Morgunblaðið - 24.03.2001, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MARS 2001 C 23
GAMAN OG ALVARA
Í fermingarundirbúningi vill margt
skemmtilegt gerast, eins og þeir
lesendur eflaust kannast við sem
hafa gengið þann veg.
Í bókunum „Þeim varð á í mess-
unni“ og „Þeim varð aldeilis á í
messunni“, sem innihalda gam-
ansögur af íslenskum prestum, er
að finna nokkur dæmi af þeissum
toga og er sumt af því birt hér að
neðan. En það hins vegar sem ekki
er að finna í nefndum bókum hafa
klerkar látið blaðinu í té og eru þeim
hér með færðar þakkir fyrir. Allt eiga
þetta að vera atburðir sem gerðust í
raun og veru.
-----------------------
Sr. Sigurður Norland var m.a.
prestur í Tjarnarprestakalli í Vestur-
Húnavatnssýslu. Hann var eitt sinn
að uppfræða börn fyrir fermingu.
Lagði hann ríkt á við þau að iðka
bænina og sagði: „Þið eigið að biðja
til guðs á hverjum degi. Það geri
ég.“
Síðan bætti hann við: „En þegar
eitthvað bjátar á, þá gríp ég til
minna ráða...“
-----------------------
Presturinn á Djúpavogi var búinn
að útskýra gang fermingarathafn-
arinnar margítrekað fyrir þeim ung-
mennum sem áttu að fermast um
vorið. Og sérstaklega hafði hann
farið í gegnum atferli þeirra við grát-
urnar. Þau áttu bara að segja einu
sinni „já“, þegar hann spurði: „Vilt
þú leitast við... o.s.frv.“ og ekkert
umfram það. Þetta skildu auðvitað
öll fermingarbörnin. En svo þegar að
athöfninni sjálfri kom, varð spennan
minninu yfirsterkari hjá einum
drengnum, því um leið og hann er
búinn að krjúpa og prestur tekur í
hönd hans og segir: „Friður sé með
þér,“ hrekkur ósjálfrátt út úr þeim
stutta, svo að hljómar um alla
kirkju: „Já, sömuleiðis!“
-----------------------
Annar prestur fyrir austan var að
reyna að fræða nokkur ungmenni
um kristna trú, enda leið þá óðum
að fermingu. Þetta gekk heldur
treglega, og þá sérstaklega með
einn piltinn, sem alls ekki virtist
með á þessum flóknu nótum. Loks
var presti nóg boðið. Og til að gefa
honum nú kost á að svara einhverju
rétt, spurði hann: „Segðu mér nú
eitt, vinur. Hvort erum við kristinnar
trúar, búddatrúar eða múham-
eðstrúar?“
Pilturinn varð þungt hugsi um
stund, en leit svo á prestinn og
sagði, hikandi og með spyrjandi
augnaráði: „Múhameðstrúar...?“
-----------------------
Í fermingarmessu var lítill dreng-
ur sífellt að spyrja móður sína um
ýmislegt sem fyrir augu bar. Móðirin
sussaði ítrekað á hann, með heldur
litlum árangri þó. Síðast sagði hún:
„Það er bara presturinn sem má
tala.“ Þá hrópaði sá stutti: „Þá ætla
ég sko að verða prestur!“
-----------------------
Að lokinni fermingu í Grafarvogs-
kirkju er það venja að stillt er upp
fyrir hópmynd af fermingarbörnum
ásamt presti. Eitt sinn, þegar verið
var að undirbúa slíka myndatöku,
varð sr. Vigfúsi Þór Árnasyni á að
segja: „Bíðið aðeins. Ég þarf að
laga hárið.“ Þá heyrðist í einum
fermingardrengnum: „Það er nú
ekki mikið að laga.“
-----------------------
Fermingardrengur einn í höf-
uðborginni, sem var að fara með
trúarjátninguna fyrir prest sinn,
ruglaðist aðeins í ríminu og sagði
án þess að blikna: „Ég trúi á heil-
agan anda, heilaga almenna kirkju,
samvinnufélag heilagra...“
-----------------------
Og að lokum þetta. Einu sinni
áttu nemendur sr. Árelíusar Níels-
sonar að skrifa trúarjátninguna eftir
minni. Það varð öllu verra hjá einum
drengum, en þeim sem ruglaðist í
sögunni hér á undan, því hann skrif-
aði: „Kristur var getinn af Pontíusi
Pílatusi, píndur undir Maríu mey,
steig á þriðjudögum til heljar...“
„Sam-
vinnufélag
heilagra“
Töluverðar rannsóknir hafa verið
gerðar í nágrannalöndum á trú og
lífsskoðun unglinga. Hér á landi hef-
ur hins vegar ekki farið mikið fyrir
slíkum rannsóknum.
Skólaárið 1996-97 hófst ég handa
við að kanna trúarviðhorf, trúariðk-
un og trúarskilning barna og ung-
linga í þrem árgöngum grunnskóla,
þ.e. 5., 7. og 9. bekk. Við val á ár-
göngum var miðað við að eitthvert
nám hefði farið fram í kristnum
fræðum (5. bekkur), að börnin stæðu
á mótum hlutbundinnar og óhlut-
bundinnar hugsunar samkvæmt
kenningum innan þróunarsálarfræði
(5. og 7. bekkur) og að um væri að
ræða aldurshópa fyrir og eftir ferm-
ingu (7. og 9. bekkur)... Úrtakið var
svokallað klasaúrtak...
Úrtakið varð 1.311 börn eða rúm
400 úr hverjum árganganna þriggja.
Spurningalistar með 40 spurningum
voru síðan lagðir fyrir í þeim þrettán
skólum sem lentu í úrtakinu og skil-
aði sér 1101 svar eða 84% af úrtaki...
Fyrsti hluti rannsóknarinnar
snerist um að gera sér mynd af
guðstrú og guðsmynd barnanna og
unglinganna og hvaða gildi trú á Guð
hefur í þeirra huga.
[Úr rannsókn Gunnars J. Gunn-
arssonar lektors í Kennaraháskóla
Íslands, á trú og trúariðkun barna og
unglinga. Greinin birtist í heild sinni
í Bjarma 1. tbl. 1999.]
F'"$"$="$!52'D
E
# ?2,,
' 2'
67,,"
67,,"
67,,"
Unglingar og trú
Útsölustaðir:
Reykjavík: Verslanir Hans Petersen, Myndval í Mjódd, Beco ehf. Kópavogur: Hans Petersen. Garðabær: Framköllun Garðabæjar ehf.
Hafnarfjörður: Filmur & Framköllun. Keflavík: Verslunin Hljómval. Vestmannaeyjar: Bókabúðin - Penninn. Selfoss: Hans Petersen. Akureyri: Pedromyndir.
Sauðárkrókur: Bókabúð Brynjars. Ísafjörður: Penninn - Bókaverslun Jónasar Tómassonar ehf. Akranes: Penninn - Bókabúð Andésar Nielssonar.
www.hanspetersen.is
LJÓSMYNDANÁMSKEIÐ
FYLGIR HVERRI MYNDAVÉL
R
Ú
N
A
Falleg hönnun, stór skoðari og
stórir stjórntakkar.
Góð vél fyrir byrjandann
Verð: 6.690
C a n o n P R I M A B F - 9 S
Léttasta APS vélin (aðeins 115g).
Álíka stór og hefðbundið greiðslukort.
Einföld og meðfærileg.
Tilboðsverð: 11.900.- með tösku.
C a n o n I X U S M 1
Nýjasta Ixus myndavélin
með aðdráttarlinsu. Hlaut hin
eftirsóttu EISA verðlaun 2000-2001
í flokki APS myndavéla. Fjölmargir
möguleikar í myndatöku.
Tilboðsverð: 17.990.-
C a n o n I X U S Z 5 0
Falleg og stílhrein myndavél á
frábæru verði. Fer vel í hendi og
er einföld í notkun. Aðdráttarlinsa
fyrir nærmyndir sem og landslags-
myndir. Canon taska fylgir.
Tilboðsverð: 12.390-
(13.990.- með dagsetningu).
C a n o n P r i m a Z o o m 7 6