Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 18
STELPURNAR eru mikið fyrir
kjóla, bæði eina sér og kjóla við
buxur,“ segir Sigrún Guðný Mark-
úsdóttir, rekstrar- og innkaupa-
stjóri Top Shop í Lækjargötu.
Helstu litirnir eru bleikt, blátt,
lillablátt og hvítt og segir Guðný
stelpurnar líka hrifnar af toppum
við pils. Pilsin ná niður að hnjám
eða niður á miðja kálfa og topp-
arnir til dæmis með stuttum erm-
um, örlítið flegnir og bundnir að
aftanverðu. Blúnduhanskar í sama
dúr og hanskamenning níunda ára-
tugarins hafa rutt sér rúms í ferm-
ingartískunni að þessu sinni, sem
og netsokkabuxur, að vísu
hvítar, ljósbláar og ljósbleikar.
Við fötin velja stelpurnar síðan
aðallega opna bandaskó, bæði
þykkbotna og með hæl, og eru
þeir einkum lillabláir og
svartir.
Vinsælasta samsetning-
in er kjóll við buxur og
segir Sigrún svo virðast
sem mömmur ferm-
ingarbarnanna fái að
ráða talsvert meiru
um fatavalið en hún
hefði haldið. „Ætli
hlutföllin séu ekki 50/
50 hvað þetta varðar,“
segir hún.
Helstu aukahlutirnir eru
spennur í hárið, blómanælur
í föt og litlar, bleikar töskur,
sem einhverjar kváðust ætla
að hafa sér til fulltingis í
kirkjunni.
Notagildið haft í fyrirrúmi
Fermingardrengirnir eru í
þríhnepptum jakkafötum,
ljósgráum og svörtum með
beinum buxum, en skyrturnar í
bjartari litum. Svo sem bleiku,
dökkfjólubláu, ljósbláu og hvítu,
og bindi höfð í sama lit.
Við jakkafötin eru þeir stund-
um í venjulegum spariskóm en
líka í kamellitum hjólabrettas-
kóm eða strigaskóm úr leðri í
alls kyns litum.
„Mér finnst margir vera að
hugsa um notagildið og reyna að
velja föt sem þeir geta verið í síð-
ar, í sitt hvoru lagi og við önnur
tækifæri,“ segir Sigrún Guðný að
lokum.
Morgunblaðið/Golli
Buxnakjólar, blúndu-
hanskar og bleikar töskur
Fermingarstelpurnar eiga kost á litríkum fötum að
þessu sinni, segir Sigrún Guðný Markúsdóttir í Top
Shop. Mikið er um ermalausa kjóla og eins toppa
og pils fyrir dömurnar. Herrarnir eru síðan í jakkaföt-
um en í leðurstrigaskóm eða hjólabrettaskóm.
Dömurnar kjósa
ermalausa kjóla,
ýmist við síðbuxur
eða sokkabuxur.
Pils og toppar eru
einn möguleiki,
líka blúnduhanskar
frá síðustu öld og
litlar töskur.
Fermingarherrarnir velja
jakkaföt, litfagrar skyrtur
og bindi og leðurstrigaskó.
18 C LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Vorvörur
Mikið úrval
Stærðir 36-52 (S-3XL)
Skyrta 5.580
Toppur 1.420
Pils 4.780
Sandalar 3.660
Opið
virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 10-14.
FERMINGARTÍSKAN
Ef varan fæst
ekki í búðinni
þá færðu
hana úr
pöntunar-
listunum.
Listarnir á
1/2 virði núna
Austurhrauni 3, Gbæ., Hf.
sími 555 2866
Ódýrara
en erlendis
GRUNNURINN að ómót-
stæðilegum kaffisopa er ný-
brennt og ilmandi kaffi. Með-
höndlun kaffisins er álíka
mikilvæg og valið á kaffi-
baununum og rétt geymsla,
mölun og
uppáhelling
á kaffinu
tryggir
kaffiunn-
endum ljúf-
fengan
bolla. Í
fyrsta lagi
er nauðsyn-
legt að
nota rétta mæliskeið, sem er
um það bil 10 grömm og
skeiðin sem kaffimeistarar
um heim allan mæla með. Ef
sjálfvirk kaffikanna er notuð
er best að hitastig vatnsins
sé 96 gráður þegar það renn-
ur gegnum kaffið. Hlutföllin
eru fimm mæliskeiðar á móti
hverjum lítra lindarvatns (í
átta bolla). Best er að hella
kaffinu strax á kaffibrúsa
sem hefur verið hitaður með
heitu vatni fyrst. Hið eina
sem þarf að spá í að þessu
loknu er með hverju á að
bera fram kaffið. Bragðmikið
kaffi hentar vel eftir mat og
mildara kaffi með kökum og
sætabrauði.
Úr upplýsingabæklingi
Kaffitárs.
Ein leið til
þess að hella
upp á könnuna
Ljósmynd/ÁS