr. Kaffiveitingar í hléi eru innifaldar. Ljósmynd/Ólafía Aðalsteinsdóttir Frá Stórastíg, úr Klukkugili á leið í Dalakofa. Þjóðlendur og smalaleiðir á myndum KENNARAHÁSKÓLI Íslands hef- ur nýlega auglýst framhaldsnám fyrir haustið 2001. Fjórtán náms- brautir verða í boði. Framhalds- námið er ætlað kennurum, þroska- þjálfum og öðrum uppeldisstéttum. Námið mun nýtast þeim sem vinna að eða hafa hug á að sinna þróun- arverkefnum, rannsóknum eða öðr- um fræðistörfum, námsefnisgerð, ráðgjafar- og sérfræðistörfum, mati á skólastarfi eða starfsemi annarra stofnana. Námið er einnig ætlað fólki í forystu- og stjórnunarstörf- um. Unnt er að ljúka framhaldsnámi við Kennaraháskólann með þrenn- um hætti, með formlegri viður- kenningu (diplómu), meistaraprófi (M.Ed.) eða doktorsprófi (Ph.D.). Doktorsnám er nú í fyrsta skipti í boði og er stefnt að því að tveir til fimm nemendur hefji nám til dokt- orsgráðu við skólann nú í haust. Eftirtaldar námsbrautir eru í boði: Framhaldsnám fyrir þroska- þjálfa (30 einingar, fjarnám, þrjú ár). Námsbrautin er ætluð þroska- þjálfum sem vinna með fullorðnu fötluðu fólki. Íslenska og íslenskukennsla (15– 30 einingar, fjarnám, eitt eða tvö ár). Námsbrautin er ætluð kenn- urum á öllum skólastigum. Kennslufræði og námsefnisgerð (30 einingar, fjarnám, tvö ár). Nám- ið er ætlað kennurum á öllum skólastigum sem áhuga hafa á að kynnast nýjum stefnum og straum- um í kennslufræði og námsefnis- gerð, þróunar- og tilraunastarfi. Mat og þróunarstarf (15-30 eining- ar, fjarnám, eitt eða tvö ár). Námið er ætlað kennurum á öllum skóla- stigum, þroskaþjálfum, skólastjórn- endum, stjórnendum stofnana fyrir fatlaða og kennsluráðgjöfum. Nám og kennsla ungra barna (15-30 ein- ingar, bæði fjarnám og staðbundið nám, eitt eða tvö ár). Náminu er ætlað að efla færni þátttakenda í kennslu og öðru uppeldisstarfi sem lýtur að börnum á aldursbilinu fjög- urra til tíu ára. Námið er hvort tveggja í boði sem fjarnám og stað- bundið nám. Námskrárfræði og skólanámskrárgerð (15-30 einingar, fjarnám, eitt eða tvö ár). Námið er ætlað kennurum á öllum skólastig- um og tengist nýjum aðalnám- skrám leik-, grunn- og framhalds- skóla. Náttúrufræðimenntun (15-30 einingar, fjarnám, eitt eða tvö ár). Meginmarkmiðið með námsbraut- inni er að gefa kennurum færi á að styrkja starfsleikni sína, fagþekk- ingu og fagleg viðhorf á sviði nátt- úrufræðimenntunar. Samfélags- greinar og kennsla þeirra (15 einingar, fjarnám, eitt ár). Námið er ætlað kennurum í samfélags- greinum (landafræði, sögu, kristin- fræði, trúarbragðafræði, félags- fræði/þjóðfélagsfræði), óháð fyrra námi þeirra í greinunum. Sér- kennslufræði (30 einingar, fjarnám, tvö ár). Stjórnun (30 einingar, fjar- nám, tvö ár). Námið er einkum ætl- að skólastjórum og stjórnendum deilda og stofnana, fag- og ár- gangastjórum, ráðgjöfum, kennur- um og þroskaþjálfum sem stefna að stjórnunarstörfum. Tölvu- og upp- lýsingatækni (15-30 einingar, fjar- nám, eitt eða tvö ár). Rannsókn- artengt framhaldsnám (meistara- nám 60 einingar og doktorsnám 90 einingar). Tvenns konar rannsókn- artengt framhaldsnám er í boði við framhaldsdeild Kennaraháskólans: meistaranám (M.Ed.) og doktors- nám (Ph.D.). Meistaranámið er 60 einingar og byggist á námskeiðum og meistara- prófsverkefni. Doktorsnámið er 90 einingar (til viðbótar meistaranámi) og byggist á námskeiðum, náms- dvöl við erlendan háskóla og dokt- orsverkefni (60 einingar). Auk þessara kosta býður Kenn- araháskólinn kennurum og þroska- þjálfum að stunda framhaldsnám án þess að vera bundnir tiltekinni námsbraut. Nemendur sem skráðir eru með þessum hætti geta valið námskeið af ýmsum námsbrautum eftir áhuga eða stundað sjálfsnám með leiðsögn. Framhaldsnámsbrautirnar eru flestar með fjarnámssniði, þannig að unnt er að stunda námið með starfi. Mikil aðsókn hefur verið í framhaldsnámið. Að þessu sinni er áætlað að taka inn allt að 185 nýja nemendur sem er mikil fjölgun frá því sem verið hefur. Umsóknar- frestur er til 5. mars 2001. Rétt til að sækja um inngöngu eiga þeir sem lokið hafa fullgildu starfsmenntanámi á sviði kennslu, þjálfunar, uppeldis og umönnunar. Umsækjendur þurfa að hafa a.m.k. tveggja ára starfsreynslu. Nánari upplýsingar um námið er að finna á vefsíðum framhaldsdeild- ar, sjá vefslóðina: http://www.khi.is/ framhaldsdeild/ Kennaraháskóli Ís- lands hefur nýlega auglýst fram- haldsnám fyrir haustið 2001. Framhaldsnám við Kennaraháskóla Íslands EKIÐ var á bifreiðina BR-853, sem er VW Polo-fólksbifreið, þar sem hún stóð mannlaus við Háaleitis- braut 50. Er talið að það hafi átt sér stað á tímabilinu frá kl. 23 10. feb. sl. til kl. 11, 12. feb. Tjónvaldur fór af staðnum án þess að tilkynna um tjónið og eru því þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið, beðnir að snúa sér til lögregl- unnar í Reykjavík. Lýst eftir vitnum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.