Morgunblaðið - 24.03.2001, Side 8
8 C LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BORGARALEG FERMING
BORGARALEG ferming tíð-kast víða um lönd, hefur t.d.verið við lýði í Danmörkufrá 1914 og í Noregi frá
1952. Að jafnaði velja alls 16%
norskra ungmenna þennan kost og í
sumum borgum nær talan allt að
20%.
Siðmennt, félag áhugafólks um
borgaralegar athafnir, hefur í rúman
áratug skipulagt borgaralegar ferm-
ingar á Íslandi. Sextán ungmenni
tóku þátt í fyrstu athöfninni af þeim
toga hér, árið 1989, og hefur þátt-
takan aukist jafnt og þétt síðan. Vor-
ið 2001 hafa 75 ungmenni, víðsvegar
að af landinu, kosið að fermast borg-
aralega.
Aðalfræðarinn
er heimspekimenntaður
Fermingarnámskeiðið saman-
stendur af 12 tvöföldum kennslu-
stundum og síðustu árin hefur Jó-
hann Björnsson heimspekingur verið
þar aðalleiðbeinandi. Að sögn hans
var það tilviljun ein sem réði því að
hann fór í þessa kennslu fyrir 5 ár-
um. Hann var þá nýkominn úr heim-
spekinámi við Kaþólska háskólann í
Leuven í Belgíu, þar sem hann hafði
m.a. mikið verið að fást við lífsviðhorf
og lífsskoðanir, og var ekki enn kom-
inn í fast starf. Þá rakst hann á aug-
lýsingu frá Siðmennt, þar sem vant-
aði leiðbeinendur til að vera með
námskeið fyrir borgaralega ferm-
ingu. Var gert að skilyrði að umsækj-
endur væru hliðhollir siðrænni
mannhyggju. Jóhann sótti um og var
ráðinn, ásamt tveimur öðrum. En
síðustu þrjú árin hefur Jóhann verið
einn með fræðsluna.
Heiðarleg skoðana-
skipti í fyrirrúmi
„Segja má að fermingarfræðslan
hjá okkur sé einhvers konar lífsleikn-
inámskeið. Það sem ég fer í er sitt lít-
ið af hverju, og ég reyni að hafa það
sambland af gamni og alvöru. Við
lesum mikið greinar í blöðum, oft
sem tengjast unglingum, og svo er
mikið rætt. Einn tíminn fer t.d. í að
fjalla um það hvað er að vera ung-
lingur í auglýsinga- og neyslusam-
félaginu. Þar er skyggnst á bak við
þarfir og gerviþarfir, athugað hvort
maður þurfi nú í raun allt sem er á
boðstólum. Einnig er rætt um einelti
og ofbeldi, skaðsemi fíkniefna o.s.frv.
Svo hef ég lagt áherslu á að hafa
áhrif til eflingar fjölskyldubandanna,
rætt um afstöðu unglinganna til for-
eldra sinna, athugað hver eru helstu
ágreiningsmálin í fjölskyldum og
bent á ýmislegt sem gera mætti til
þess að hafa áhrif til hins betra
heimafyrir.
Siðfræðin er auðvitað afar mikil-
væg í þessu ferli öllu. Við förum mik-
ið út í lífsviðhorf og -skoðanir. Ung-
mennin hafa miklar skoðanir og eru
mjög ófeimin að viðra þær, enda er á
námskeiðinu gengið út frá tveimur
meginreglum sem ætlast er til að
þátttakendur virði: Það má vera
öðruvísi. Allir hafa sinn rétt til þess
að skera sig úr fjöldanum ef þeim svo
sýnist; það má hafa mismunandi
skoðanir, líta öðruvísi út og klæða sig
eftir eigin smekk. Og í annan stað er
gengið út frá því að þátttakendur ýki
ekki eða plati. Ef ég spyr að ein-
hverju þurfa krakkarnir ekki að
svara, enginn er skyldugur til að
segja neitt, en ef þeir gera það, verða
þeir að segja satt. Heiðarleg skoð-
anaskipti eru í fyrirrúmi.“
Metaðsókn í þetta sinn
Jóhann sagði að töluverð aukning
hefði orðið fyrir 5 árum, þegar u.þ.b.
50 ungmenni hafi ákveðið að fermast
með þessum hætti, og sú tala hafi
haldist að mestu næstu árin. „En svo
er mikil aukning í ár, því nú eru þátt-
takendur alls 75. Við auglýstum fyr-
irhugað námskeið síðastliðið haust
og þá gerðist nokkuð sem við höfðum
ekki átt von á: fólk utan af landi tók
að hringja í okkur og spyrja hvort
þetta yrði eitthvað í boði úti á lands-
byggðinni. Okkur langaði að koma til
móts við þessa einstaklinga, en það
náðist ekki tilskilinn lágmarksfjöldi á
hverjum stað og því var ekki hægt að
senda leiðbeinanda út á land. En
samanlagður varð hópurinn að lok-
um það stór, að ákveðið var að bjóða
fólkinu að koma til Reykjavíkur og
vera tvær helgar á námskeiði. Það
voru 19 ungmenni sem þekktust boð-
ið. Þessir einstaklingar koma síðan
aftur og taka þátt í fermingarathöfn-
inni í Háskólabíói, sem verður 1. apr-
íl næstkomandi; þar verða allir sam-
an eða alls 75 ungmenni.“
Þeir sem hafa verið þátttakendur í
námskeiðunum koma úr öllum átt-
um, að sögn Jóhanns, og eru það
jafnvel ungmenni sem eru í trúar-
söfnuðum, jafnvel þjóðkirkjunni, en
eru ekki tilbúin að strengja trúar-
heit. „Sum hafa byrjað að ganga til
prests, en ekki líkað alveg; fundið þó
hjá sér einhverja trú, en verið reik-
andi, ekki getað tekið ákvörðun, og
hafa þá komið til okkar og verið með í
námskeiði. Þarna hafa komið Vottar
Jehóva, fólk úr Ásatrúarfélaginu og
svo hinir ýmsu nýbúar, sem hafa þá
ekki verið kristnir, s.s. búddistar.“
Fermingarathöfnin
Fermingarbörn og aðstandendur
þeirra taka virkan þátt í sjálfri loka-
athöfninni með tónlistarflutningi,
ljóðalestri og ávörpum. Einnig hefur
þekkt fólk úr íslensku samfélagi
komið fram sem ræðumenn, og má
þar nefna Guðmund Andra Thors-
son, Pál Óskar Hjálmtýsson og Þor-
vald Þorsteinsson. Þessar athafnir
hafa verið haldnar í Norræna húsinu,
Listasafninu Hafnarborg, Ráðhúsi
Reykjavíkur og frá 1998 í stærsta sal
Háskólabíós, eins og verður að þessu
sinni.
„Ungmennin fá síðan afhent skjöl,
sem staðfesta að þau hafi setið þetta
námskeið og lokið því. Dagskráin er
því ekki ósvipuð og útskrift úr skóla.
Þau eru ekki að játast neinu. Nám-
skeiðið er liður í því að gera þau að
heilsteyptum manneskjum og ábyrg-
um borgurum,“ sagði Jóhann að lok-
um.
Úr bókinni: Árni Björnsson. Merkisdagar á mannsævinni. Reykjavík 1996.
Fyrsta borgaralega fermingin á Íslandi, í Norræna húsinu í Reykjavík, 9. apríl 1989.
Borgaraleg ferming
aldrei vinsælli en nú
Siðmennt, félag áhuga-
fólks um borgaralegar
athafnir, var stofnað árið
1990. Félagið er mál-
svari húmanisma
(mannúðarstefnu) og
frjálsrar hugsunar, óháð
trúarsetningum, og
stendur fyrir borgaraleg-
um athöfnum, þ.m.t.
fermingum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sú venja hefur skapast að bjóða foreldrum eða forráðamönnum að vera með
í eitt skipti á fermingarnámskeiðum Siðmenntar. Áður fyrr var sá dagur í
upphafi námskeiðs, en í fyrra var breytt til og hann færður í næstsíðasta
skipti. Er þetta hugsað sem kynning og samantekt á því sem þá hefur verið
gert. Þegar okkur bar að garði var Jóhann að segja frá ýmsum hnyttilegum
tilsvörum ungmennanna úr kennslustundum vetrarins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jóhann Björnsson heimspekingur er
aðalfræðari í fermingarnámskeiðum
Siðmenntar.
Iðnbúð 1, 210 Garðabæ
sími 565 8060
Nýtt Nýtt
Afskorin blóm
20% afsláttur í mars
-Spennandi valkostur-