Morgunblaðið - 24.03.2001, Qupperneq 2
Fermingu má líkja við nokkurs
konar manndómsvígslu fyrir bæði
kynin og er í ætt við svokallaðar
áfangaathafnir sem víða er að
finna með þjóðum heims og eiga
sér ævafornar rætur.
Ferming hefur tíðkast æði lengi
á Íslandi og margir gengið ýmist
léttum eða þungum skrefum inn
kirkjugólfið, yfirleitt eftir langa
og erfiða baráttu við lærdóms-
kverið. Um það finnast margar
sögur.
Á næstu vikum og mánuðum
mun fjöldi ungmenna leitast við
að gera Jesú Krist að leiðtoga lífs
síns, nú sem fyrr. Enginn veit fyrir
víst hversu mörg börn kjósa að
fermast en samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofu Íslands voru
rúmlega 4.000 nemendur í 8.
bekk grunnskólans síðastliðið
haust.
Borgaraleg ferming er í vexti og
munu fleiri en nokkru sinni hafa
þann háttinn á nú í aprílbyrjun og
stíga þetta mikilvæga skref í átt
til fullorðinsáranna, án þess að
játast einu eða neinu.
Enn aðrir, svo sem hvítasunnu-
menn, láta ferminguna liggja al-
gerlega milli hluta með þeim rök-
um að hvergi sé minnst á slíka
athöfn í Biblíunni.
Auk þess sem til eru börn og
ungmenni sem ekki trúa á tilvist
Guðs.
Margir hafa líka neitað að ferm-
ast í gegnum tíðina og vilja að
fenginni reynslu og athugun á
þroska ungmenna láta hækka
fermingaraldurinn í að minnsta
kosti 16 ár. Skyldi það breyta ein-
hverju? Könnun sem vitnað er í
hér í blaðinu leiðir a.m.k. í ljós að
trú ungs fólks á Guð fer þverrandi
í eldri bekkjum grunnskólans.
Mörgum þykir núorðið umgjörð
fermingarinnar og annarra árs-
tíðabundinna kirkjulegra athafna
bera innihaldið ofurliði og þess
eru dæmi að fjölskyldur séu mörg
ár að greiða niður kostnað vegna
veisluhalda og gjafa.
Fermingarbörn kváðu til dæmis
vera farin að gefa hvert öðru gjaf-
ir og heyrst hafa sögur af börnum
sem biðja um vélsleða eða rán-
dýra stásshunda í fermingargjöf.
Hvað sem því líður og viðhorfi
manna til athafnarinnar og trú-
mála yfirleitt er sjálfsagt mikil-
vægast að unga fólkið eigi nota-
lega stund með fjölskyldu sinni
og vinum og í framtíðinni góðar
minningar um þennan stóra
áfanga á lífsleiðinni.
Helga Kristín Einarsdóttir
Sigurður Ægisson
Morgunblaðið/Kristinn
2 C LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Aðdragandi og saga
fermingarinnar ................... 4
Borgaraleg ferming
aldrei vinsælli en nú ..........8
Fermingarundirbúningnum
lýkur í heita pottinum ......10
„Þetta hefur verið
rosalega gaman“ ............11
Sálmur
fíkniefnafáráðsins ...........11
Fermingin er nokkurs konar
manndómsvígsla ............12
Kynþroski – inngangur
að fullorðinsárum ............12
Vígsluathafnirnar
kostuðu suma lífið .......... 12
Engin barnaskírn og því
engin ferming .................. 14
Óvenjuleg
fermingarathöfn ..............14
Blúndukjólar, bleik herra-
bindi og kanínuskinn .......16
Átti enga skó ....................16
Ein leið til þess að hella
upp á könnuna ................18
Buxnakjólar, blúnduhanskar
og bleikar töskur .............18
Í bestu fötum ...................19
Hver er munurinn á lúth-
erskri trú og kaþólskri? ...20
„Fermt barn forðast. . .“ 22
„Samvinnufélag
heilagra“ ..........................23
Unglingar og trú ...............23
Fermingarbörn með falleg-
asta hárið......................... 24
Andlitsförðun við
allra hæfi ..........................26
Bleikt, blátt og örlítið
væmið ..............................28
Skírn og ferming
náskyldar .........................29
Ferming hjá huldufólki .... 30
Fróðleikur um heilaga
ritningu .............................31
25 þúsund skeyti
til fermingarbarna ........... 32
Hangikjöt og
uppstú í veislunni ............33
Mikil áhrif lítillar bókar ....34
Kverin líta dagsins ljós ...35
„Píndur undir Ponta“ .......35
Fermingin lögboðin .........36
„Og nú var eg þá orðinn
maður . . .“ .......................36
Helgakver og
arftakar þess ...................37
Jurtafæðisveisla
frá Hollum mat .................38
Síðdegishlaðborð undir
hækkandi sól ...................40
Uppskriftir frá
Kaffitárskonum ...............42
Ferming án mikillar
fyrirhafnar ........................42
Forsíðumynd:
Kjartan Þorbjörnsson
Fyrirsæta: Rakel
Magnúsdóttir ferming-
arbarn, í Kópavogskirkju
Hár: Rut Danelíusdóttir hjá
hárgreiðslustofunni Scala
Förðun: Lína Rut Wilberg
Efnisyfirlit