Morgunblaðið - 24.03.2001, Page 11
„VIÐ hittumst alltaf
heima hjá einhverjum í
fermingarhópnum og-
skiptumst þannig á,“
segir Arnheiður Ófeigs-
dóttir, sem er í ferming-
arbarnahópi Péturs. „En
það eru ekki allir sem
halda þetta heima hjá
sér því við erum það
mörg að það næst ekki. Í
tímunum förum við yfir
spurningar í ferming-
arbókinni, síðan tökum
við smákaffi og svo
syngjum við og biðjum
eina bæn og svo kíkjum
við í Nýja testamentið og
strikum þar undir eitt-
hvað nýtt sem við erum
að læra um. Og stundum
förum við í sund. Þetta
er búið að vera rosalega
gaman.
Í þjóðkirkjunni er allt
annað kerfi. Þá er maður
yfirleitt bara í kirkjunni
að vinna og þarf að læra
eitthvað nýtt fyrir hvern
fund en við erum ekki með þannig
hérna. Ég veit ekki hvort ferming-
arbörnin þar taki próf en við ger-
um það. Svo fermumst við í tvennu
Í Óháða söfnuðinum hefst fermingarundirbúningurinn í Vesturbæjarlauginni á haustin og lýkur í heitum potti við
heimili einhvers fermingarbarnsins að vori. Ekki amalegt það.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 C 11
Bæjar l ind 1 -3 , Kópavog i , s ím i 544 40 44
opið
virka daga 10-18,
laugardaga 10-14.
Antique Lace Platinum Lace
Crown Jewel Crown Jewel platinum
Gothic platinum
Silver Shell Golden Shell
á gjafaöskjum með matar- og kaffi-
stelli fyrir einn.
um
afsláttur
Gerið góð kaup!
Pétri safnaðarpresti þykir vænt
um fermingarbörn sín, á því
leikur ekki nokkur vafi, enda
sýnir hann það gjarnan í verki.
Þegar fyrrverandi fermingar-
barn hans þurfti að fara í afeitr-
unarmeðferð setti hann t.d. eft-
irfarandi prósaljóð saman. Það
er viljandi byggt á 23. Davíðs-
sálmi, til að sýna algjöra and-
hverfu þess sem þar er boðað.
Narkotika konungur er minn hirðir,
mig mun allt bresta.
Í göturæsinu lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að óhreinum forarpollum
og helvítum fíkniefnabælanna.
Hann eyðileggur sál mína,
leiðir mig um stígi óguðleikans
vegna fíknarinnar.
Já, ég fer um dal fátæktarinnar,
og óttast allt illt,
því þú – Narkotika – ert hjá mér.
Allt sem rýkur, rúllar og rennur
er að drepa mig.
Þú býrð mér tómt borð
frammi fyrir fjölskyldu minni.
Þú rænir höfuð mitt allri skynsemi,
sorgarbikar minn er barmafullur.
Já, þorsti eitursins mun fylgja mér
hina fáu ævidaga mína,
og í helvíti eiturlyfjanna
mun ég búa stutta ævi.
Sálmur fíkni-
efnafáráðsins
lagi; annar hópurinn 25. mars – og
ég er í honum – og hinn 8. apríl,“
segir Arnheiður og hlakkar greini-
lega mikið til stóra dagsins.
Arnheiði Ófeigsdóttur líkar vel fræðslan hjá
Pétri í Óháða söfnuðinum.
„Þetta hefur verið
rosalega gaman“
FERMINGARFRÆÐSLAN