Morgunblaðið - 24.03.2001, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 C 21
séu þeir menn sem taka megi til
fyrirmyndar um hvernig nálgast
skuli Krist. Þeir varpi á hann eng-
um skugga en lýsi leiðina til hans.
Sakramenti er verknaður sem
látinn er tákna nærveru Krists,
nokkuð sem hann er sagður hafa
látið eftir sig á jörðinni til að auð-
velda mönnum að nálgast sig.
Sakramenti kaþólskra eru sjö en
lútherskir telja sig aðeins finna
tveimur þeirra stað í máli Jesú
Krists. Skírnin og altarissakra-
mentið eru þau tvö sem bæði kaþ-
ólskir og lútherskir iðka. Hin sér-
kaþólsku eru: Ferming, hjónavígsla,
prestsvígsla, sakramenti sjúkra og
sakramenti iðrunar (skriftir). Lúth-
eri fannst sjálfum flest sakramenti
kaþólskra góðir siðir og skriftir
tíðkuðust lengi innan lútherskrar
kirkju. En hann neitaði að telja at-
hafnirnar til þeirra sakramenta sem
Kristur fyrirlagði.
Sakramenti eru óafturkallanleg
fyrir Guði. Því verður hjónavígsla
ekki afturkölluð í kaþólskri kirkju,
með öðrum orðum hjónaskilnaðir
eru bannaðir. Þeir eru hins vegar
heimilaðir í lútherskum sið. Mun-
urinn er þó að vísu ekki alveg svo
skýr; ef sýnt þykir að heit hafi ekki
verið gefið af heilindum, við kaþ-
ólska hjónavígslu, má ógilda vígsl-
una.
Hreinsunareldurinn
Þeir menn eru til, samkvæmt
kaþólskum, sem eru syndugir en
eru þó ekki allar bjargir bannaðar;
þeir munu eiga kvalafulla vist í
hreinsunareldinum til að hreinsast
af syndum sínum eftir dauðann, en
fá þar eftir að lifa með Guði. Lúth-
erskir finna enga stoð í ritningunni
fyrir hugmyndunum um hreinsun-
areldinn og hafna þeim því.
Ýmsir aðrir siðir sem fylgja hinni
kaþólsku kirkju vegna hefðarinnar
hafa verið niður lagðir meðal lúth-
erskra, til dæmis að konur fái ekki
gegnt prestsembætti.
Margir guðfræðingar hafa starf-
að í langri sögu kaþólsku kirkj-
unnar og greint á um margt. Sama
má segja um hinn lútherska söfnuð.
Þannig eru til margar misjafnar út-
leggingar, ekki aðeins á Biblíunni,
heldur og á Biblíuskilningi Lúthers.
Það sem hér fór á undan er vonandi
nokkuð sem flestir útleggjendur
myndu þó fallast á.“
[Heimild: Vísindavefurinn. Birt með
leyfi. Millifyrirsagnir eru blaðsins.]
LÚTHERSKIR OG KAÞÓLSKIR
1', ;
<
2!
2
(
2
,
,
%
4
2/
!,
,
,
%
'),
!,
,
,
%
=
'
>,
*
+'
!,
,
,
%
+
!
,>
,
*+
'!
,
,
,
%
$
,
,
%"
52
22
4
$
,
,
%
!,
,
,
%
?
!2
!@
'
!
,
,
,
%
1
<
2)!
,
,
,
%
A*
)+
<!
,
,
,
%
!
2
)
!
,
,
,
%
), A(!"! )!,,,%"
&
0!
!
1
!
"
!
+. 0