Morgunblaðið - 14.02.2001, Síða 54
DAGBÓK
54 MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Lag-
arfoss kemur og fer í
dag. Helgafell kemur í
dag. Baldur Árnason og
Dettifoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Lagarfoss fer í dag.
Lara Helena og Hrafn
Sveinbjarnarson komu í
gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48, Reykjavík.
Skrifstofan er opin alla
miðvikudaga frá kl. 14–
17. Sími 551-4349. Fata-
úthlutun og fatamóttaka
er opin annan og fjórða
miðvikudag í mánuði, frá
kl. 14–17 sími 552-5277.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í síma
Krabbameinsráðgjaf-
arinnar, 800-4040, frá kl.
15–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–16.30
klippimyndir, útsaumur
ofl., kl. 13 smíðastofan
opin og spilað í sal, kl. 9
hár- og fótsnyrtistofur
opnar. Góugleði verður
haldin föstudaginn 23.
febrúar kl. 18 miðasala
er hafin. Ath. bingóið
fellur niður þann dag.
Farið verður í Óperuna
að sjá La Boheme föstu-
daginn 9. mars látið skrá
ykkur í félagsmiðstöð-
inni sem fyrst. Fulltrúi
frá skattstjóra aðstoðar
við skattframtöl, nauð-
synlegt er að skrá sig og
fá tíma.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 10 banki, kl.13
spiladagur og vefnaður.
Ásdís hjá Samvinnu-
ferðum-Landsýn verður
með ferðakynningu á
morgun kl. 15. Allir vel-
komnir.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Línudans kl. 11. Mynt-
mennt kl. 13. Píla kl.
13.30. Á morgun
fimmtudag púttæfinga í
Bæjarútgerðini kl. 10–12
og opið hús kl.14 í boði
Sjálfstæðisfélagana í
Hafnarfirði.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós! Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og fimmtu-
dögum, kl. 13–16.30, spil
og föndur. Leikfimi er í
íþróttasal á Hlaðhömr-
um á þriðjudögum kl. 16.
Sundtímar á Reykja-
lundi kl. 16 á mið-
vikudögum á vegum
Rauða krossdeildar
Mos. Pútttímar eru í
Íþróttahúsinu að Varmá
kl. 10–11 á laugardögum.
Kóræfingar hjá Vorboð-
um kór eldriborgara í
Mos. eru á Hlaðhömrum
á fimmtudögum kl. 17–
19. Jógaleikfimi
kl.13.30–14.30 á föstu-
dögum í Dvalarh. Hlað-
hömrum. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586-8014
kl. 13–16. Tímapöntun í
fót-, hand- og andlits-
snyrtingu, hárgreiðslu
og fótanudd, er í s. 566-
8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu-
stofan og handa-
vinnustofan opnar, kl. 13
opin handavinnustofan.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böðun,
kl. 10 hársnyrting og
verslunin opin til kl. 13,
kl. 13 föndur og handa-
vinna, kl. 13.30 enska,
byrjendur.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
hittast á morgun
fimmtudag kl. 10, að
Korpúlfsstöðum. Púttað,
kaffi og spjallað. Allir
velkomnir. Nánari upp-
lýsingar veitir Ingibjörg
Sigurþórsdóttir í síma
545-4500.
Félagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðjudög-
um kl. 13.30. Fótaað-
gerðir mánudaga og
fimmtudaga. Ath. nýtt
símanúmmer 565-6775.
Spilað í Holtsbúð 15.
febrúar kl. 10.30. Bingó
og skemmtikvöld í
Kirkjuhvoli 22. febrúar
kl. 19.30 á vegum Lions-
klúbbs Garðabæjar.
Rútuferðir samkvæmt
áætlun. Ferð í Þjóðleik-
húsið 24. febrúar kl. 20.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Hlemmi í dag
mæting kl. 9:45. Leik-
hópurinn Snúður og
Snælda sýna, „Gamlar
perlur“ sem eru þættir
valdir úr fimm gömlum
þekktum verkum. Sýn-
ingar eru á mið-
vikudögum kl. 14 og
sunnudögum kl. 17 í Ás-
garði Glæsibæ. Miða-
pantanir í símum 588-
2111, 568-9082 og 551-
2203. Söngfélag FEB-
kóræfing kl. 17. Línu-
danskennsla Sigvalda kl.
19.15. Sjávarfangsveisla,
hausar, hrogn, lifur og
ýmislegt annað góðgæti
úr sjárvarfangi verður
haldin 16. febrúar, dans-
að á eftir borðhaldi.
Skráning hafin á skrif-
stofu FEB. Aðalfundur
FEB verður haldinn í
Ásgarði, Glæsibæ 24.
febrúar, kl.13.30. Uppl. á
skrifstofu FEB í s. 588–
2111 kl. 10–16.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9 opin
vinnustofa, posulíns-
málun og fótaaðgerð, kl.
13 böðun kl. 13.30 sam-
verustund.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10–17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. hringdansar, kl. 17
bobb. Myndlistarsýning
frístundamálara í Gjá-
bakka stendur yfir til 23.
febrúar.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–16.
Skrifstofan í Gullsmára
9 opin í dag kl 16.30–18.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.10 og 10.10 leikfimi, kl.
10 ganga, kl. 13 ker-
amikmálun, kl. 13.30
enska.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur, kl. 9–
12 útskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 11 banki,
kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir, hár-
greiðsla, keramik, tau,
og silkimálun og jóga,
kl.11 sund í Grens-
áslaug, kl. 14 dans-
kennsla, Sigvaldi, kl. 15
frjáls dans Sigvaldi, kl.
15 teiknun og málun.
Norðurbrún 1. Fótaað-
gerðarstofan opin frá kl.
9–14, kl. 9–12.30 út-
skurður, kl. 9–16.45
handavinnustofurnar
opnar, kl. 10 sögustund,
kl. 13–13.30 bankinn, kl.
14 félagsvist, kaffi og
verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.30
sund, kl. 9 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
aðstoð við böðun, mynd-
listarkennsla og postu-
línsmálun, kl. 13–16
myndlistarkennsla, gler-
skurður og postulíns-
málun, kl. 13–14 spurt
og spjallað. Föstudaginn
16. febrúar kl. 15 verður
ferðakynning á vegum
Samvinnuferðar-
Landsýnar. Rjómabollur
með kaffinu. Fimmtu-
daginn 15. febrúar kl.
10.30 verður fyrirbæna-
stund í umsjón sr.
Hjálmars Jónssonar,
Dómkirkjuprests.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bankaþjónusta, kl. 10
morgunstund og fótaað-
gerðir, bókband og búta-
saumur, kl. 13 hand-
mennt og kóræfing, kl.
13.30 bókband, kl. 14.10
verslunarferð.
Kvenfélag Kópavogs
fundur verður haldinn
fimmtudaginn 15. febr-
úar kl. 20.30 að Hamra-
borg 10 myndasýning.
Bústaðarkirkja starf
aldraðra, miðvikudaga
kl. 13–16.30 spilað,
föndrað og bænastund.
Boðið upp á kaffi. Allir
velkomnir.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12. Í
kvöld kl. 19.30 félagsvist.
Barðstendingafélagið
Spilað í kvöld í Konna-
koti, Hverfisgötu 105, 2.
hæð kl. 20.30 Allir vel-
komnir.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, frá há-
degi spilasalur opinn, kl.
13.30 Tónhornið. Aðstoð
frá Skattstofu við skatt-
framtöl verður veitt
miðvikud. 7. mars.
Skráning hafin. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í s.
575-7720.
Í dag er miðvikudagur 14 . febrúar,
45. dagur ársins 2001. Valentínus-
dagur. Orð dagsins: En sá sem iðk-
ar sannleikann kemur til ljóssins,
svo að augljóst verði, að verk hans
eru í Guði gjörð.
(Jóh. 3, 21.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
FLUGVÖLLUR í Hvassa-
hrauni kemur ekki Reyk-
víkingum að gagni. Það
kemur að sjálfu sér, að öll
umferð í gegnum Hafnar-
fjörð eykst um helming og
það þýðir stopp fyrir um-
ferðina. Þingmenn hafa
ekki enn þá leyst umferð-
armálin um Reykjanes-
brautina, hvað þá í gegnum
Hafnarfjörð.
Hildegaard Valdason.
Ofnæmi fyrir dýrum
ÞAÐ má vel vera að allt sé
rétt sem Ragnar Jónsson
segir í grein sinni í Bréfi til
blaðsins í Morgunblaðinu
sunnudaginn 04.02 sl. En
einu gleymir hann (eða veit
ekki) og það er að bæði
börn og fullorðnir eru með
ofnæmi fyrir hundum, kött-
um og öðrum húsdýrum,
það svæsið að það getur
leitt til dauða. Slæmt væri
þess vegna að fólk færi með
húsdýr í verslanir, veit-
ingastaði, strætó og aðra
opinbera staði.
Sjálf er ég með húsdýra-
ofnæmi. Mér er ekki illa við
þau eins og svo margir
halda. Mér þykir mjög erf-
itt að geta ekki umgengist
dýrin og eigendur þeirra.
Hvað leyfið varðar sem
þarf, þá er það meðal ann-
ars vegna ofnæmissjúk-
linga sem allir í húsinu
þurfa að samþykkja.
Ég vona innilega Ragn-
ars vegna að hann fái aldrei
ofnæmi, því það er mjög
erfitt að hafa.
Ofnæmissjúklingur.
Þakkir til Ásgeirs
Sverrissonar
ELÍN hafði samband við
Velvakanda og langaði að
þakka Ásgeiri Sverrissyni
fyrir Viðhorf í Morgun-
blaðinu 2. febrúar sl. Grein-
in heitir Fánýt fimi í skól-
anum. Hann talar fyrir
munn margra foreldra.
Hafðu mínar bestu þakkir
fyrir.
Dómur Hæstaréttar
ekki mér í hag
ÉG á að lifa áfram í fátækt.
Ég er búinn að tala við
marga innan kerfisins en
fæ aldrei svar frá Trygg-
ingastofnun ríkisins. Ég lifi
af tæpum 40.000 kr. á mán-
uði, eftir að hafa greitt
leigu. Þá er eftir að greiða
mat, rafmagn, síma og
fleira. Ég er búinn að bíða
eftir svörum í tvö ár og vildi
gjarnan fara að fá einhver
svör frá Tryggingastofnun.
Hvenær á að fara að athuga
með okkur einstæðu ör-
yrkjana og gamla fólkið?
Sæmundur.
Þakkir til Steinunnar
Ólínu og Bólu
OKKUR langar að þakka
Steinunni Ólínu fyrir
frammistöðu sína í þættin-
um Milli himins og jarðar á
laugardagskvöldum og
leikkonunum sem leika
mæðgurnar. Einnig langar
okkur að þakka Sigrúnu
Eddu Björnsdóttur sem
leikur Bólu. Hún Bóla er al-
veg frábær og ætti að koma
fram í hverjum þætti. Hún
er stórstjarna.
Martha E. Albertsdóttir,
Elsa og Coco.
Dansflokkar
og styrkir
ÁHUGAMAÐUR um dans
hafði samband við Velvak-
anda og vildi vekja athygli
á því, að það er aldrei út-
hlutað styrkjum til dans-
flokka áhugamanna en nán-
ast allir aðrir fá einhvers
konar styrki. Hvenig
stendur á þessu?
Þátturinn Leiðarljós
LEIÐARLJÓS hefur verið
vinsælt sjónvarpsefni í Rík-
issjónvarpinu undanfarin
ár. Nú hefur þátturinn ver-
ið færður til. Hann byrjaði
alltaf kl. 16.30 en nú hefur
hann verið færður til kl. 17.
Við, sem erum á elliheim-
ilum, þurfum að fara að
borða á þessum tíma, svo
við missum alltaf af parti af
þættinum. Er ekki mögu-
leiki að færa þennan vin-
sæla þátt á sama tíma og
áður?
Eldri borgari.
Local Agenda 21
VÍKVERJI var að kalla
eftir orði fyrir stuttu í stað-
inn fyrir Local Agenda 21.
Mín uppástunga er Staðar-
starf 21.
Pétur.
Dýrahald
Enn er Lilli týndur
ENN er leitað að Lilla sem
hvarf frá Hrísateig 8 24.
janúar sl. Hann er 11. ára
gamall stór köttur, hvítur
og gulur. Lilli var bæði
merktur með ól og í eyra.
Hafi einhver verið svo
óheppinn keyra á hann eða
ef einhver veit eitthvað um
ferðir hans, vinsamlegast
látið okkur vita. Þessi
óvissa um afdrif hans er
verst. Einnig er fólk beðið
að athuga í geymslur og bíl-
skúra. Vinsamlegast hafið
samband í síma 553-9766.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Umferðarteppa í
Hafnarfirði
Víkverji skrifar...
FERÐASKRIFSTOFUR keppastnú um hylli okkar og hvetja okk-
ur til að fjárfesta í ferð á sólarstrend-
ur. Er líklega ekki seinna vænna en
einmitt núna, í miðjum febrúar um
hávetur, að ákveða hvert skal halda í
sumarleyfinu. Enda rennur það upp
einn góðan veðurdag eins og í öðrum
ævintýrum.
Hvar værum við nú líka ef við hefð-
um ekki öll þessi tilboð til að íhuga og
gleðja okkur yfir? Þau hjálpa okkur
að þreyja þorrann og góuna og við
getum bara ekki beðið eftir að kom-
ast á ströndina til að flatmaga og
stikna svolítið með öllum hinum hvítu
skrokkunum frá Íslandi.
Ekki amast Víkverji við sólar-
landaferðum en hann verður að við-
urkenna að hann hefur ekki mjög
mikla reynslu af slíku. Hefur líklega
ekki nema tvisvar átt kost á að sóla
sig í einhverju slóri í útlandinu. Það
var líka sólbað svo um munaði og
reynslan eftirminnilegri en hann
kaus. Í annað skiptið var eiginlega
engin sól. Nógur hiti og þægilegur,
talsvert mistur og gott að liggja í leti
á strönd. Þetta gat ekki skaðað
neinn. Enda er svo langt síðan að það
var löngu fyrir tíma umræðunnar um
sólarexem, innrauða eða útfjólubláa
geisla eða sortuæxli. Annaðhvort
voru menn í sólbaði eða ekki. Líklega
á sundlaugarbarnum ef ekki í sólinni.
En eftir að hafa flatmagað dag-
langt í mistrinu var búið að safna
nægumkröftum til að dröslast inn í
hótelíbúðina, næra sig og leggjast
síðan á meltuna. Eftir fáa tíma var
svefninum raskað illilega. Það hlaut
að vera kviknað í íbúðinni, það var
alls staðar svo heitt. Við nánari at-
hugun var hitinn aðeins á eigin
skrokki og lítið til ráða annað en kæla
steikina og bíða eftir að þjáningunum
lyki. Gafst þá nægur tími til að
ákveða að fleiri yrðu strandferðirnar
ekki á lífsleiðinni.
x x x
TRÚLEGA verður að viðurkennaað aldurinn hefur áhrif á minnið
því allmörgum árum síðar var aftur
lagst á sólarströnd. Bruninn mikli
var löngu gleymdur og ekki einu
sinni í undirmeðvitundinni. Þetta var
líka í annarri heimsálfu og þar skein
sólin öðru vísi. Samt sem áður hafði
Víkverji slysast til að viðhafa vissar
forvarnir: Sólaráburð af hæsta styrk-
leika. Hann hafði reyndar ekki verið
með í för að heiman heldur keyptur á
flugvelli að áeggjan samferðamanna.
Líklega sáu þeir í hvað stefndi með
þennan föla skrokk af Íslandi.
En ströndin beið og þangað var
haldið með sólarvörn og meira að
segja leigð sólhlíf af náunga þar sem
hafði rænu á að benda á nauðsyn
þessa einfalda áhalds. Hann gerði
þetta áreiðanlega af góðmennsku
frekar en gróðafíkn. Nú var líka í lagi
að sitja undir sterkri sól og skella sér
í ölduna öðru hverju og kæla sig.
Dagurinn var ekki lengi að líða við
slíka iðju og í hvert skipti sem sam-
ferðamennirnir sáu til gætti Víkverji
þess að skella á sig nýju lagi af sól-
arvörn.
Eitt lögmála Murphys hljóðar á þá
leið að geti eitthvað farið úrskeiðis þá
fer það úrskeiðis. Og það gerði það í
sólarvörninni. Það hafði nefnilega
enginn bent Íslendingnum á að fæt-
urnir tilheyra skrokknum. Það er
ekki nóg að bregða sér að hálfu leyti
undir sólhlífina og lesa í bók til að
hlífa sér um stund við sólinni. Lapp-
irnar verða víst að fylgja með inn í
skuggann. Annars verða þær eins og
símastaurar og ónothæfar. Í hvorug-
an fótinn hægt að stíga í tvo daga.
Ekkert að gera nema bíða og lesa. Og
vera inni.
En þetta eru bara víti til varnaðar.
Lesum tilboðin, förum á sólarstrend-
ur og látum steikjast. Það er samt
betra við hægan hita.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 dúkku, 4 hermenn, 7 að-
gangsharður, 8 barin, 9
hag, 11 kvenmannsnafn,
13 karlfugl, 14 kvendýr,
15 til sölu, 17 spil, 20 hár,
22 kvæðið, 23 rotið, 24
þolna, 25 vætan.
LÓÐRÉTT:
1 skerpa, 2 regnýran, 3
elska, 4 skeiðahníf, 5
lengdareining, 6 trjá-
gróður, 10 tóg, 12 rödd,
13 ósoðin, 15 kjána, 16
meðvindur, 18 naut, 19
nabbinn,20 afkvæmis, 21
fiskur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 notalegur, 8 lokað, 9 trana, 10 nýr, 11 kanna,
13 asann, 15 hafts, 18 sólin, 21 kák, 22 rorra, 23 urðar, 24
harðánægð.
Lóðrétt: 2 orkan, 3 auðna, 4 eitra, 5 uxana, 6 flak, 7 fann,
12 nýt, 14 sló, 15 hýra, 16 ferma, 17 skarð, 18 skurn, 17
liðug, 20 norn.